Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR12. APRlL 1985.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Hoxha leiðtogi
Albaníu látinn
Albanía syrgir leiötoga sinn, Enver
Hoxha, sem andaðist í gær af hjarta-
slagi, 76 ára að aldri. Hann stýrði
þessu laumuríki Balkanskagans í fjóra
áratugi með stalínismann að fyrir-
mynd en rauf tengsiin viö sovéska
kommúnista þegarKrúsjeff afhjúpaði
stalínismann og síöar einnig við kín-
verska kommúnista þegar þeir opnuðu
vesturgluggann.
Fánar voru víðast í hálfa stöng í
höfuðborginni Tírana í morgun og
fánaborg á Skanderbeg-torgi, þaðan
sem útför Hoxha verður gerð á
mánudag.
Ramiz Alia, forseti Albaníu, var
valinn formaður útfararnefndar sem
þykir vísbending um að hann veröi
eftirmaður Hoxha sem leiðtogi
kommúnistaflokks Albaníu.
Enver Hoxha, leiðtogi Albaníu og sá
leiðtogi kommúnista sem lengst hefur
verið við völd í heiminum eða í fjóra
áratugi.
Hoxha hefur stýrt Albaníu síðan
1944 þegar hann var leiðtogi and-
spyrnuhreyfingarinnar og skæruliða
gegn hernámi Þjóðverja og Itala.
Hann hefur stjórnaö með harðri hendi
og hafa samstarfsfélagar hans, sem
sumir fylgdu honum allar götur frá
striðsárunum, ekki allir orðið
ellidauðir.
Dánartilkynningin fékk engin
viðbrögð í Moskvu eða Peking þar sem
tíöindin voru sögð umsagnariaust.
— Grikkland, sem í orði kveðnu á
enn í stríði við Albaníu síðan í síðari
heimsstyrjöldinni, sendi sínar
„einlægustu samúðarkveöjur”.
I valdatiö Hoxha hefur Albanía veriö
algerlega einangrað land og þangaö
leyföist fáum erlendum gestum að
koma. Ríkti yfirleitt mikil leynd um
innanlandsmálin.
Hoxha hrósaði sér af því að Albanía
væri eina kommúnistaríkið sem meö
öllu heföi útrýmt trúariðkunum. Prest-
ar höfðu flestir verið drepnir, eða
hnepptir í fangelsi, hvort heldur
kristinnar trúar eða múhameðs.
Moskum og kirkjum hafði verið breytt
í kvikmy ndahús eða vöruskemmur.
Síðari árin hefur Hoxha lítið haft sig
í frammi opinberlega, en Alia forseti
axlað æ fleiri störf leiðtogans. Fyrir
tilstuölan Alia hefur Albania þreifaö
fyrir sér um diplómatatengsl við Italíu
og Grikkland ogaukin viðskipti.
Gervihjartaþegi
að verða f rískur
CARTER VILL AÐ
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
araDVíSvíþjóð:
Leif Stenberg, Svíinn, sem á páska-
dag fékk grætt í sig plasthjarta, er
sagður viö góöa líöan. I gær settist
hann upp í rúminu og borðar nú þegar
venjulegt sjúkrahúsfæði.
„Engin vandamál hafa komið í ljós.
Þvert á móti hefur starfsemi lifrar og
nýma þegar batnað nokkuð,” sagði
Bjame Semd, norski læknirinn sem
stjómaöi aðgerðinni.
Maria hélt því leyndu fyrir sjón-
varpsáhorfendum að hún er blind.
Fáirvissuþað
Eftir að sönglagakeppnin á
Irlandi um réttinn til að keppa í
Eurovision-söngvakeppninni í
næsta mánuði hafði farið fram kom
það Irum á óvart að sigurvegarinn,
Maria Christian (19 ára), reyndist
biind. Hún mun keppa fyrir Irland
(Irska lýðveldið í suöri) með laginu
„Wait until the Weekend”.
Hommaathvarf
Borgarstjóm Lundúna opnaði
um páskana fyrsta sérlega athvarf
homma og lesbía þar í borg.
Athvarfið er í fimm hæða vöruhúsi
sem borgarstjórnin lét endumýja.
I byggingunni er sérstakt svæði
fyrir lesbískar mæður, kvennaher-
bergi þar sem karlar mega ekki
koma, aðstaða tii frainköllunar
ljósmynda, bar, kaffihús og
diskótek.
„Kynhverfir gátu ekkert farið í
Lundúnum þar sem þeir máttu
ekki eiga von á að verða fyrir að-
kasti og móðgunum,” sagði séra
Richard Kirker sem er í stjórn
hússins.
REAGAN FRAM-
LENGISALTII
Óskar Magnússon, DV, Washington.
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hvatti Reagan Banda-
ríkjaforseta nýlega til að framlengja
Salt II sáttmálann um kjarnorkuvopn
þegar sáttmálinn rennur út 31.
desember. Carter sagði að ef það yrði
ekki gert mundi það hafa mjög
neikvæð áhrif í heiminum og sýna að
áhugi okkar á samningum um afvopn-
un væri ekki einlægur. Það var Carter
sem samdi og undirritaði Salt II sátt-
málann 1979 ásamt Leonid Bresnev
sem þá var aðalritari í Sovétríkjunum.
Carter sagðist ekki telja að það
þyrfti að vera niðurlægjandi eða ó-
þægilegt fyrir stjórn Reagans að
framlengja sáttmálann jafnvel þó
Reagan hefði stöðugt verið andvígur
sáttmálanum á sínum tíma vegna þess
að á sl. fjórum árum hefur stjóm
Reagans stöðugt verið hvött til þess af
ýmsum aðilum að framlengja sam-
komulagið.
Reagan hefur hins vegar neitað að
svara því hvort Bandaríkin muni
framlengja þennan sáttmála þegar
nýja kjarnaflaugin verður tilbúin
seinna á þessu ári. Ef standa ætti við á-
kvæði sáttmálans þyrfti stjórnin að
eyðileggja eldri vopn í staðinn fyrir
nýju MX-flaugina.
Carter var hér í Washington til að
greiða fyrir sölu á nýrri bók eftir sig
sem var að koma út um Miðaustur-
lönd. Hann lét hafa þetta eftir sér á
blaöamannafundi í tilefni útkomu
bókarinnar.
Carter fyrrum forseti er nú farinn að
láta heyra í sér varðandi alþjóða-
stjórnmál. Hann hætti við smíði MX
flaugarinnar sem Reagan vill smíða.
NÝTTLYF
GEGN BLÓÐTAPPA
Læknir við Harvard-háskóla hafa
búið til tilraunalyf sem hefur reynst
tvisvar sinnum áhrifameira við að
leysa upp blóðtappa í hjarta en það lyf
sem áður hefur verið notaö. Þetta nýja
lyf er framleitt með lífefnafræðilegum
aðferðum.
Þegar 122 sjúklingum sem höfðu
fengið hjartaáfall var gefið lyfið leyst-
ist blóðtappinn upp í 66 prósent tilfella.
Sjúklingamir sem fengu gamla lyfið,
Streptokinase, voru ekki eins heppnir.
Það var aöeins í 36 prósent þeirra sem
blóðtappinn leystist upp.
SUNNY
NISSAIM SUNIMY Coupe 1.5GL
Með Nissan Sunny færðu bókstaflega alla þá aukahluti sem þú verður að panta sérstak-
lega í aðra bila, t.d. upphituð framsæti, útvarp, tölvuklukku, snúningshraðamæli, öryggis-
belti fyrir fimm, þriggja hraða miðstöð, rafhitaða afturrúðu með rúðuþurrku og rúðu-
sprautu, þurrkur á framljósum, hliðarrúður að aftan opnast með tökkum úr framsæti,
farangursgeymsla og bensínlok eru opnanleg út ökumannssæti og m.fl.
Vélin er 83 hestöfl, 1500 cc. Sunny er auðvitað framhjóladrifinn og fimm gíra eða sjálf-
skiptur. MUNID BÍLASÝNINGAR OKKAR UM HELGAR KL. 14-17.
li INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.