Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1985, Side 16
16
DV. FÖSTUDAGUR17. MAI1985.
Spurningin
Tekur þú íslenskar
iðnaðarvörur fram
yfir erlendar?
Steinunn Guðmundsdóttir húsmóðir:
Það fer eftir verði og gæðum. Yfirleitt
finnast mér íslensku vörurnar standa
sig í samkeppni við þær erlendu.
Auður Tryggvadóttir fóstra: Ekkert
frekar. Eg ber gæðin saman og ef ís-
lensku vörurnar eru ekki síðri þeim er-
lendu þá tek ég þær fram yfir.
Andrés Ólafsson bifvélavirki: Nei, það
geri ég ekki. Mér finnst þær standa sig
mjög misjafnlega í samkeppni viö er-
lendar vörur.
Anna Olafsdóttir húsmóðir: Yfirleitt
geri ég það. Mér finnast þær tvímæla-
laust sambæi Jegar viö aðrar vörur.
'f-
Sigurgeir Snæbjörnsson heildsali: Það
er ýmist. Yfirleitt standa þær sig vel
gagnvart erlendum vörum, eru fylli-
lega sambærilegar.
Hlif Bjömsdóttlr verslunarmær: Eg
pæli ekkert sérstaklega í því, ég læt
verðiðráða.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Hvaöa innlent fjármagn
í vegaframkvæmdir?
Vegmöður skrifar:
Enn einu sinni eru uppi vangavelt-
ur um vegaframkvæmdir í landinu
og nú vegna tilboös Hagvirkis um að
flýta vegalagningu með bundnu slit-
lagi norður í land.
Fljótt á litið virðist sem slíku til-
boði beri að taka og er ríkisvaldið
enn og aftur átalið fyrir að ganga
ekki að tilboði fyrirtækisins og nýta
þar meö vélakost þess, úr því önnur
verkefni, sem það hefur verið að
vinna að með tækjum sínum, liggja í
láginni.
Og vissulega er þaö illt að bægja
burt svo stóru fyrirtæki, jafnvel úr
landi, með tæki sín og þekkingu.
Allt tal um aö smærri aðilar og
fleiri séu heppdegri til verksins er
auðvitað út í bláinn. Og umsagnir al-
þingismanna um að „kjördæmin öll
eigi að fá að sitja að slíkum fram-
kvæmdum eru auövitaö óráðshjal
sem ekki er mark á takandi.
Það er heldur ekki þetta sem um er
deilt, hvort einhverjir aörir eigi að fá
verkefnið og þá margir, smærri aðil-
ar, bara til að „spreyta sig”, eins og
þingmönnum dettur kannski í hug.
Enda eru þeir þingmenn engir fjár-
málamenn og allra síst þegar þjóðar-
búiö á í hlut.
Þaö er fjármagniö sem deilt er um,
það vantar. Og það sem ekki má tala
um, nema í hálfum hljóðum, er að
hér er ekki hægt að afla neinna fjár-
muna á innlendum markaði fyrir
slíka stórframkvæmd sem vegagerð
til Akureyrar er.
Ef farið væri að ráði Hagvirkis um
að afla fjár meö innlendu skulda-
bréfaútboði, væri það í beinni sam-
keppni við ríkið sjálft. — Hvað yrði
um sölu ríkisskuldabréfanna, hvaö
yrði um greiðslubyrði ríkisins?
Þar sem enga umframf jármuni er
í,að gangahjá almenningi, myndi
þessi vegaframkvæmd hvort eð er að
öllu leyti lenda á ríkiskassanum.
Þetta er mergur málsins. A inn-
lendum „samskotum”, sem svo má
kalla þessa ímynduðu fjármögnun,
er ekkert að byggja, nákvæmlega
ekkert.
Því yrði að taka erlent lán til slíkra
framkvæmda, sem hér um ræðir,
hvernig sem á málið er litið.
Myndir af Íslandsmeisturum i vaxtarrækt sem vaxtarræktaráhugamaður
saknaði: Sigurður Gestsson sigurvegari f — 80 kg flokki karla og Ása Kristín
Árnadóttir —52 kg flokki kvenna. Þvi miður voru ekki til betri myndir af
þeim.
Vaxtarræktarmót:
Vaxtarræktaráhugamaður hringdi:
Fyrir stuttu birti DV myndir frá Is-
landsmeistaramótinu í vaxtarrækt.
Birtar voru myndir af nokkrum Is-
landsmeistaranna en ekki af öllum. Eg
er mjög óhress með þetta og kysi að
það væri ekki gert svona upp á milli
fólks.
VANTAÐIMYNDIR
Brófritari er óhress yfir beinni útsendingu sjónvarps sem fyrirhuguð er frá
Vatikaninu í Róm innan skamms.
Segjum nei við „páfaútsendingu’’
Questor skrifar:
Hvers vegna í ósköpunum ætlar sjón-
varpið að sýna beint frá einhverri at-
höfn páfans í Róm? Af því að útsend-
ingin fæst ókeypis? Hún ríður ekki við
einteyming smekkleysa forráðamann
Ríkisútvarpsins. Ut á við er framkoma
þessarar stofnunar eins og vesællar
betlikellingar. Brátt munu hinir ýmsu
áhrifavaldar falbjóða áróður sinn án
endurgjalds, ráðstjómarríki, fram-
leiðendur neysluvöru og hugmynda-
sölumenn. Þjóðin er á góðri leið með að
verða leiksoppur auglýsinga fari svo
sem horfir. Sjónvarpið er þjónustufyr-
irtæki. Þvi er ætlað að mæta kröfum
áhorfenda. Þó svo að framboð sé á ein-
hverju sjónvarpsefni er ekki þar með
sagt aö eftirspum sé fýrir hendi, en
þaö er hún og ekkert annaö sem á aö
ráða dagskrá íslenska einokunarsjón-
varpsins. Segjum því „nei” við „páfa-
útsendingu”.
Strætóskýli
semnáðhús
tbúi Vatnsendahverfis hringdi:
Við sem búum í Vatnsendahverfi
þurfum að senda krakkana okkar
langa leið í skóla og sér skólabíll um aö
koma þeim til og frá skólanum. Hér
standa fjögur til fimm biðskýli þar
sem krakkarnir eiga að geta leitað
skjóis þegar þeir bíða eftir vagninum.
Staðreyndin er hins vegar sú að enginn
hættir sér inn í skýlin lengur. Hesta-
menn sem eru á ferð um þetta svæði
svo til allan sólarhringinn nota skýlin
sem náöhús fyrir skepnur sinar þannig
aö það er ólíft inni í þeim. Við höfum
kvartað yfir þessu við heUbrigðisyfir-
völd og lögreglu en ekkert breytist.
Hestamenn ættu að vera vandari aö
virðingu sinni en þaö aö hrekja börnin
úr strætóskýlunum með þessum hætti.
Daglega fara þúsundir bréfa um hendur starfsmanna póstþjónustunnar.
Skjót og góð þjónusta
Herdis hringdi:
Fyrir nokkru týndist orlofsávísun
sem orlofsdeild Pósts og síma átti að
sjá um að senda til min. Eg ákvað því
að fara á skrifstofu orlofsdeildarinnar
í Armúlanum og bjó mig undir rifrildi
eins og iðulega þegar maður stendur í
stappi við rikisstarfsmenn. Það kom
mér því mjög á óvart að stelpurnar
sem vinna þarna voru duglegar og
hressar og kipptu málum mínum í lag
á skömmum tíma. Mig langar til að
þakka þeim fyrir skjóta og góða þjón-
ustu í öllu því annríki sem þær starfa
vafalaust í. Að lokum vil ég senda sér-
staka kveðju til Alfhildar á pósthúsinu
við Hlemm vegna þessa máls.
Malagafanginn:
Móttöku fjárframlaga
lokið
DV hefur um skeið tekið við
bréfum og fjárframlögum sem
þeim hafa fylgt til styrktar fang-
anum í Malaga. Eins og DV hefur
áður skýrt frá var móttöku slíkra
fjárframlaga hætt 15. maí. Það fé
sem borist hefur verður sent til
íslenska konsúlsins í Malaga.