Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1985, Blaðsíða 32
44
DV. FÖSTUDAGUR17. MAl 1985.
m
TÓNLISTARKENNARAR
Tónlistarskóli Dalvíkur óskar eftir að ráða kennara við
skólann frá 1. sept. nk.
Æskilegar kennslugreinar eru píanó- og söngkennsla, en
aðrar kennslugreinar koma þó einnig til greina.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Colin P. Virr, í síma
96-61647 og 96-61493.
Tónlistarskóli Dalvíkur.
FJÖLBRAUTASKÓUNN
BREIÐHOUI
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOLTI
Innritun í Fjölbrautaskólann í Breiðholti fer fram í Mið-
bæjarskólanum í Reykjavík dagana 3. og 4. júní næst-
komandi kl. 9.00—18.00 svo og í húsakynnum skólans
við Austurberg dagana 5.-7. júní á sama tíma. Fer þá
fram innritun í dagskóla og öldungadeild. Umsóknir um
skólann skulu að öðru leyti hafa borist skrifstofu stofnun-
arinnar fyrir 10. júní. Þeir sem senda umsókn síðar geta
ekki vænst skólavistar. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býð-
ur fram nám á sjö námssviðum og eru nokkrar náms-
brautir á hverju námssviði.
Svið og brautir eru sem hér segir:
Almennt bóknámssvið: (menntaskólasvið). Þar má
velja milli sex námsbrauta sem eru: Eðlisfræðibraut,
félagsfræðibraut, náttúrufræðibraut, tónlistarbraut,
tungumálabraut og tæknibraut.
Heilbrigðissvið: Tvær brautir eru fyrir nýnema: Heilsu-
gæslubraut (til sjúkraliðaréttinda) og hjúkrunarbraut, en
hin síðari býður upp á aðfaranám að hjúkrunarskólanum.
Þá eru framhaldsbrautir til stúdentsprófs.
Hússtjórnarsvið: Þrjár brautir verða starfræktar: Mat-
vælabraut I er býður fram aðfaranám að Hótel- og
veitingaskóla Íslands og matvælabraut II er veitir réttindi
til starfa á mötuneytum sjúkrastofnana (matartækna-
nám) og matarfræðingabraut.
Listasvið: Þar er um tvær brautir að ræða: Myndlistar-
braut, bæði grunnám og framhaldsnám, svo og hand-
menntabraut er veitir undirbúning fyrir Kennaraháskóla
íslands.
Tæknisvið: (Iðnfræðslusvið.) Iðnfræðsubrautir Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti eru þrjár: Málmiðnabraut,
rafiðnabraut og tréiðnabraut. Boðið er fram eins árs
grunnnám, tveggja ára undirbúningsmenntun að tækni-
námi og þríggja ára braut að tæknifræðinámi. Þá er veitt
menntun til sveinsprófs í fjórum iðngreinum: Húsasmíði,
rafvirkjun, rennismiði og vélvirkjun. Loks geta nemendur
einnig tekið stúdentspróf á þessum námsbrautum sem
og öllum 7 námssviðum skólans. Hugsanlegt er, að boðið
verði fram nám á sjávarútvegsbraut á tæknisviði
næsta haust ef nægilega margir nemendur sækja um þá
námsbraut.
Uppeldissvið: Á uppeldissviði eru þrjár námsbrautir í
boði: Fósturfræðabraut, íþrótta- og félagsbraut og fjöl-
miðlabraut. Það er sameiginlegt brautum sviðsins að taka
mið af þörfum þeirra er hyggja á háskólanám til undirbún-
ings kennslustörfum, félagslegri þjónustu, sálfræði og
fjölmiðlafræðum.
Viðskipasvið: Boðnar eru fram fjórar námsbrautir: Sam-
skipta- og málabraut, skrifstofu- og stjórnunarbraut,
verslunar- og sölufræðabraut og loks læknaritarabraut.
Af þrem fyrrnefndum brautum er hægt að taka almennt
verslunarpróf eftir tveggja ára nám. Á þriðja námsári
gefst nemendum tækifæri til að Ijúka sérhæfðu verslunar-
prófi í tölvufræði, markaðsfræðum og reikningshaldi.
Læknaritarabraut lýkur með stúdentsprófi og á hið sama
við um allar brautir viðskiptasviðs.
Nánari upplýsingar um Fjölbrautaskólann í Breiðholti má
fá á skrifstofu skólans að Austurbergi 5, sími 75600. Er
þar er hægt aðfá bæklinga um skólann og Námsvísi F.B.
Skólameistari.
<
Sviðsljósið
Collins-
systur
Systurnar Jackie og Joan Collins
hafa sannarlega vakið á sér athygli á
síöustuárum.
Joan varð fyrst fræg fyrir alvöru í
Dynasty þáttunum frægu, svo fræg að
stúlkan mátti ekki snúa sér við eða líta
á annan karlmann ef sagan átti ekki aö
vera orðin fyrirsögn daginn eftir. /
Jackie, yngri systirin, er ekki þekkt
fyrir leik sinn á hvíta tjaldinu né fyrir
jjað eitt að vera systir Dynasty stjöm-
unnar. Jackie er frambærilegur rit-
höfundur, hefur a.m.k. selt grimmt
þær niu bækur sem hún hefur skrifað.
Nýjasta bókin, kallast á frummálinu
Hollywood Wives, dramatískar lýs-
ingar á rómantík, ástum og framhjá-
haldi í kvikmyndaborginni frægu. Þær
systur eru að sögn mjög góðar vinkon-
ur og sambandið alla tið verið náið, þó
auðvitaö séu þær ekki alltaf sammála
umallt.
„Það kemur oft fyrir að ég gagnrýni
systur mína,” segir Jackie,” en guð
hjálpi þeim sem dregur hana ofan í
svaðið ef ég heyri til. ”
Joan er talin sæmilega pennafær
líka, hefur a.m.k. sent frá sér bók,
Past Imperfect, um svipað þema og
bækur yngri systurinnar, sem selst
hefurágætlega.
„Ég er nú enginn sérstakur rithöf-
undur," segir Joan. „Ég skrifaði
bók mína undir hárþurrkunni, í
flugvélum eða sitjandi á rúminu
mínu umvafin litlum krökkum."
Jackie Collins er hinn frambærileg-
asti rithöfundur, sórstaklega hafa
menn vel kunnað að meta opinská-
ar lýsingar á ástarsenum söguper-
sóna.
f
Carmen i klippingu. Nú gefst hundaeigendum kostur á að koma með
hvutta sina i böðun og klippingu til Sonju Felton og Kristjönu Einarsdóttur,
sú til hægri, sérfræðinga f hundasnyrtingu. Það er tikin Carmen sem hér er
fagmannlega klippt og pússuð af þeim stallsystrum. Ljósm. KAE.
Snyrti-
sérfræö-
ingarí
hundana
Nýlega var opnuð sérstök snyrtistofa
fyrir hunda að Reynilundi 2 í Garðabæ.
Stefnumót sf. heitir hið nýja fýrir-
tæki og er rekið af Kristjönu Einars-
dóttur og Sonju Felton.
Að sögn Kristjönu er hér um
fyrstu snyrtistofu sinnar tegundar að
ræða á Islandi en sambærilegur at-
vinnurekstur hefur lengi verið við lýði
erlendis.
Elísabet Taylor er tíður gestur í sviðsljósi, heimsfræg leikkona og kona ekki
einsömul er karlpeningur er í grenndinni. Eftir að Richard Burton og Beta
hættu samskiptum 1975 byrjaði Beta að sjást með engum öðrum en sjálfum
sendiherra Irana í Bandaríkjunum hér á árunum áður, Ardeshir Zahedi.
Zahedi þessi var víst kunnari í diplómataborginni Washington fyrir uppákom-
ur í virðulegum veislum og að sjást í fylgd fagurra meyja en fyrir stjórnar-
erindrekstur í þágu heimalandsins.
Sambandið gekk svo langt að Beta flutti m.a. til vinarins í sendiráðið.
Þjónustufóikið í sendiráðinu kunni sérstaklega vel að meta Betu vegna þess
hve örlát hún var á þjórféð, enda auðvitað stjanað við hana nótt sem nýtan
dag. Ekki stóð sælan lengi, eftir nokkurra mánaöa ástarævintýri var sælan
úti og Elísabet flutti út. A myndinni sjáum við Betu og sendiherrann á meðan
allt lék í lyndi.