Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1985, Qupperneq 36
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir'
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krönur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 17. MAl 1985.
Reykjavík:
Sjómenn
í verkfalli
Verkfall hefst í dag í Sjómanna-
félagi Reykjavíkur. Eins og kunnugt
er voru samningar felldir ööru sinni
í Sjómannafélaginu í siðustu viku.
Aðilar hafa haldið einn fund hjá
sáttasemjara en enn virðist bera
mikið á milli.
Enn er óvíst hversu margir bátar
munu stöðvast af völdum verkfalls-
ins. Enn eru fjölmargir bátar á veið-
um og búast má við að togarar
stöðvistfljótlega. APH
Skógræktríkisins:
Starfsmenn
fverkfall
I dag og á morgun hef jast verkföll
hjá starfsfóUti Skógræktar ríkisins.
AUs höfðu fjögur verkalýðsfélög
boðaðverkföll.
Undanfarið hafa staðið yfir
samningaviðræður mUU aðUa. Þær
hafa snúist um samninga fyrir það
starfsfólk sem mun starfa hjá Skóg-
ræktinni í sumar. Aætlað er að það
sé um 50 manns. Fæstir af þessum
starfsmönnum haf a hafiö störf.
Einar Þór Einarsson, skrifstofu-
stjóri Skógræktar rikisins, sagði að
hægt yrði að sinna flestum störfum
hjá þeim fram að mánaðamótum.
Þegar kæmi að plöntun yrði áþreif-
anlegur skortur á starfskrafti ef
verkfaUið stæði þá enn.
A mánudag hefur verið boðaður
sáttafundur í deilunni hjá sátta-
semjara ríkisins. -APH.
Skúrirsyðraen
bjartfyrírnorðan
Landsmenn mega búast við þokka-
legu veðri um helgina. Að sögn
veöurfræöinga verður hæg sunnan-
eða suövestanátt um land allt. Gert
er ráð fyrir skúrum á Suðvestur- og
Vesturlandi en bjartviðri annars
staöar.
Meira magn, betri ending.
Haildáölubirgðlr'
glansskol frá
Ásgarðsland dæmt af arf leiðendum:
„Gersamlega ordlaus"
segir skógræktarstjóri ríkisins
„Eg er gersamlega orðlaus á
þessum dómi,” sagði Sigurður
Blöndal, skógræktarstjóri ríkisins, í
samtali viö DV.
A dögunum féll úrskurður í skipta-
rétti þess efnis að andvirði Asgarðs-
lands í Grímsnesi skuli renna til lög-
erfingja Sigurliða Kristjánssonar og
konu hans Helgu Jónsdóttur, en ekki
til arfleiðenda, Skógræktar ríkisins
og Hjartaverndar, sem geröu tilkall
til fjárins. 1 erfðaskrá ánöfnuðu
Sigurliði og Helga Skógræktinni,
Hjartavernd og Reykjavíkurborg
jörðina. Sá síðarnefndi féll frá til-
kallitilfjárins.
„Samkvæmt lögum átti Grímsnes-
hreppur forkaupsrétt að jörðinni og
hann nýtti sér hann,” sagði Sigurður.
„I fyrra samþykkti hreppsnefndin aö
kaupa jörðina og var þá gengið frá
samningum. Var hún metin á um 15
milljónir og töldum við aö andvirðið
ætti að renna til okkar. Erfingjar
Sigurliöa og Helgu voru ekki á sama
máli en þeir eru tíu talsins.”
Aðspurður sagði Sigurður að sú
kvöð hefði fylgt í erfðaskránni aö
landið yrði áfram í ábúð. „Við
höfðum marglýst því yfir að svo yrði
áfram. Hins vegar hefðum við nýtt
hluta þess undir skógrækt, hefðum
við fengiðaðnjóta landsins.”
, .Forsenda úrskurðarins er sú að í
erfðaskránni er ekki getið hver fengi
andvirði jarðarinnar ef sveitar-
félagið nýtti sér kaupréttinn. Það
var taliö ósannaö að féð ætti aö renna
við þær kringumstæður til Hjarta-
verndar og Skógræktar ríkisins,”
sagði Ragnar Hall borgarfógeti er
kvað upp úrskurðinn. „Það kom
mjög á óvart að sveitarfélagið skyldi
nýta sér forkaupsréttinn.”
Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um hvort úrskurðinum
verði áfrýjað en til þess hafa hlutað-
eigandi þrjá mánuði. -KÞ.
Leynir AK-9 var illa farinn eftir eldinn
DV-mynd Haraldur.
Steypugallar í
Höfðabakkabrú
Steypugalli hefur komið fram í
Höfðabakkabrú. „Þetta eru ekki mikl-
ar skemmdir,” sagði Ingi tJ. Magnús-
son, gatnamálastjóri Reykjavíkur, í
morgun. „En það verður að komast
fyrir þetta strax og verður farið í að
gera við skemmdirnar fljótlega. Við
reiknum ekki með miklum kostnaöi við
þetta verk,” svaraði hann aðspurður
um tilkostnaöinn við viðgerðina.
Höfðabakkabrúin, sem er yfir
Elliðaárnar og tengir saman Arbæjar-
og Breiðholtshverfin í Reykjavík, var
tekinínotkunárið!981. -ÞG
Lést í umferdarslysi
Maðurinn sem lést í umferöarslysi í
Norðurárdal í Borgarfirði síðdegis á
miðvikudag hét Ofeigur Baldursson, 45
ára gamaH, til heimilis að Klapparstíg
7 Akureyri. Ofeigur lætur eftir sig konu
og barn.
Að sögn Þórðar Sigurðssonar, yfir-
lögregluþjóns i Borgamesi, var lögregl-
unni tilkynnt um slysið laust fyrir
klukkan 18.00. Voru fimm manns í bíln-
um; ökumaður og 4 farþegar. öku-
maður lést en tveir farþeganna voru
fluttir slasaðir í þyrlu á sjúkrahús í
Reykjavík. Að sögn Þórðar virðist sem
ökumaður hafi misst stjórn á bifreið-
inni i lausamöl þegar komiö var að
beyg junni að brúnni yfir Litluá sem er
næsta brú fyrir norðan bæinn Hvamm í
Norðurárdal.
-EH.
Plastbátur brennur
Fró Haraldl Bjamasyni, Akranesi:
Eldur kom upp í 9 tonna plastbáti,
Leyni AK-9, í höfninni á Akranesi.
Slökkviliðið var kallað að bátnum
um klukkan þrjú aðfaranótt
miðvikudags og var hann þá alelda.
Nokkuö erfiðlega gekk að slökkva
eldinn, sérstaklega vegna mikils og
eitraðs reyks sem lagði upp frá
honum og var einn maöur fluttur á
sjúkrahús vegna reykeitrunar.
Segja má að allt hafi brunnið sem
brunnið gat utan skrokkur bátsins,
en þó var ekki búiö að kanna hvort
hann var skemmdur af hita, þegar
fréttaritari ræddi við Birgi Jónsson,
eiganda Leynis.
Leynir hefur róið meö þorskanet
að undanförnu og fiskað mjög vel, en
afli smábáta héöan frá Akranesi
hefur verið mjög góöur á þessari ver-
tíð. -EH.
i
i
i
i
i
i
i
w
4
Hópuppsagnir
hjá
Securitas:
Fimmtán starfsmönnum Securitas
hf. var sagt upp störfum á dögunum.
Þeir hafa nú allir verið ráðnir aftur
eftir afskipti Dagsbrúnar.
Þegar starfsrnönnum Securitas
var sagt upp, sneru þeir sér til
Þrastar Olafssonar hjá Dagsbrún
þar sem þeir höfðu grun um að hér
Gengu tilbaka eftir
afskipti Dagsbrúnar
væri um ólöglegar uppsagnlr að
ræöa. Það reyndlst rétt þar sem upp-
sagnlrnar höfðu ekki verið tilkynntar
með nógu miklum fyrirvara.
„Þegar fjórum starfsmönnum eða
fleirum er sagt upp hjé fyrirtækl
verður að tilkynna það með ókveðn-
um fyrirvara, Það var ekki gert i
þessu tilfelli. Eftir milligöngu okkar
sættust þvi yfirmenn Securltas á að
ráða mennlna á ný,” sagði Þröstur
Olafsson.
„Þetta snerist um hagræðingu
hér i fyrirtæklnu,” sagðl Jóhann Oli
Guömundsson, framkvæmdastjóri
Securitas. „Við þurftum að iosna við
tvo, þrjá starfsmenn og sögðum þvi
öllum starfsmönnum upp sem höfðu
mánaðaruppsagnarfrest eða mlnna.
Það var svo meinlngin að endurráða
hina alla, Annars þurfa engar upp-
sagnir að koma til þvi það hefur
fækkað um þessa tvo, þrjá,” sagði
Jóhann. -KÞ.
r"
I