Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR19. JULl 1985.
3
Dottið í Norðurá i veiðitúrnum
frœga. DV-mynd G. Bender.
Laxveiðitúrinn íNorðurá:
Veiddum
hundrað
laxa
— en engum
kemur við hver borgaði
túrinn, segirSverrir
Haukur Gunnlaugsson
„Ég vil ekki svara því hver greiddi
fyrir þessa ferð en það var hvorki
skrifstofan hér né ríkissjóður,” sagði
Sverrir Haukur Gunnlaugsson, for-
stöðumaöur varnarmáladeildar í sam-
taliviðDV.
Eins og kunnugt er af fréttum DV
var hópur íslenskra embættismanna
ásamt Bandaríkjamönnum og fleiri Is-
lendingum í veiðiferð viö Norðurá um
síðustu helgi. Var veitt á 12 stangir í
þrjá sólarhringa og kostaöi ferðin um
700 þúsund krónur.
— Hversu margir voru þið?
„Við vorum á þriðja tug.”
— Því hefur verið haldið fram að þið
hafið ekki nýtt ailar stangirnar allan
tímann?
„Það er ekki rétt við gerðum það.”
— Þú segir að hvorki skrifstofa þín,
það er varnarmáladeild, né ríkissjóður
hafi greitt fyrir ferðina. Var það þá
einkaaðili?
„Því vil ég ekki svara.”
— En hvað fenguð þið marga?
„Við fengum rúmlega hundrað
laxa,” sagði Sverrir Haukur Gunn-
laugsson. -KÞ.
Tannlæknar:
Hvorki
„Við erum ánægðir með að niöur-
staöa skuli hafa fengist i málinu. En
meö niðurstöðuna sjálfa erum við
tannlæknar hvorki ánægðir né
óánægðir,” sagði Sverrir Einarsson
tannlæknir um útreikninga Hag-
stofunnar á launum tannlækna.
Niðurstaða Hagstofunnar var sú að
laun tannlækna skyldu hækka um
16,2% frá 1. mars síðastliðnum. Ut-
reikningamir byggja á 10 ára
samningi tannlækna við Trygginga-
stofnunina, samningt sem gerður
var árið 1975.
„Við erum ákaflega óhressir með
hve seint þessi mál hafa gengið, hvað
þetta hefur allt tekið langan tíma frá
því máiiö kom til kasta Trygginga-
stofnunar,” sagði Sverrir.
Hann bætti viö: „Eg tel að þaö sé
kominn tími til að samningurinn við
Tryggingastofnun verði endurskoð-
aður, hann er orðinn 10 ára og margar
forsendur hans hafa breyst á þeim
árum.”
Þetta mun hafa verið í fyrsta skipti
sem upp kom ósamkomulag á milli
tannlækna og Tryggingastofnunar um
það hver launin ættu að vera. Þess
vegna var málinu vísað til Hag-
stofunnar og nú er niðurstaöan komin.
Sverrir sagði að hann vildi ítreka að
skólatannlæknar hefðu aldrei reiknað
sér nein laun eins og margir héldu.
„Við erum í rauninni eins og hverjir
aðrir borgarstarfsmenn og fáum
greidd laun sem aðrir taka ákvörðun
um.”
Ríkið greiðir eina og hálfa milljón til Tjamarskólans næsta skólaár:
Sparar300þúsund
Næsta skólaár mun ríkið greiða eina
og hálfa milljón til Tjamarskólans. Ef
um „venjulegan” skóla væri að ræða
bættust við um 300 þúsund krónur.
Eins og kunnugt er af fréttum ætlar
ríkið að greiða föst laun kennara við
Tjamarskólann en ekkert annað. Við
skólann veröa tæplega fimm heilar
kennarastöður en það er reiknaö út
eftir ákveðnum staöli menntamála-
ráðuneytis um grunnkennslukostnað á
bam.
Meðallaun kennara voru í mars
síöastliðnum um 300 þúsund krónur á
ári en samkvæmt upplýsingum
Sólrúnar B. Jensdóttur, skrifstofu-
stjóra menntamálaráðuneytisins,
verða árslaunin nærri 350 þúsundum
næsta skólaár. Samkvæmt þvi mun
ríkið þvi greiða um eina og hálfa
milljón til Tjamarskólans. En hvað
greiðir ríkið fleira til „venjulegra
skóla”?
„I venjulegum grunnskóla þurfum
við að greiða, auk fastra kennara-
launa, forfallakennslu, orlof kennara,
sérkennslu, stuðningskennslu og yfir-
vinnu,” sagði Sólrún.
„Þetta er á bilinu 15 til 254 prósent af
þeim föstu kennaralauniun sem við
greiðum til skólans. Ef við værum með
hundrað manna skóla, sambærilegan
Tjamarskólanum, myndum við því
greiða um 300 þúsund krónur í þetta.
Annað greiðum við ekki til skóla í þétt-
býlifrááritilárs.”
Sólrún sagði ennfremur að ef
byggður hefði verið skóli yfir hundrað
nemendur hefði hann kostað 25
milljónir fullbúinn. Af því greiddi ríkið
helminginn, sveitarfélagið hinn. Sú
tala væri og fengin eftir ákveðnum
staðli. Þannig væri gert ráð fyrir 10
fermetrum á nemanda og fullfrá-
genginn með tækjum og öllu tilheyr-
andi væri kostnaður á nemanda um 250
þúsund.
Framlag borgarinnar
Það sem Reykjavíkurborg leggur til
skólahalds Tjarnarskólans eru fjórar
kennslustofur í Miöbæjarskólanum.
„Það hefur ekki verið endanlega
samiö um hver aðild okkar verður að
þessu skólahaldi að öðru leyti,” sagði
Ragnar Georgsson, hjá Skólaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar. „Hins vegar
er ljóst að ýmsir rekstrarliðir verða
léttbærari borginni á hvem nemanda í
Tjamarskólanum en almennt gerist.”
Ekki var unnt að fá neinar tölur
þessu til staðfestingar vegna sumar-
leyfa þeirra sem utan um þessi mál
halda hjá borginni. Hinsvegar sagði
Ragnar að meöal þess sem Reykjavik-
urborg greiddi við skólarekstur
„venjulegra” skóla væri viðhald hús-
næðis, laun ritara, húsvaröa, ræstinga-
fólks og kaffikvenna. Auk þess út-
vegaði borgin efni til handavinnu og
fleira í þeim dúr.
I viðtali, sem birtist í DV við annan
stofnenda Tjarnarskólans á dögunum,
kom fram að skólagjöldin viö skólann,
þessar 3.176 krónur, færu meðal ann-
ars í „rekstur húsnæðisins, heimsóknir
fagfólks í skólann, ferðakostnað nem-
enda í fyrirtæki, skrifstofurekstur,
tækjakaup, yfirvinnu kennara og
fleira.” -KÞ
M
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600
Vegna mikillar sölu á þeim danska aö undanförnu höfum
viö fengiö aukasendingu af þessum eftirsóttu bílum
á aldeilis frábæru veröi.
Nú er aö hrökkva eöa stökkva, því óvíst er
hvort viö fáum fleiri.
-JGH.