Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Page 4
4 DV. FÖSTUDAGUR19. JULI1985. Duus: 5,6/4,4% „Það er 4,5 prósent" ölver: 4,9/4,6% „Það er 4,5—5,0 prósent" Hrafninn: 2,3/4,1% „Það er 5,2—5,3 prósent" „Það er 4,8—5,0 prósent. Jóhannes F. Skaftason, deildarstjóri alkóhóldeildar rannsóknarstofu í lyfjafrseði, með bjórlíkissýni í hendi. Bjórlíkið íReykjavík: Miklar sveiflur í styrkleikanum — hæst 5,8%»lægst 2,3% Töluveröur munur er á styrkleika bjórlíkisins í Reykjavík eftir stöðum, samkvæmt nýrri könnun DV á dögunum. Samkvæmt því sem bar- þjónar segja á þeim sjö bjórkrám/veit- ingastööum sem viö könnuöum, er styikleiki bjórlíkisins (þess ljósa) frá 4,0% til 5,3%. En samkvæmt nákvæmri rannsókn sem unnin var af rannsókna- stofu í lyfjafræði í Háskóla Islands, reyndist sterkasta sýniö innihalda 5,8% alkóhóls en hiö veikasta aðeins 2,3%! Þvíerumaðræða3,5%mun. Fyrri könnun DV var gerð síðastliðinn vetur og voru þá fengin sýni af alls átta veitingastöðam eða krám sem selja bjórliki. Veitinga- staöurínn Hellirinn var með í þeirri könnun en vegna mistaka reyndist ekki unnt að taka þann stað með í út- reikninginn nú. Aö þessu sinni var brugöiö á þaö ráö aö hafa könnunina tvöfalda og fór hún fram dagana 11. og 13. júli sl. Því hefur verið haldið fram að bjórlíkið sé mismunandi eftir dögum og voru fyrri sýnin tekin á fimmtudagskvöldi en hið síðari á laugardagskvöldi. I ljós kom að mikill munur var á sumum stöðum í þessi tvö skipti, eins og meðfylgjandi tölur sýna. Sem kunnugt er blanda menn bjór- líki úr pilsner og sterkum vínum, oftast vodka og viskíi. Sakir verkfalls dönsku bjórverksmiðjanna hafa þau hús, sem nota Tuborg og Carlsberg pilsner, fengið í staðinn sænskan pilsner, Pripps, sem að sögn er ekki eins sterkur og sá danski. Einnig var okkur tjáö aö alltaf gæti munaö einhverjum prósentubrotum eftir dögum, jafnan eru þaö fleiri en einn sem blanda bjórlíkið á hverjum stað. Einnig gæti hafa komið eitthvert rót á málin við skiptinguna yfir í sænska pilsnerinn. Töiumar úr könnuninni birtast hér á síöunni, en rétt þykir að hafa nokkur orð um hvem stað fy rir sig. Á Fógetanum, þarsem gefiö var upp 4,5%, reyndist bjórinn í seinni könnun- inni sterkari, eða nálægt 5,0%. Þeir Duus-menn segja bjórlíkið sitt vera 4,5% en í fyrri könnuninni reynd- ist sýnið rúmu heilu prósenti áfengara. Gaukur á Stöng virðist stöðugastur staðanna, alkóhólmagnið reyndist í mælingunni í allgóðu samræmi við það semupp vargefið. Það var hins vegar annað uppi á ten- ingnum hjá Pöbbnum. I seinni könnun- inni var alkóhólmagnið aðeins 0,3% meira en upp var gefið, en í þeirri fyrri var það undarlega lágt, aðeins 2,5%. Ekki kunnum við skýringu á þessu, en hugsanlega er pilsnerinn,sem notaður er, mismikiö áfengur eða þá þaö að sterkari efnin í honum setjast til. Veitingastaöurinn Bixið reyndist hafa talsvert sterkara bjórlíki en upp var gefið, þar af nær heilu prósenti meira í fyrri könnuninni. Á Hrafninum var gefiö upp hæsta alkóhólmagnið, rúm 5%, en í könnunum okkar reyndist þaö lægra í bæði skiptin, þar af aðeins 2,3% í það fyrra. A ölveri var sagt að styrkleikinn væri á bilinu 4,5—5,0%. Niðurstöður kannananna reyndust nokkurn veginn innan þeirra marka. Við Iátum lesendur um að leggja mat á niðurstöðurnar, en tökum með hér í lokin styrkleika nokkurra annarra drykkja, sem fæstir eru seldir á ofan- greindum stööum. Heineken (Fríhöfnin) 5% Pólar-bjór 5,6-5,7% Viking-bjór 5,2% Viking Quality-bjór 6,5% Thule-bjór 5,4% Pilsner 2% Maltextrakt 1% -pá. DV-myndir S. Niöurstööur fyrri könnunar í jan. '85 Samkvæmt nýlegri könnun DV er stöðunum og þess sem nákvæm mæl- umtalsverður styrkleikamunur á ing sýndi, en þó ekki alltaf. bjórnum eða bjórliki sem selt er á hinum ýmsu krám í höfuðborginni. Könnun DV fór fram dagana 11. og Af þeim sýnum sem tekin voru á sjö 13. júlí og fengust því tvö sýni af stöðum og síðan mæld af rannsókna- hverjum stað. Niöurstöður bjórlíkis- stofu í lyfjafræði, sést að munurinn könnunarinnar birtast í blaðinu í getur verið 2—3% milli staða. Yfir- dag, ásamt niðurstöðunum úr fyrri leitt er samræmi milli þess styrk- könnun DV um þetta efni frá í vetur. leika sem gefinn er upp á veitinga-. -pá. Fógetinn Styrkleiki: 4,58% Duus 6,55% Gaukurá Stöng 4,65% Hellirinn 4,50% Pöbbinn 4,67% Bixið 4,58% Hrafninn 3,95% úlver 4,90% Verðið á bjórnum 0,251 0,331 0,41 0.51 Fógetinn Duus 110 kr. 125 kr. 160 kr. 165 kr. Gaukur á Stöng 125 kr. 150 kr. 170 kr. Pöbbinn Bixið 125 kr. 120 kr. 160 kr. 160 kr. Hrafninn 120 kr. 160 kr. ölver 90 kr. 150 kr. Styrkleiki bjórsins Bannsókn- in segird og 2): Barþjónn- inn segir: Fógetinn 4,5% 4,5/4,9% Duus 4,5% 5,6/4,4% Gaukur ó Stöng 4,5% 4,3/4,4% Pöbbinn 2,5/5,1% Bixið 5,0 5,3% 5,8/5,4% Hrafninn 2,3/4,1% Ölver 4,9/4,6% Fógetinn: 4,5/4,9% „Það er 4,5 prósent" Gaukur á Stöng: 4,3/4,4% Það er 4,5 prósent" Bixið: 5,8/5,4% „Þaðer 5,0-5,3%"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.