Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Qupperneq 6
6 DV. FÖSTUDAGUR19. JULI1985. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Sölva Bjarnasyni, BA-65, þingl. eign Tálkna hf., fer fram eftir kröfu Fiskveiðasjóðs islands og Arnmundar Backman hdl. þriðjudaginn 23. júli 1985 kl. 14.00 á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði. Sýslumaður Barðastrandarsýslu. „Brúnn án sólar” mjólk með Monoi fró Tahiti, sem inniheldur D.H.A. (dihydroxyacetone) en enginn litarefni. Þar að auki er þettr mjög góður nærandi vökvi fyrir andlit og líkama. 07101 BRESSANE DES COSMETIQUES Heildsala-smásala. Sími 27310. Laust embætti er forseti íslands veitir Prófessorsembætti í tilraunaeðlisfræði við eðlisfræði- skor verkfræði- og raunvísindadeildar Háskóla íslands er laust til umsóknar. Einkum er óskað eftir umsækjendum með verulega reynslu í rannsóknum á sviði þéttefnisfræði (condensed matter physics) eða Ijósfræði. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1985. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis- ins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með um- sókninni skulu send eintök af vísindalegum ritum og rit- gerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Enn- fremur er óskað eftir greinargerð um rannsóknir sem um- sækjandi hyggst stunda, verði honum veitt staðan. Menntamálarððuneytið, 15. júli 1985. Auglýsing um aðalskipulag Kópavogskaupstaðar 1982— 2003 Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Kópavogskaupstaðar 1982—2003. Skipulagstillaga þessi nær yfir núverandi byggð og fyrir- hugaða byggð á skipulagstímabilinu og austur að Elliða- vatni og Heiðmörk. Tillaga að aðalskipulagi Kópavogskaupstaðar 1982— 2003, ásamt greinargerð og öðrum skýringargögnum, liggur frammi á tæknideild Kópavogskaupstaðar að Fannborg 2, 3. hæð til 31. júlí 1985, frá kl. 9.30-15.00 alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Athugasemdum við skipulagstillöguna skal skila til bæjar- stjórans í Kópavogi fyrir 15. ágúst 1985 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskil- ins frests teljast samþykkir tillögunni. Kópavogi, 6. júní 1985, Bæjarstjórinn í Kópavogi, Skipulagsstjóri rikisins. Neytendur Neytendur Neytendur Eggjahækkun er á leiðinni, sú þriðja á þessu ári. KJARNFOÐURSKATTURINN: Þriðja eggjahækkun ársins á leiðinni — hækkun um a.m.k. 10% Nýjum 130% kjarnfóðurskatti fylgir hækkandi eggjaverð og verður það í þriðja skipti sem egg hækka i verði á þessu ári. Eggjabændur vonast þó til að aðeins verði lagður á hinn svokallaði Alberts- skattur sem er 50% og rennur í ríkis- sjóð. 80%, sem eftir eru, eru ákveðin af landbúnaðarráðherra, að tillögu fram- leiðsluráðs, og virðist vera almenn von að sá skattur verði ekki lagður á. „Við vonum að ekki verði farið að gera fé- þúfu úr landbúnaðinum,” sagði Jón Gíslason, formaður sambands eggja- bænda, í samtali við DV. Jón sagði að ef aöeins Alberts- skatturinn yrði lagður á kæmi til 10% hækkunar eða þ.u.b. Þetta þýðir að egg munu kosta um 170 kr. kg, stærsta gerð, en verð á eggjum er mjög Opið alla daga nema íReykjavík Opnunartími matvöruverslana á höfuðborgarsvæðinu er ekki sá sami í sumar og yfir vetrarmánuðina og eins er ekki samræmi milli bæjarfélag- anna. Stystur er tíminn í Reykjavík en þar er lokað á laugardögum og sunnu- dögum, opið fimmtudaga til 20.00, föstudaga til 21.00, en aðra virka daga til 18.30. 1 Mosfellshreppi er verslunin Kjör- val opin til 19.00 á laugardögum og 16.00 á sunnudögum, fyrir utan venju- legan opnunartíma virka daga. Kópa- vogur hefur gefið sumum leyfi til að hafa opið frá 8.30 til 22.00 alla virka' daga nema sunnudaga og á Seltjamar- nesi er verslunin Nesval opin til 23.00 á kvöidin. Hafnfirðingar hafa ýmsa kosti eins og til dæmis verslunina Alfaskeið sem er opin til 21.00 öll kvöld. Héma er aðeins örlítið upp talið af kostum fyrir þá sem verða að versla utan venjulegs vinnutíma og ljóst er að íbúar Reykja- víkur verða að sækja slíka þjónustu að mestu til nágrannasveitarfélaganna. baj hlaupandi. Þetta þýðir um 50% hækkun á eggjum síðan í haust en ekki var oalgengt að hægt væri að fá kílóið á 110 kr. þá. Dæmi um afrakstur norska fúavarnarefnisins. Akrýl í fúavörn hefur gefist vel íNoregi Efnamiðstöðin hefur hafið inn- flutning á norsku fúavarnarefni frá hinu þekkta fyrirtæki Jotun. Fúa- vamarefnið Demidekk, sem er akrýlefni, hefur gefist mjög vel í Noregi, þar sem það er notað á fjórða hvert timburhús, að sögn inn- flytjenda þess. Framleiðendur segja að ending efnisins sé 6—8 ár. Þó að reynslan af efninu hér á landi sé ekki víðtæk, þá hefur það verið notað í 10 ár á viðlagasjóðshúsunum. Demi- dekk, sem er hálfþekjandi bæs, má setja beint yfir önnur efni. Verð á lítra er 212 krónur. Efnamiðstöðin flytur einnig inn frá sama framleiðenda þéttiefnið Vin- dekk, sem kemur í veg fyrir að móða myndist milli rúða í tvöföldu gleri, auk þess sem fyrirtækið flytur inn fúavarnarefnið C—Tox. Umboðs- menn eru um allt land. SigA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.