Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Page 16
16
DV. FÖSTUDAGUR19. JULl 1985.
Spurningin
Hvernig líst þér á að hafa
alþjóðlegt verkfall kvenna
24. október í ár?
Jóhannes Jóakimsson, atvinnu-
laus:
Þaö er nú nóg af verkföllum þó þetta
bætist ekki við. Ég held aö konumar
ættuaösleppaþvi.
Guflni Kjartansson nemi:
Mér líst bara vel á það, en samt held ég
aðþaöhafi litiöuppásig.
Jóhanna Aradóttir allilifeyrisþegi:
Þaðveitégekki.
Elin Ágústsdóttir húsmóðir:
Því get ég ekki svarað. Hef ekki heyrt
neittumþetta.
Bryndís Bragadóttir kennari:
Ég færi líklega ekki í verkfall ef af
þessu yrði.
Ásgerflur A. Friflbjarnardóttir, nemi
og barnapía:
Veit ekki. Ég færi líklega í verkfall.
Laxveáðibruðl
Rödd úr fjöldanum hringdi:
Ég vil lýsa yfir ánægju minni með
það góða framtak DV aö fletta ofan af
eyðslu starfsmanna hins opinbera og
annarra fyrirtækja í landinu. Þetta er
hræðilegt bruðl með almannafé og mér
þykir það grunsamlegt ef fyrirtæki
hafa efni á því að eyða hálfri milljón
króna á einum sólarhring í laxveiði.
Þetta er hreinasta svívirða við hinn
almenna borgara. Við erum náttúrlega
öll sammála um að þetta verði að
stöðva en þaö virðist nú oft verða svo1
aö þessi mál deyja drottni sínum stuttu
eftir birtingu þeirra í fjölmiðlum. Því
skora ég á allan almenning sem þetta
les að láta í sér heyra.
TIL LESENDA
Þeir losandur, sem áhuga hafa ó afl skrifa lesendasiðunni, eru
vinsamlegast beðnir afl gefa okkur fullt nafn og heimilisfang. Ef þeir óska
ekki eftir afl nafnifl verfli birt verður þafl afl sjáifsögflu tekifl til greina.
Þetta er
Drengimir sem ekki mega
„Whamm” sitt vita fengu enn eitt að-
dáendabréf ið um helgina:
S.E. skrifar:
Ég er ein af þeim mörgu sem finnst
sjónvarpið láta allt eftir Duran Duran
áhangendum. Það virðist vera nóg
óréttlátt
fyrir þá að skrifa í eitthvert dagblaðið
og fá óskir sínar uppfylltar um endur-
sýningar á þáttum með þeim félögum.
En ef einhver biður um eitthvað meö
Wham þá er horft algjörlega fram hjá
því. Nú eru búnir að vera a.m.k. þrír
þættir með Duran Duran í sjónvarpinu
í ár — þetta er óréttlátt!
Glaðir laxveiðimenn afl lokinni fengsælli veiði.
Lækkun á símakostnaði
Símnotandi hringdi:
Mig langar til að spyrja um þessa
verðlækkun sem átti að taka gildi hjá
Pósti og síma af símgjöldum. Mér
sýnist að verðið hafi staðið í stað,
allavega fæ ég jafnháan reikning og
áður.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem blaöið aflaði sér, þá lækka síma-
gjöldin frá og með 1. júlí, þannig að
reikningarnir sem berast í lok
mánaðarins ættu að vera eitthvað
lægri en áður. Verð hvers skrefs
lækkar úr 1,35 kr. í 1,20 kr. Afnota-
gjald fyrir hvern ársfjórðung lækkar
úr 575 kr. í 530 kr. Þeir notendur
sem greitt hafa afnotagjöld
fyrirfram munu fá leiðréttingu á
næsta reikningi frá Pósti og síma.
Skemmtileg
kjarabarátta hjá
Pósti ogsíma
ÉÉrsSS
múlur til þcss * ,,B«a mcno
l veriímWítU^iau tallll
UglKtagum Iram I
Wttum .» .tatrrillw
íKSáíís
ga£S-»»;=.-
UW
ingöufsson
n.iHWBftYI"KJA00
klK.b«l*to‘“to”d8,*rlS!ÍU'
boölneWauösétt.
Afataöa Félag*
tBlmnskra simamanna
Tþó -ur Ui ^umtar
X** IrMusýnlr,
(remsttr e talsmatwr alm-
8enum « fStSl slmsmitm. Þeir
riUra og h*ttu er laun-
koc,„ í^r .uga ‘ ^
SSSífe
Sumir ráðgjafar verri en ekki neinn
FÚSK
5926-3560 skrifar:
I DV þ. 20. júní sl. birtist viðtal við
Kristján Kristjánsson ráðgjafa þar
sem hann hælir allri ráðgjafaþjónustu
og finnst ekki mikið þótt greiddar séu
1.400 kr. fyrir útselda vinnu ráðgjafa
því hún sé fljót að borga sig.
Mig minnir að hann heiti Kristján
Kristjánsson sem fékk greidda milljón
fyrir nýtt leiðakerfi fyrir Strætisvagna
Kópavogs sem var gjörsamlega ónot-
hæft og bæjarfélagið varð að hætta við
eftir stuttan tíma þegar tapið á því
1 var orðið tvær milljónir.
Ekki veit ég hvort hér er um sama
Kristján að ræða. 1 þessu tilviki hefði
verið ódýrara fyrir Kópavogskaupstað
að greiða ráðgjafanum um 2.500 kr. á
tímann í 1000 klst. fyrir að gera alls
ekki neitt.
Undanfarið hefur fjármála-
ráðuneytið birt auglýsingar í dag-
blöðum sem beint er gegn sfluskatts-
svikum en virðast um leið aðvaranir
gegn fúskurum sem fyrst og fremst
eru taldir meöal þeirra sem stunda alls
konar iðnað og viðgerðir.
Þaö sem einkennir fúsk er aö menn
eru að fást við hluti sem þeir hafa
hvorid þekkingu né getu til að sinna.
Dæmi um slík vinnubrögð eru t.d.
sprunguviðgerð sem endist mánuðinn,
samskeyti sem leka, boltar sem eru
hnoðaðir, togaðir, forskrúfaðir eða
hertir með meitli, hornskakkir veggir
og innréttingar o.s.frv.
Dæmi um fúsk á ráðgjafasviðinu eru
einnig mýmörg. Hér eiga opinberir
aðilar oft hlut að máli með því að ráða
ráðgjafa til starfa sem eru ekki starfi
sínu vaxnir vegna vanhæfni eða fá-
fræði um staöhætti. Á þetta jafnt við
um innlenda sem erlenda ráðgjafa.
Miklu púðri er oft eytt í skýrslur sem
eru tómt rugl eöa hlutir sem allir vita.
Á mörgum sviðum hefur verið unnið
gott starf þótt annars staðar sé mis-
brestur. Opinberir aðilar ættu því alls
ekki að ráða aðra ráðgjafa til starfa en
þá sem hafa sýnt og sannað aö þeir
hafa getu og þekkingu til aö leysa þau
verkefni sem þeir taka aö sér.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Misskilin kjara-
barátta hjá íslensk-
um símamönnum
Ragnhildur Guðmundsdóttir,
formaflur Fólags ísl. simamanna
skrrfar:
I kjallaragrein frá Leó Ingólfssyni,
yfirdeildarstjóra hjá Pósti og síma,
sem birtist í DV12. júlí sL, gætir mis-
skilnings sem stafar trúlega af þekk-
ingarleysi. Það er því margt sem
sagt er í greininni mjög villandi. Mér
þykir rétt að fram komi til að
leiðrétta þennan misskilning að sam-
kvæmt nýgerðum breytingum á sér-
kjarasamningi FIS og
fjármálaráöherra, f.h. ríkissjóös og
vegna samkomulags um fram-
kvæmd bókunar I með sérkjara-
samningi sömu aðila frá 10. janúar
sl., hækka sumir tæknimenn hjá
Pósti og síma um það sem nemur
þremur launaflokkum. Þetta stafar'
af því aö i bókuninni eru ákvæði sem
gefa eins til tveggja launaflokka
4 hækkun vegna námskeiða sem
tæknimenn þurfa aö sækja erlendis.
Það fer síðan eftir lengd námskeið-
anna hve mikla hækkun þeir fá. Þeir
tæknimenn sem vinna við nýjan
tæknibúnað fá einn launaflokk að
loknu fjögurra ári starfi við þessi
tæki. Rangt er haft eftir að félaginu
hafi verið boðnir 3 launaflokkar
(betur að satt væri) og því hafi verið
hafnað. Það tilboð kom aldrei á
samningaboröið. Fullyrðingar um
aðila í samninganefnd FlS, sem
koma fram í greininni eru rangar og
til þess eins fallnar að vekja tor-
tryggni sem er engum til góðs og
helst þeim til vansa sem rækta hana
með sjálfum sér og bera á borð fyrir
aðra.