Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985. 5 Undirskriftir íbúa Teigahverfis: Geta ekki átt við um okkur —segir formaður Verndar Ibúar Teigahverfis, 455 aö tölu, hafa undirritað mótmæli sem beinast gegn fyrirhugaöri starfsemi fangahjálpar- innar Verndar í hverfinu. Undirskrift- irnar hafa verið afhentar borgaryfir- völdum. I texta sem íbúar í hverfinu skrifuðu undir segir: „Haft hefur verið samband við lækna, sálfræðinga og félagsráðgjafa. Þaö er samhljóma álit þeirra að óráð- legt sé að reka heimili til endurhæfing- ar fyrir fleiri en átta fyrrverandi fanga á sama stað. Við viljum því, undirrit- aðir íbúar Laugarneshverfis mótmæla fyrirhuguðum rekstri 23 manna heim- ilis á Laugateig 19 og lýsum ábyrgð á hendur stjórnar Verndar á þeim afleið- ingum sem af því kunna að hljótast.” „Þessi texti sem fólkið hefur undir- ritaö á ekki við um okkur og við getum alls ekki tekið hann til okkar,” segir Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar. Hún bendir á að 30 til 40 prósent af skjólstæðingum Verndar séu menn sem hafa ekki setiö inni en aðeins átt við áfengisvandamál að stríða. Sumir þeirra séu á skilorðs- bundnum dómi og hafi aldrei setið inni. Aö hennar dómi sé þetta plagg ákaf- lega óvandað. Hún bendir einnig á að núverandi fjöldi skjólstæðinga sé 14 manns auk þriggja starfsmanna og engin ákvörð- un hafi verið tekin um að fjölga þeim. Jóna Gróa segir einnig að fróðlegt væri að fá nánari rökstuöning þeirra sem íbúarnir höfðu samband við og fá að vita við hvað þeir hafi miðaö því hér á landi séu engin önnur sambærileg heimili. H já einum íbúa Teigahverfis fengust þær upplýsingar að málið væri afgreitt af hálfu íbúanna og væri nú í höndum borgaryfirvalda. Haft hefði verið sam- band við lækna, sálfræðinga og félags- ráögjafa en ekki vildi þessi íbúi gefa upp nöfn þeirra. Hann sagði hins vegar að erlendis væru svipuð heimili og þar Uppsögn skipverja áDalborginni: Ákvörðuninni ekki breytt „Þegar skipið fór út á miðin í síöustu veiðiferð var allt útlit fyrir að það sigldi utan með aflann og sumir voru jafnvel um borð vegna þess. Það var hins vegar ákveðið sl. fimmtudag að landa hér á staðnum. Mennirnir um borð urðu gramir og sendu skeyti til stjórnarformanns þar sem þeir sögðu upp störfum. Stjórnin harmar þetta því að hér er um mjög góða áhöfn að ræða.” Svo fórust Stefáni Bjarnasyni, bæjarstjóra á Dalvík og stjómarmanni í Söltunarfélagi Dalvíkur, orð en Sölt- unarfélagið er eigandi togarans Dal- borgar. Mestur hluti áhafnar skipsins sagði upp störfum unf helgina. Aö sögn Stefáns voru tvær megin- ástæður fyrir því að ákveðið var að láta skipið landa á Dalvík. Annars veg- ar kom verðtilboð í kola frá frystihús- inu á staðnum sem var samkeppnis- fært við það verð sem fæst í Bretlandi. Hins vegar hafði atvinnuástandið á Dalvík sitt að segja. Búiö var að segja öllum upp í frystihúsinu og atvinnu- leysi fyrirsjáanlegt. A stjórnarfundi í Söltunarfélagi Dal- víkur var stjórnarformanni falið að leita leiða til að leysa málið. „Stjórnin telur ekki verjandi að breyta ákvörðun sinni, en við vonum að hægt verði að ná sáttum,” sagði Stefán. -JKH. væri stefnan að hafa sem fæsta saman á einu heimili. Borgaryfirvöld hafa óskaö eftir fundi við forráðamenn Verndar en ekki hefur verið ákveðið enn -hvenær hann verður. APH NÚERGULUD TÆKIFÆRI! AÐ. EICNAST TECHNICS HUOMTÆKI A SERSTOKU TILBOÐSVERÐI FJÓRAR fullkomnar samstæður með öllu í fallegum skáp, með litaðri glerhurð og loki. System z-120 ............. 32.500 stgr. System z-100 (mynd)..............36.900 stgr. System z-200 ..............46.900 stgr. System Z-300 ............. 53.900 stgr. Útborgun frá kr. 5.000.- ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VEUA VANDAÐ. £ ^JAPIS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.