Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Blaðsíða 12
12 DV. F í MMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985. Sgpi Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöurog útgáfustióri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. AOstoðarritstiórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14, SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. AfgreiOsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ Áskriftarver.ð á mánuöi 400 kr. Verö í lausasölu virka daga 40 kr. Helgarblað45kr.________________________________________ Umfjöllun olli umbótum Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráöherra hefur falið bankaráðum ríkisbankanna að endurskoða bílafríðindi og eftirlaun bankastjóra. Einnig hefur hann beðið ráðin um að fá að vita um allar fyrirhugaðar breytingar á starfs- kjörum bankastjóra og raunar annarra bankastarfs- manna. Mál þetta er gott dæmi um, að opinber umf jöllun getur leitt til umbóta. Það er ekki lengra síðan en í apríl, að mikill hvellur varð í dagblöðum og á Alþingi út af banka- stjórakjörum, sem haldið hafði verið leyndum. Þótti mörgum sem ýmislegt væri vafasamt í þeim kjörum. Uppljóstrun þessi leiddi til, að Albert Guðmundsson aft- urkallaði bílafríðindi ráðherra. Þau fríöindi fólust í niður- fellingu aðflutningsgjalda. Bankastjórafríðindin voru hins vegar þau, að þeir fengu jafnháa upphæð til aö styrkja sig til kaupa á bílum. Hin nýja reglugerð fól í sér afturhvarf til þess fyrir- komulags, er gilti fyrir 1970, að ríkiö og bankarnir áttu bílana og veittu ráðherrum og bankastjórum afnot af þeim. Eftir á aö hyggja sýnist þetta vera eölilegri og ein- faldari aðferð við fríðindi af þessu tagi. Um þetta leyti fól viðskiptaráðherra Baldri Möller, fyrrum ráðuneytisstjóra, að gera skýrslu um starfskjör bankastjóra. Sú skýrsla var lögð fram í síðasta mánuöi og hefur nú leitt til aðgerða ráðherrans. Sýnist mál þetta hafa verið og vera í réttum farvegi. Skýrsla Baldurs staðfestir fyrri uppljóstranir um, að bankastjórar hafa ekki greitt nein iðgjöld til lífeyrissjóða, en fá samt eftirlaun og þaö með ævintýralega skjótum hætti. Þeir safna á 12—15 árum rétti til eftirlauna, sem nema 90% af launum þeirra í starfi. Bankaráð og bankastjórar hafa í þessu vafalaust haft í huga eftirlaun ráðherra. Sá samanburður er hins vegar ekki eðlilegur, því að ráðherrar eiga alltaf á hættu að missa starf sitt og gera það óspart. Algengt er, að menn séu ráðherrar í aðeins nokkur ár, til dæmis eitt kjörtíma- bil. Bankastjórar eiga hins vegar ekki á hættu, að pólitískir vindar feyki þeim úr sessi. Þeir geta vænzt þess að fá aö sitja starfsævina á enda. Þeir þurfa ekki að safna eftir- launarétti eins hratt og ráðherrar. Enda verður þetta nú væntanlega endurskoðað. 1 skýrslu Baldurs kemur fram, að laun bankastjóra hafa löngum verið miðuð við hæstaréttardómara og fríð- indi þeirra við ráðherra. Erfitt er að sjá, að þessi hefö eigi sér stoð í óhlutdrægu mati á þessum störfum og mikil- vægi þeirra í þjóðfélaginu. Ráðherrar og hæstaréttardómarar fara með æðsta framkvæmdavald og dómsvald í landinu, tvo þriðju hins æðsta valds. Bankastjórarnir eru hins vegar forstjórar fyrirtækja, sem hér á landi eru í eigu ríkisins, en væru hrein einkafyrirtæki í nágrannaríkjum okkar. Hitt er svo líka rétt, að bankastjórar sinna afar mikil- vægu starfi í þjóðfélaginu. Nauðsynlegt er að fá til þess hina hæfustu menn og launa þá svo vel, að þeir séu vel stæðir og þurfi ekki að vera upp á viðskiptamenn komnir, — þurfi til dæmis ekki að láta bjóða sér í laxveiði. I máli þessu skiptir mestu, að stjórnvöld hafa brugðizt rétt við hvellinum, sem varð í vor. Þau hafa látið brjóta málið til mergjar og lagt grundvöll að auknu aðhaldi í ná- inni framtíð. Betur væri, að þannig væri haldið á málum í kjölfar annarra uppljóstrana. Jónas Kristjánsson. Hvemig nýjar stöðvar? Augu margra beinast nú að þeim breytingum sem væntanlega verða í fjölmiðlun hérlendis á fyrri hluta næsta árs þegar einkaréttur ríkis- ins á útvarpi og sjónvarpi fellur niður. Það verður að ýmsu leyti gaman að fylgjast með þeim við- burðum og þeim átökum sem þá verða í fjölmiðlaheiminum. Að vísu verður ekki alveg sársauka- laust að fylgjast með því vegna þess að margur góður drengur mun eiga um sárt að binda um það leyti sem þeim átökum lýkur og málin komast í fastar skorður að nýju. Það munu nefnilega ýmsir komast að því að auðveldara er að reka slík fyrirtæki á pappír, á meðan ekki má reka þau öðruvísi, heldur en láta þau bera sig í harðri samkeppni meðal rúmlega 200 þúsund sálna. Hvernig stöðvar? Útvarpsréttamefnd, eða hvað Kjallari á fimmtudegi MAGNÚS BJARNFREÐSSON „Um útvarpssendingar gilda að ýmsu leyti sömu spurningar. Þar er byrjunarkostnaðurinn að visu mun minni vegna þess aö komast má af meðmiklu minni tækjakost . . ." munum, yrði álitinn nægilegur hagnaður. Heldur þykir mér ólíklegt að hérlendis verði lagt í að koma á fót sjónvarpsstöðvum upp á þessi býti en hugsanlegt er að einhver reyni slíka útvarpsstöð. Og hvernig ríkisútvarp? Það er svo önnur spuming sem ósvarað er hvemig Ríkisútvarpið verður þegar það fær samkeppni. Ég hefi margoft sagt hér í greinum að ég teldi samkeppni það besta sem fyrir þá ágætu stofnun gæti komið og ég verð æ sannfærðari um það. Á því er enginn vafi að dagskrá þess mun breytast vem- lega á næstu mánuðum og um það munu leika frískari vindar en menn hafa lengi átt að venjast. Að vísu kemur þar fleira til en afnám einkaréttarins, en það ýtir undir menn og neyðir þá til átaka. Því má ekki gleyma að innan Ríkisútvarpsins starfar fjöldi fólks með mikla reynslu í störfum og enda þótt mörgum hafi þótt fara lítið fyrir frumlegheitum þar á bæ um nokkra hríð þá er þar engu að síður fólk sem kann vel til verka og er reiðubúið til átaka ef það fær aðbeitasér. Rás 2 í útvarpi hefur tekist ákaf- lega vel og fer enn batnandi eftir því sem starfsfólki er leyft að spreyta sig og afnumdar hafa verið fáránlegar reglur um að þar megi aðeins spila dægurtónlist. Gamla „gufuradíóið”, rás eitt, mun ábyggilega einnig breytast veru- lega og það sem mest er um vert fyrir Ríkisútvarpið: Vegna reynslu sinnar á starfsfólkið auð- velt með að svara þeim leikjum sem keppinautarnir koma til með að leika. Hver verður þá þróunin? Því getur auðvitað enginn svar- að svo óyggjandi sé. En mig grunar fastlega að eftir tiltölulega skamma hríð verði starfrækt ein sjónvarpsstöð í samkeppni við ^ „En kannski verður markverðasta breytingin sú að við eignumst fyrsta flokks ríkisútvarp vegna sam- keppninnar.” hún á nú að heita nefndin sem úthluta á leyfum til útvarpsrekstr- ar, tekur væntanlega til starfa um áramótin þegar nýju útvarpslögin taka gildi. Enn er ekki ljóst hvaða reglur hún fær í veganesti frá ráðherra, hvaða almennar kröfur verða gerðar ti) nýrra stöðva. Verður til dæmis gerð krafa um ákveðið hlutfall innlends efnis í sjónvarpi? Verður gerð krafa um að efni verði þýtt? Verður gerð einhver lágmarkskrafa um tækni- leg gæði útsendingar eða verður látið nægja að einhver mynd sjáist á skjá? Verður gerð krafa um ákveðið hlutfall menningar- og/ eða fræðsluefnis í útsendingu og hver á að meta menninguna og fræðsluna? ' Slíkar kröfur geta skipt sköpum um það hverjir telja sig hafa bol- magn til þess að hefja útsendingar. Og hvernig verða útsendingarn- ar? Verða þær byggðar á auglýs- ingum og aðgengilegar öllum áhorfendum, eða verða þær seldar í áskrift? Augljóst er að auglýs- ingamarkaðurinn ber ekki margar stöðvar til viðbótar Ríkisútvarp- inu því enda þótt mörgum finnist vafalaust forvitnilegt að prófa auglýsingamátt hinna nýju stöðva og vilji gjama styðja við bakið á þeim þá eyðir enginn auglýsandi fé sínu til langframa í kærleiks- verk ein og sér. Talsvert hefur verið rætt um áskriftarsjónvarp, annaðhvort um kapla eða senda, þar sem sending er bjöguð svo sérstök tæki þarf við sjónvarpstæki á heimilum svo unnt sé að taka við sendingu. Vera kann að þetta sé mögulegt en reynsla frænda okkar í Danmörku af Kanal 2 er ekki hvetjandi. Sú stöð fór á hvínandi hausinn vegna þess að það reyndist of auðvelt að fá slík tæki án þess að borga fyrir þau leigu til sjónvarps- stöðvarinnar og svipað verður uppi á teningnum hér nema þeim mun dýrari og vandaðri tæki verði notuð, og hver tekur áhættuna af slíkum tækjum? Um útvarpssendingar gilda að ýmsu leyti sömu spumingar. Þar er byrjunarkostnaðurinn að vísu mun minni vegna þess að komast má af með miklu minni tækjakost, en margar verða nú greiðslumar sem slíkar stöðvar verða að inna af hendi, bæði til eigenda höfund- ar- og flutningsréttar. Að vísu hefi ég ekki reiknað hér með stöðvum sem reknar væm án ágóðasjónarmiða, eða öllu heldur án þess að vera ætlað að standa undir sér. Slíkum stöðvum væri þá ætlað að koma einhverjum ákveðnum boðskap á framfæri og afrakstur slíks „trúboðs”, hvort sem það væri trúarlegs eðlis, pólit- ískt eða þjónaði ákveðnum hags- Ríkisútvarpið. Að vísu kann þar að verða um að ræða einhverja keðju sjónvarpsstöðva, ein verði t.d. á höfuðborgarsvæðinu og síð- an smærri staðbundnar stöðvar úti um land, og þær myndi síðan með sér samband og noti sameig- inlegt dreifikerfi. Ekki er gott að segja hverjir verða eigendur slíkra stöðva. Hugsanlegt er að einhverjir sam- einist um þær úr þeim hópi sem reynir fyrst fyrir sér á markaðn- um, einnig er hugsanlegt að flestir þeirra gefist hreinlega upp og aðeins einn verði eftir. Um útvarpið er miklu erfiðara að spá vegna þess hve miklu kostnaðarminni útvarpsstöð er. Þar geta fleiri lifað af og þar verða vafalítið alltaf að koma fram ein- hverjir aðilar sem vilja þreifa fyrir sér. En kannski verður markverð- asta breytingin sú að við eignumst fyrsta flokks ríkisútvarp vegna samkeppninnar. Þá verða nú sumir langleitir í framan sem mest andskotuðust við því að löngu sjálfsagðar breytingar í frjáls- ræðisátt kæmust á. Magnús Bjarnfreðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.