Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985.
9
PolPotbragð?
Stjórnin í Kampútseu segir að til-
færslan á Pol Pot úr embætti yfir-
manns hers rauðu kmeranna sé
aöeins bragð af hálfu kmeranna.
„Ovinurinn hefur reynt mörg
brögð áður en honum hefur mis-
tekist smánarlega,” sagði í
umsögn fréttastofu Kampútseu.
Pol Pot er talinn eiga sök á dauða
hundruða þúsunda Kampútseu-
manna á meðan rauðu kmerarnir
fóru með völd, þangaö tii Víet-
namar réðust inn og hernámu land-
iö.,
Það var eitt skilyrða Víetnama
fyrir brottför frá Kampútseu aö
Pol Pot yrði ekki í forsæti kmer-
anna.
AðstoðRússa
Norsk stjórnvöld hafa gefiö
norskum fyrirtækjum leyfi til að
selja Sovétmönnum aðstoð sína við
vinnslu á olíu á hafi úti. Þetta gildir
þó ekki um svæði sem löndin tvö
deila um.
Sovésk yfirvöld hafa lýst yfir
áhuga sínum á að fá norsk fyrir-
tæki til þessa. Norsku fyrirtækin
hafa yfir tæknikunnáttu að ráða
sem Sovétmenn hafa áhuga á og
Norðurmenn hafa áhuga á aö bæta
atvinnuhorfur í norðurhéruöum
landsins.
Vill kæra Breta
Venstre flokkurinn í Noregi vill
að Noregur fari í mál við Bretland
vegna súrs regns sem berst frá
Bretlandi til Noregs. Flokksfor-
maðurinn Odd Einar Dörum segir
að fara eigi með máliö í Alþjóða-
dómstólinn í Haag ef Bretlands-
stjórn hefur ekki lýst því yfir fyrir
árslok að hún vilji minnka útblást-
urum30prósent.
Dörum segist hafa tvennt í huga
með þessu. Það fyrsta sé að
minnka súrt regn í Noregi. Það
annað sé að vekja athygli á vanda-
máli súrs regns á alþjóðavett-
vangi.
Sumir segja að þriðja ástæðan sé
sú að hann vilji vekja athygli á
Venstre á innanlandsvettvangi
fyrir kosningarnar á mánudag.
Lögregla barflist við blökkumenn í Jóhannesarborg og i Höfðaborg, eins og hér sést.
Hvítir borgarar í Jóhannesarborg:
Tóku á móti árásar-
mönnum með skothríð
dögum viö nemendur í hverfi kyn-
blendinga i Höfðaborg á suðurodda
landsins eftir aö unglingarnir brenndu
líkkistu sem merkt var „Apartheid.”
Á meðan barist var í Suður-Afríku
hélt yfirmaður seölabanka landsins
áfram tilraunum sínum til aö lappa
upp á gjaldmiðil landsins. Gerhard de
Kock var væntanlegur til Bretlands í
dag eftir samtöl við bankamenn í
Bandaríkjunum. Á blaðamannafundi í
New York sagði de Kock að Suöur-
Afríka yrði ef til vil aö veðsetja gull-
forða sinn til aö fá ný lán sem landið
þarf nauðsynlega á að halda til að
borga af eldri lánum.
Viðskipti með suður-afríska randið á
gjaldeyrismörkuðum í Asíu í nótt gáfu
til kynna að gjaldmiðill Suöur-Afríku
lækkaði enn í verði gagnvart öðrum
gjaldmiðlum.
Hvítir borgarar skutu á um 100
unglinga af blönduðum kynþætti sem
réðust inn í úthverfi hvítra manna í
Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Ungl-
ingarnir hentu grjóti og bensin-
sprengjum í híbýli hvítra, að sögn lög-
reglu.
Slíkar árásir kynblendinga eða
blökkumanna á hvíta hafa verið sjald-
gæfar í Suður-Afríku.
Engar nákvæmar fréttir af
mannfalli hafa borist, en fréttir herma
aö 40 manns að minnsta kosti hafi
særst þegar lögregla skaut á ungling-
ana og þegar vegatálmi brann og
lokaði aðalvegi.
Víða um Jóhannesarborg var barist í
gærkvöldi. Lögregla átti í götubar-
Njósna-
tilkynning?
Fölsk dánartilkynning sem birtist í
Times blaðinu breska kann að hafa
verið á einhvern hátt tengd njósna
hneykslinu mikla í Vestur-Þýska-
landi. Hún kann jafnvel að hafa verið
dulbúið skeyti til austur-þýskra
njósnara í Bretlandi.
Dánartilkynningin skýrir frá því
VON HESSEN. - On August 21st at
Penzance. Cornwall. Timothy. Mark
and James. Dearly beloved sons of
Margarita Countess Von Hessen and
the late Count Rlchardt. Funeral
servlce to be held tn Germany. Do-
natlon to the NSPCC.
að Timothy, Mark og James von
Hessen verði grafnir í Þýskalandi.
Þeir séu synir Margarita greifynju
von Hessen. Þetta fólk er ekki til. Þó
er til 72 ára gömul prinsessa sem
heitir Margaret von Hessen, en hún
er nú gestur Elísabetar drottningar í
Balmoral kastala.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Vilt þú eignast
sælureit undir
suðrænni sól?
Magaluf, Palma de MaBorca
Við vinnum að því að skapa íslendingum aðstöðu í eigin
húsnæði í sólarlöndum, einkum til heilsubótar- og vetrar-
dvalar að afloknum löngum og ströngum starfsdegi fyrir
land og þjóð.
Okkur hefir tekist að fá fráteknar í stuttan tíma 50 íbúðir
með góðri aðstöðu á viðráðanlegum kjörum á eftirsóttum
stað á Mallorca, Magaluf, skammt frá strönd og höfuðborg-
inni Palma. Vegna þess hvað staðurinn er eftirsóttur, íbúð-
irnar vandaðar og margvísleg þjónusta og aðstaða á
staðnum er endursöluverð tryggt, auk hárra leigutekna yfir
sumarmánuðina, ef fólk vill, sem einar nægja til þess að skila
eigendum kaupverðinu aftur næstum alveg með 15 sumra
leigu og íbúðin er þá frjáls til afnota yfir veturinn raunveru-
lega frítt fyrir eigendur.
í íbúðasamstæðunni eru alls 120 íbúðir, tveggja og þriggja
herbergja, fullfrágengnar með innréttingum, hreinlætistækj-
um, eldavél og isskáp.
Sýnishorn af verði og kjörum, (háð reglum íslenskra gjald-
eyrisyfirvalda).
Stór útisundlaug er í hótel-
garði, upphituð innisund-
laug, gufubaðstofa, heilsu-
ræktarstöð með endurhæf-
ingaraðstöðu, gestamót-
taka, setustofur, veitinga-
staðir, kjörbúð, hárgreiðslu-
stofa og fleira.
Verð Þar af lánað til 10ára Leigutekjur 5 sumur Leigutekjur 10 sumur Leigutekjur 15 sumur
2. hæð 3. hæð 1.737 Þ. kr. 1.775 Þ.kr. 625 Þ. kr. 625 Þ. kr. 500 Þ.kr. 500 Þ.kr. 1.000 Þ.kr. 1.000 Þ.kr. 1.500 Þ.kr. 1.500 Þ.kr.
/ SAMTÖKIN
SOlARHUS
Garðastræti 17, 3. hæð, simi 11651 (skrifstofan opin
virka daga kl. 4—6 síðd. og aðra tima eftir samkomu-
lagi).