Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Qupperneq 19
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985.
19
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Heimir Karlsson Valsmaöur hefur
sent boltann í Viðismarkið i leik lið-
anna á dögunum. Valsmenn hafa
nú forystu i deildinni en ekki eru all-
ir sammála um að þeir vinni.
DV-mynd Bjarnleifur.
„Valur tryggir sér sigur”
Mér er alveg sama þótt einhverjir
segi aö viö eigum erfiöasta prógramm-
ið eftir. Við vinnum bara í Kefló og
tryggjum okkur titilinn með sigri á KR
þann 12,” sagði Jón Karl Helgason,
blaðamaður og bakpokahetja, í lauf-
léttum samræðum við undirritaðan.
„Valsarar eru langbestir enda efsta
liöið í deildinni. Eg er ekki hræddur við
Þórsara. Norðanmenn hafa löngum
þótt frægir fyrir annað en að vera Is-
landsmeistarar í knattspyrnu,” sagði
Jón. Er hann var spuröur hvaö helst
— segir Jón Kaii Helgason
þeir væru frægir fyrir. setti hann hljóð-
an en tautaði eitthvaö fyrir munni sér
um Vaglaskóg og Glerárhverfi.
„Eg er smáhræddur við Framara en
get alveg sofið fyrir því. Eg spái að
Fram verði í ööru sæti en Þór í þriðja
og hreppi Evrópusæti. Reykjavíkurfé-
lögunum Þrótti og Víkingi spái ég falli.
Sú spá er reyndar byggð á algerri van-
þekkingu og ég segi þetta aöeins því
mér finnst Suðurnesjamenn skemmti-
legir upp til hópa,” sagöi Jón Karl og
beit í flatkökuna sína.
SigA.
Jón Karl Helgason.
ÍA vinnur
— segir Sigþór Eiríksson
„Ég hef nú löngum þótt maður hlutlaus í
skrifum en þvi er ekki að neita að ég vona að
Skagamenn vinni,” sagði Sigþór Eiríksson,
fréttaritari og enskumaður, í símann á Akra-
„Var í Val en
hélt með Fram”
nesi.
„Ég vil bara ekki viðurkenna það sem blöð
hafa vcrið að segja að við eigum minnsta von
þeirra Uða sem mesta möguleika eiga á titl-
inum. Við höfum verið óheppnir og klaufskir
eins og í leiknum gegn FH og sama má segja
um tapið gegn KR. Svona hcimaleikir eiga
ekki að tapast og ef IA ekki vinnur þá er hægt
að fara aftur til þessara leikja og kenna um að
einhver ju leyti.
Svo má auðvitað taka fram að við höfum
misst sex leikmenn frá í fyrra og er það mesta
blóðtaka sem íslenskt lið varð fyrir í vetur.
Þetta eru Sigurður Halldórsson, Bjami Sig-
urðsson, Guðbjörn Tryggvason, Sigþór
Ómarsson og Sigurður Jónsson. í staðinn hafa
komið ungir og óreyndir sírákar sem hafa
staðið sig vel, sérstaklega Birgir Kristjánsson
í markinu, en reynslan hefur mikið að segja,”
sagði Sigþór og saup á gosflóskunni.
— segir Eiríkur Jónsson
„Eg spilaði fótbolta með Val í 5. C og
4. B. Eg held að ég sé eini maðurinn
sem hefur leikið með Val og haldið með
Fram,” sagði Eiríkur Jónsson, blaða-
maður og baunavinur, í stuttu (mjög
stuttu) spjalli.
„Það var eiginlega orðið óbærilegt á
æfingum því hinir strákarnir vildu
aldrei gefa á mig. Ég ákvað þá bara að
hætta og fór stuttu síðar til útlanda og
hætti að fylgjast með íþróttum,” sagði
Eiríkur. Áður en tókst að spyrja hann
um hver hann héldi að ynni var hann
kominn í símann og baö um Bandarík-
in. SigA.
Eirikur Jónsson.
Megi þeir
bestu vinna
— ogþað eru mínir menn, segja eitilharðir
stuðningsmenn toppbaráttuliðanna
Þetta er nú orðið svo fjandi spenn-
andi á toppi deildarinnar aö venjulegt
fólk „bíta nagl og bíða spent” eftir aö
17. og næstsíðasta umferðin byrji á
laugardaginn kemur. Og hvaö segja
stuðningsmenn? DV fór á hina heims-
frægu stúfa og spurði ofstækisfulla
stuðningsmenn toppbaráttuliðanna
hverju fram yndi síöustu tvær umferð-
irnar. Svörin voru öll á einn veg.
Þeirra lið myndu auðvitað vinna og öll
hin liðin tapa. Staðan yrði þá auðvitað
orðin svo slæm, eða kannski flókin, og
helst aö varpa yrði hlutkesti um hvaða
liðynnideildina.
Auðvitað er þetta bara óskhyggja í
köppunum fjórum en að lokum mun
einn þeirra hafa rétt fyrir sér. Hér fara
röksemdafærslur JKH, KMU, SE og
SA, eða Jóns Karls Helgasonar, Krist-
jáns Más Unnarssonar, Sigþórs Eiríks-
sonar og Stefáns Arnaldssonar. Megi
þeir bestu vinna. Ugg.
SigA
„Sannfærður um
að Fram sigri”
— segir Kristján Már Unnarsson
„Ég er saunfæröur um að Framarar
vinna þá leikl sem eftir eru og tekst að
koma Islandsmeistaratitlinum í hús.
Við ryðjum FH úr vegi, fjarvera Pét-
urs Ormslev kemur ekki að sökum, þar
sem Ormar Örlygsson er kominn úr
banni og Örn Valdimarsson er vel lið-
tækur leikmaður þegar hann er með,”
sagði Kristján Már Unnarsson, blaða-
maður og golfari, við undirritaðan i
g*r.
Blaöamaður hitti Kristján að máli
stuttu eftir hádegisverö en hann haföi
þá nýlokiö viö aö lesa Sandkom. Krist-
ján var hinn hressasti þrátt fyrir
ógöngur Framara aö undanförnu og
sagöi m.a. „Framliöið mun ná toppleik
gegn tA í síðustu umferðinni. Leik-
menn taka þó upp sína fyrri iðju og rót-
bursta IA, 4—1. Mínir menn munu nýta
færin aðeins betur en í leiknum við IBK
í bikarnum,” sagöi Kristján og brosti
gleitt er hann minntist þeirrar viður-
eignar. „Þetta gera 37 stig og vegna
eins stigs forystu Vals þurfum við að-
stoð utanaökomandi afla. Þar hef ég
stóra trú á IBK, þeim tekst að taka stig
af Val og sterkir varnarmenn Þróttara
munu sjá til þess að Þórsarar fari ekki
meö sigur af hólmi í viðureigninni.
næsta laugardag,” sagöi Kristján,
stakk úr tönn og byrjaði aftur að lesa
Sandkorn. SigA
Kristján Már Unnarsson.
„Þór vinnur
1. deildina”
— segir Stefan Arnaldsson
„Jú, jú, eg berst meö sverði og spjót-
um fyrir málstað Þórsara í þessu
máli og hef ekki trú á neinu öðru en aö
þeir vinni deildina,” sagði Stefán Arn-
aldsson, fréttaritari og flautuleikari,
viö DV í gær.
„Þaö getur fariö svo að taugarnar
segi til sín hjá ungu og óreyndu Þórs-
liðinu í leiknum gegn Þrótti á laugar-
daginn, en ég held að liðið sigri FH ör-
ugglega hér fyrir norðan. Liðið hefur
veriö ósgrandi hér heima og hefur,
held ég, alla burði til að vinna mótið.
Eina vafaatriöiö er leikurinn gegn
Þrótti í Reykjavík. Ef hefst aö sigra
hann þá vinnum við mótið. KR og
Keflavík sjá um Valsarana, þau lið
eiga ennþá séns á Evrópusæti og þau
munu berjast fyrir því,” sagði Stefán
ogleitútEyjafjörðinn. SigA.
PISA
puntar upp á
— Ja ekki nóg með það þvi að Pisa hornsófinn, sem er
bólstraður með buffalóskinni á slitflötum, er einhver
Opið föstudag til
kl. 8 (20.00) og
laugardag til kl. 4
(16.00).
þœgilegasti sófinn á markaðnum að sitja og liggja i.
Breidd 210 cm, lengd 260 cm. Margir litir (fœst einnig i
áklæði).
Útborgun er 30% og eftirstöðvar á 6 mánuðum. Stað-
greiðsluafsláttur 5% og að sjálfsögðu eru kreditkortin
bæði tekin sem útborgun á samninga og staðgreiðsla.
greiðsla.
HCSGAGNAUÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410