Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Qupperneq 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985.
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985.
•«
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
— er hann lék æf ingaleik
með Giinsburg gegn
franska landsliðinu
Giinsburg, hið nýja íélag Atla
Hilmarssonar í v-þýsku Bundes-
ligunni í handboltanum, lék í gær-
kvöldi æfingaleik við franska lands-
liðið. Jafnt varð 21—21 og skoraði Atii
sex af mörkum Giinsburg.
„Mér list mjög vei á allar aðstæður
og liðsandinn er mjög góður. Liðið er
ungt og mjög efnilegt, ég er reyndar
næstelsti leikmaður liðsins,” sagði Atli
í stuttu spjalli við DV í gær. Þess má
geta að Atli er ekki nema 25 ára.
-fros.
Stórtap hjá
Sigurði G.
— skoraði mark sem
vardæmtaf
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV
iV-Þýskalandi:
Sigurður Grétarsson og félagar hjá
svissneska 1. deUdar félaginu Luzern
máttu þola stórt tap gegn Aarau, 5—1 á
útivelli. Siguröur skoraði mark sem
dæmt var af. Staðan var 1—0 fyrir
Aarau í hálfleik en Luzern náði að
jafna. Þá var líka allur vindur úr
Luzern sem féU niður í fimmta sæti við
tapið.
-fros.
Jafnt
hjá Hercules
Hercules, lið Péturs Péturssonar í
spænsku knattspyrnunni, náðí i sitt
fyrsta stig á þessu keppnistímabili er
iiðið gerði 2—2 jafntefli við Atletico
Madrid.
-fros.
Jafnt á KR-velli
— þegarKRog Valur
áttustvið
í 1. deild kvenna
Einn ieikur var háður í 1. deild
kvennaknattspyrnunnar i gærkvöldi.
KR og Valur gerðu jafntefli, 1—1, á
KR-vellinum við Frostaskjól.
Þaö var markadrottning þeirra
Vaisstúlkna, Kristín Amþórsdóttir, sem
opnaöi leikinn með marki á 17. minútu.
Eftir markið tóku KR-stelpurnar við
sér og voru betri aðilinn. Þær náðu að
jafna meö marki úr vítaspyrnu á
fimmtu mínútu seinni hálfleiksins og
var Arna Steinssen þar að verki. Það
sem eftir lifði leiksins var boltinn mun
meira á vailarhelmingi vesturbæjar-
liðsins en Valsstelpunum tókst ekki að
bæta við mörkum.
KR hefur nú lokið leikjum sinum í
deildinni en þær eru nú í fjóröa sæti,
Valsmenn í því þriðja en bæði liðin
hafahlotið20stig.
-fros.
fþróttir
Kænska Stuttgart
réð úrslitum
— Ásgeir skoraði og var besti maður vallarins þegar Stuttgart vann útisigur
á Hannover, 1-3
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV
í Þýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson skoraöi eitt
mark og átti sendingu sem gaf annað
er Stuttgart vann góðan sigur á
Hannover á útivelli, 1—3. Leikur lið-
anna var allan tímann jafn en svo virð-
ist sem reynsla og kænska Stuttgart
leikmannanna hafi ráöiö úrslitum í
leiknum, eins og sagði í v-þýska sjón-
varpinu. Ásgeiri var mjög hælt og
hann talinn besti maður vallarins.
Það var Karl Allgöver sem kom
Stuttgart í 1—0 og við það sat í hléi.
Heimamenn jöfnuöu, 1—1, meö marki
Schaub en Peter Reichert náði foryst-
unni fyrir Stuttgart á ný er hann skor-
aði með skalla eftir aukaspyrnu Ás-
geirs. Þriðja markið skoraði Ásgeir
sjálfur úr vítaspyrnu á 81. mínútu og
þar meö voru úrslitin ráðin. Næsti leik-
ur Stuttgart er á laugardaginn, gegn
Saarbrucken.
Aðalleikur kvöldsins hjá Þjóðverjum
var viðureign Köln og Bremen. Kölnar-
liöið náði stórgóðri byrjun. Norbert
Dickel skoraði eftir aöeins hálfa mín-
útu og varnarmaðurinn Paul Steiner
bætti ööru marki viö tveimur mínútum
seinna. Aðalmaður Bremen liösins,
Rudi Völler, en það er nú í toppsæti
deildarinnar, náði að minnka muninn á
14. mínútu með fallegu marki. Köln
svaraöi tveimur mínútum seinna, nú
Karl-Heinz Geilsmade og útlitið heldur
dökkt hjá Bremenliðinu. Tvö mörk
með tveggja mínútna millibili snemma
Allt brást
Heimsmetstilraunirfrjálsíþróttagarpa
á stórmótinu í Rieti á ítalfu mistókust allar.
Hlaup Said Aouita endaði með ósköpum
Tilraunir fjögurra frjálsíþrótta-
stjarna til þess að setja heimsmet á
stórmóti sem háð var í Rieti á ítalíu
brugðust allar. Ekkert heimsmet var
sett á mótinu en árangur var mjög
góður i mörgum greinum.
Heimsmetstilraun Marocco-búans
Said Aouita vakti mesta athygli en hún
endaði með ósköpum. Aouita var að
reyna við heimsmet Bretans Steve
Cram í tvö þúsund metra hlaupinu.
Hann náði reyndar fyrsta sætinu í
hlaupinu en þjáöur af kvölum vegna
tognunar og óvíst er hvort hann muni
taka þátt á lokamótinu í Róm á laugar-
daginn en þaö var talið frekar ólíklegt í
gærkvöldi. Said Aouita er heimsmet-
hafi í 1500 og fimm þúsund metra
hlaupi.
Það voru fleiri sem máttu sætta sig
við misheppnaðar heimsmetstilraunir.
Svíinn Patrick Sjöberg reyndi við
nokkurra klukkutíma gamalt met Igor
Pailin sem er 2,41. Svíinn var nokkuð
langt frá því að stökkva þá hæð en
hann fór yfir 2,35 og vann hástökks-
keppnina. Búlgarska stúlkan Stefana
Kostadinova var öllu nær heimsmetinu
í kvennaflokki sem er 2,07, eign
Ludmilu Andonovu. Stefana stökk 2,04
og var mjög nálægt því að fara yfir 2,08
í annarri tilraun sinni.
Rúmenska stúlkan Maricia Puica
reyndi við metið í tvö þúsund metra
Maupi. Hún hljóð á 5:30,39 sem er næst-
besti árangur sem náöst hefur í þessari
grein.
-fros.
í síðari hálfleiknum jöfnuðu leikinn.
Fyrst austurríski landsliðsmaðurinn
Bruno Pezzey og síðan besti maður
vallarins Rudi Völler. Urslitin því 3—3.
Hamburger SV vann auðveldan sig-
ur á Borussia Mönchengladbach. Felix
Magath, Heinz Grundel og Ditmar
Jakobs komu Hamburger í 3—0 forystu
í fyrri hálfleik en í þeim seinni skoruðu
liðin hvort sitt markið. Peter Olux
skoraöi f jórða mark HSV áður en Hans
Gunter náði aö laga stöðuna fyrir leiks-
lok.
Nýliðarnir Niirnberg hafa farið mjög
vel af staö og í gærkvöldi unnu þeir
sinn þriðja sigur í röð. Nú gegn Bayer
Leverkusen, 3—2, og var það sann-
gjarn sigur.
Þá vann Fortuna Diisseldorf sigur á
Borussia Dortmund, 4—2.
Efstu lið eru nú þessi:
WerderBreman 5 3 2 0 15—6 8
Niirnberg 5 3 11 11—6 7
Bor. Mönchengladbach
6
Waldhof Mannheim
Bochum
Bayer Uerdingen
5 3 1 1 10-
7
5 2 2 1 8-6 6
5 3 0 2 10-10 6
5 3 0 2 7-9 6
I kjölfariö fylgja sex lið meö fimm
stig. Þau eru Stuttgart, Bayern
Miinchen, Köln, Hamburger, Ein-
tracht Frankf urt og Kaiserslautern.
-fros
Einarog
Sjöberg
— einir
Norðurlandabúa eftir
íEvrópuúrvalinu
Fimm frjálsíþróttastjörnur hafa ákveðið að
gefa ekki kost á sér í Evrópuliðið í frjálsum
íþróttum sem keppir í heimsbikarkeppninni í
nóvember.
Það eru hlaupararnir Steve Cram,
Sebastian Coe og David Redmund, allir frá
Bretlandi, Ralf Lubke, V-Þýskalandi og
norska hlaupadrottningin Thorid Kristiansen.
Hollendingurinn Rob Druppers mun keppa í
stað Coe í 1500 metrunum og Jose Luiz Conzal-
es mun taka sæti Steve Cram. Þá mun
portúgalska hlaupadrottningin Aurora Gunha
koma i stað Ingrid Kristianssen í tíu þúsund
metra hlaupinu.
Ingrid Kristiansen var ein af þremur Norð-
urlandabúum sem valin var í Evrópuliðið. Nú
eru því aðeins tveir keppendur eftir frá Norð-
urlönduuum en það er Svíinn Patrick Sjöberg
ásamt Einari Vilhjálmssyni sem keppir í
spjótkasti.
íþróttir
Asgeir Sigurvinsson hefur góða ástæðu til að brosa þessa dagana. Hann hefur náð sór vel af meiðslum
þeim er hrjáðu hann og á nú hvern stórleikinn á fætur öðr.um með Stuttgartliðinu. Þessi mynd var tekin
fyrir þremur árum er hann skálaði i lituðu Gvendarbrunnavatni i tilefni af giftingu sinni.
Mikið um fjör og
spjöld í Beveren
— þegar Anderlecht gerði jafntefli við Beveren í belgísku 1. deildinni.
Arnór á varamannabekknum
jafnaði fyrir Standard. Annars urðu
úrslitþessi:
Mechelen—Waterschei
AA-Gent—S eraing
Standard Liege—Lokeren
RWD Moleenbeek—Lierse
Kortrijk—Charleroi
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DVíBelgíu:
Arnór Guðjohnsen var allan tímann
á varamannabekk Anderlecht sem lék
í gærkvöldi á útivelli gegn Beveren.
Leikurinn var mjög fjörugur og
skemmtilegur. Petrocovic náði foryst-
unni fyrir Anderlecht snemma í leikn-
um en eftir það réð Beveren að mestu
leyti ferðinni. Tókst þó ekki að jafna
fyrr en um fimm mínútur voru til leiks-
loka og var Marinelli þar að verki.
Beveren sýndi mjög sannfærandi leik
og var óheppið að sigra ekki. Sex gul
spjöld sáust í leiknum og fékk miðju-
leikmaður Anderlecht, Enzo Scifo, að
sjá eitt þeirra en hann átti einn sinn
versta leik með Anderlecht liðinu frá
upphafi.
Það var einnig mikið f jör í Liege þar
sem Standard og Lokeren áttust viö.
Standard klúðraði víti strax í upphafi
leiksins en skömmu seinna náði
Darden forystunni fyrir þá. Johan
Neeskens jafnaði fyrir Lokeren og
Mubuyu náði forystunni en Raeven
r
Iþróttireru
einnig
ábls. 18 ogl9
„AK óráðið hvort ( Suðni
Bergs kemur til okkar” |
— segir Graham Turnei „Þetta mál er á byrjunarstigi. Það er þannig til komiö að þeir hjá Henson, sem sjá fyrir búningunum okkar, bentu okkur á einn eða tvo nothæfa íslenska Ieikmenn og úr því hefur orðið að við ætlum að líta frekar á Guðna Bergsson,” sagði Graham Turner, framkvæmdastjóri Aston Villa, í samtali við DV í gær. Komið hefur fram í blöðum að Guðni Bergsson sé á r, stjóri Aston Villa í viðtali v leið út til Aston Villa til æfinga. „Máliö er algerlega í höndum Henson-manna en það gæti farið svo að við bjóðum Bergssyni út að æfa með okkur og þetta gæti gerst innan mánaöar. Sjálfur hef ég aldrei séð til leikmannsins, né nokkur þjálfari Aston Villa. Það gæti farið svo að ég fari til íslands til aö kíkja á hann eða aö hann komi til okkar. Engin ákvörðun hefur ið DV. „Ég kem kannski til 1 verið tekin um að hann komi og leiki. með okkur,” sagði Turner. Mál þetta kom fyrst upp snemma í sumar og hefur verið að smágerjast síðan. Greinilegt er þó að þarna er ekkert ákveðið. Guðni Bergsson hefur Ieikið sem miðvörður hjá Val og staðiö sig meö miklum sóma. Miðverðir Aston Villa eru Alan Evans og íslands að horfa á hann” Brendan Ormsby. Evans er eini leik- maður félagsins sem varð Evrópu- og Englandsmeistari í upphafi þessa ára- tugar. Hann þykir mjög góöur leikmaður og starfi sínu vaxinn.i Ormsby kom inn í liðið er Ken McNaught fór til WBA og hefur verið úr og í liðinu á víxl og sæti hans engan veginn öruggt. SigA.
2-2
0-0
2-2
0-1
0-1
Beveren—Anderlecht 1—1
Cercle Brugge—Club Brugge 0—1
Club Brugge er nú í efsta sæti
deildarinnar en tveir leikir fara fram í
kvöld. Þá á Beerehot möguleika á að
endurheimta efsta sætiö en liðiö leikur
gegn Liege. -fros.
Leitaftur
til 1905!
— til að finna jafngóða byrjun hjá Manchester
United, sem vann Newcastle, 3-0.
Tottenham að komast á skrið
Ekkert lát virðist nú vera á sigur-
göngu Manchester United. Liðið vann í
gærkvöldi sinn sjötta sigur af sex
mögulegum í ensku 1. deildar keppn-
inni er það sigraði Newcastle örugg-
lega, 3—0, á heimavelli sínum, Old
Trafford. Það þarf að leita allt aftur til
ársins 1905 til að finna jafngóða byrjun
hjá liðinu en þá vann þaö einnig sex
fyrstu leiki sína í deildinni.
Nóg með það. Leikurinn í gærkvöldi
var aðeins fimm mínútna gamall þeg-
ar írski landsliösmaðurinn Frank
Stapleton skoraði fyrsta markiö fyrir
Unitedliðið. Sex mínútum seinna skor-
aði Stabbi sitt annaö mark meö kröft-
ugum skalla eftir aukaspyrnu Gordon
Strachan. Hann varð síðan að yfirgefa
leikvöllinn tuttugu mínútum seinna en
Mark Hughes sá um aö fullkomna
þrennuna.
Tottenham virðist nú loks vera að
finna sitt eina sanna form eftir hroöa-
lega byrjun. Liöiö lék sér að nágranna-
liöinu Chelsea. Vann, 4—1, eftir aö hafa
haft yfir í hléi, 3—0. Miöveröirnir
Graham Roberts og Paul Miller skor-
uöu fyrstu tvö mörkin fyrir Spurs og
aðeins 22 mínútur liðnar. John
Chiedozie bætti því þriðja við nokkrum
mínútum seinna og leikurinn einungis
formsatriði.
Kerry Dixon skoraði eina mark
Chelsea á 66. mínútu en Mark Falco
svaraði fyrir Tottenham fimm mínút-
um seinna. Glenn Hoddle varð aö yfir-
gefa leikvöllinn vegna meiðsla í nára
eftir að hafa lagt upp öll fjögur mörk
Tottenham. Ekki er þó talið að meiösli
hans séu alvarleg og hann ætti að vera
tilbúinn í slaginn aftur á laugardaginn.
Fimm leikmenn voru bókaðir í leikn-
um og einn rekinn af leikvelli. Það var
fyrirliði Chelsea, Colin Pates, sem
þurfti að bíta í þaö súra epli.
Annars uröu úrslit þessi í Englandi:
Leicester—Watford 2-2
W.B.A.—Aston Villa 0-3
Tottenham—Chelsea 4-1
Manchester United—Newcastle 3-0
2. deild
Brighton—Leeds 0-1
Stoke—Grimsby 1—1 -fros
Tveir erlendir þjálf-
arar skoða Ragnar M
— í leik IBK og Vals á laugardag. Willie Rainke kemur með þá
Ragnar Margeirsson.
Guðmundur
íÞrótt
Guðmundur Öskarsson, handknatt-
leiksmaður úr Stjörnunni, liefur ákveð-
ið að skipta yfir í lið Þróttar á þessu
keppnistímabili.
Guðmuudur er útileikmaður og lék
með FH áður en hann gekk í raðir
Stjörnunnar.
-fros
Eins og DV skýrði frá fyrir viku
kynnir Willi Reinke, umboðsmaður
knattspyrnuunnenda, nú þá Ragnar
Margeirsson og Ömar Torfason fyrir
knattspyrnufélögum í Evrópu. Til stóð
að Reinke kæmi til landsins með knatt-
spyrnuþjálfara ónefnds félags með sér
til að horfa á Ragnar í leik Keflavíkur
og Akraness um helgina.
„Reinke hringdi í mig í vikunni og
sagðist vera aö hugsa um að koma meö
tvo þjálfara á leikinn viö Val á laugar-
daginn. Hann sagði ekki frá hvaða
liðum en mér skilst að þeir séu frá
Belgíu og Þýskalandi,” sagöi Ragnar
Margeirsson í samtali við DV í gær.
„Ég sagði við hann að ég vildi frekar
aö þessir menn sæju mig í síðasta
leiknum gegn Víkingum. Ég er ekki
ennþá búinn aö ná mér fullkomlega af
meiðslunum. Þau eru þó að lagast og
ég finn að ég er að komast í betra form.
Þess vegna er betra að þeir sjái Vík-
ingsleikinn því þessir menn koma til
með aö dæma mig á einum leik og þá
er eins gott að ég sé tilbúinn í slaginn,”
sagði Ragnar.
■ ■
2,411HASTOKKI
Heimsmet Sovétmannsins Igor Pehlín í hástökki varð hápunkturinn
á heimsleikum stúdenta sem lauk ígær
„Eftir að ég hafði sett metiö var ég
viss um aö ég gæti stokkið hærra en
starfsmenn mótsins ýttu svo á eftir
mér að stökkva að ég hafði ekki tíma
til þess að einbeita mér nægilega,”
sagði lítt þekktur 22 ára sovéskur
raunvísindancmi, Igor Paklin, sem í
gær setti nýtt heimsmet í hástökki,
stökk 2,41 á heimsleikum stúdenta sem
lauk í gær í Japan.
Paklin setti metið í þriðju tilraun
sinni við hæðina en hann fór vel yfir
slána. Reyndi síöan þrisvar við 2,43 en
felldi í öll skiptin.
Fyrra metiö átti annar lítt þekktur
Rússi, Rudolf Povarnitskin, en það var
sett í Sovétríkjunum fyrir tæpum mán-
uði.
Hástökksmetið var hápunktur
heimsleikanna sem lauk í gær. Kúbu-
maðurinn Juan Centelles náði öðru
sætinu, stökk 2,31 og V-Þjóðverjinn
Gerd Nagel lenti í þriðja, stökk 2,26
metra.
Sovétmenn voru mjög atkvæðamikl-
ir á mótinu og sópuðu til sín langflest-
um verðlaunum. I mjög skemmtilegu
800 metra hlaupi, sem fram fór í gær,
misstu þeir þó óvænt af gullverölaun-
unum eftir að hafa átt tvo fyrstu menn
nær allan tímann. Sovétmennirnir
Victor Kalinski og Anatoly Millin voru
Málið er því ennþá í biðstöðu og
sama má segja um mál Omars Torfa-
sonar. Eins og fram kom í viðtalinu við
hann í síðasta þriðjudagsblaði hefur
hann takmarkaðan áhuga á að fara út
og sagði viö DV í gær aö hann ætti ekki
von á að neitt gerðist fyrr en eftir
keppnistímabilið hér. Sama má segja
um mál Ragnars því eins og kunnugt
er mega leikmenn hér á landi ekki fara
frá liöum sínum á meðan á leiktímabili
stendur.
SigA
nær vísir um tvöfaldan sovéskan sigur
en Pólverjinn Ryszard Ostrowski náði
að komast úr sjötta sæti í hlaupinu yfir
í það fyrsta á frábærum endaspretti.
Pólverjinn tryggði sér gullið með því
að kasta sér yfir marklínuna. Tími
hans reyndist 44,38 mínútur. Annars
varð verðlaunaskipting efstu þjóða
þessi: g. s. b.
Sovétríkin 44 21 19
Bandaríkin 22 21 25
Kúba 9 8 5
Kína 6 7 6
Japan 637
Rúmenía 5 10 6
-fros
Sveinlaugur Kristjánsson.
Sveinlaugur
Þróttara
— í handbolta. Öll
l.deildarfélöginhafa
nú ráðið þjálfara
Sveinlaugur Kristjánsson hefur
verið ráðinn þjálfari Þróttar í
meistaraflokki karla en Þróttarar eru
eina lið 1. deildarinnar sem átti
eftir aö ganga frá ráöningu þjálfara.
Sveinlaugur lék fyrir nokkrum árum
ineð Þrótti í handboltanum og hefur
setið í stjórn félagsins. Hann tekur við
stöðunni af Páli Ólafssyni sem nú
leikur með v-býska félaginu
Dankersen.
Handknattleiksdeild Þróttar ákvað
aö Ieita innan félagsins að þjálfara
eftir að hafa reynt að fá bæði Pál
Björgvinsson og Hilmar BjÖrnsson til
sm.
-fros
Skotar
án Dalglish
— er þeir leika við Wales
í „íslandsriðli” HM
Skoska landsliðið mun leika hinn
þýðingarmikla leik gegn Wales án
tveggja af sinum bestu mönnum.
Kenny Dalglish, sem átt hefur við
meiðsli að stríða í hné, tilkynnti skoska
einvaldinum Jock Stein að hann yrði
ekki orðinn góður fyrir leikinn á þriðju-
dagskvöld sem fram fer í Wales.
Leikur liðanna ræöur miklu um það
hvort liðið kemst áfram í lokakeppnina
úr Evrópuriöli sjö en auk Bretlands-
eyjaliðanna leika í honum Spánn og
Island. Landsliösfyrirliði Skota,
Graeme Souness, mun heldur ekki
getað leikið vegna gula spjaldsins sem
hann fékk í leiknum við tsland í sumar.
Það var annað spjald hans og merkti
því leikbann.
Skotar, Walesbúar og Spánverjar
hafa öll hlotið sex stig úr leikjum sín-
um, Skotar hafa besta markahlutfallið
og yrði jafntefli þeim þvi mjög hag-
stæð úrslit. Síöasti leikur riðilsins fer
fram í Sevilla á Spáni þann 25.
september, þá mæta Spánverjar ls-
lendingum.
-fros.
Firmakeppni ÍK
Firmakeppni IK í knattspyrnu utan-
húss verður haldin á Vallargerðisvelli í
Kópavogi dagana 28. og 29. september.
Leikið verður á tveimur völlum, 7
menn í liði, og leiktími er 2xi5
mínútur. Þátttökugjald er 3.500 krónur
áliö.
Þátttaka tilkynnist til Sveins
Kjartanssonar, sírni 641103, eða Víðis
Sigurðssonar, sími 75209 og 81333, í
síðasta lagi mánudaginn 23.
september.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir