Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Page 40
( TH*
FR ETTASKOTIÐ
(68) - (7Í) - (Í8
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
éfia vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist efia er
notafl í DV, greið-
ast 1.009 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Vifl tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985.
Seyðisfjörður:
Dular-
fullur
fugla-
dauði
„Þaö var fyrir fjórum dögum sem
fyrst fór að bera á þessum fugladauða
hérna. Þetta er eingöngu æðarfugl,
sem virðist skríða hér upp á land til að
drepast. Ég taldi um 50 hræ hér í
nágrenninu,” sagði Sigurður
Sigurðsson á Seyðisfirði er DV ræddi
viö hann.
Sigurður sagði að margir álitu að
fuglinn dræpist af því að hann hefði
farið í grút frá bræðslunni. „En ég held
að þetta sé pest núna,” sagöi hann.
„Fugl sem lendir í grút er mjög
horaður þegar hann drepst því að hann
er lengi án ætis. Þessir fuglar, sem nú
hafa fundist dauðir, eru ekki horaðir.
Og það myndi varla leyna sér heföu
þeirlentígrút.”
Þá kvað Sigurður þaö eftirtektarvert
aö einkum virtust það vera ungir
blikar sem skríða upp á land og
drepast. Þeir væru þó ekki vanir aö
vera aö lóna inni í firöi á þessum árs-
tíma heldur héldu sig úti á hafi.
Sigurður sagðist hafa tekið fjögur
hræ sem send hefðu verið til
Reykjavíkur til rannsóknar.
Niðurstööur fengjust væntanlega á
næstu dögum. -JSS
Karpov með
hvítt í dag
Heimsmeistarinn Karpov gaf fyrstu
einvígisskákina, sem farið haföi í bið.
Tefldi hann biöskákina ekki frekar og
virðast heimarannsóknirnar á bið-
stöðunni hafa fariö heim og saman við
álit skákfróðra á því aö staða svarts
væri gjörtöpuö.
Kasparov hefur þá hreppt fyrsta
vinninginn en önnur einvígisskákin
verður tefld í dag og stýrir Karpov þá
hvítu mönnunum.
EINANGRUNAR
GLER
666160
LOKI
A Siglufirði logar allt hjé
slökkviliðinu!
Myndi draga úr áhrifa
mætti viðskiptaþvingana
— breytir ekki miklu, segir forstjóri Coldwater
Óskar Magnússon, DV, Washington:
„Jú, það er rétt. Ef slíkt samstarf
tækist geri ég ráð fyrir að það myndi
draga úr áhrifamætti viðskipta-
þvingana gegn Islandi,” sagði Russ-
el Wilde, blaðafulltrúi Greenpeace
samtakanna, í samtali við DV.
Blaðið hafði samband viö hann
vegna hugmynda um að hvalveiði-
þjóðir standi saman að áróðri gegn
hvalvemdarmönnum.
Wilde undirstrikaði þó að við-
skiptaþvinganir væru ekki fyrirhug-
aðaríbiU.
„Ef dregið yrði úr mætti aögerða
okkar, þá getum viö enn gripið til
beinna aðgerða og stjórnmálalegs
þrýstings,” sagöi hann.
„Það er gott aö hafa samflot við
aðrar þjóðir um þau mál sem okkur
eru mikilvæg, en því miður held ég
aö í sambandi við hvalamáUö geti
það ekki breytt miklu.” Þetta sagði
Magnús Gústafsson, forstjóri Cold-
water, dótturfyrirtækis Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í Banda-
ríkjunum, í samtali við DV.
„Samstarf af þessu tagi er hins
vegar nauðsynlegt að hafa yfirleitt
og ef þaö hæfist nú geri ég ráð fyrir
aö það væri góður undirbúningur ef
friðunarmenn fara síðar að skipta
sér af öðrum málum okkar, svo sem
fiskveiðunum sjálfum,” sagði Magn-
úsGústafsson.
Hann sagði að ekki hefði orðið vart
aukins þrýstings frá friðunarmönn-
umuppásíðkastið.
„Þaö er ekki mikið vopnaglamur
núna. Ég vona að við notum okkur
framlengdan frest til að endurskoöa
vísindaáætlunina frá öllum hliðum,”
sagði Magnús Gústafsson.
-Þóg
{
4
\
4
\
4
.
Áburðarfram-
leiðsla
legið niðri
í 12 daga
• Að undanförnu hafa lögreglumenn í Árbæ fylgst með fallegri álft sem haldið hefur til i Hólmsá. Hún hef-
ur bersýnilega verið að veslast upp, orflifl verri mefl hverjum deginum og í morgun var gripifl til þess ráfls
að skjóta hana. DV-mynd S.
Sigluf jarðarkaupstaður gæti fuðrað upp:
Slökkviliösstjóri
afsalar sér ábyrgö
„Ég treysti mér ekki til að bera
ábyrgð á eldvörnum hér á Siglufiröi
og hef því afsalað mér allri ábyrgö
yfir á bæjarstjórnina,” sagði
Kristinn Georgsson, slökkviliösstjóri
á Siglufirði, í,samtali viö DV.
Kristinn t'elui- sig ekki fá þá fyrir-
greiðslu frá bæjarstjórninni sem
nauðsynlegt er til að sinna eldvörn-
um í kaupstaönum. Brunamálastofn-
unin gerði úttekt á ástandi mála á
Siglufirði og samdi lista með tillög-
um um úrbætur.
„Tiimælum Brunamáiastofnunar-
innar hefur ekki verið sinnt þannig
að beinast iiggur viö að ætla aö
bæjarstjórnin vilji ekki að rekstur
slökkviliösins hér sé samkvæmt lög-
um,” sagöi slökkvilíðsstjórinn. „Það
vantar hér alls kyns tæki, eldvarna-
eftirlit og svo eru engir slökkviliðs-
menn á bakvöktum. Sú staða gæti
meira aö segja komiö upp aö enginn
væri í bænum þegar eldur kæmi upp
og á veturna er ekki hægt að gera ráð
fyrir hjálp annars staöar frá vegna
einangrunar. Viö verðum að vera
sjálfum okkur nógir i þessum
efnum,” sagöi Kristinn Georgsson
slökkviliðsstjóri.
Að sögn Ottars Proppe bæjarstjóra.
er hér ekkert stórmái á ferðinni:
„Þaö eru skiptar skoðanir um
hversu miklu fé á að veita til slökkvi-
liðsins. En það hefur engum verið
sagt upp og enginn hefur beðist
lausnar.”
Framleiðsla á áburði í Áburðarverk-
smiðju ríkisins hefur legið niðri í tólf
daga vegna verkfalls tuttugu járn-
smiöa og rafvirkja. Verkfaliið hófst 10.
ágúst og hefur því staðið yfir tæpar
f jórar vikur.
I Gufunesi eru í raun fimm verk-
smiðjur. Vetnis-, köfnunarefnis- og
ammoníaksverksmiðjurnar starfa enn
eölilega en sýruverksmiðja og blönd-
unarverksmiðja hafa stöðvast.
„I sýruverksmiðjunni var komið að
því aö stoppa vegna viðhalds og endur-
nýjunar á stóru tæki. Það átti að fara í
aö endurnýja þetta stykki en það hefur
orðið að bíða,” sagði Jens Hinriksson,
vélstjóri í Áburðarverksmiðjunni.
Vegna skorts á sýru hefur blöndun-
arverksmiðjan einnig stöövast.
Horfur á samkomulagi í kjaradeil-
unni eru ekki bjartar. Guðlaugur Þor-
valdsson ríkissáttasemjari sagði í gær
að dregist gæti í nokkra daga að hann
boöaöi til sáttafundar. Hann sagði þó
þreifingar vera á bak við tjöldin.
-KMU.
4
4
4
4
4
4
4
Stefnirívíðtækt
bónusverkfall
Stór hluti af fiskvinnslufólki í land-
inu mun hætta bónusvinnu í næstu
viku, fáist ekki fram breytingar á
bónuskerfinu. Fjögur verkalýðsfélög,
á Eskifirði, Breiðdalsvík, Vopnafirði
og Akranesi, höfðu í gær tilkynnt
bónusverkfall. I dag bætast viö Höfn í
Hornafiröi, Neskaupstaöur, Stöövar-
fjörður, Stokkseyri, Þorlákshöfn og
Siglufjörður.
„Þetta segir ekki nema lítiö því að
fjölmörg félög munu boöa samúðar-
verkfall,” sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verkamanna-
sambands Islands, í morgun.
„Það bar ákaflega mikið á milli.
Fundurinn stóð frá klukkan tvö til sex.
Þeir báðu um frest til föstudags,”
sagði Guðmundur um fund með at-
vinnurekendum í gær.
-KMU.