Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Side 7
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
59
SÓKNARFÉLAGAR
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóði stendur frá frá
mánudegi 9. desembertil 20. desember.
Umsækjendur komi á skrifstofu félagsins, Skipholti
50a, eða hafi samband í síma 81150 eða 81876.
Stjórn Sóknar.
Dætur Nílar. Myndin er frá
Omaha í Nebraska. Þær eru
þarna að heilsa „æðstu drottn-
ingu“ sinni sem situr i hásæti.
„Dæturnar" eru í egypskum
búningum og leggja hönd á öxl
hver annarri til að röðin haldist
bein.
Þessir frímúrarar eru gyðingar
og tilheyra stúku í Brooklyn sem
er helguð hofi Salómons. Salóm-
on (varla í eigin persónu?) situr
fyrir miðri mynd með opna biblíu
fyrir framan sig. Æðstiprestur
gyðinga krýpur við örkina.
TIL SÖLU
ýxnsar gerðir af
gjafa- og jólauittbúðapappír.
Einnig dagatöl, mánaðatöl nq borðalmanók ivnt
ið 1986.
W
Pantið
tímaxtlega.
F'Olritjsj)i 'nisini(^i<
Spítalnstiq Í0,
v/Óðin.'torq.
S.mi npno.
Á ÍÞRÓTTAFRÉTTiR HE
'NNAR
„Bræðrabönd" nefndi Ulfar Þor-
móðsson bók sína um íslenska frí-
múrara. Sú bók kom út í tveimur
hlutum og er nánast upptalning á
félögum í þessari hreyfmgu. Og þar
eð félagatal er jafnan brigðult er
hætt við að „Bræðraböndin" séu
ekki nein endanleg heimild um þessa
hreyfingu þar sem sitja fundi ráða-
menn þessarar þjóðar og minni spá-
menn; karlar úr ýmsum starfsgrein-
um; menn sem setja upp harðan
flibba, pípuhatt og skarta sínum
sjakkett þegar þeir fara út að hitta
reglubræður.
Við rákumst á áreiðanlegar heim-
ildir um bandarísku frímúrarahreyf-
inguna nú nýlega. Sú hreyfing er
ákaflega öflug - eða hefur verið það.
Það var einkum á fyrri helmingi
þessarar aldar að áhugi ríkti meðal
bisnessmanna vestra að vera með í
þessum leynifélagsskap. Eitthvað
mun sá áhugi hafa dofnað.
Frímúrarahreyfing hvers lands er
síður en svo kópía af einhverri ann-
arri frímúrarahreyfingu. En grund-
völlur þessa félagsskapar er þó hinn
sami. Islenskir frímúrarar sækja sína
fyrirmynd til Danmerkur. Hreyfingin
var stofnuð hér á landi 1914 að
fengnu leyfi kóngsins, en hið kon-
unglega yfirvald hafði reyndar lengi
þrjóskast við að veita frímúrurum
leyfi til að starfa. Fyrstu forvígis-
menn hreyfingarinnar hér voru
Nathan Olsen, Kaaber og seinna
Sveinn Björnsson - aðallinn, að
sjálfsögðu.
270 ARA LEYNIFELAG
Frímúrarahreyfingin er evrópsk að
uppruna og mun nú vera um það bil
270 ára. Leynimakkið á þessari
hreyfingu hefur stundum farið í
taugarnar á yfirvöldum og einnig
kirkjulegum yfirvöldum, einkum þó
í kaþólskum löndum. Sjaldgæft mun
vera að stjórnmálamenn í fremstu
röð, eða valdamenn séu í frímúrara-
hreyfingunni (hér vitnar blm. beint
í heimild sína, sem er bandarísk
auðvitað mun reyndin önnur víða,
svo sem á íslandi) þótt dæmi séu um
slíkt. Má t.d. nefna hertogann af
Edinburg.
Upphaf frímúrarahreyfingarinnar
er rakið til ársins 1717. Þá var stofn-
uð stúka i London. Frímúraranafnið
mun þannig til komið að upp úr miðri
sautjándu öld fór nokkuð að draga
úr kirkjubyggingum á Englandi. Þar
með varð atvinna múrara, eða grjót-
höggsmanna, stopulli og þeir stofn-
uðu með sér gildi. Þessi gildi voru
nefnd „free masons“ eða frí-múrarar
þar eð þeir voru frjálsir að því að
fara borg úr borg í leit að vinnu.
Þessir frímúrarar tóku svo stundum
menn úr öðrum starfsgreinum í sínar
raðir.
Smám saman þróuðust þessi
„múraragildi" Bretanna. Þeir stofn-
uðu þessi iðnaðarfélög sín hvar sem
þeir fóru. Og í öðrum Evrópulöndum,
þar sem menn voru farnir að van-
treysta eða rísa upp gegn stofnunum
kirkjunnar, gengu menn gjarna í
frímúrarastúku. Það gerðu t.d. menn
eins og Voltaire og Mozart og Friðrik
mikli Prússakóngur (þessi sem var
svo elskur að hundi sínum).
LÁGSTÉTTIRNAR HÖFÐU ILL-
AN BIFUR
Lágstéttir höfðu frá upphafi illan
bifur á frímúrurum. Það stafaði eink-
um af því hversu skrautlega þeir
reyndu að klæða sig og sérkennilega.
Þegar múrverksmenn fóru í skrúð-
göngu í London voru þeir grýttir.
Og þar eð múrverksmenn voru oft
og tíðum andvígir kaþólsku kirkj-
unni myndaðist fjandskapur þar á
milli sem lengi var við lýði. Því var
það að Klementínus 12. páfi sagði
árið 1738: „Hefðu þeir ekki illvirkin
i heiðri myndu þeir ekki...vera svo
ljósfælnir."
Þessi orð páfa hafa reyndar oft
verið endurtekin - og haldið við
þeirri trú manna að þetta leynifélag
hafi fátt þokkalegt fyrir stafni úr því
ekkert af gjörðum þess, siðum og
venjum má gera opinbert.
Þegar hreyfingin fór að festast í
sessi í Bandaríkjunum kom hún sér
upp ýmsum flóknum helgisiðum.
Bandaríska hreyfingin tekur einnig
inn konur í sérstaka deild. Þær eru
kallaðar „Dætur Nílar“. Og synir
elta feður inn í hreyfinguna - menn
klifra upp virðingarstigann eftir
flóknum reglum. Allt gengur þetta
út á að innprenta „rétta“ siðgæðið,
„rétt“ viðhorf til lífsins og mönnum
er víst óhætt að trúa því að það
viðhorf er hvorki frumlegt né nýstár-
legt. ' -GG
Ríkismat sjávarafuröa
Ríkismat sjávarafurða vantar framtakssamt
og drífandi fólk í eftirfarandi ábyrgðar- og
stjórnunarstörf:
REKSTRARSTJÓRA
FORSTÖÐUMANN AFURÐADEILDAR
TGRSTÖÐUMANN FERSKFISKDEILDAR
FORSTÖÐUMANN GAGNAVINNSLU- OG
UPPLÝSINGASVIÐS
HREINLÆTISSÉRFRÆÐING
Þeir sem ráöast í þessi störf munu vinna náið saman
og með forstöðumanni stofnunarinnar við daglega
stjórn og mótun starfshátta.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 13866, 16858
eða 27533. Umsóknir skulu berast Ríkismati sjávaraf-
urða, Nóatúni 17,105 Rfeykjavík, fyrir 10. desember nk.
Hlutverk Ríkismats sjávarafurða er að stuðla að bættum hráefnis- og voru-
vörugæðum islenskra sjávarafuröa. Stofnunin mun vinna náið með fyrirtækj-
um i sjávarútvegi. Rikismat sjávarafurða mun fylgjast með stoðu islenskra
sjávarafurða á mörkuðum erlendis með það aö markmiði að tryggja sem
bestan orðstir þeirra.