Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1985, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985.
35
í tólf—Tippað á tólf—Tippað á tólf—Tippað á tólf—Tippað á tólf—Tippað á tólf
United tekur Liverpoolbanana
Manchester City liðinu hefur gengið ágætlega að undanförnu eftir
marga stigalausa leiki í haust. Mick McCarthy gefur aldrei eftir enda
vígalegur leikmaður.
Nafn-
lausir
seðlar
Potturinn hefur örlítið verið að
dala undanfarnar vikur en samt
sem áður seldust um síðustu
helgi rúmlega milljón raðir.
Nákvæmlega 1.084.512 raðir. Alls
voru því í pottinum 2.033.560
krónur. í fyrsta vinning fóru
1.423.422 krónur sem skiptust
milli 26 raða með 12 rétta og
hlaut hver röð 54.745 krónur. í
annan vinning voru greiddar
610.038 krónur en alls komu fram
547 raðir með 11 rétta og því
hver vinningur að verðmæti 1115
kr.
Nafnlausir seðlar
Talsvert er um það að nafnlaus-
ir seðlar berist til íslenskra get-
rauna hf. Finnst mér furðulegt
að tipparar skuli þora að taka
þá áhættu að senda seðla sína inn
nafnlausa. Ekki þarf annað en
að vinningshafi glati stofninum
eða að hann gleymi að fara yfir
og þá er vinningur glataður. Það
ætti ekki að vera mikið mál fyrir
þá sem eru með fáa seðla að
skrifa nafnið sitt á þá til öryggis,
en þeir sem tippa mikið og oft
geta notað stimpla með nafiii og
heimilisfangi. Það tekur örstutt-
an tíma að stimpla marga seðla.
Það kemur fyrir á hverju get-
raunaári að vinningshafar vitja
ekki vinninga sinna. Þar hefur
jafnvel verið um stóra vinninga
að ræða.
Það þarf náttúrlega ekki að
taka fram að hvergi í heiminum
tíðkast það að tipparar skrifi
ekki nafnið sitt á seðlana. Slíkir
seðlar eru ekki teknir gildir í
útlöndum.
Enskar getraunir
Hér koma markajafnteflin á
ensku getraunaseðlunum. Engin
markalaus jafntefli vora á seðl-
inum að þessu sinni. Markajafn-
tefli eru númer: 9, 18, 24, 30, 32,
38, 39, 45, 47, 50. Samtals 11
stykki.
Seðill íslenskra getrauna hf., sem
verður í gildi um næstu helgi, er
síðasti getraunaseðill á árinu 1985.
Þar er um að ræða sjö leiki úr 1.
deild en fimm úr þeirri annarri.
í keppni íslensku fjölmiðlanna
hefur Alþýðublaðið tekið forystuna
með 30 rétta samtals, DV er í öðru
sæti, eins og er, með 28 rétta samtals
og Morgunblaðið í þriðja sæti með
27 rétta.
Birminghamliðið leikur við
Chelsea á laugardaginn kemur og er
sá leikur efstur á íslenska getrauna-
seðlinum. Þar spái ég útisigri. Birm-
inghamliðið er alveg heillum horfið,
hefur ekki unnið leik í háa herrans
tíð meðan Chelsea hefur verið að
sigra góð lið.
Evertonliðið hefur verið misjafnt í
undanförnum leikjum, sigrað á úti-
velli en tapað á heimavelli. Spá mín
er sú að Everton sigri léttleikandi
Coventryliðið. Næst koma nokkrir
heimasigrar. Liverpool sigrar New-
castle ef ekki verður kastað upp á
leikinn og Luton mun sigra West
Ham á gervigrasinu. Manchester
United virðist vera að rétta úr kútn-
um og sigrar Liverpoolbanana, Ars-
enal, á heimavelli. Sheff. Wed. er
traust lið og sigrar Manchester City,
þó svo að City sé ósigrað í fimm leikj-
um. Tottenham ætti að sigra Ipswich
á heimavelli og Charlton, sem spilar
heimaleiki sína á Shelhurst Park,
leikvelli Crystal Palace, ætti að sigra
Grimsby liðið sem er hvorki fugl né
fiskur um þessar mundir. Fulham
mætir liði frá Norður-Englandi:
Middlesbro sem hér á árum áður
spilaði í 1. deildinni. Nú er Middles-
bro við botninn á 2. deildinni og
tapar fyrir Fulham. Huddersfield er
i vandræðum um þessar mundir og
tapar fyrir Oldham á heimavelli.
Stoke er komið á skrið og sigrar
hvern leikinn á fætur öðrum. Nú
verður Barnsley fyrir barðinu á
Stoke: heimasigur. Sheffield United
hefur ekki gengið sem skyldi í und-
anförnum leikjum, en hefur góðan
mannskap og sigrar Wimbledon á
útivelli.
Mbl. > Q I- z > *o ‘O !a Dagur XI £L <
Birmingham-Chelsea 2 2 2 2 2 2
Coventry-Everton 2 2 2 X 2 2
Liverpool-Newcastle 1 1 1 1 1 1
Luton-West Ham 2 1 X 2 1 X
Manchester U-Arsenal 1 1 1 1 1 1
Sheffield W.-Manch. C. 1 1 1 1 1 1
T ottenham-Oxford 1 1 1 1 T 1
Charlton-Grimsby X 1 1 1 1 1
Fulham-Middlesbro 1 1 1 X 1 1
Huddersf.-Oldham 1 2 X X X X
Stoke-Barnsley X 1 1 1 1 1
Wimbledon-Sheff. Wed. 1 2 1 2 1 2
Útvarpið hafði ekki samband
BIBLÍAN
er kjörin jólagjöf
Fæst í bókaverslunum og
hjá kristilegu félögunum.
HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG
(P>ubbranbsíótofii
Hallgrimskirkju, Reykjavik,
simi 17805, opið 3 —5 e.h.
Ódýrt
og^infalt
' uppsetningu
Hair
mo
Fullbúnir
5turtuhlefar,
sturtuhurðir.
ÓTAL MÖGULEIKAR
mar(íAR5 T/ERÐIR
K. AUÐUNSSON
GRENSÁSVEGI 8
S: 68 67 75 & 68 60 88
ALLT A SAMA STAÐl
ÞVERHOLTI11.
> ritstjóm llÁlá smáauglýsingar
UáuÍ skrifstofur blaðaafgxeiðsla
RTJI auglýsingar áskrift
j » j*l prentsmiðja
27022.
AUGLYSENDUR!
Veriö velkonmír í nýja húsið.
Við erum til þjónustu reiðubúin,
Þverholti 11,
Sími 27022.
Síminn á öllum deildum
r