Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Side 1
Hólmfríður Karlsdóttir var valin MAÐUR ÁRSINS 1985 af DV. Af því tilefni afhenti Ellert B. Schram, ritstjóri DV, Hólmfríði veglega bókar- gjöfímorgunáheimilihennaríGarðabæ. ■ DV-myndKAE HOLMFRIÐUR VAL- IN MAÐUR ÁRSINS „Það var nánast einróma sem þú vannst til þessa sæmdarheitis," sagði Ellert B. Schram, ritstjóri DV, í morgun er hann afhenti Hólmfríði Karlsdóttur, ungfrú heimi, veglega bókargjöf. Snemma í morgun var farið á fund Hólmfríðar og henni tilkynnt að hún hefði orðið fyrir valinu sem MAÐUR ÁRSINS sem DV velur árlega. Útnefningin gladdi Hólmfríði sem þakkaði heiðurinn. Hún sagðist ekki vita hvert leið hennar lægi fyrst í hnattreisunni sem framundan er, hugsanlegt að byrjað verði í Ástral- íu. Hún mun ferðast mikið um Banda- ríkin. „Ég veit að ég fer til Vínarborgar i apríl, einhverjir vilja fá mig þangað til að spila á klarínettu," sagði Hólm- fríður. Dagskrá Hólmfriðar er óráðin en víst er að hún verður þéttskipuð allt næsta ár. Hún mun á ferðum sínum kynna Island. Komið hefur til tals að bæði ungfrú heimur og ungfrú Skandinavía, Sif Sigfúsdóttir, komi fram saman á íslandskynningum í Skandinavíu. ÞG Sigurjón Valdimarsson, f ramkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna: Getum ekki borið póli- tíska ábyrgð á sjóðnum „Menntamálaráðherra hefur bor- ið starfsmönnum lánasjóðsins á brýn ábyrgð á þeim vandamálum sem herja á sjóðinn núna. Það er ekki starfsmönnum sjóðsins að kenna þótt ríkisstjómin treysti sér ekki til þess að standa við þau lög sem eru í gildi varðandi lánasjóðinn. Við höfum sent menntamáláráðherra bréf þar sem við krefjumst nánari skýringa á ummælum hans. Starfsmenn geta ekki tekið á sig ábyrgð á pólitískum ákvörðunum," sagði Sigurjón Vald- imarsson, framkvæmdastjóri Lána- sjóðs ísl. námsmanna. Samkvæmt upplýsingum mennta- málaráðherra munaði 50 milljónum á áætlun lánasjóðsins fyrir tvo síð- ustu mánuði ársins. Þeir báðu um 181 milljón og fengu það.“ Síðan dynur það yfir um síðustu mánaða- mót að lánasjóðurinn segist hafa skotist yfir 50 milljónir," sagði Sverr- ir Hermannsson menntamálaráð- herra. „Mér hafa einnig borist ýmsar kvartanir vegna starfsemi og af- greiðslumáta þessa sjóðs. Yfirvinna hjá starfsmönnum sjóðsins er feikna- lega mikil, sumir með yfirvinnu yfir 100%. Þetta er milljarða sjóður og ekkert undarlegt þótt ég fari fram á rækilega endurskoðun á honum. En ég er ekki að sakfella neinn. Það þarf að skoða þessi mál,“ sagði Sverr- ir. KB Danskursigur íHöllinni — sjá íþróttir bls.21-28 Bestu hljóm- plöturársins — sjá bis. 42 og43 • Kasparovgæti missttitilinn — sjá bls.8 Gervihnatta- sjónvarp um Seltjarnames — sjá bls. 3 • Hvaðvar minnisstæðast á árinu 1985? — sjábls. 4,5,11, 18 og 19 „Eins og kviknað haf i í olíutunnu” — sagði Helgi Jónsson, bóndi á Urðarteigi, sem rétt komstútúr brennandi hlöðu „Ég rétt komst út úr hlöðunni. Það var eins og kveikt hefði verið í olíutunnu. Eldhafið var strax geysilegt,“ sagði Helgi Jónsson. bóndi á Urðarteigi við lljúpavog. Hlaðan við bæ hans varð alelda á laugardaginn kl. 18. Talið er l að kviknað hafi í þegar verið var að þíða vatnsleiðslur. „Ég fór strax að bjarga skepn- um sem voru í fjárhúsi við hlöð- una. Um 100 kindur voru inni. Mér tókst að koma þeim öllum út nema einni sem varð eldinum að bráð,“ sagði Helgi. 5000 heybaggar voru í hlöðunni þegar hún brann. Það tókst að bjarga nokkrum hluta þeirra. Húsin, sem kviknaði í, voru 20 1 ára. Þá varð ný viðbygging einn- ig fyrir skemmdum. Slökkviliðið á Djúpavogi kom ,á staðinn, en nokkrar tafir urðu á að það kæmist að bænum vegna lófærðar. . SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.