Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Qupperneq 4
4 " DV. ÁNUDAGUR 80. DESEMBER1985. HVAÐ ER MINNISSTÆÐAST FRA ARINU SEM ER AÐ LIÐA? Margrét Theódórsdóttir Fólk hafi hið jákvæða að leiðarljósi Margrét Theódórsdóttir, skólastjóri Tjarnarskóla: Það sem mér er minnisstæðast frá liðnu ári er tví- mælalaust stofnun Tjarnarskóla. Það er margt sem tengist því, bæði gott og miður gott. Allur sá stuðn- ingur sem ég fékk, bæði frá fjöl- skyldu minni, Maríu Héðinsdóttur, samstarfsmanni mínum, og öðrum er ógleymanlegur. En ég varð líka fyrir vonbrigðum í þessu sambandi og þar á ég við þau mannlegu viðbrögð fólks að leiða út af hinu neikvæða. Og þá dettur mér reyndar einnig í hug okurlánamálið fræga þar sem margir hafa þurft að verja æru sína gegn ummælum fólks. En ef við lítum okkur nær í tíma þá man ég eftir einu sem bætir upp hið neikvæða og það er útgáfa plötu Hjálparsveitarinnar. Hún er mér ofarlega í huga, sýnir svo áþreifan- lega að fólk getur virkilega tekið höndum saman. Ég grét yfir mynd- inni sem sýnd var í sjónvarpinu af þeim andstæðum sem þar komu fram: Annars vegar samhugur fólksins sem stóð að gerð plötunnar og hins vegar þettahrjáðafólk. Ég held að nýja árið hafi aðallega gott í för með sér og vona að allir háfi hið jákvæða að leiðarljósi. Guðrún Erla Geirsdóttir Draumur sem rættist í miklu stærra veldi Guðrún Erla Geirsdóttir (Gerla), myndlistarmaður og framkvæmda- stjóri Listahátíðar kvenna: Síðasta ár var mjög gott og eftir- minnilegt að mörgu leyti. Eitt af því er að leiksýning sem ég tók þátt í fékk menningarverðlaun Dagblaðs- ins Vísis. Minnisstæðast er mér þó þegar listakonur í landinu tóku sig saman og sýndu hversu stórt framlag þeirra er til lista og ég sá það þegar ég var að vinna að þessu að miklu fleiri konur eru að vinna að listum núna heldur en fyrir tíu árum, sem ég reyndar átti von á en ekki svona miklu stærra hlutfalli. Það var stór- kostlega gaman að vinna með öllum þessum konum og finna þennan samhug sem ríkti - að gera þetta að svona stórri og mikilli hátíð. Þegar byrjað var að plana þetta fyrir einu og hálfu ári vissi maður ekkert hvað yrði úr þessu. Kannski bara ein eða tvær litlar sýningar. En allir þeir aðilar sem við leituðum til allar þær listakonur - tóku hugmyndinni mjög vel og gerðu hana að veruleika. Það var enginn aðili sem leitað var til ekki tilbúinn til að aðstoða við þetta. Það er stórkostlegt að eiga sér draum sem rætist í miklu stærra veldi en maður ímyndaði sér í upp- hafi. Næsta ár leggst vel í mig en ég ætla að passa mig á því að hafa ekki svona óskaplega mikið að gera. Gefa sjálfri mér örlítið meiri tíma á næsta ári.“ Einar Vilhjálmsson Hringganga Reynis Péturs minnisstæð- ust „Hringganga Reynis Péturs er mér minnisstæðust frá árinu sem senn er liðið. Hún var mikið afrek og sér- stakt. Ég var með honum í huganum allan tímann og hugsaði virkilega til hans,“ sagði spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson í samtali við DV. „Hvað sjálfan mig varðar þá eru mér ákaflega minnisstæð öll þau mót sem ég tók þátt í á árinu. Og ekki síst þau 12 mót þar sem mér tókst að bera sigur úr býtum. Þetta er betri árangur en ég hef áður náð. Ég get ekki tínt eitt mót út úr en óneitan- lega var mest spenna í sambandi við mótið í Stokkhólmi þar sem ég mætti Austur-Þjóðverjanum Uwe Hohn í fyrsta skipti í keppni. Ég er mjög sáttur við árið í heild. Ég tók þátt í 22 mótum og komst á verðlaunapall í 20 þeirra. Árið gaf mér mikið og þá sérstaklega aukna reynslu. Hvað næsta ár varðar þá verður það mjög spennandi hvað varðar mína íþróttagrein. Tekið verður í notkun nýtt áhald, breytt spjót, og öll tækni mun breytast af þeim sök- um. Staða manna á afrekalistanum og geta á eftir að breytast á komandi ári, nýtt heimsmet í spjótkasti verður sett og ég verð að segja að ég er mjög bjartsýnn á sjálfan mig. Ég hef alltaf verið bjartsýnismaður,“ sagði EinarVilhjálmsson. -SK. Þorbjörn Jensson Sjö marka sigurinn gegn Júgó- slövum „Mér dettur strax í hug sigur ís- lenska landsliðsins í handknattleik yfir Júgóslövum á árinu sem er að h'ða. Við unnum þá með sjö marka mun, 20-13, og náðum að sýna mjög góðan leik,“ sagði Þorbjörn Jensson, fyrirliði íslenska landsliðsins í hand- knattleik. „Og síðan er það auðvitað íslands- ganga Reynis Péturs sem var gífur- legt afrek opg örugglega ekki á færi allra að leika það eftir. Einnig get ég nefnt plötuupptökuna hjá okkur í landsliðinu. Það var hreint ótrúlegt hversu vel þetta gekk allt saman á ótrúlega skömmum tíma. Nú, varð- andi það sem fram undan er kemur heimsmeistarakeppnin í handknatt- leik auðvitað fyrst upp í hugann. Þetta er stóra verkefnið sem við höfum verið að vinna að í mjög lang- an tíma og vonandi verður útkoman í samræmi við alla þá vinnu sem við í landsliðinu og allir sem vinna í kringum landsliðið erum búin að leggja á okkur,“ sagði Þorbjörn Jensson. -SK. Sigurður Pétursson Margt sem kemur upp í hugann „Mér er einna minnisstæðastur frá síðasta ári árangur GR-sveitarinnar á Evrópumeistaramótinu í sumar. Við höfnuðum þar í fjórða sæti og ég náði þeim árangri að verða í 3.-4. sæti í einstaklingskeppninni,“ sagði íslandsmeistarinn í golfi, Sigurður Pétursson, GR. „Annars er margt sem kemur upp í hugann. íslandsganga Reynis Pét- urs er mjög minnisstæð og sérstök fyrir margra hluta sakir. Nú, ég mun aldrei gleyma 66 högga hringnum sem ég náði í keppninni um atvinnu- mannaskírteinið í sumar. Einar Vil- hjálmsson náði frábærum árangri í spjótkasti á árinu og hann er greini- lega mjög framarlega í heiminum í spjótkastinu. Og svo er íslandsmeist- aratitilinn hjá mér í golfinu mér mjög minnisstæður.“ Hvað er framundan hjá þér á næsta ári? „Framundan hjá mér eru stans- lausar æfingar og aftur æfingar. Það er vonlaust að ná góðum árangri í golfi nema að æfa og æfa og ég stefni að því að bæta árangur minn á næsta ári og vonast til að það takist,“ sagði Sigurður Pétursson. -SK. 1 dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari Fastir liðir eins og venjulega Það má með sanni segja að menningarneysla þjóðarinnar hafi verið fastir liðir eins og venjulega um þessi jól. Enda ekki upp á annað boðið. Nokkrir vegfarendur voru teknir tali í sjónvarpi á dögunum og spurðir hvaða afskipti þeir ætluðu að hafa af menningunni yfir hátíð- arnar. Flestir sögðust lesa nema menntamálaráðherra sem mundi allt í einu eftir þvi að hann ætlaði í leikhús, sennilega af því skyldan og embættið rak hann til þess. Hann hefur sjálf- sagt neyðst til þess að sitja undir frumsýningunni í Þjóðleikhús- inu á annan í jólum þar sem Tsjekov var færður upp í hálfan fjórða tíma eftir verki sem Tsjekov mundi áreiðanlega ekki kannast við ef hann væri boðinn í leikhúsið eins og ráðherrann. Maður að nafni Michael Frayn hefur dregið upp eitthvert hand- rit sem fannst löngu eftir að Tsjekov var dauður og samdi upp úr því leikrit sem þessi Frayn segir að sé eftir Tsjekov. Upphaflega handritið mun taka sex tíma í flutningi en verk Frayn tekur þrjá og hálfan tíma. Það hefði að meinalausu mátt styttast um aðra tvo tíma án þess að breyta neinu nema því að leikhúsgestir hefðu kannski betri möguleika til að halda sér vakandi sýninguna á enda. Að mestum hluta mun þessi sýning ganga út á fyllirí og kvennafar, sem segir sína sögu um menningarframlag Þjóðleikhússins um þessar mundir. En meðan Þjóðleikhúsið býð- ur upp á stykki eftir Tsjekov, sem ekki er eftir Tsjekov, og mælir leiklistarhæflileika at- vinnuleikaranna eftir því hverj- ir kunni best að leika fulla karla, hafa amatörarnir í leik- arastéttinni flippað út í nýjum bíómyndum sem frumsýndar voru um hátíðarnar. Annars vegar er þar á ferðinni ný mynd eftir Þráin Bertelsson um nýtt líf og nú er það löggulif sem er á dagskrá. Þetta er gamanmynd að sögn þeirra sem fyrstir hafa séð myndina og ku vera fyndin á köflum, og þá helst þegar löggurnar eru gerð- ar hlægilegar og nógu vitlausar. Þess er sérstaklega getið að alvörulögreglan i Reykjavík hafi aðstoðað við myndatökuna og er það sjálfsagt liður í þeirri viðleitni nýja lögreglustjórans að færa Iögregluna nær fólkinu eins og hann hefur orðað það á fagmáli. Hin myndin heitir Svart og sykurlaust og segir frá litlum leikhópi sem fékk óvæntan styrk frá ólíklegustu löndum til að gera mynd um eitthvað sem enginn veit hvað er og greini- lega leikendumir ekki heldur. Einhvern veginn tekst þó leik- urunum að leika myndina á enda, sennilega mest fyrir þá sök að þeir eru aðallega að leika sjálfa sig og fengu borgað fyrir það. Það eina sem háir þessu flippi er að myndin skuli sýnd. í sjónvarpinu fengum við að sjá tvö önnur menningarverk, annars vegar slaufurnar henn- ar Steinunnar og svo lokaþátt- inn í Föstum liðum eins og venjulega. í báðum þessum menningarþáttum var fyndnin höfð í fyrirrúmi, einkum þegar hægt var að gera grín að venju- legu fólki með þvi að gera það nógu heimskt og afkáralegt. Ekki fer sem sagt á milli mála hvar leikritahöfundarnir ís- lensku telja heppilegast að leita fanga þegar þeir fá útrás fyrir kímni sína. Af bóklestri þjóðarinnar segir að aldrei hafi fleiri bækur verið keyptar en einmitt um þessi jól. Engar sögur fara hins vegar af því hversu margar þeirra eru lesnar en það er til marks um bókmenntasmekkinn að með söluhæstu bókum voru bækur eftir Alistair MacLean og franska dömu sem samdi bók um stúlku á bláu hjóli. Minnst fer hún þó upp á hjólið en því meir upp á karlmennina, þannig að þeir sem á annað borð gáfu sér tíma til að lesa höfðu nóg af klámi og uppáferðum rétt eins og í leikhúsinu og sjón- varpinu. Islendingar vita hvað hentar best á jólum. Það eru fastir liðir eins og venjulega. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.