Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Page 8
8
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
Utlönd Utlönd Uíönd UUönd
Israel hótar
Dian Fossey tileinkaði líf sitt umhverfisvernd og rannsóknum á sviði
dýrafræði. Síðustu 18 ár hafði Fossey rannsakað fjallagórillurnar í
Mið-Afríku en þeim fer nú ört fækkandi.
Myrtu veiði-
þjófar dýra-
fræðinginn?
Bandaríski dýrafræðingurinn Dian
Fossey, einn þekktasti górillusér-
fræðingur heims og landvörður í
einum þjóðgarða Afríkuríkisins
Rúanda, fannst myrt á afskekktum
stað í þjóðgarðinum á laugardag.
Fossey hafði um langt skeið helgað
líf sitt baráttunni gegn veiðiþjófum
í Mið-Afríku og hafði í gegnum tiðina
komið mörgum veiðiþjófnum á bak
við lás og slá. Hún var sérfræðingur
á sviði fjallagórilla en einungis er
talið að á annað hundrað slíkar lifi
villtar í heiminum í dag.
Flestar lifa þær á afmörkuðu svæði
í frumskógum Rúanda. Fossey hafði
síðustu 18 ár tileinkað líf sitt rann-
sóknum á þeim.
Að sögn lögreglunnar fannst lík
Fossey i Karisokeþjóðgarðinum við
samnefnda rannsóknarstofnun er
hún setti sjálf á laggirnar.
Vinir hennar i Nairobi telja líklegt
að hún hafi verið myrt af veiðiþjóf-
Kasparov gæti
misst titHinn
í fyrirhuguðu móti leiðir það sjálf-
krafa af sér að hinn aðilinn verður
heimsmeistari," sagði aðalritarinn. '
í viðtali við Tass á föstudag kallar
Kasparov allar hugmyndir um annað
einvígi hina mestu firru. Gagnrýndi
heimsmeistarinn þær reglur FIDE er
gera ráð fyrir að hann mæti Karpov
í öðru áskorendaeinvígi þann 10.
febrúar, aðeins þrem mánuðum eftir
að hafa öðlast titilinn eftir 24 skáka
einvígi við landa sinn Karpov.
Kasparov hefur einnig harðlega
gagnrýnt forseta FIDE, Florencio
Campomanes, og farið fram á afsögn
hans.
Að sögn Lim hefur Kasparov frest
fram til 6. janúar til að láta FIDE
vita um hvort hann kemur til með
að mæta til leiks og þá hvaða keppn-
isstað hann kýs. Fram að þessu hafa
bæði London og Leningrad boðist til
að halda einvígið.
Þetta fullyrðir Lim Kok Ann, aðal-
ritari FIDE, í viðtali við fréttamann
Reuters fréttastofunnar í gær.
„Ef annar hvor mætir ekki til leiks
Garry Kasparov, nýbakaður
heimsmeistari í skák, mun missa titil
sinn ef hann neitar að mæta til leiks
gegn áskorandanum og fyrrverandi
heimsmeistara, Anatoly Karpov, í
einvígi sem alþjóðaskáksambandið
fyrirhugar í febrúar næstkomandi.
hefndum fyrtr
hryðjuverkin
— en annar fanginn frá Rómarflugvelli segir fleiri hryðjuverk í bígerð
Ríkisstjóm Israels, fundaði í gær
og ræddi um nýafstaðnar árásir
hermdarverkamanna á ísraelska
ferðamenn í Austurriki og á ítalíu á
þriðja dag jóla. í árásunum féllu 18
manns og 114 særðust.
„Við þurfum að finna þá sem
ábyrgir eru fyrir ódæðisverkunum
og refsa þeim,“ sagði upplýsinga-
málaráðherrann, Amnon Rubinstein.
Talsmaður stjórnarinnar staðfesti
það við fréttamenn eftir fundinn að
aðalefni hans hefði verið árásir
hermdarverkamanna en vildi ekki
opinbera hvort rætt hefði verið um
leiðir til að leita hefnda.
Háttsettur fulltrúi stjórnarinnar,
er vildi ekki láta nafns síns getið,
fullyrti að ísraelsstjórn hefði ekki
enn komist að því fyrir víst hverjir
væru ábyrgir fyrir morðunum. Þegar
það væri upplýst yrðu hefndarað-
gerðir skipulagðar. Hann kvað þó
ekki líklegt að hefndaraðgerðirnar
yrðu neitt í líkingu við loftárásir
ísraelsmanna á aðalstöðvar PLO í
Túnis í haust.
Abu Nidal ábyrgur?
Einí hermdarverkamaðurinn er
lifði af árásina í Róm tjáði lögregl-
unni að hann tilheyrði einum armi
Palestínuleiðtogans Abu Nidal er
hvað þekktastur er fyrir andstöðu
sína við Y asser Arafat.
Israelskir leyniþjónustumenn telja
það möguleika að armur Nidals sé
ábyrgur fyrir árásunum en segja það
'erfitt að hefna sín á samtökum Abu
Nidals.
Samkvæmt heimildum leyniþjón-
ustunnar eru búðir Abu Nidals
dreifðar yfir þrjú ríki, Sýrland, Líbýu
og Líbanon, og ekki ljóst hvar aðal-
stöðvarnar eru.
Slíkar aðstæður eru taldar ómögu-
legar með tilliti til loftárásar í sama
dúr og loftárásin á aðalstöðvar PLO
í Túnis.
En ísraelsmenn eru bjartsýnir á að
ná til Abu Nidals.
„Fyrst og fremst er Abu Nidal af
holdi og blóði og því jafnveikur fyrir
byssukúlum og fómarlömb hans,“
segir Ariel Merrari í Jaffee herfræði-
stofnuninni í Tel Aviv.
Boðskapur Reagans
Réagan Bandaríkjaforseti fór
hörðum orðum um hermdarverka-
menn og sendi samúðarkveðjur sínar
til ríkisstjórnar ísraels í ávarpi sínu
til bandarísku þjóðarinnar um helg-
ina.
I ávarpinu segir hann Bandaríkja-
menn tilbúna til að berjast gegn
hryðjuverkum hvar sem er og hvern-
ig sem er. Forsetinn áminnti þjóðir
þó um þolinmæði í kjölfar ódæðis-
verka eins og þeirra sem framin voru
á flugvöllunum i Róm og Vín.
Sjálfsmorðsárás
Mohammed Sarham, 19 ára gamall
Palestínumaður, var eini árásarmað-
urinn er lifði af hermdarverkið í
Róm.
Að sögn Sarham er hann meðlimur
í sérstakri sjálfsmorðssveit Palest-
ínumanna sem skipulagt hefur fleiri
ódæðisverk í Evrópu.
„Drepum þá alla,“ öskruðu skæru-
liðarnir er þeir hófu skothríð sína á
afgreiðslu ísraelska flugfélagsins E1
A1 í Róm. Við yfirheyrslur sagði
Sarham að árásin væri hefnd fyrir
árás Israelsmanna á aðalstöðvar
PLO í Túnis í október.
Hyllturfyrir
morðábömum
Herdómstóll í Egyptalandi hefur
dæmt lögreglumann í lífstíðarfang-
elsi fyrir að drepa sjö ísraela í Sinaí
í október síðasta. Hann skaut af
hríðskotariffli á 12 manna hóp ísra-
ela í hafnarbænum Noweiba við
Aqabaflóann. Tæmdi hann tvö mag-
asín á hópinn. Meðal þessara sjö sem
létu lífið voru íjögur börn.
En í Líbýu og Iran var miklu lofs-
orði lokið á þetta verk lögreglu-
mannsins og hann hylltur sem hetja
fyrir „garpskapinn".
Dáleiddu
fómardýrin
Tvær konur frá Oganda dáleiddu
skartgripasala og skömmtuðu sér
síðan peninga og gull úr verslun
hans í Norður-Súmatra. En þær hafa
verið dæmdar i þriggja mánaða fang-
elsi.
Þær höfðu þrettán þúsund krónur
upp úr krafsinu og 88 grömm af gulli.
Það komst upp um þær þegar þær
ætluðu að reyna sama dáleiðslu-
bragðið við annan skartgripasala
sem ekki var eins móttækilegur og
hafði enda frétt af kollega sínum.
Sagði hann til kvennanna.
Róstureftir
rokkhljómleika
Rokkstjörnur úr kvikmyndinni
„Krash Groove“ efndu til tónleika í
New York á föstudagskvöld en þeir
enduðu með ryskingum og ránum.
Átján voru handteknir og kærðir
fyrir rán, líkamsárásir og óeirðir.
Hundruð táninga gengu berserks-
gang eftir hljómleikana í Madison
Square Garden. Einn særðist af
byssuskoti, nokkrir voru stungnir
hnífum og þar af særðust tveir alvar-
lega. - 22 þúsund höfðu sótt hljóm-
leikana.
Kalla þurfti út 150 manna lögreglu-
lið til að hemja ungmennin sem hófu
lætin í lok hljómleikanna og héldu
áfram á leið sinni frá hljómleika-
staðnum til Times Square þar sem
kvikmyndin „Krush Groove" er til
sýningar.
Það þykir ekki tiltakanlega mikið
af ofbeldisatriðum i kvikmyndinni
en hér og hvar um landið, þar sem
hún hefur verið til sýningar, hafa
fy lgt henni róstur og uppþot.
Lækkuðuíhávaða-
belgjummeð
haglabyssum
Feðgar tveir í Le Puy í Frakklandi
hafa verið ákærðir fyrir morð og
morðtilraun eftir að þeir skutu til
bana tvo Marokkómenn sem höfðu
valdið þeim ónæði með háværri jóla-
veislu á fimmtudag.
Það voru um 30 Marokkómenn i
veislunni sem létu sér ekki segjast
þótt kvartað væri í húsinu undan
hávaðanum frá þeim. Faðirinn tók
sér haglabyssu í hönd og skaut í
gegnum lokaðar dyrnar á íbúðinni
þar sem fagnaðurinn var. Tveir dóu
ogsjösærðust.
Sautján ára sonur hans hafði einn-
ig farið til að kvarta undan hávaðan-
um vopnaður haglabyssu en var
afvopnaður áður en hann gat gert
neitt af sér alvarlegra.
Kynþáttahatur er talið standa að
baki þessu tiltæki feðganna en mjög
Umsjón:
Guðmundur
Péturssonog
Hannes Heimisson
liefur borið á slíku í þessum fámenna
bæ.
Kínverskur
stórsvindlari
Mútum, spillingu og öðrum auðg-
unarglæpum í Kína hefur farið hrað-
fjölgandi á þessu ári, eftir því sem
Dagblað alþýðunnar segir, og tiltek-
ur sérstaklega eitt svindlmál þar sem
svindlarinn hafði náð 250 milljónum
króna. - Du Guozhen í Fujianhéraði
hafði á tíu mánuðum gert falssamn-
inga upp á 625 milljónir króna og
náð af því 250 milljónum í sinn hlut.
Hann gaf sig út fyrir að vera auð-
maður og lofaði stórfjárfostingum í
fyrirtækjum sem réðu hann í staðinn
til æðstu starfa. I krafti nýfenginna
stöðutákna gerði hann síðan enn
fleiri samninga og óf mikinn blekk-
ingarvef. Hann varði 250 milljónum
króna í mútur til opinberra embætt-
ismanna til að tryggja sér bankalán,
falskar skráningar, hafnaraðstöðu
til smygls og fleira.