Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 14
14 DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. DV Frjáist, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. StjórnarformaðurQg útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóriog útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKUR H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Ómerk stólaskipti Koma Þorsteins Pálssonar í ríkisstjórnina og stóla- skipti ráðherra eru helzt tíðinda úr stjórnmálum á árinu, sem er að líða. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, sýndi þar veldi sitt. Tími var til þess kominn. Brennandi spurning er þó, hvort þessi stólaskipti hafi breytt miklu til batnaðar. Þorsteinn kom í sæti fjármála- ráðherra, eftir að fundur æðstu manna Sjálfstæðis- flokksins hafði hafnað fjárlagafrumvarpi Alberts Guð- mundssonar. Þorsteinn hét að skera mikið niður af ríkisútgjöldum. Fjárlög skyldu verða hallalaus. Ekki skyldu tekin lán erlendis umfram afborganir. Því miður blasir við, nú í lok ársins, að þessi stólaskipti ráða ekki úrslitum. Þorsteini hefur ekki tekizt það, sem hann hugðist gera. Líklegt er, að erlend lán verði umfram afborganir á næsta ári. Halli verður að líkindum á ríkisbúskapnum. Halli á viðskiptum við útlönd verður sem fyrr geigvænlegur, sem þýðir auknar lántökur er- lendis. Þetta er vont fyrir Þorstein Pálsson og verra fyrir íslenzku þjóðina. Koma Þorsteins Pálssonar í ríkisstjórn hefði átt að þýða ste'fnubreytingu. Hann talar um áherzlubreytingu, en hennar sjást ekki nóg merki. Skoðanakannanir bentu fram eftir árinu til þess, að formannsskipti í Alþýðuflokknum hefðu hresst mikið upp á fylgi flokksins. Alþýðuflokkurinn hafði áður verið deyjandi flokkur. Valdataka Jóns Balvins Hannibals- sonar breytti miklu. Þó var síðla árs sýnt, að fylgisaukn- ing Alþýðuflokksins yrði minni en fyrstu kannanirnar höfðu gefið til kynna. Skoðanakönnun DV á miðju sumri benti til þess, að Alþýðuflokkurinn hefði misst forskot sitt yfir Framókn og Alþýðubandalag. Þessir þrír flokkar væru á svipuðu róli. Klofningur var mikill í Alþýðubandalaginu og Banda- lagi jafnaðarmanna. Nokkuð dró úr sundrungu Al- þýðubandalagsins á landsfundi í haust. Stríðandi fylk- ingar sættust í bili. Nýr varaformaður var kjörinn. Líklegt er, að ágreiningurinn blossi upp að nýju á komandi ári. Alþýðubandalaginu hefur mistekizt margt að undanförnu, þótt hagur flokksins hefði átt að vænk- ast við kjaraskerðingar. Bandalag jafnaðarmanna er nærri útdautt. Aðeins traust endurskoðun getur bjargað þeim flokki. Sem stendur eru ekki líkur til þess, að flokkurinn hressist. Þetta er tjón, því að töluverður grundvöllur ætti að vera fyrir Bandalag jafnaðarmanna, meðan það leggur áherzlu á ákveðna frjálshyggju. Að sumu leyti hefur þetta verið gott ár. Afli var mik- ill, en ekki tókst að bæta hag launþega. Það býður annars tíma. Kjarasamningar fara í hönd. Þar geta orðið mikil átök, sem einkenni komandi ár. Þó gæti einnig svo farið, að samningar yrðu viturlegir, ef hinir skyn- samari í launþegaforystunni ráða ferðinni. Hinn al- menni launþegi hagnast auðvitað á skynsamlegum samningum, sem ekki skaða þjóðarbúið og setja verð- bólguna af stað. Því ber að styðja við bakið á þeim verkalýðsforingjum, sem vilja ekki rasa um ráð fram. Þetta verður mikilvægasta verkefni næstu vikna. Sitthvað gladdi landann á árinu. íslenzk stúlka var kosin ungfrú heimur. íslenzkir skákmenn unnu afrek og fengu titla. Reynir Pétur Ingvarsson gekk umhverfis landið við fögnuð landsmanna. í annan stað komu meinsemdir í ljós, til dæmis við gjaldþrot Hafskips og okurlán. Haukur Helgason. Er fasteignamatið orðið óraunhæft? Undanfarna daga hafa fjölmiðlar skýrt frá hækkun fasteignamats á íbúðum um 28% og atvinnuhús- næði um 33%. Fyrirsagnir blað- anna eru þó á ýmsa vegu. Eitt dagblað kunngerir í stórri fyrir- sögn: „Verðfall á fasteignum“ og síðan: '„18% verðfall á fasteigna- verði á einu ári“, þó verð í krónum hafi hækkað um 13-15%. Hæsta- réttarlögmaður sem gjörþekkiur fasteignamarkaðinn af eigin raun ritar um „verðfall fasteigna" og segir „með sama áframhaldi verður ekki verðfall fasteigna heldur verð- hrun.“ Fasteignamatið telur sig hafa vanreiknað hækkanir haustið 1984 en einmitt það ár náði fas- teignamatið hámarki og hækkað um 25% milli ára þegar byggingar- vísitalan hækkaði aðeins um 15%. Mat atvinnu- og ibúðahúsnæðis Byggingarvisitala 100 130 L ^ 110 .X ino 90 \ / V X 80 N/ 1965 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 Á línuritinu er sýnd þróun fasteignamats íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis, miðuð við bygginga- vísitölu. Kjallarinn FRÍMANNSSON VERKFRÆÐINGUR teignamatið nú lausbeislað með sína útreikninga og kannanir. Ber ríkisvaldið ábyrgð á matinu? Fyrir 30 árum var lagður hér á stóreignaskattur. Margir vildu greiða skattinn með fasteignum sem þeir töldu ofmetnar. Ríkið neitaði en Hæstaréttur dæmdi það til þess að standa við sitt opinbera mat. Þannig eignaðist ríkisvaldið víða hálfónýtt drasl, sem það síðar varð oft að fjarlægja á eigin kostn- að. Nú telur ríkið sig ekki bera ábyrgð á eigin mati. Mjólkurstöðin í Reykjavík er keypt af Mennta- málaráðuneytinu á 110 milljónir, sem er nánast fasteignamat 1. des. 1985, miðað við staðgreiðslu. Ekki vill þó Sverrir borga það stað- greiðsluverð þó svo gæti litið út Það er greinilegt að menn eiga erfitt með að skilja eða samþykkja þessar miklu hækkanir matsins undanfarin ár. Raunverð matsins virðist ekki hið sama og raunvirði markaðsins. Hækkanir fasteignamats frá 1965 Meðfylgjandi mynd sýnir hlutföll byggingarvísitölu og fasteigna- söluverðs frá 1965 til 1983. Frá 1965-1977 fylgir fasteignamatið að mestu byggingarvísitölu nema á árunum 1969-1971 lækkr að vísu söluverð verulega vegna þekktra efnahagserfiðleika og gengisfell- inga en fasteignamat ekki. Árið 1978 fer að gæta áhrifa laganna frá 1976. Ibúðarhúsnæði hækkar veru- lega og er nú 18% yfir byggingar- vísitölu. Atvinnuhúsnæði er nú talið vera 17% undir byggingar- vísitölu. Hér er bygginarvísitalan sett 100 öll árin og fasteignamati skipt í íbúða- og atvinnuhúsnæði frá 1978. Áhrif laganna frá 1976 Árið 1976 eru sett ný lög um Fasteignamat Ríkisins og er fas- teignamatið nú metið miðað við markaðsverð á hverjum tíma og jafnframt er miðað við stað- greiðsluverð. Raungildi fasteigna verður fljótt þokukennt. Áður var talið að byggingarvísitalan væri góð viðmiðun til lengri tíma en nú er búið að draga inn vaxtamál, skattamál, verðbréfamarkað, lán- skjaravísitölu og alls kyns vænt- ingar og sitt sýnist hverjum þegar meta á markaðsverð og ekki síður þegar reikna á staðgreiðsluverð. Fasteignamat atvinnuhúsnæðis Ef við athugum sérlega atvinnu- húsnæði þá er erfitt að skilja að staðgreiðslumat þess hafi hækkað í fyrra um 25% og nú í ár um 33% eða samtals um rúm 66% á 2 árum, á meðan byggingarvísitala hækk- aði um tæp 54%. Reynum nú að skilja markaðinn. Eigendur at- vinnuhúsnæðis vilja gjarnan selja. í fyrra gátu þeir fengið 30% út- borgun á fyrsta ári án vaxta. Það þýddi þá að vísu ca 2% lækkun á heildarverði miðað við stað- greiðslu. Skuldabréf gátu þeir feng- ið til 10 ára með verðtryggingu og hæstu lögleyfðum vöxtum 8%. Fasteignamatið virðist hafa álitið að þessi kjör væru nánast sambæri- leg við staðgreiðslu. Skuldabréf gátu þeir fengið til 10 ára með verðtryggingu og hæstu lögleyfð- um vöxtum 8%. Fasteignamatið virðista hafa álitið að þessi kjör væru nánst sambærileg við stað- greiðslu, ekki síðri en skuldabréf Ríkissjóðs. Hafi seljendur talið raunvexti hæfilega 10% miðað við staðgreiðslu gátu þeir hækkað söluverð um t.d. 12%. Kaupsamn- ingar mega hafa sýnt þessa hækkk- un og fasteignamat 1983/84, hækk- aði um 11% en seljendur telja sig ekkert hafa grætt, í mesta lagi fengið sanngjarnt staðgreiðsluverð og salan auk þess undir raungildi. Á árinu 1985 verður breyting, hæstu lögleyfðir vextir á verð- tryggðum skuldabréfum eru lækk- aðir úr 8% í 5% skv. ákvörðun Seðlabankans, þrýstingur myndað- ist á lægri útborgun og lengri lánst- íma. Verðbólga eykst og seljandi telur sig nú tapa 3% af heildarverði vegna vaxtalausrar útborgunar, sem enn gæti verið 30%. Þótt skuldabréf gætu enn verið til 10 ára sættir seljandi sig örugglega ekki við 5% vexti og verðtrygg- ingu. Ríkissjóður býður yfir 9% raunvexti, skuldabréf með banka- ábyrgð bjóða 10% raunvexti og markaðurinn 12-16%. Ef seljandi vill fá 10% raunvexti miðað við staðgreiðslu verður hann að hækka kauopsamning um 23%. Samningar nást ekki nema kau- pendur samþykki. Atvinnurekend- ur sjá sér hag í því að kaupa full- gert húsnæði til afhendingar strax. Útborgun aðeins 30% og 70% fæst lánað til 10 ára með 10% raun- vöxtum, þegar lægsti kostnaður þeirra af skuldabréfum er minnst 12%. Nú þarf enginn eldri veð sem kannski eru ekki til. Ef markaðurinn hefði samþykklt 10% raunvexti þetta árið ættu kaupsamningar að hafa hækkað um 23% umfram byggingarvístölu, eða 10% hækkun milli ára, til þess að halda staðgreiðsluverði óbreyttu. Fasteignamatið telur hins vegar að 1985 hafi hér orðið 3% hækkun miðað við stað- greiðslu, eða m.ö.o. enn meiri hækkun. Sú staðhæfing stenst ekki. Auðvelt er að sjá að annaðhvort er Fasteignamatið komið á villu- braut eða útreikningar þess á stað- greiðsluverði eru vitlausir, nema bæði sé, sem er sennilegast. Stað- greiðsluútreiknngar eiga að fylgja markaðskjörum. I lögunum 94/1976 stendur orðrétt í 18. grein. „Ákvæði skulu sett í reglugerð um aðferð við utreikning á staðgreiðslu mið- að við mismunandi greiðslukjör við kaup og sölu.“ Slík reglugerð hefur aldrei verið til og því gengur Fas- s_em greitt sé fasteignamatsverð. Útborgun er engin, fyrsta árlega greiðsla byrjar 1987 þótt firtaka fari fram 1. júní 1986. Helmingur greiðist á 10 árum, verðtryggður með 3,5% vöxtum, og hinn helm- ingurinn sagður greiðast á 7 árum með sömu kjörum. Sérfræðingar Sverris hafa vafalaust metið þessa eign og núvirt þessa eign sem samkvæmt fyrrgreindum upplýs- ingum gæti verið 81,5 milljónir staðgreiðsluverð á 110 milljóna kaupsamningi eða 74% fasteigna- mats. Var einhver að tala um hrun fasteignamats? Fróðlegt væri að vita hvaða núvirði sérfræðingar Fasteigna- matsins reikna í þessu tilfelli. Verði þessi sala fordæmi sölu atvinnu- húsnæði 1986 hrynur matið. Ef kaupendum tekst á næsta ári að þrýsta enn neðar raunvirði atvinnuhúsnæðis hlýtur mat að lækka, auk þess sem sú lækkun sem orðið hefur 1985 og Fasteignamatið hefur ekki enn viðurkennt hlýtur að bætast við. Sama gildir um mat íbúða. Það mat er enn of hátt af sömu ástæðum og atvinnuhúsnæði. Staðgreiðsluverð Fasteignamats- ins 1985 á íbuðum, sem er 18% yfir byggingarvísitölu, stenst ekki heldur næsta ár. Ef lækka verður raungildi matsins næsta ár þá lækka tekjur Ríkissjóðs og sveitar- félaga einnig að raungildi á sama tíma og íjárþörf hins opinbera eykst jafnt og þétt. Treystir því nokkur að hið opinbera geti eða vilji draga saman seglin? Sam- þykkir þá ekki Alþingi einfaldlega hærri eignaskatta og hærri fasteig- nagjöld næsta ár. Mér finnst myndin ekki trúverð- ug sem raunhæft mat, fremur ósk- hyggja um tekjutryggingu eða inneimtu hins opinbera. Álíka trú- verðug og spár Þjóðhagsstofnunar. Hér er ábyrgðinni þó velt á fas- teignaeigendur af bjartsýninni því hið opinbera á forgangsveð í eign- unum. Einu sinni áttu menn vissa vörn í þvi að fasteignamatið kom inn í húsaleigulið framfærsluvístölunn- ar sem hækkaði í hlutfalli við opin- ber gjöld af fasteignum. Nú hefur þessu verið breytt, húsaleiguliður- inn hækkar aðeins í hlutfalli við byggingarvísitölu. Fasteignamat íbúða hátt yfir byggingarvísitölu hækkar ekki lengur framfærsluvís- tölu. Hagur fjármálaráðuneytisins er nú eingöngu sem hæst mat og mestar tekjur, engar áhyggjur hér af hugsanlegri hækkun fram- færsluvísitölu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.