Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Page 21
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
21
kilJJln,
falkilt i tliUi. kk
Klaus Hilpert á
ný til Akraness?
íþróttir íþróttir íþróttir
HEIMSMET
„Ég fann það um leið og ég
lyftist frá gólfinu að mér
myndi takast að setja heims-
met,“ sagði Bandaríkjamað-
urinn Billy Olson í gær eftir
að hann hafði sett nýtt heims-
met í stangarstökki innan-
húss. Olson stökk 5,86 metra
en Frakkinn Thierry Vigner-
on átti eldra metið sem var
5,85 metrar. -SK.
Góður
árangur
Sigurðar
Góðurárangurá
jólamóti ÍR innanhúss
„Ég hef æft markvisst í Ala-
bama í haust og þjálfunin er að
byrja að skila sér. Stórstígar
framfarir innanhúss. Ég stökk
nýlega 3,36 m í langstökki án
atrennu, 9,53 m í þrístökki án
atrennu og 15,05 m í kúluvarpi í
keppni við Einar Vilhjálmsson,
UMSB, sem kastaði 14,09 m. Nú
stökk ég 1,56 m í hástökki án
atrennu. Afrek mín eru Ár-
mannsmet," sagði Sigurður Ein-
arsson sem stefnir að þátttöku í
Evrópumeistaramótinu í Stutt-
gart næsta sumar. Árangur Sig-
urðar í langstökkinu er þriðji
besti árangur Islendings.
Á jólamóti ÍR annan í jólum
kepptu 20 keppendur frá 6 félög-
um. Mótið hefur farið fram í 30
ár í ÍR-húsinu og þar hafa þeir
Vilhjálmur Einarsson, Jón Þ.
Ólafsson, Óskar Jakobsson og
Valbjörn Þorláksson náð afrek-
um á heimsmælikvarða undir
merki ÍR. Á jólamótinu kom
Gunnar Örn Sigurðsson, KR, öll-
um á óvart með sigri sínum í
langstökki án atrennu, 3,26 m.
íslandsmet Gústafs Agnarsson-
ar, KR, er 3,44 m. í þrístökki sigr-
aði Einar Gunnarsson, UBK,
Kópavogi, með 9,38 m í harðri
keppni við Sigurð Einarsson, Á,
9,29 m.
Úrslit: Annan í jólum. 26.12.
Karlar:
Langstökk án atrennu
1. Gunnar Örn Sigurðsson,
UBK 3,26 m
2. Sigurður Einarsson, Á3,22 m
• Klaus Hilpert. Miklar líkur á
því að hann þjálfi Akurnesinga
næsta sumar.
Sex marka
tap Noregs
gegn Spáni
— á móti í Austur-
Þýskalandi
,, Ég er mjög ánægður með sóknar-
leikinn hjá okkur en varnarleikur-
inn var veiki hlekkurinn,“ sagði
Geir Pettersen, aðstoðarlandsliðs-
þjálfari Norðmanna í handknattleik,
eftir að Noregur hafði tapað, 23-29,
fyrir Spáni á alþjóðlegu handknatt-
leiksmóti í Austur-Þýskalandi. Spán-
verjar héldu til Austur-Þýskalands á
mótið eftir landsleikina hér á landi
fyrir skömmu.
Leikurinn var mjög jafn lengst af
og staðan i leikhléi var 15-15. Norð-
menn voru síðan alveg með í leiknum
þar til staðan var 23-25 en þá
sprungu þeir alveg. Spánverjarnir
skoruðu síðustu íjögur mörkin og
tryggðu sér sex marka sigur. -SK.
„Jú það er rétt. Við erum búnir að
vera í sambandi við Klaus Hilpert.
Það er verið að athuga með samn-
inga þessa dagana og ég er bjartsýnn
á að hann muni þjálfa Akranesliðið
næsta sumar,“ sagði Gunnar Sig-
urðsson á Akranesi í samtali við DV
í gær.
„Við erum með mörg nöfn í at-
hugun en það erun óneitanlega lang-
mestar líkur á því að Hilpert verði
næsti þjálfari hjá okkur. Við höfum
mestan áhuga á að fá hann til okkar.
Það er ekki hægt að slá því föstu
eins og er hvort hann komi eða ekki
en ég tel mjög miklar líkur á að svo
verði“ sagði GunnarSigurðsson.
Vestur Þjóðverjinn, Klaus Hilpert,
er ekki ókunnugur málum á Akra-
nesi. Hann þjálfaði meistaraflokk ÍA
fyrir nokkrum árum og náði góðum
árangri með liðið. Það er því ekki
óeðlilegt að Skagamenn skuli hafa
áhuga á að ná í þennan snjalla þjálf-
ara á nýjan leik.
-SK.
Éískar Southaíl
eiginkonu sfna?
Á hann bamið með Ijóskunni Joy Sims?
Hvernig yrði þér við ef einhver
ókiinnug manneskja myndi
berja að dyrum á heimili þínu
einn góðan veðurdag og segja
konu þinni að þú værir elskhugi
hennar og ættir von á barni með
henni? Þær láta sér fátt fyrir
brjósti brenna ljóskumar á
Englandi. Það fékk Neville
Southall, markvörður Everton
og Wales, að reyna um daginn.
Karlkvölin var að verja mark
Wales í Noregi þegar Ijóshærð
kona, Joy Sims að nafni, knúði
dyra á heimili hans í Liverpool.
Eryl, eiginkona Southalls, fór til
dyra. Og hún átti erilsama tíma
framundan. Joy Sims þessi tjáði
Eryl ósköp pent að hún hefði átt
vingott í meira lagi við Southall
• Eryl, eiginkona Southalls,
markvarðar Everton og Wales,
bíður eftir niðurstöðum blóð-
prufunnar.
og auðvitað kom þetta sem ísköld
vatnsgusa framan í Ervl. Hún sagði
i viðtali við breska blaðið Sunday
Min-or: „Fyrst varð ég furðu lostin
og kom ekki upp einu einasta orði.
Síðan áttaði ég mig og komst að
þeirri niðurstöðu að þetta hlyti að
vera tóm vitlevsa í konunni,“ sagði
Eryl.
En Joy Sims var rétt að byrja.
Til að bæta gráu ofan á svart stráði
hún nokkrum saltkomum í sárin
og sagði Eryl að hún væri barns-
hafandi og að Neville Southall
væri faðir barnsins. Southall var
auðvitað sagt frá heimsókn þeirrar
ljóshærðu þegar hann kom heim
frá Noregi. Og hann neitar harð-
lega að hann hafi lagt hönd á plóg-
inn við sköpunarverkið. En Eryl,
eiginkona hans, vill fara alla leið
í leit að sannleikanum og lætur sér
ekki orð eiginmannsins nægja.
Hún hefur krafist þess að úr því
fáist skorið hvort Southall eigi
barnið eða ekki og það er einungis
hægt að gera með blóðprufu. Og á
orðum eiginkonu Southall hér á
eftir má ljóst vera að markmanns-
fjölskyldan á erfiða tíma fyrir
höndum. Hún sagði í viðtalinu við
Sunday Mirror: „Þetta eru mjög
erfiðir tímar fyrir okkur. Við verð-
um að bíða í sex mánuði eftir því
að blóðprufan verði tekin og þá
fyrst liggur endanleg niðurstaða í
máli þessu fyrir."
Þess má til gamans geta að Ne-
ville Southall gekk bísperrtur um
Wembley leikvanginn í fyrra eftir
bikarúrslitaleikinn í ensku knatt-
spyrnunni og var í bol sem á stóð
„I love my Wife“ (sjá nwnd). -SK.
• Neville Southall neitar að
hann eigi barnið með ljóskunni.
Ástæðan þá líklega áletrunin á
bolnum sem hann er í á mynd-
mm.
3. Einar Gunnars., UBK 2,97 m
Þrístökk án atrennu
1. Einar Gunnarsson,
UBK 9,38 m
2. Sigurður Einarsson, Á 9,29 m
3. Gunnar örn Sigurðsson,
KR 8,77 m
Hástökk án atrennu
1. Sigurður Einarsson, Á 1,56 m
2. Þórður Þórðarson, ÍR 1,53 m
3. Elias Sveinsson, KR 1,50 m
4. Valbjörn Þorláksson,
KR 1,50 m
Konur:
Langstökk án atrennu
1. Fanney Sigurðardóttir,
Á 2,43 m
2. Eva Sif Heimisdóttir,
ÍR 2,31 m
3. Guðbjörg Svansdóttir,
ÍR 2,28 m
Hastökk án atrennu
1. Guðbjörg Svansdóttir,
ÍR 1,18 m
2. Eva Sif Heimisdóttir,
ÍR 1,15 m
3. Hulda Björg Bjarnadóttir
(10), UMFA 1,10 m
Þrístökk án atrennu
1. Eva Sif Heimisdóttir,
ÍR 6,85 m
2. Guðbjörg Svansdóttir,
ÍR 6,81 m
3. Fanney Sigurðardóttir,
Á 6,80 m
4. Guðrún Valdimarsdóttir,
ÍR 6,72 m
-Ó.U.
SIGRUM VIÐ DANI?
Um næstu helgi fer fram mikið mót
í körfuknattleik í Keflavík og Njarð-
vík. Bandaríska skólaliðið Luther
Collage, danska landsliðið og a- og
b-landslið íslands taka þátt í mótinu.
Á föstudaginn leika íslensku liðin
og á eftir Luther Collage gegn
danska landsliðinu. Á laugardag
leika ísland b og Luther Collage og
loks ísland a og Danmörk. Á sunnu-
dag leika ísland a og Luther Collage
og ísland b og Danmörk. Eftirtaldir
leikmenn leika í íslensku liðunum:
Ragnar Torfason, ÍR, Þorvaldur
Geirsson, Fram, Símon Ólafsson,
Fram, Ólafur Rafnsson, Haukum,
Pálmar Sigurðsson, Haukum, Henn-
ing Henningsson, Haukum, ívar
Webster, Haukum, Hreinn Þorkels-
son, ÍBK, Jón Kr. Gíslason, ÍBK,
Sigurður Ingimundarson, ÍBK, V alur
Ingimundarson, UMFN, Jóhannes
Kristbjörnsson, UMFN, ísak Tómas-
son, UMFN, Kristinn Einarsson,
UMFN, Páll Kolbeinsson, KR, Leif-
ur Gústafsson, Val, Tómas Holton,
Val, Torfi Magnússon, Val, Viðar
Vignisson, Haukum, og Matthías
Matthíasson, St. Paul, USA. Birgir
Michaelsson, KR, var valinn í þenn-
an hóp en hefur ekki mætt á æfingar.
-SK.
Spennan eykst í Skotlandi
— Hearts í efsta sætið eftir sigur gegn Rangers
Hearts skaust á toppinn á
skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu um helgina er liðið sigraði
Glasgow Rangers í Glasgow með
tveimur mörkum gegn engu.
Tveir aðrir leikir fóru fram. Celtic
sigraði Clydebank, 2-0, og Dundee
United og Dundee gerðu marka-
laustjafntefli.
Staðan í skosku úrvalsdeildinni er
nú þannig að Hearts hefur 26 stig
eftir 21 leik, Dundee Utd er með 24
eftir 19 leiki, Aberdeen 23 eftir 19
leiki, Celtic 22 eftir 18 leiki og Rang-
ers er með 21 stig eftir 20 leiki.
Greinilega mikil spenna framundan
í skosku knattspyrnunni.
-SK.
I" UMFN gegn'
j LCollage
| — íNjarðvíkíkvöld
kl. 20.00
I Eins og komið hefur fram í
■ fréttum fer fram mót í körfu-
I knattleik hér á landi í byrjun
janúar þar sem landslið Dana,
| bandaríska liðið Luther Col-
Ilage og a- og b-lið íslands leika
og fer mótið fram í íþrótta-
Ihúsinu í Keflavík.
Leikmenn Luther Collage eru
I mættir hingað til lands og leika
* í kvöld gegn íslandsmeisturum
| UMFN í íþróttahúsinu í Njarð-
Ivík. Leikur liðanna hefst klukk-
an átta og verður fróðlegt að sjá
I hvernig íslandsmeisturunum
Ireiðir af gegn bandaríska liðinu
sem margoft hefur komið hingað
verandi þjálfari þess, Kent
Finnanger, en hann er íslenskum
körfuknattleiksmönnum að góðu
kunnur. -SK.