Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 22
22 ' DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. Iþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir Landsleikur íslendinga og Dana á Akranesi á laugardag: Danir enn f heljargreipum íslendinga á Akranesinu Frá Gissuri Þór Ágústssyni, fréttamanni DV á landsleik ís- lands og Danmerkur á Akranesi: „Þessi leikur var mun betur leikinn af okkar hálfu en sá fyrsti. Það var fyrst og fremst góður varnarleikur og vel útfærð hraðaupphlaup í síðari hálfleik sem færðu okkur þennan sæta sigur. Þá stóð Sigurður Gunnars- son sig mun betur en í fyrsta leiknum og Július kom mjög sterkur út í sókninni á vinstri vængnum," sagði Kristján Ara- son eftir að íslenska landsliðið i handknattleik hafði unnið stóran sigur á því danska hér á Akranesi á laugardag, 24-20. Staðan í leik- hléi var jöfn, 12-12. íþróttahúsið á Akranesi var troð- fúllt af áhorfendum á laugardag og íslenska liðið náði sér strax vel á strik. Mikla athygli í byrjun leiksins vakti stórgóð frammistaða Júlíusar Jónassonar. Þegar íslenska liðið hafði skorað átta mörk hafði Júlíus átt þátt í öllum þeirra, annaðhvort skorað sjálfur eða átt síðustu send- ingu fyrir mark. Liðin voru nokkuð jöfn í byrjun og munurinn aldrei meiri en eitt til tvö mörk á annan hvorn veginn. Og í leikhléi var stað- an jöfn, 12-12. íslendingar náðu síð- an tveggja marka forskoti í byrjun síðari hálfleiks, 14-12, mjög vel studdir af áhorfendum og enn átti eftir að koma í Ijós hve áhorfendur geta haft mikið að segja, Fram að þessu hafði leikurinn venð áferðar- fallegur og lítið um hörku. Þess má geta að fyrsta gula spjaldið í leiknum var gefið á 5. mínútu síðari hálfleiks. Á síðustu mínútum leiksins var mikill hraði hjá báðum liðun; r g oft ekki nægilega mikill agi í leik ís- lenska hðsins. Þegar sjö mínútur voru til leiksloka var staðan 20-17 og þá brá Leif Mikkaelsen, landsliðs- þjálfari Dana, á það ráð að taka þá Kristján og Sigurð úr umferð en það hafði ekkert að segja. Leikmenn ís- lenska liðsins héldu haus og náðu að auka muninn. Og þegar upp var stáðið hafði íslenska liðið skorað 24 mörk en það danska 20 og skoruðu þeir síðasta mark sitt eftir að leik- tíminnn var runninn út úr vítakasti. #Þorgils Óttar Mathiesen átti mjög góðan leik gegn Dönum á Akranesi sem og í fyrsta leiknum í Laugardalshöll. Hért sést hann skora eitt marka sinna og Paul Sörensen kemur engum vörnum við. DV-mynd Bjarnleifur. Danir á ný i heljargreipum Is- lendinga á Akranesi Engu er líkara en íslendingar hafi mjög góð tök á Dönum á Akranesi og er skemmst að minnast stórsigurs- ins um árið þegar íslenska liðið sigr- aði með ellefu marka mun. Leikur íslenska liðsins á laugardag var mjög góður og þá sérstaklega varnarleik- urinn. Þá var markvarsla þeirra Ellerts Vigfússonar og Kristjáns Sigmundssonar mjög góð. Ellert varðí 7 skot í fyrri hálfleik og Krist- ján fór á kostum í síðari hálfleik og varði 12 skot og munar um minna. Vöm íslenska liðsins var mjög góð eins og áður sagði. Liðið lék svokall- aða 5-1 vöm, en bakverðimir komu mjög vel út á móti svo og homa- mennimir, svo lengi vel leit út fyrir að íslenska liðið léki 3-2 vöm. Þetta er sú vöm sem koma skal og ef leik- menn íslenska liðsins leggja sig fram verður erfitt fyrir andstæðinga ís- lenska liðsins í framtíðinni að kom- ast framhjá íslensku vöminni. Allir leikmenn íslenska liðsins áttu góðan leik á laugardag, báðir mark- verðimir og Júlíus Jónasson, sem lék sinn besta leik í langan tíma, Sigúrð- ur Gunnarsson var mjög góður og sömu sögu er að segja um Bjama Guðmundsson sem verið hefur dauf- ur í síðustu leikjum. Hann rak nú af sér slyðmorðið og átti mjög góðan , leik. Hjá danska liðinu var Paul 11 Frábær 1 ei kur” sagði ión Hjaltalín Magnússon, formaður HSI Frá Gissuri Þór Ágústssyni, fréttamanni DV á landsleik ís- lands og Danmerkur: ,, Þetta var frábær leikur. Sér- staklega er ég ánægður með frammistöðu ungu leikmann- anna í liðinu sem nú fengu að spreyta sig í fyrsta skipti í langan tíma,“ sagði Jón Hjaltalin Magn- ússon, formaður Handknattleiks- sambands Íslands, í samtali við DV eftir sigurleik íslendinga gegn Dönum á Akranesi á laugardag. „Ég er sérstaklega ánægður með leik Júliusar Jónassonar. Hann hefur ekki fengið tækifæri lengi til að sína getu sína en nú kom hans tækifæri og hann nýtti það mjög vel. Þetta er þriðji landsleikurinn þar sem Júlíus fær að reyna sig og hann er maður framtíðarinnar. Einnig kom Bjarni Guðmundsson mjög vel frá þessum leik. Hann hefur verið gagnrýndur mikið fyrir leiki sína með landsliðinu að undanförnu en skilaði sínu hlutverki mjög vel í þessum leik. Einnig vil ég nota tækifærið og þakka áhorfendum hér á Akranesi frábæran stuðn- ing. Án þeirra hefði þessi árangur ekki náðst og þeir áttu mjög stór- an þátt í þessum sæta sigri,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ. -SK. „Ég er sáttur við mína frammistöðu” | - sagði Júlíus Jónasson sem sló í gegn á Skaganum | IFrá Gissuri Þór Ágústssyni, sig í þriðja skipti. | fréttamanni DV á landsleik ís- „Ég heíd að áhorfendur hafi gert ■ I landsogDanmerkur: útslagið í þessum leik. Þeir voru I " „Ég er virkilega ánægður með frábærir og studdu mjög vel við ' I þennan leik hjá okkur. Við bakið á okkur. Ég er mjög ánægður | ■ náöum að sýna góðan leik og með að hafa fengið að byija inná J I þá sérstaklega i vörninni. Þá á laugardaginn og ég fann mig | mjög vel og er nokkuð sáttur við Ívar markvarslan einnig mjög góð,“ sagði Valsmaðurinn, Júl- Iíus Jónasson, en hann átti mjög góöan leik með islenska lands- liðinu gegn Dönum þegar þjóð- I irnar léku á laugardaginn. Júl- 5 íus hefur ekki fengið mörg ------------—....... | tækifæri með landsliðinu og á Júlíus Jónasson. jjaugardag fékk hann að spreyta mjog vel og er noKKuo sattur við ■ mína frammistöðu. Ég held að ís- I lenska landsliðið eigi eftir að I styrkjast mikið fyrir HM í Sviss ■ og þar ætti liðið að geta náð góðum ■ I -SK.j Sörensen langbestur og ef hann hefði ekki náð að sýna svo frábæra mark- vörslu hefði ævintýrið frá 1981 eflaust endurtekið sig. Mörk íslenska liðsins: Sigurður Gunnarsson 5, Þorgils Óttar 5, Kristján Arason 4, Bjarni Guð- mundsson 4, Steinar Birgisson 3, Júlíus Jónasson 3. -SK. stórsigur íslenska liðsins, 24:20, en snilldarmarkvarsla n í veg fyrir að < endurtækisig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.