Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Qupperneq 23
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. 23 í íþróttir Í íþróttir Í íþróttir Í íþróttir SIGGIPÉ OG RAGNAR ÓL- AFS. ATVINNUMENN (GOLFI Einstakur árangur hjá GR-sveitinni • Ragnar Ólafsson, GR. Sannar- lega sjónarsviptir að honum og Sigga Pé ef þeir leika í Sviþjóð næsta sumar eins og margt bend- ir til. • Sigurður Pétursson, GR. Leik- ur hann í atvinnumannakeppni í Svíþjóð næsta sumar? Eins og komið hefur fram í fréttum vann sveit Golfklúbbs Reykjavíkur það frábæra afrek í lok nóvember að hafna í 4. sæti í Evrópukeppni félags- liða í golfi sem fram fór á Aloha vellinum í Marbella á Spáni. í íþróttaannálnum fyrir árið 1985, sem fylgdi DV um síðustu helgi, láðist að geta þessa mikla afreks GR manna og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á því. Þessi árangur GR-sveitarinnar er besti árangur sem íslenskir kylfmgar hafa náð í keppni erlendis og þegar litið ér á þær þjóðir sem sú íslenska skildi eftir fyrir aftan sig verður árangurinn enn glæsilegri. Alls tók 21 þjóð þátt í mótinu að þessu sinni og allar mættu þær með sína bestu kylfinga til leiks. Á eftir GR-sveit- inni voru miklar golfþjóðir eins og írar, Englendingar, Skotar og a- og b-lið Vestur-Þjóðverja. Spánverjar sigruðu, léku á 606 höggum, Danir urðu í 2. sæti á 609 höggum og Frakk- ar í 3. sæti á 611 höggum. íslenska sveitin lék á 616 höggum en í henni léku þeir Ragnar Ólafsson, Sigurður Pétursson og Hannes Eyvindsson: Liðsstjóri sveitarinnar var Björgúlf- ur Lúðvíksson. Og til að kóróna þessa einstöku frammistöðu varð Sigurður Pétursson í 3.-4. sæti í skori einstaklinga sem er frábær árangur. í lokin má geta þess að GR-sveitin vakti einstaka athygli fyrir smekk- legan klæðaburð og íþróttamanns- lega framkomu utan vallar sem inn- an og voru sveitir annarra þjóða minntar á að taka GR-sveitina sér til fyrirmyndar í hvívetna. -SK. „Við erum ekki búnir að gefast upp og ætlum að reyna fyrir okkur aftur í atvinnumennsk- unni. Við stefnum að því að komast að í Svíþjóð næsta sumar og það er verið að vinna í þeim málum fyrir okkur,“ sagði Sig- urður Pétursson kylfmgur i sam- tali við DV í gærkvöldi en hann ásamt félaga sínum í GR, Ragnari Ólafssyni, reyndi í sumar að komast í atvinnumennsku sem kunnugt er. Mál þeirra Ragnars og Sigurðar eru nokkuð flókin. Að sögn Sigurðar eru þeir Ragnar báðir atvinnumenn í golfi í dag þrátt fyrir að þeim hafi mistekist að komast áfram í keppn- inni á Spáni í haust. Gefum Sigurði orðið:„Þegar þú ert búinn að skrifa undir inntökuskjal í atvinnumanna- skólann ert þú sjálfkrafa orðinn atvinnumaður. Og til þess að við verðum áhugamenn aftur þurfum við að sækja um áhugamannaréttindin á nýjan leik. Reglurnar eru hins vegar þannig i dag að ef þú færð áhuga- mannaskírteinið aftur og sækir síðan aftur um skólavist í atvinnumanna- skólanum ert þú orðinn atvinnumað- ur fyrir lífstíð. Þetta eru auðvitað fáránlegar reglur en vonir standa til að þeim verði breytt á næstunni. Málum hagar svo til núna að okkur gefst væntanlega kostur á því að keppa á 12 atvinnumannamótum í Svíþjóð næsta sumar. Þetta er hins vegar mjög dýrt fyrirtæki og það er verið að kanna fyrir okkur í Svíþjóð um þessar mundir með bakhjarl sem myndi vera tilbúinn til að styrkja okkur næsta sumar. En við erum ákveðnir í að reyna þetta. Það eru miklir peningar í boði á mótunum í Svíþjóð en þar mæta mjög sterkir kylfingar til leiks þannig að maður verður að hafna í einu af efstu sætun- um ef einhverjir peningar eiga að fást út úr þessu," sagði Sigurður. - Munið þið Ragnar þá ekki keppa hér heima á næsta keppnistíma- bili? „Það fer eftir ýmsu. Ef við sækjum ekki um áhugamannaskírteinin aft- ur megum við líklega ekki keppa nema sem gestir og þá ekki taka við verðlaunum ef okkur tekst að vinna til þeirra. Ef við komumst til Svíþjóð- ar verðum við auðvitað þar og leik- um því ekki hér heima næsta sumar. En þetta skýrist allt á næstu vik- um,“ sagði Sigurður Pétursson. -SK. — Þeir urðu það sjálfkrafa við undirskrift innritunarskjals í atvinnumannaskólann á Spáni íhaust Þeir þurfa að sækja um áhugamannaréttindi aftur ef þeir ætla að spila hér á landi næsta sumar. Báðir stefna þeir að atvinnumennsku í Svíþjóð næsta sumar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.