Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Side 26
26 , DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. Iþróttir Iþróttir Iþróttir iþróttir „Leikur of harðan hand- knattleik” — segir Leif Mikkelsen, þjátfari Dana, um íslenska liðið „Það var klaufaskapur hjá okkur að missa niður tveggja marka forskot á síðustu níutíu sekúndunum. Við áttum að yinna leikinn með það forskot. íslenska liðið er gott cn það leik- ur alltof harðan handknattleik, sérstaklega þegar Þorbjörn Jens- son lamdi einn leikmann okkar í gólfið á lokamínútunum. Það á ekkert skylt við handbolta,“ sagði Leif Mikkelsen, þjálfari Dana, eftir leikinn á föstudags- kvöidið. Mér fannst dómararnir dæma svolítið furðulega. Hvorugt rauða spjaldið átti rétt á sér og égskil ekki hvernig í ósköpunum stóð á því að leikmenn mínir þurftu að vera utan vallar fimm sinnum í fyrri hálfleik. Það er engin spurning um það að Kristján Arason var besti maður íslenska liðsins en um lið mitt vil ég ekki dæma. Flestir leikmenn okkar léku vel,“sagði Mikkelsen. fros „Vinstri vængurinn var okkar vandamál” — sagði Bogdan, þ jálfari íslenska landsliðsins, um leikinn á föstudagskvöld „Vinstri vængurinn i sóknar- leiknum var okkar vandamál í kvöld. Við söknuðum Atla Hilm- arssonar, Alfreðs Gíslasonar og Þorhergs Aðalsteinssonar. Sig- urður Gunnarsson er öllu rcynd- ari á miðjunni og honum tókst ekki að fylla skarð þeirra,“sagði Bogdan, þjálfari islenska lands- liðsins, eftir fyrsta leikinn við Dani á föstudagskvöldið. Ég tel að aðeins tveir leikmenn okkar hafi leikið af' eðiilegri getu, þeir Kristján Arason og Þorgils Óttar Mathiesen. Aðrir leikmenn stóðu sig ekki nægilega vel. Ég tel að danska liðið hafi leikið af eðlilegri getu. Mark- varslan var greinilega höfuð- verkur liðsins en vörn þeirra var mjög góð,“sagði Bogdan. Enn vinnur Olympia — Í2. deild í Svíþjóð Frá Gunnlaugi Jónssyni, fréttamanni DV í Svíþjóð: . Brynjar Harðarson og félag- ar hans hjá sænska 2. deildar liðinu Olympia héldu áfram óslitinni sigurgöngu sinni er liöið sigraði Sierra meó 23-17. Brynjar, sem verið hefur aðal- markaskorari liðsins í vetur með níu mörk að meðaltali, náði ekki að sýna sinar bestu hliðar i leiknum. Skoraði aðeins eitt mark. Olympia hefur fullt hús í suð- vestur riðli 2. deildar með 18 stig eftir níu leiki. Rauði ormurinn er í öðru sæti með tólf stig. Þrátt. fyrir gott gengi Olympia til þessa mun slagurinn um 1. deildar sæti koma til með að reynast líðinu erfiður. Fækkað verður í 1. deild- inni og það þýðir að liðið verður að standa stig mjög vel í úrslita- keppni eigi það að hafa einhverja möguleika. -fros Tuttugu manna sundlandslið valið Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Guðmundur Harðarsson, landsliðsþjálfarar í sundi, völdu fyrir skömmu tuttugu manna landsliðshóp er keppa mun meðal annars á móti í Stras- bourg í Frakklandi í þessum mánuði. Hópurinn hefur æft mjög stíft yfir jólin og þessi mynd Sveins var einmitt tekin á æfingu sundmannanna í Sundhöllinni um helgina. Hópurinn er þannig skipaður, aftari röð frá vinstri: Ólafur Einarsson, Ragnar Guðmunds- son, Árni Sigurðsson, Magnús Ólafsson, Arnþór Ragnarsson, Kristinn Magnússon, Eðvarð Eðvarðsson, Tómas Þráinsson, Jóhann Björnsson, Jens Sig- urðsson. Fremri röð: Þórunn Guðmundsdóttir, Bryndís Ól- afsdóttir, Kolbrún Gissurar- dóttir, Þorgerður Diðriksdóttir, Hugrún Ólafsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Ragnheiður Runólfsdóttir og Ingibjörg Arn- ardóttir. -fros Draumamark hjá Sigurði Gunnarssyni — tryggði íslenska fandsliðinu annað stigið gegn Dönum í fyrsta leik liðanna á föstudagskvöldið. Þrjú rauð spjöld og mikil spenna í20:20 jafntefli • Sigurður Gunnarsson tryggði íslendingum jafntefli með fallegu marki á lokasekúndunni. „Það var gaman að ná jafnteflinu með svona stórkostlegu marki frá Sigurði. Ég er sæmilega ánægður með mína frammistöðu. Mér fannst of mikið af kerfunum ganga út á vinstri vænginn í fyrri hálfleik en í þeim seinni náðum við okkur betur á strik. Það var náttúrlega gott að ná öðru stiginu en það eru margir hlutir sem við þurfum að laga í leik okkar,“sagði Kristján Arason eftir leik Íslendinga og Dana í Laugardals- hjöllinni á föstudagskvöldið sem endaði með jafntefli, 20-20, eftir hörkuspennandi Ieik. Það var Sig- • íþróttamenn ganga í það heilaga eins og aðrir þessa dagana og hér að ofan er mynd sem tekin var nýlega af einum þeirra. Hér er það landsliðsmaðurinn í körfuknattleik, Valdimar Guðlaugsson, Karlsson- ar hestamanns, sem stendur stoltur við hlið eiginkonu sinnar, Þuríðar Ágústsdóttur. Tilbreyting er að sýna lesendum íþróttamenn í öðrum klæðum en íþróttabúningum sinum. Valdimar leikur í vetur með IS og þjálfar einnig liðið. Þess má geta að Valdiinar er bróðir Karls Guðlaugssonar sem leikur með ÍR. urður Gunnarsson er náði að jafna á síðustu sekúndu leiksins og tryggja landanum annað stigið. Það voru gestirnir, Danir, sem voru öllu meira sannfærandi á upphafs- mínútunum. Flest gekk þeim í hag- inn í byrjun. Markvörður þeirra, Sörensen, varði vítakast frá Kristj- áni Arasyni, eina vítakastið sem ís- lendingar fengu í leiknum, og hinn skemmtilegi hornamaður Dana, Michael Fenger, var óstöðvandi. | Skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörk- Ium liðs síns sem hafði yfirhöndina, 4-1. Kristján Arason minnkaði Imuninn í 4-2 er Klaus Sletting Jens- en, ein af frægustu stórskyttum I heims, fékk að sjá rauða spjaldið fyrir brot á Páli Ólafssyni. Umdeild- | ur dómur en norskir dómarar voru Iekki í vafa, drógu upp rauða kortið í fyrsta en ekki síðasta skiptið í Ileiknum. Danir juku muninn aftur í þrjú mörk, 5-2, en góður kafli íslend- I inga tryggði þeim jafntefli, 5-5, og 1 síðan forystuna, 9-6. Tvö dönsk mörk | fyrir hlé og staðan því 9-8. Danir náðu að jafna leikinn, 10-10, | í upphafi seinni hálfieiksins og náðu Isiðan forystunni, 11-12. Þá var Steinari Birgissyni sýnt rauða Ispjaldið fyrir að reyna að hindra einn Danann í hraðaupphlaupi, þá voru I sextán mínútur eftir. Leikurinn var síðan æsispennandi allt tií loka. I Jafnt á öllum tölum frá 13-13 til 118-18 er gestirnir náðu að skora tvívegis. Aðeins tvær mínútur eftir. IÞorgils Óttar minnkaði muninn í eitt mark er rúmlega mínúta var til I loka og allt á suðupunkti. Kristján Arason og Guðmundur Guðmunds- ] son áttu þess kost að jafna eftir að Isá síðamefndi hafði náð boltanum eftir misheppnaða sóknarlotu Dana. IVonin virtist síðan hverfandi er Is- lendingar áttu aukakast aðeins I þremur sekúndum fyrir leikslok. * Danski varnarmúrinn hafði allur I augameðKristjáni Arasyni og Þorg- J ils Óttar Mathiesen tók þann kostinn § að gefa boltann til Sigurðar Gunn- _ arssonar sem sendi boltann rakleiðis | efst í markhorn Dana með þrumu- | fleyg. IKristján var án efa besti leikmaður íslenska liðsins í þessum leik. Hann Ináði sér vel á strik í seinni hálfleikn- um. Samvinna hans og Þorgils Ótt- I ars gaf einnig af sér þrjú af íjórum * mörkum Þorgils í leiknum. Þeir tveir | stóðu sig best í íslenska liðinu. Páll Ólafsson átti þokkalegan leik en hann hefur þó oft leikið betur fyrir íslands hönd. Sigurður Gunnarsson virtist miður sín lengst af og náði sér aðeins á strik lokakaflann. Horna- mennirnir léku þokkalega. Bjarni átti að þessu sinni betri leik en gegn Spánverjum en hann var þó oft full- bráður á sér að skjóta í opnum fær- um. Guðmundur var að venju skjótur að hugsa í hraðaupphlaupum, auk þess sem hann hafði góðar gætur á Michael Fenger í vörninni ef fyrstu mínúturnar eru undanskiIdar.Varn- arleikur íslenska liðsins var í meðal- lagi en markvarslan var ekki nógu góð. Kristján Sigmundsson náði sér aldrei á strik þó að ekki sé hægt að tala um slaka frammistöðu hjá hon- um. Ellert Vigfússon leysti hann af í nokkrar mínútur en fann sig ekki. Fyrirliði Dana, Morten Stig Christ- iansen, var bestur Dana. Hann tók stöðu vinstri handar skyttunnar Sletting Jensen eftir að Jensen hafði verið sýnt rauða spjaldið um miðjan fyrri hálfleikinn. Honum reyndist oft furðu létt að finna glufur á íslensku vörninni. Fenger var illstöðvandi í byrjun en sýndi ekki mikið eftir það. Stórskyttan Eric Rassmussen sýndi hvers hann var megnugur lokakafl- ann en gerði fátt fram að því. Vörn liðsins var mjög sterk, sérstaklega í fyrri hálfleiknum er sóknarleikur landans varð oft ráðalaus en mark- varsla þéirra var slök. Danir voru utan vallar í íjórtán mínútur, þar af í tíu mínútur í fyrri hálfleik. Einn leikmaður þeirra varð að yfirgefa völlinn fyrir fullt og allt. Fékk þriðja rauða spjaldið í leiknum eftir þrjár brottvísanir. Islendingar voru utan vallar í tíu mínútur og Danir fengu tvö vítaköst gegn aðeins einu íslend- inga. Mörk íslands: Kristján og Páll 5, Þorgils Óttar .4, Sigurður 3, Bjarni 2, Guðmundur 1. Morten Stig Christiansen varð markahæstur Dana ásamt Michael Fenger, þeir gerðu báðir fimm mörk. Eric Rassmussen gerði þrjú og Keld Nielsen þrjú, tvö úr vítum. Norsku dómararnir dæmdu eftir línu sem ekki hefur sést oft hér á landi. Þeir voru óragir við að gefa rauð spjöld en öllu ragari við að dæma vítaköst. Höfíu nokkuð-góð tök á leiknum. fros

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.