Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Qupperneq 40
40
BY. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
Andlát
Halldóra Sveinsdóttir hjúkrunar-
fræðingur lést 19. desember sl. Hún
fæddist 29. september 1919 að Arn-
ardal í Eyrarhreppi, Norður-ísa-
íjarðarsýslu, dóttir hjónanna Hólm-
fríðar Sigríðar Kristjánsdóttur og
Sveins Sigurðssonar. Halldóra lauk
námi frá Hjúkrunarskóla Islands
árið 1948. Eftir það stundaði hún
hjúkrunarstörf alla tíð þegar heilsa
hennar leyfði. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Guðmundur Sigur-
jónsson. Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið og eru tvö á lífi. Útför
Halldóru verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Jón Kristinsson verkstjóri, Otra-
teigi 52, sem andaðist 24. desember,
verður jarðsunginn frá Laugarnes-
kirkju fimmtudaginn 2. janúar kl. 15.
Kristbjörg Eggertsdóttir, Greni-
mel 2, sem lést 19. desemher, verður
jarðsungin frá Neskirkju í dag,
mánudaginn 30. desember, kl. 13.30.
Pétur Jóhannsson, Bjarkargötu 14,
lést í Borgarspítalanum 23. desemb-
er. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 30. desember kl.
13.30.
Friðrik Hjartarson, Kaplaskjóls-
vegi 55, andaðist í Landakotsspítala
24. desember sl.
Gísli Kristjánsson, fyrrverandi rit-
stjóri, lést 24. desember. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Guðfinnur Sigmundsson, vélsmið-
ur frá ísafirði, síðast búsettur í
Lyngholti 19, Keflavík, lést á sjúkra-
húsi Keflavíkur á aðfangadag.
Guðfríður Bjarnadóttir, Laugar-
nesvegi 100, er látin. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnarlátnu.
Guðlaug Jónsdóttir, Saurbæ, Kjal-
arnesi, andaðist að Reykjalundi á
jóladag.
Guðjón Ólafsson, Seljalandi 7, fyrr-
um bóndi að Stóra-Hofi, Gnjúpverja-
hreppi, lést í Borgarspítalanum 24.
desember.
Haraldur Kr. Magnússon, Ása-
braut 7, Keflavík, fyrrv. verkstjóri
Rafveitu Kcflavíkur, andaðist í
Landspítalanum 26. desember.
Ingjaldur Tómasson, Austurbrún
4, Rvík, lést aðfaranótt aðfangadags
jóla.
Margrét Sæmundsdóttir, Snæ-
landi 7, lést að morgni jóladags, 25.
desember.
Björgvin Samúelsson lést 18. des-
ember sl. Hann fæddist 7. janúar
1942, sonur hjónanna Helgu Magn-
úsdóttur og Samúels Jónssonar.
Hann lætur eftir sig eiginkonu,
Þórhildi Guðmundsdóttur, og tvö
börn. Útför hans verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag kl. 15.00.
Flugstöðin
á Keflavíkurflugvelli:
Samninga-
viðræður
við Hagvirki
Stjórn byggingarnefndar flug-
stöðvarinnar á Keflavikurflugvelli
hefur ákveðið að ganga til samninga-
viðræðna við Hagvirki um tilboð
þeirra í flugstöðina. Þegar tilboð
voru opnuð í innréttingar og frágang
stöðvarinnar var lægsta tilboðið frá
Álftárós hf. Því tilboði var ekki tekið
en nú ákveðið að ræða við Hagvirki
um næstlægsta tilboðið sem er um
625 milljónir króna. Tilboð Álftáróss
hf. var um 569 m.kr. Næsta tilboð á
eftir Hagvirkistilboðinu er frá ístaki
og hljóðar upp á 635,9 milljónir
króna.
Að sögn Sverris Hauks Gunnlaugs-
sonar, formanns byggingarnefndar,
hefjast samningaviðræður við Hag-
virki i dag. Sverrir Haukur sagði
einnig að farið yrði fram á það að
gildi tilboðanna verði framlengt til
lð.janúar nk., en þau renna annars
út á morgun. T ,,
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 39. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
Bakkastíg 15, Eskifirði, þingl. eign Benedikts Hilmarssonar o. fl„ fer fram
skv. kröfu Landsbanka íslands á eigninni sjálfri mánudaginn 6. janúar
1986 kl. 10.30.
Bæjarfógetinn á Eskifirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 39. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
Sæbergi 12, Breiðdalsvík, talin eign Guðmundar Kristjánssonar, fer fram
skv. kröfu Landsbanka íslands o.fl. á eigninni sjálfri mánudaginn 6. janúar
1986 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 78., 83. og 87. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
fasteigninni Framtíð, Djúpavogi, þingl. eign Kaupfélags Berufjarðar, fer
fram skv. kröfu ferðamálasjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 6. janúar
1986 kl. 16.30.
___________________Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu.
Happdrætti Styrktar-
félags vangefinna 1985
Vinningsnúmer:
1. vinningur, Subaru station 1800 GL, 4 wd 1986,
nr. 69008.
2. vinningur, Mada 323 Saloon, 4ra dyra, nr. 66947.
3. vinningur, bifreið að eigin vali að upphæð kr.
340 þús., nr. 52778.
4. -10. vinningur, húsbúnaður að eigin vali, hver að
upphæð kr. 1 50 þús. nr. 7404, 7522, 25264,40645,
45341,51503,75639.
Styrktarfélag vangefinna.
Þórdís Helgadóttir, lést í Landspít-
alanum að kvöldi 23. desember.
Þorbjörn Benediktsson, Kirkju-
bóli, Höfnum, andaðist í Borgarspít-
alanum þann 26. desember.
Þuriður Elín Bjarnadóttir, Ljós-
vallagötu 32, lést af slysförum 25.
desember.
Karítas Grímsdóttir, Miðtúni 21,
andaðist 17. þ.m. Jarðarförin hefur
farið fram.
Hildur Vigfúsdóttir Hjaltalín,
Laugateigi 17, lést í Landspítalanum
sunnudaginn 22. desember. Útför
hennar verður gerð frá Laugarnes-
kirkju föstudaginn 3. janúar kl.
13.30.
Tilkynningar
Litprentuð kort eftir Sigurjón
Ólafsson
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hefur
á þessu hausti látið gera litprentuð
kort af tveim verkum eftir Sigurjón
í eigu safnsins. Önnur myndin,
SURTUR, var gerð árið 1968 og
unnin úr málmplötum og viði en hin,
sem er unnin í plast og ber heitið
ÉG BIÐ AÐ HEILSA, er frá árinu
1976. Prentun annaðist prentsmiðjan
GRAFÍK hf. Kortin, sem fást í flest-
um bókabúðum, kosta 33 kr. og renn-
ur allur ágóði af sölunni í bygginga-
sjóð safnsins.
DV
fæsU
íárnbrauta-
stöðinni
í Kaupmanna'
höfn
80 ára verður á morgun, þriðjudag,
gamlársdag, Vilhjálmur V. Hjalta-
lín í Brokey á Breiðafirði. Kona
hans er Jóhanna Guðjónsdóttir.
Hafa þau búið i Brokey frá árinu
1941.
Menning
Menning
Menning
Nú skal hlæja...
Leikfélag Reykjavikur:
SEX í SAMA RÚMI.
Höfundar: Ray Cooney og
John Chapman.
Þýðandi: Karl Guðmundsson.
Lýsing: Daniel Williamsson.
Leikmynd og búningar: Jón Þórisson.
Leikstjóri: Jón Sigurbjörnsson.
Samkvæmt hefð eru frumsýning-
ar í Þjóðleikhúsinu og Iðnó um
jólaleytið. Leikfélag Reykjavíkur
hefur að þessu sinni valið til sýn-
inga gamanleikinn Move Over
Mrs. Markham eftir Ray Cooney
og John Chapman. í íslenskri þýð-
ingu Karls Guðmundssonar hefur
leikritið hlotið nafnið „Sex i sama
rúmi“, og vísast þar til þess að sex
manns hafa ákveðið að nota íbúð
eina til stefnumóta sama kvöldið,
en hætt er við að þar hittist þeir
sem síst skyldi.
Efni leiksins er léttvægt. Aðal-
persónurnar eru tvenn hjón en
eiginmennimir eiga saman bama-
bókaútgáfu. Annar þeirra er
vinnusamur og fellur vart barna-
bók úr hendi en hinn er heldur
léttur á bámnni og á í eilífu
kvennastússi utan hjónabands.
Þegar sá fyrrnefndi finnur síðu úr
bréfi, sem hann heldur að sé ástar-
bréf til konu sinnar, rennur upp
fyrir honum að hann hafi haft
hugann um of bundinn við yngstu
lesendurna og hefði ef til vill átt
að líta oftar upp frá bókunum.
Upp hefst mikill misskilningur
og flækja. Og ekki batnar ástandið
þegar siðavandur barnabókahöf-
undur blandast í málið.
Þetta segir samt lítið um farsann
þar sem fyndnin liggur í orðaleikj-
um og kyndugum uppákomum í
samskiptum persónanna og flestir
em undir lokin famir að þykjast
vera eitthvað annað en þeir eru.
Mikilvægt er að fyndni og tví-
ræðni textans komist til skila.
Einnig þarf mikinn hraða og ná-
kvæmt samspil, þannig að ekki reki
sig hver á annars horn þegar flækj-
an er í algleymingi.
En þó hraði og nákvæmni séu
nauðsynleg má samt of mikið af
öllu gera. Á frumsýningunni var
oft hlegið dátt að tilsvörum, en
stundum fengu áhorfendur varla
ráðrúm til að hlæja út því of mikið
lá á að halda áfram.
Orðaleikir skiluðu sér, að því er
best varð greint, ágætlega, en orða-
lag var einstöku sinnum óþarflega
hátíðlegt og brá fyrir sjaldyrðum
sem ekki eru töm dags daglega.
Þetta er sem sé leikrit um venju-
legt fólk sem óvænt lendir í vand-
ræðalegum aðstæðum og í stað
þess að leysa hnútana, flækir málin
alltaf meira og meira.
Leiklist
AUÐUR EYDAL
Af leikurum þótti mér þau Val-
gerður Dan og Þorsteinn Gunnars-'
son, sem leika önnur hjónin, að !
ýmsu leyti óþvingaðri og leikur
þeirra áreynsluminni en hinna, og
þar af leiðandi komust þau að
mínum dómi best frá sínum hlut-
verkum.
Kjartan Ragnarsson og Hanna
María Karlsdóttir leika hin hjónin.
Kjartan leikur hlutverk léttlynda
eiginmannsins og mér fannst hann
stundum grípa til ýkjuleiks um of.
Hanna María var óþarflega þving-
uð, einkum framan af.
Kjartan Bjargmundsson leikur
innanhússhönnuðinn litaglaða
sem nauðugur, viljugur flækist í
ástamálin og Margrét Olafsdóttir
er höfundur metsölubókanna um
hann Voffa. Sigurður Karlsson
leikur uppþornaðan herramann
sem gjarna vill bregða á leik þó að
það gangi hálfilla og þær Liija
Þórisdóttir og Rósa Þórsdóttir fara
með hlutverk tveggja stúlkna sem
koma við sögu.
Jón Sigurbjönrsson er leikstjóri,
en hann hefur leikstýrt mörgum
sýningum í gamla Iðnó og þekkir
vel bæði húsið og sitt fólk.
Óneitanlega er þetta leikrit keim-
líkt farsanum Með vífið í lúkunum,
sem Þjóðleikhúsið hefur sýnt í
haust, enda eftir sama höfund (Ray
Cooney). Ekki veit ég hvort tilvilj-
un réð því að bæði leikhúsin völdu
farsa eftir sama mann til sýninga
á svo svipuðum tíma. En hitt er
víst að leikrit Ray Cooney eru mjög
vinsæl um þessar mundir, m.a.
ganga tvö verka hans nú í London,
alltaf fyrir fullu húsi.
Mér sýnist sem svipað gæti orðið
uppi á tengingum hér í Reykjavík.
Undirtektir á frumsýningu bentu
að minnsta kosti til þess að áhorf-
endur kynnu að meta grínið þó að
boðskapurinn sé rýr. AE
ATH. Einn þeirra, sem ekki hafa
farið í jólafrí í ár er prentvillu-
púkinn. Hann bregður á leik í
umsögn minni um Bleikar slaufur,
sem birtist í blaðinu sl. laugardag.
Prakkarinn er greinilega í jóla-
skapi því hann breytir orðinu stilli-
lega í snilldarlega og dugir ekki
minna til.
En rétt er umrædd setning þann-
ig: Eggert Þorleifsson og Guðlaug
María Bjarnadóttir leika þau
Helga og Margréti stillilega, eins
og vera ber um svo góðar og guð-
hræddar manneskjur... AE
Leikfélag Reykjavíkur leikur nú á léttar nótur. Hér sjást aðstandendur Sex í sama rúmi.