Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 3 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir — minnstsex vikna bið eftir viðtalstíma hjá ráðgjafarstöðinni REYNIR Á GEÐHEILSU HÚSBYGGJENDANNA Það getur orðið tafsamt fyrir þá húsbyggjendur eða íbúðakaup- endur, sem eiga í greiðsluerfiðleik- um, að sækja þá úrlausn sem fé- lagsmálaráðherra hefur nú boðið. Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar var falið þetta verkefni. Þar er nú minnst sex vikna bið eftir að fá viðtal við ráðgjafana. DV hringdi í Húsnæðisstofnun í gær, eftir ábendingu um þetta ástand. „Ef það er bara viðtal eig- um við lausan tíma 17. mars,“ var svarið um næsta lausan tíma hjá ráðgjafarstöðinni. Það er því von að greiðsluerfiðleikamir reyni á geðheilsu manna. „Þetta er rétt, ég get vel trúað þessu,“ sagði Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Hús- næðisstofnunar. „Ég hef beðið um leyfi til þess að ráða viðskiptafræð- ing til viðbótar, ekki veitir af. Það var fjallað um þessa beiðni á föstu- daginn var en svar er ókomið." Samkvæmt reglum félagsmála- ráðherra er ráðgjafarstöðinni falið að meta greiðslugetu umsækjenda um viðbótarlán, svo og að hafa samráð við lánastofnanir um leng- ingu lána sem fyrir em. Veita má 50.000-200.000 króna lán. Veðsetn- ing eignar má ekki fara yfir 75% af brunabótamati. HERB Grétar J. Guðmundsson verkfræð- ingur veitir ráðgjafarstöðinni for- stöðu. Þarna er hann að kanna mál fjölskyldu, sem vill hafa sín mál á hreinu. DV-mynd: GVA. „MER VAR YTT TIL HLIÐAR” —segir f yrrverandi f ramkvæmdast jóri Úrvals, „Ég átti ekki von á þessari breyt- ingu hjá Úrvali. Ég held að hún hafi komið Erling Aspelund jafnmikið á óvart og mér. Mér var vikið til hliðar og annar maður, Erling, settur fyrir ofan mig,“ sagði Karl Sigurhjartar- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Úrvals. Flugleiðir eiga 80% í Úrvali og fyrir skömmu var Erling Aspe- lund, sem lengi hefur unnið hjá Flugleiðum, færður til og settur aðalframkvæmdastjóri Úrvals. „Úrval er ekki það stórt og mikið fyrirtæki að ástæða sé til að hafa 2 framkvæmdastjóra. Ég leit á ráðn- ingu annars framkvæmdastjóra sem gagnrýni á mín störf. Það stóð þó ekki til að lækka mig í launum en ég hlýt að túlka þessa breytingu sem óánægju með mín störf. Ég ákvað að hætta og fara út í sjálfstæðan atvinnurekstur, keypti helminginn í Karl Sigurhjartarson Karl Sigurhjartarson er nú flog- inn frá Urvali. „Fyrirtækið þarf ekki tvo framkvæmdastjóra,“ sagði Karl. Polaris. Þar mun ég vera með leigu- flug til Mallorca og Ibiza.- Stjórn Úrvals taldi það ekki borga sig, en ég er á annarri skoðun og tók yfir gistisamningana sem Úrval hafði gert á þessum stöðum.“ Á síðasta ári var tap á rekstri Úrvals og fyrirtækið mun ekki vera stöndugt, samkvæmt upplýsingum DV. -Hefur þú trú á að Úrval muni hætta starfsemi innan skamms? „Nei, það held ég ekki, eiginfjár- staða fyrirtækisins er það góð þótt tapið sé nokkurt. Ég var búinn að byggja upp alls konar samninga sem ég hef trú á. Ég fer frá Úrvali með eftirsjá. Og Flugleiðum hef ég unnið hjá í aldarfjórðung. Það er heilmikið um mannátilfæringar hjá þvi fyrir- tæki, sem er af hinu góða, en þeir búa starfsmenn ekki nægilega undir slíkt. Oft er hægt að túlka þessar tilfæringar sem gagnrýni á fyrri störf,“ sagði Karl. -KB Ekki af ráðið hvort Höskuldur fær varðskip Forstjóri Landhelgisgæslunnar og dómsmálaráðuneytið þurfa á næs- tunni að ákveða hvað gera skuli við Höskuld Skarphéðinsson skipherra í framhaldi af dómi sem nýlega féll í sakadómi Reykjavíkur. „Þetta hefur ekki komið til tals ennþá,“ sagði Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dómsmála. I sakadómi var Höskuldur sakfelld- ur fyrir að leggja fram í hæjarþingi Reykjavíkur rangar áfengisnótur til grundvallar steftiukröfu sinni um greiðslu risnu skipherra. Dómarinn ákvað hins vegar að refsing skyldi falla niður vegna ríkra málsbóia. Höskuldur, sem er formaður Skip- stjórafélags Islands, átti í deilum við ráðamenn Landhelgisgæslunnar um túlkun ákvæða í kjarasamningum um risnu. Höskuldur hefur ekki fengið að stjóma varðskipi frá því í vor þegar í ljós kom að áfengisnóturnar voru ekki réttar. Hann var þá settur á biðlaun. I haust var hann látinn annast kafaranámskeið fyrir varð- skipsmenn. Að undanförnu hefur hann haldið eldvamanámskeið fyrir áhafnir varðskipa í samráði við Brunamálastofnun. Mál Höskuldar vakti mikla athygli í vetrarbyrjun. Þing Farmanna- og fiskimannasambandsins samþykkti þá vantraust á forstjóra Landhelgis- gæslunnar. Þingið krafðist þess að Höskuldur Skarphéðinsson yrði þegar látinn taka við sínu fyrra starfi og kannað yrði hvort Landhelgis- gæslan og dómsmálaráðuneytið hefðu farið að lögum í afgreiðslu sinni á máli Höskuldar. -KMU Höskuldur Skarphéðinsson, sem heldur á slökkvitæki, kennir varðskipsmönn- um eldvarnir um þessar mundir. DV-mynd: GVA. Farmanna- ogfiskimannasambandið hef ur áhyggjur: Skapar hættu og öryggisleysi að leigja Gæsluvél Farmanna- og fiskimannasam- band íslands hefur lýst áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðrar leigu Landhelgisgæslunnar á Fokker-vél sinni, TF-SYN, til Flugleiða. í ályktun stjómar sambandsins er athygli alþingismanna vakin á „þeirri hættu og því öryggisleysi sem kynni að skapast, ef tæki Landhelgisgæslu íslands ýrðu leigð eða lánuð til annarra starfa en þeim er ætluð samkvæmt lögum“. „Tækjafiúnaður Landhelgisgæsl- unnar er sá eini er sjómenn og landsbyggðarfólk getur átt tilkall til, þegar vá ber að höndum. Stjórn FFSl leggur á það sérstaka áherslu að flugvélar Landhelgis- gæslunnar verði ávallt undir stjórn starfsmanna gæslunnar og tiltækar með mjög stuttum fyrirvara þegar á þarf að halda,“ segir í ályktun sem send hefur verið Alþingi. I greinargerð með ályktuninni segir að TF-SYN sé sérstaklega útbúin og sérhæfð til björgunar- og landhelgisgæslustarfa. Flugþol Landhelgisgæsluvélar- innar sé rúmar 10 klukkustundir borið saman við um það bil 5 stunda flugþol Flugleiðafokkera og um 6 stunda flugþol Flugmála- stjórnarvélarinnar. Drög að leigusamningi um Gæslufokkerinn liggja fyrir. Gert er ráð fyrir að Flugleiðir fái vélina leigða þrjá daga í viku í sumar. Flugleiðir telja leiguna á Gæslu- vélinni foreendu þess að hægt verði að opna nýja fiugleið miUi Færeyja og Glasgow. Ennfremur hyggjast Flugleiðir auka flug sitt til Græn- lands. íslensku flugfélögin hafa oft fengið Gæslufokker leigðan, eink- um þó til að létta á álagi í kringum stórhátíðir og eftir óveður. I fyrra var TF-SYN leigð Flugleiðum í alls fjóra daga, þar af í þrjá daga til flugs með erlenda farþega til Græn- TF-SYN Hugsanlegt er að Landhelgis- gæsluvélin TF-SYN verði í áætl- unarflugi hjá Flugleiðum i sumar. lands. Arnarflug leigði vélina í einn dag. Tvær til þrjár klukkustundir þarf til að breyta vélinni aftur til gæslu- eða leitarflugs eftir farþegaflug. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.