Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 7 Atvinnumál Atvinnumál Dagskrá keppnisdaginn: 8 ára og yngri og 9-10 ára keppa frá kl. 13-15, mæting kl. 12.30, verðlaunaafhending þegar keppni þeirra er lokið. 11-15 ára keppa kl. 15.30, mæting kl. 15, verðlaunaafhending að lokinni keppni. Fullorðnir: Húsiðopnaðkl. 20. Keppni hefstkl. 21. Kl. 24: Úrslit kynnt. Dansað til kl. 01. Öllum áhugamönnum (ekki atvinnudönsurum) er heimil þátttaka. Þátttökugjald: Börn og unglingar kr. 150,- Fullorðnir kr. 250,- Aðgangseyrir áhorfenda: Börn og unglingar kr. 200,- Fullorðnir kr. 300,- Aðgöngumiði á báðar keppnirnar kr. 400,- Forsala aðgöngumiða verður í Nýja dansskólanum og hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. NÝR F1SKMATSÖLU- STAÐURIKEFLAVÍK — til húsa í KK-húsinu. Stórí salur hússins verður opnaður 14. mars í næstu viku verður opnaður nýr matsölustaður í Keflavík sem mun leggja mikla áherslu á fiskrétti. Ragnar Örn Pétursson, sem rekur KK-húsið, hefur byggt glerskála við húsið þar sem matsölustaðurinn verður. Staðurinn tekur 50 manns í sæti og verður opinn frá kl. 18 til 23. „Við leggjum áherslu á fiskrétti, unna úr nýjum fiski. Það verða þetta tíu til tólf réttir á boðstólum á hverj- um degi. Matseðillinn verður aldrei ákveðinn fyrr en rétt fyrir opnun, eða eftir að við vitum hvaða hráefhi bátarnir, sem landa kl. 17, koma með,“ sagði Ragnar Örn. Nú fer að líða að því að stóri salur- inn í KK-húsinu verði opnaður. Iðn- aðarmenn vinna nú af fullum krafti við að ganga frá salnum sem mun taka 800 manns. „Salurinn verður opnaður 14. mars og þá koma gömlu góðu Hljómar fram og skemmta," sagði Ragnar. Nú þegar hafa fyrirtæki og starfs- hópar pantað inni fyrir árshátíðir sínar í KK-húsinu. -sos íslandsmeistarakeppni áhugamanna í gömlu dönsunum verður haldin á Hótel Sögu sunnudaginn 2. mars 1986 á vegum Nýja dansskólans og Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Keppnin verður með svipuðu sniði og áður. Keppninni mun lokið á einum degi. Dómarar verða f jórir. Dómarar sýna strax dóma s«na með gjöf frá 1-6. Þannig safnast stig á keppendur. Þátttakendur tilkynni sig í síma 68-74-64 og 5-29-96 virka daga f rá kl. 10-12 fyrir 26. febrúar ___________________________1986._________________________________ Tilhögun keppni barna og unglinga: 8 ára og yngri dansa polka, vals og svensk maskerade. 9-10 ára dansa polka, vals, skottís og vínarkrus. 11-13 ára dansa polka, vals, skottís, vínarkrus, marzuka og skoska dánsinn. 14-15 ára dansa sömu 5 dansana. 16-34 ára dansa sömu 5 dansana. 35 ára og eldri dansa sömu 5 dansana Styrkið og fegrið líkamann DÖMUROG HERRAR! Ný 5 vikna námskeið hefjast 12. febrúar HINIR VINSÆLU HERRATÍMAR í HÁDEGINU Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértimar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértimar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu- böð — kaffi — og hinir vinsælu sólarium-lampar. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. (®) Júdódeild Ármanns Ármúla 32 *nnr'tun 09 uppiýs'r,9ai' a**a v|rka dag Flugvél Helga Jónssonar á Grænlandi. KK-húsið í Keflavík. Nýr matsölustaður opnaður þar í næstu viku og stóri salurinn 14. mars. 50-60ný herbergi Hótel Sögu — tilbúin til notkunar 1. maí Iðnaðarmenn vinna nú af fullum krafti í nýbyggingu Hótel Sögu en fyrirhugað er að taka helming hús- næðisins í nýju álmunni í notkun 1. maí. „Þá munum við taka í notkun fundarsali óg um 50-60 herbergi. Einnig á að verða búið að ganga frá garðskálanum sem verður á milli nýju og gömlu byggingarinnar os bá verður gestamóttakan fullgerð," sagði Konráð Guðmundsson, hótel- stjóri Hótel Sögu. Iðnaðarmennimir eiga að verða búnir að ljúka störfum 1. maí. Fram- kvæmdir við lokaáfangann hefjast síðan í október. Nýbygging Hótel Sögu verður fúllfrágengin fyrir sumarið 1987. -SOS fslandsmeistarakeppni áhugamanna í gömlu dönsunum 2. mars 1986 GRÆNLANDSFLUG MEIRA EN N0KKRU SINNIFYRR — Grönlandsfly með áætlunarflug til Reykjavíkur Flugsamgöngur milli íslands og Grænlands verða meiri í sumar en nokkru sinni fyrr. Flugleiðir, Flug- skóli Helga Jónssonar og Gronlands- fly verða með reglubundnar ferðfr milli landanna. Gronlandsfly, sem er eign SAS og grænlensku heimastjómarinnar, hefur ákveðið að fljúga einu sinni í viku á Dash 7-flugvél, sem er svipuð Fokker, á milli Nuuk og Reykjavík- ur. Gronlandsfly ætlar að fljúga frá Nuuk á föstudögum og til baka frá Reykjavík á sunnudögum. Flug þetta verður í samvinnu við Flugleiðir. Með því verður Gron- landsfly eina erlenda flugfélagið sem heldur uppi áætlunarflugi til Islands. Flugleiðir ætla að fljúga reglu- bundið leiguflug sex sinnum í viku milli landanna. Tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, flýgur Boeing-þota til Narsarssuaq. Fjórar ferðir verða á Fokker til Kulusuk. Flugskóli Helga Jónssonar, sem yfir vetrarmánuði flýgur eina ferð í viku til Kulusuk á Mitsubishi-vél, hyggst fljúga tvisvar í viku í sumar, á mánudögum og föstudögum. KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.