Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti Peningamarkaðurinn Innlán með sérkjörum Alþýöubunkinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iönaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefhda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnúm gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársQórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%. og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta hejla ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjóröungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompve^ti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afíollum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kauþa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og Jagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ár&ávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í Jok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Oráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt þvi 0,125%. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Vísitölur Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396 stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÚÐA (%) 01.-10.02. 1986 INNLÁNMEÐSÉRKJðRUM SJA sérusta il ll ifiilf iiÍiiflfíi innlAn úverðtryggð SPARISJÖÐSBÆKUR úbundin innstnú. 22.0 22.0 22,0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23,0 25.0 25.0 6 mén. uppsögn 31.0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29,0 31,0 28.0 12 mán. uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 33.3 SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Spar.ð 3-5 m*n. 25.0 23.0 23,0 23.0 23,0 25,0 25.0 innlAnsskIrteini Sp.6mén. ogm. 29.0 26,0 23.0 29,0 28.0 Til 6 máníöa 28.0 30.0 28.0 28.0 tEkkareikningar Avls.n.n>ikning.r 17.0 17.0 8.0 8.0 10,0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlaup.reikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10,0 10.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1,0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán. uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 innlAn gengistryggð gjaldeyrisreikningar Bmd.rlkjadoll.rar 8.0 8.0 7.5 7,0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Stmiingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 D.nskar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 útlAn úverdtryggð ALMENNIRVlXUR (forvextir) 30,0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIÐSKIPTAVlXUR (fonrextir) 34.0 2) kge 34.0 kg« 32.5 kgt kfl. kfl* 34.0 ALMENN SKULDABREf 32,03) 32.0 32.0 32,0 32.0 32,0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35,02) kge 35.0 kgs 33,5 kfl« kí. 35.0 HUUPAREIKNINGAR yfirorAttur 31.5 31,5 31.5 31,5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 útlAnverðtryggð skuldabrEf AA 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Ungrien21/2ár 5,0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5,0 5.0 5.0 ÚTlAN TIL FRANILEIÐSU) sjAneðanmAlsi) 1) Lán til iraianlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafiiarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) VaxtaáJag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalóna er 2% á ári, bæði á verðtiyggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankariuiríög Verskinarhankántim - Fær ekki leyfi til að flytja inn áburð —gæti verið allt að 50% ódýrari en hér Landbúnaðarráðuneytið hefur hafnað heiðni Guðmundar Halldórs- sonar frá Húsavík um leyfi til að flytja inn allt að 1000 tonn af til- búnum áhurði frá Austur-Evrópu. Það er gert á grundvelli laga um að Áburðarverksmiðja ríkisins hafi einkarétt á öllum innflutningi til- búins áburðar. „Ég get fengið blandaðan áburð frá Austur-Evrópu. Pokinn hingað að bryggju myndi kosta um 535 krónur. Ég get fullyrt að þetta verð verður aldrei minna en 40 til 50 prósent lægra en verð á áburði frá Áburðar- verksmiðju ríkisins," sagði Guð- mundur Halldórsson í viðtali við DV. Það var í fyrra sem nokkrir bændur óskuðu eftir því við Guðmund að hann kannaði innflutning á áburði. Eftir að Guðmundur hafði aflað sér þessara viðskiptasambanda bauð hann Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík að taka yíir þennan inn- flutning og annast söluna. Áður hafði hann fengið þau svör frá land- búnaðarráðherra að hann hefði síð- asta orðið um hvort mögulegt yrði að ffytja inn áburð. Ráðherra sagðist þó þurfa að ráðfæra sig við aðra áður en hann tæki ákvörðun. Guðmundi barst síðan bréf frá ráðuneytinu í síðasta mánuði. Þar kemur fram að innflutningur sem þessi brjóti í bága við lög. Áburðar- verksmiðjan hafi ein heimild til að flytja inn áburð og einnig að verk- smiðjunni sé ekki heimilt að fram- selja þennan rétt til annarra. Guðmundur er ekki ánægður með þessi málalok. „Ég mun leita til lögfræðinga til að kanna hvort þetta sé rétt. Sé svo tel ég rétt að verðinu hér á landi verði breytt í samræmi við það verð sem hægt er að fá er- lendis eða þá að þessi innflutningur verði gefinn frjáls,“ segir Guðmund- ur. í fyrra kostaði áburðarpoki 470 krónur. Þá var hann niðurgreiddur um ein 20 prósent. Áburðarverð í vor hefur ekki verið ákveðið enn. Það mun að líkindum hækka í samræmi við verðbólgu. Þá er mögulegt að áburður verði boðinn á staðgreiðslu- verði sem ætti að lækka verðið. -APH Áburðarverksmiðja ríkisins. Verksmiðjan hefur einkarétt á innflutningi tilbúins áburðar. Guðmundur Halldórsson á Húsavík fúllyrðir að hann geti flutt inn og boðið bændum mun ódýrari áburð en Áburðarverksmiðjan býður. METMÁNUÐUR HIÁ ICELAND SEAF00D Sölumet varð hjá Iceland Seafood, dótturfyrirtæki Sambandsins í Bandaríkjunum, í janúarmánuði síðastliðnum. Fyrirtækið seldi fyrir 14,628 milljónir dollara sem er 65,5% hærra en í janúar 1985. Söluhæsti mánuðurinn fram að þessu var sept- ember 1985? Þá nam salan rúmlega 13,3 milljónum dollara. Mæld í magni er janúarsalan nú um 4.843 tonn eða 10 milljónir og 677 þúsund pund. Það er magnaukning upp á 41,4% frá janúarmánuði 1985. Nánar skiptist salan þannig að 6,8 milljónir punda voru verksmiðju- framleiddar vörur, sem er 31,3% magnaukning, seldar fyrir 7,8 millj- ónir dollara sem þýðir 40% verðmæt- isaukningu. 3,2 milljónir punda voru seldar af flökum fyrir 4,9 milljónir dollara. Það er 77,1% magnaukning og 84,4% verðmætisaukning. 450 þúsund pund voru seld af skel- fiski fyrir 1,8 milljón dollara. Magn- aukningin er þar 860% en verðmæt- isaukningin 545%. Að sögn Guðjóns B. Ólafssonar, for- stjóra Iceland Seafood, er vöruskort- ur nú mjög farinn áð segja til sín. „Við óttumst að vöruskortur muni hafa mikil áhrif á febrúarsöluna og við hefðum getað selt mun meira í janúar ef vöruskortur hefði ekki komið til,“ sagði Guðjón B. Ólafeson. Hann sagði að nú vantaði tilfinnan- lega ýsublokk og ýsuflök. Einnig er skortur á ufeablokk, karfablokk, karfaflökum, grálúðuflökum og rækju. Þá gat Guðjón þess að gott væri að eiga meira af þorskþlokk og þorskflökum þótt ekki væri beinlínis hægt að tala um skort þar. - óm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.