Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd HAITI - 29 ÁRA ÓGNARSTJÓRN Haiti breyttist í eitt dularfyllsta einveldi heims í valdatíð Francois Duvalier sem varð forseti til lífstíð- ar og kom til valda eftir byltingu hersins 1957. Hann var betur þekktur undir nafninu „Papa Doc“. Eitt síðasta embættisverk Papa Doc, áður en hann dó 1971, var að tryggja að sonur hans „Baby Doc“ tæki sæti hans eftir hans dag og héldi lífstíðartitlinum. - Jean- Claude Duvalier var þá aðeins nítján ára, glaumgosi óreyndur í pólitíkinni eða valdatafli. Flestir spáðu því að honum mundi ekki haldast lengi á völdum. Sonurinn með frjálslyndara yfirbragði Stjórn sonarins þótti með frjáls- lyndara yfirbragði en Papa Docs, sem var sannkölluð ógnarstjórn, þar sem enginn gat verið óhultur fyrir útsendurum „Tonton Macout- es“, eins og hinar hræðilegu örygg- issveitir voru kallaðar. Baby Doc reyndi ögn að bæta úr með því að banna pyndingar og geðþóttafang- elsanir. „Tonton“ var þannað að blanda sér í störf hinnar almennu lögreglu og laganna verðir voru íklæddir nýjum einkennisbúning- um sem tákn um að nú væri blaðinu snúið við. Þetta var það sem blasti við á ytra borðinu en að öðru leyti hefur stjórn Baby Doc reynst sama kúg- unarstjórnin, þar sem troðið var á mannréttindum, eins og fyrr. Að vísu efndi Duvalier yngri til þing- kosninga þar sem flokkur hans (PUN) vann öll 59 þingsætin. Það leyfðist nefnilega engum öðrum að bjóða fram á móti. - Sylvio Claude, leiðtogi kristdemókrata, aðal- stjórnarandstöðuflokksins, var hnepptur í stofufangelsi. Óánægjan brýst út Haiti er fátækasta ríki á vestur- hveli jarðar. Það er talið að helm- ingur af vinnuafli landsins sé at- vinnulaus. Seinni árin hafa Banda- ríkin og fleiri ríki, sem veitt hafa Haiti efnahagsaðstoð eða hjálp í öðru formi, lagt mjög að stjóminni að gera úrbætur, bæði í lífskjörum og til lýðræðislegri stjórnarhátta. Eins og jafnan eftir langa kúgun og bág kjör, þegar slakað er á eftir- litinu, þá brýst óánægjan fram á yfirborðið í mótmælaaðgerðum, sem snúast yfir í óeirðir þegar tekið er á móti. - Sumarið 1984 urðu óeirðir. Eftir uppþotin það sumar herti Baby Doc aftur tökin. í mars 1985 greindi Amnesty Intemational (mannréttindasamtökin) frá nýjum kúgunaraðgerðum, ritskoðunum og fangelsunum án réttarhalda. Þær óeirðir, sem nú hafa brotist út, em kallaðar ungmennabylting- in og hófst hún 28. nóvember í vetur í bænum Gonaives þegar þrennt var skotið til bana af hermönnum eftir mótmælaaðgerðir stúdenta gegn ókjömnum og harðstjórninni. Gjörspilltir valdhafar Efnahagslífið er knémnnur sem spillingin og óstjómin hafa í sam- einingu marghöggvið í. Forseta- fjölskyldan neitar sér ekki um nokkum munað í glæsihúsum eða öðrum lúxus. Sú skrítla gengur í lágum hljóðum í Port-Au-Prince, höfuðborginni, að rétt svar við spumingunni um hvar ríkissjóður sé eigi að vera að forsetafrúin, Michele, hafi tekið hann með sér til Parísar. Þar er vísað til þess þegar hún í vetur fór með átján manna fömneyti til höfuðborgar hátískunnar og lifði í vellystingum praktuglega. Meðal annars er hún sögð hafa keypt dýrindis pelsa og loðskinnavömr fyrir svimandi fjár- hæðir, en veðurfar á Haiti er þann- ig að menn geta gengið þar um á hálferma skyrtunni allan ársins hring, nema þá til þess að klæða afsér hitann. Kvittur er uppi um að 34 milljónir dollara vanti hreinlega í ríkissjóð og að sjö af þeim séu í búgarði sem fjármálaráðherrann keypti nýlega í Kanada. Þetta er gert beint frammi fyrir augum þeirra sem 80% af þurfa að lifa af 5200 króna árslaunum. Enda hefur túristum fækkað um 75%, síðan Haiti fékk á sig óorð af eyðni- sjúkdómnum (AIDS) sem talinn er hafa borist til Bandaríkjanna að miklu leyti þaðan. - Sjúkdómurinn hefur og sett annað strik í reikn- inginn. Bandarísk yfirvöld hafa af heilbrigðisástæðum tekið mjög hefur borið á gripdeildum í versl- unum, íkveikjum opinberra bygg- inga og róstum. Skólum var lokað í nær tvær vikur þegar áskoranir um niðurfellingu skólasóknar fengu of góðar undirtektir. Herinn hefur haft sig ótrúlega lítið í frammi í óeirðunum. Líf- ffBahamaöarna 0 200 400km I .... I JAMAiCA, HAITI D0MINIKANSKA . REPUBUKEN O PUERT0RIC0 Gonaives haiti^ P0RTAU PRÍNCE^ J DOMINIKANSKA REPUBLIKEN Forseti til lífstíðar (samkvæmt stjórnarskránni, hver sem raunin verður), Jean-Claude Duvalier. Til hægri sést afstaða eyjarinnar Hispaniola, þar sem Haiti og Dóminíska lýðveldið eru. er meðal ævilengd á Haiti ekki nema 45 ár. - Um 90% Haiti-búa eru í reynd ólæsir. Efnahagsaðstoð stór hluti þjóðartekna Spillingin hefur mergsogið efna- hagsl'fið sem þar að auki hefur orðið fyrir ýmsum áfollum. Kaffi- verð hefur farið lækkandi á al- þjóðamörkuðum og frá því 1979, þegar ferðamannastraumurinn komst upp í 150 þúsund manns, fyrir innflytjendastreymi þaðan sem áður var öryggisventill því að hinir óánægðu áttu sér útgöngu- leið þar. Bandaríkjastjórn hefur aukið enn þrýstinginn á stjórn Duvalier um úrbætur með þvi að stöðva í bili efnahagsaðstoðina, sem stóð undir fjórða hluta ríkisteknanna. Fyrirmynd í þrælauppreisn- inni í óeirðunum undanfarna vikur vörður var efldur við forsetahöll- ina en menn eru samt efins um hollustu hersins við forsetann. Þrátt fyrir nær þriggja áratuga einræði Duvalier-fjölskyldunnar sýnist hún nú vera á fallanda fæti vegna þess krafts sem andófið hefur öðlast. Sumt í því, eins og rauðu og bláu litimir í veifum mótmæl- enda, minnir sterklega á bylting- una á eynni árið 1804 þegar hinir blökku þrælar gerðu uppreisn gegn nýlenduherrum sínum, Frökkum. Honecker pantaði bjór og kom á vinabæjar- tengslum við Saarhérað Ásgeir Eggertsson, fréttaritari DV í Munchen: I fyrsta sinn í sögu Austur- og Vestur-Þýskalands hefur verið stofnað til vinabæjatengsla á milli tveggja borga í löndunum tveimur. Annars vegar er um að ræða aust- ur-þýsku iðnaðarborgina Eisen- huttenstadt við landamæri Pól- lands og hins vegar vestur-þýsku borgina Saarlouis sem er stutt frá Frakklandi og Luxemburg. Austur-þýsk yfirvöld hafa fram að þessu kurteislega neitað öllum vinabæjarumsóknum frá Vestur- Þýskalandi. Hins vegar eiga aust- ur-þýskar borgir allmarga vinabæi í löndum vestantjalds. Þar má meðal annars nefna Stokkhólm, Strasbourg, Coventry og Flórens. Honeckerupprunninn í Saar Á þennan atburð verður að líta frá því sjónarhomi að Erich Honecker, formaður austur-þýska kommúnistaflokksins, á ættir sínar að rekja til Saarhéraðs. Hann fæddist þar fyrir 73 árum í bænum Neunkirchen. Hefur hann að und- anfömu haldið uppi beinum og óbeinum tengslum við heimahérað- ið. Hvort það hefur verið af heimþrá vitum við ekki en Honecker þykii bjórinn af æskuslóðum sínum svo góður að eitt sinn pantaði hann 659 hektólítra af honum og svipaða sögu er að segja um vínið af þessum slóðum. Er forsætisráðherra Saarhéraðs. Óskar Lafontaine, var í opinberri heimsókn í Austur-Berlín síðastlið- inn nóvember var minnst á að kannski myndu Austur-Þjóðverjar panta tíu þúsund bifreiðir frá Vest- ur-Þýskalandi með því skilyrði að þeir væri framleiddir í Saarhéraði. Ekki var undrunin minni er Honecker samþykkti beiðni La- fontaine um vinabæjatengslin. Einn galli er þó á gjöf Njarðar. Þetta fyrirtæki samræmist ekki starfsreglum austur-þýska ríkis- flokksins. Óþekkt vegabréfsáritun I éraraðir hefur sú skoðun ríkt á meðal þarlendra stjómmálamanna að eitt af skilyrðum fyrir jákvæðri þróun sósíalismans væri einangrun gagnvart nágrönnum sínum í vestri. Ekki er hægt að tala um annað en jákvæð viðbrögð vestur-þýskra fjölmiðla. Er austur-þýska sendi- nefhdin kom af þessu tilefhi yfir landamærin rifust vestrænir fjöl- miðlar um gestina. Eitt var sérstaklega áhugavert að mati fjölmiðlanna. Sendinefndin kom til landsins með stimpil í vegabréfinu er aldrei hafði sést áður. Þar stóð skýrum stöfum „Ferðamannaáritun". í fréttum vestur-þýska sjónvarpsins var jafn- vel gengið svo langt að túlka þetta á þann hátt að í framtíðinni gætu íbúar Eisenhuttenstadt ferðast óhindrað til viha sinna í borginni Saarlouis. Þegar öllu er á botninn hvolft er ekki hægt að búast við því að vina- bæjasamningurinn verði opinber- lega staðfestur fyrr en næsta vetur. Ekki er hægt að segja að í aust- ur-þýskum fjölmiðlum hafi gleði- öskur brotist út. Nokkrum dögum eftir að umræðunni í vestur- þýskum fjölmiðlum var lokið og þar með á vitorði allra í Vestur- Þýskalandi, kom stutt frétt í aust- ur-þýska blaðinu Neues Deutsch- land þar er sagði að sendinefnd „friðar og vináttu" frá Eisenhutt- enstadt hefði dvalist í Saarlouis til viðræðna um möguleikann á vina- bæjatengslum borganna. í Austur-Þýskalandi segja gagn rýnisraddir innan Flokksins aí með tímanum eigi sambandið eftii að dofna og að lokum muni það leggjast með öllu af. Nóg aö gera hjá bæjarstjór- anum í samtali við tímaritið Der Spieg- el sagði ónefndur austur-þýskur flokksstarfsmaður: „Þegar Erich Erich Honecker er búinn að vera leiðtogi austur-þýskra kommúnista í 15 ár og orðinn einn af „gömlu mönnunum" í röðum valdhafa austan járntj- alds. Á myndinni sjáum við flokksleiðtogann fagna félaga Brévsnev, fyrr- um Sovétleiðtoga, á allt annað en kuldalegan hátt er sá síðarnefndi kom í opinbera heimsókn til Austur-Þýskalands. Gánmgarnir segja að aukin tengsl Austur-Þj óðverj a við Saarhérað bygg- ist á því að Honecker sé þar fæddur og uppalinn, auk þess sem hann sé mikill aðdáandi bjórbruggara í héraðinu. er kominn undir græna torfu er hægt að gleyma sérleyfissamband- inu við Saarhérað." Frá því að vinabæjatengslin voru gerð opinber hefur síminn á skrif- stofu bæjarstjórans í Saarlouis ekki þagnað. Skólastjórar vilja vita hvort hægt sé að senda námsfólk í skólaferðalög og borgarstjórar annars staðar í Vestur-Þýskalandi hringja til að spyrja hvemig best 8é að fara að við að koma á slíkum vinabæjatengslum. Umsjón: Hannes Heimisson og Guðmundur Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.