Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Blaðsíða 36
36 DV. MIÐVTKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Litur dagsins er RAUTT! Dagárnir í Hlíðaborginni höfðu svo sannarlega líf og lit þegar Sviðsljósið leit þar inn á dögunum. Þann daginn var allt umhverfið rautt, hvert sem auga var litið. Börn og fóstrur voru rauðklædd, rauðlit listaverk fæddust í flestum hornum og ómissandi fróðleik- skorn eins og staðreyndir um rauð- lita Indíána flugu á milli. Daginn áður hafði allt snúist um þann gula og þá sagði okkur einn stuttur að það hefði komið fram að Kínverjar væru gulir - allir sem einn. Leik- skólavistin leiddist greinilega eng- um og litavikan féll í frjóan jarð- veg. Næsta dag átti hvítur allan og svo koll af kolli. Var einhver að minnast á gráan hversdagsleik- ann? Jóhanna Lilja, Birkir og Bjarni í föndurhorninu. Þau sótu eins og englahópur með Seðlabankafötu ó milli sín og föndruðu með rauða pappíspeninga. „Þú getur ekki þurft svona mikið af peningum, Guðmundur Ingi,“ hrópaði fóstran. En só stutti, sem er fremst ó mynd- inni, hélt ókveðið ófram söfnuninni; verðandi bankastjórar standa fastir fyrir ó slíkum stundum. Aðrir eru Þegar menn hafa séð rautt i heilan dag er bróðnauðsynlegt að hvíla lúin bein. Trölladeildin öll sem einn maður í hvíldarstellingu - Stefón, Guðrún, Edda, Sigríður Ósk, Bjarki Þór, Óðinn, Elvar, Sævar örn og Kristjón Ingi. DV-myndir: GVA Tómas mólaði rauðan, svo ósköp rauðan, af ókafa - þungamiðja er þemað. Félagi hans, Þorvaldur Hrafn, lét ekki sitt eftir liggja en taldi blaðið nothæft út í ystu brúnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.