Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Qupperneq 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Leiga á Landhelgisgæsluvélinni til Flugleiða: „ÖRYGGISVENTILL SEM EKKIMÁ VANTfl” sagði Karvel Pálmason Fyrsta verk Karvels Pálmasonar, þingmanns Alþýðuflokksins, er hann tók sæti á Alþingi í gær að nýju var að skora á dómsmálaráð- herra að hætta við þá ákvörðun að leigja Flugleiðum Landhelgis- gæsluvélina. Hann sagði þessa vél vera þann öryggisventil sem síst mætti vanta. Karvel talar af reynslu því sjálfur á hann líklega þessari flugvél líf sitt að launa. Hann var einmitt fluttur með henni til London í haust nær dauða en lífi eins og kunnugt er. Það var Skúli Alexandersson sem óskaði eftir umræðu um þær sögu- sagnir að leigja ætti Flugleiðum þessa vél. Hann varaði mjög við þessari ráðagerð því reynslan hefði sýrit að þessi vél og tækjabúnaður væri eina björg sjómanna, lands- byggðarfólks og alls almennings þegar vá bæri að höndum. Dómsmálaráðherra, Jón Helga- son, upplýsti að Flugleiðir hefðu óskað eftir því að leigja þessa flug- vél 5 daga vikunnar frá 1. júní til 15. september á þessu ári og einnig dag og dag um páska og jól. Ráðherrann sagði að nú lægi fyrir uppkast að samningi. Þar væri gert ráð fyrir að vélin yrði leigð út þrisvar í viku eða 12 flug- tíma, sem væri nærri því að vera 50 tímar á mánuði. Möguleikar væru á þvi að þyrla Landhelgis- gæslunnar annaðist störf flugvél- arinnar þann tíma sem hún væri í leigu. Einnig væru ákvæði um að kalla mætti hana úr leigu þegar mikið lægi á. Hann upplýsti jafnframt að þessi leiga mundi gera kleift að skipta um þyrlu í flota Landhelgisgæsl- unnar. Auk Karvels og Skúla mótmæltu Eiður Guðnason, Kjartan Jó- hannsson, Helgi Seljan, Steingrím- ur J. Sigfússon og Árni Johnsen þessari ráðagerð harðlega. Árni Johnsen sagði að til að varpa ljósi á hvað þetta þýddi mætti líkja þessu við að engum dytti í hug að leigja hjartabílinn til skemmtiferða. Karvel Pálmason mætti til leiks á Alþingi í gær. Hér heilsar hann upp á Harald Guðmundsson þingvörð. DV-mynd KÁE 3 MILUARDAR LOSAÐIR (Jr seðlabankanum? Lækkun bindiskyldu Seðlabank- ans úr 18% í 10% mundi losa liðlega þrjá milljarða sem gengju til við- skiptabanka og sparisjóða og þaðan út í þjóðlífið. Eyjólfur Konráð Jónsson og Vald- imar Indriðason, þingmenn Sjálf- stæðisflokksins, hafa lagt fram frum- varp þess efnis að bindiskyldan verði lækkuð niður í 10%. Frumvarp þetta var flutt á síðasta þingi en var þá fellt á jöfnum atkvæðum í efri deild. Flutningsmenn telja að þessi breyt- ing hefði góð áhrif. Þeir segja að nú sé fylgt tveimur gagnstæðum stefn- um. Annars vegar sé sparifé lands- manna fryst og hins vegar séu vextir frjálsir og peningar verðtryggðir. Af þessum sökum hafi skapast lánsfjár- kreppa og okurvextir. Sú ráðstöfun, sem þeir leggja til, mundi að þeirra mati létta mjög á peningakreppunni, örva atvinnulíf og treysta fjárhag Qölda manna, jafnframt því sem vextir leituðu jafnvægis og von yrði til að kveða mætti niður verðbólg- una, eins og segir í greinargerð frum- varpsins. -APH Kosið 31. maí Samkomulag er nú innan stjórnar- flokkanna um að bæjar- og sveitar- stjómarkosningar verði 31. maí og 14. júní. f gær var samþykkt ályktun um þetta efni sem verður send til félagsmálanefndar neðri deildar. Þá er samstaða um að kosningaaldur verði 18 ár. Þessi niðurstaða þýðir að ekki verður í öllu farið eftir nýju sveitar- stjómarlögunum sem nú em til meðferðar á Alþingi. Höfuð-kosn- ingadagurinn verður 31. maí eins og í gömlu lögunum. Þá er búist við að kosið verði i stærstu bæjum og kauptúnum en á minni stöðum 14. júní. -APH Frumvarp: Einn lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðið Dómsmálaráðherra vinnur nú að gerð frumvarps um breytingar á skipulagi lögreglumála hér á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta frumvarp er unnið í fram- haldi af þeirri könnun sem gerð var á lögreglumálum á síðasta ári. Ýms- ar breytingar vom lagðar til. Veiga- mesta breytingin verður sú að lög- regluembættin á höfuðborgarsvæð- inu verða sameinuð undir eina stjóm. Jafnframt því er gert ráð fyrir að einstakar lögreglustöðvar verði sjálfstæðari og starfi í meiri tengsl- um við fólk í viðkomandi hverfum. Einnig fela þessar breytingar í sér að afgreiðsla fi'kniefnamála verður gerð auðveldari. -APH Útvegsbankinn: Fjórfalt eigið fé hjá þeim 5 stærstu Fimm stærstu viðskiptavinir Út- vegsbankans vom samanlagt með fjórfalt eigið fé bankans að láni í árslok 1984 miðað við verðlag í júní á síðasta ári. Stærsti aðilinn er með 140% af eigin fé bankans og sá næsti með 130,6%. Að öllum líkindum er það Hafskip sem skipaði fyrsta sætið á þessum tíma. Þessar upplýsingar komu fram í svari viðskiptaráðherra er hann svaraði fyrirspurn Jóhönnu Sigurð- ardóttur um útlán og eiginfjárstöðu ríkisbankanna. Fimm stærstu viðskiptavinir Landsbankans vom samanlagt með 300% af eigin fé hans, fimm stærstu hjá Búnaðarbankanum með 183% og þeir fimm stærstu hjá Útvegsbank- anum með rúmlega 400%. Viðskiptaráðherra sagðist ekki geta upplýst hvort nægjanlegar tryggingar væm fyrir þessum lánum. Hins vegar værí von á skýrslu bankaeftirlitsins um það efni á næs- tunni og yrði hún kynnt á Alþingi. Hann upplýsti ennfremur að hann væri með í könnun frumvarp um að setja hámark á útlán banka miðað við eigið fé. -APH I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari________I dag mælir Dagfari DULARFULL ÖFL í FOTBOLTA? Dularfull öfl em nú á sveimi víðs- vegar um Reykjavík. Tilurð þeirra hefur komið áþreifanlega í ljós. Nægir þar að nefna draugagang i íbúðarhúsi í vesturbænum og svo í prófkjöri Alþýðuflokksins. Fyrstu fréttir af þessum málum birtust í Tímanum nýendurreista. Kom þar ítarleg frásögn af ásókn drauga í garð heimilisfólks í ónefndu húsi við ónefnda götu á ónefndum tíma. Draugsi gekk svo hart fram í at- gangi sínum að kalla varð á miðil til að freista þess að flæma hann í burtu. Ekki megnaði kraftur mið- ilsins að vinna bug á ásókn draugs- ins en hafði hann þó heldur hægar um sig eftir að miðillinn hafði lagt til atlögu. Fór þó svo að lokum að gölskyldan neyddist til að flýja ásóknina og skipta um húsnæði. Tíminn taldi sig heldur betur hafa komist i feitt með draugasögunni og segir frá þvi hreykinn á forsiðu i gær að fréttin hafi komist í blöð í nálægum löndum. Ennfremur hafi útvarpið viljað ná tali af draugsa en það hafi ekki verið hægt. Boðað- ur eru frekari draugasögur í næstu helgarblöðum Tímans og má með sanni segja að nýi gamli Tíminn hafi loks fundið viðfangsefni við hæfi. En meðan menn voru að gleypa í sig draugasögur Tímans fóru dul- arfull öfl á kreik við prófkjör Al- þýðuflokksins fyrir borgarstjómar- kosningarnar í Reykjavík. Urslitin eru öllum kunn. Sigurður E. Guð- mundsson féll fyrir Bjarna P. Magnússyni og Bryndís Schram fékk kosningu í annað sætið. Þarna virðist ekki einn draugur hafa verið að verki heldur margir, ef marka má orð Sigurðar i Þjóðvi’janum í gær. Þá segir hann meðal annars að hann telji sig aldrei hafa fengið jafngóðar undirtektir kjósenda og nú og möguleikar til að halda fyrsta sætinu hafi verið mjög góðir „ef ekki hefðu komið til sögunnar ein- hver dularfull öfl, sem ekki var vitað um fyrirfram, þau tel ég að hafi gert útslagið". Ekki er vitað til þess að húsdraugurinn úr vest- urbænum sé krati, alla vega forðað- ist Timinn að upplýsa nokkuð um stjómmálaskoðanir hans. En það mætti ætla að Sigurður hefði reynt að fá miðil sér til aðstoðar við að flæma hin dularfullu prófkjörsöfl í burtu ef hann hefði orðið var við ásókn þeirra áður en allt var um seinan og fýrsta sætið fokið út í veðurogvind. Hins vegar taldi Sigurður að ástæða væri að rannsaka drauga- ganginn eftir á. Nefndi þó engin nöfn drauga, en virtist þeirra skoð- unar að „viss knattspyrnufélög hér í borg“ kæmu þar eitthvað við sögu. Nú kom það hvergi fram í Tímasögunni að draugurinn i vest- urbænum væri í íþróttafélagi frek- ar en pólitískum flokki. En vissu- lega hljóta gmnsemdir Sigurðar að vekja nokkra athygli og geta jafn- vel orðið til að þess að menn fari að endurskoða afstöðu sína til knattspyrnufélaga borgarinnar. Fram til þessa hefur starfsemi þeirra almennt verið álitin af hinu góða og stuðla að heilbrigðara og betra lífi þeirra sem þar kæmu nærri. En það skyldi þó aldrei vera að íþróttaiðkunin væri bara yfir- varp? Raunveruleg starfsemi beind- ist hins vegar svo til eingöngu að að framkalla draugagang. Ljótt er ef satt er og lengi skal manninn reyna og svo framvegis. Hins vegar fer ekki hjá því að mörgum sem fylgst hafa með starfi Sigurðar í borgarstjórn hefði fundist það mjög dularfullt ef hann hefði náð fyrsta sæti i prófkjörinu. Og hingað til hefur það ekki verið til siðs hér- lendis að fiokka sveiflur í pólitík undir dulræna reynslu. Draugasaga Tímans er flogin um nálæg lönd og á kannski eftir að vekja jafnmikla athygli og undrin á Saurum hér um árið. Hins vegar er fátt sem bendir til þess að draugasaga Sigurðar veki eins mikla athygli og er það að vonum. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.