Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Síða 12
12
D V. MIÐ VIKUD AGUR 5. FEBRÚAR1986
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Stórfelld
söluskattssvik
— eða hvað?
Heitur kjúklingur og ýmiss konar meðlæti er selt yfir borðið í mörgum kjöt-
verslunum hér í bæ. Að áliti ráðuneytisstjóra ber kaupmönnum skilyrðislaust
að greiða söluskatt af þessari sölu en kaupmenn eru á öðru máli.
Myndir: P.K.
„Þetta er spurning um 16-20 millj-
ónir á ári sem sviknar eru undan
söluskatti á þennan hátt,“ sagði einn
af viðmælendum DV og jafnframt
einn þeirra aðila sem vakið hefur
athygli á stórfelldum sköluskatts-
svikum sem hann og fleiri telja að
eigi sér stað hjá kjötverslunum sem
selja heitan mat yfir borðið og einnig
hjá a.m.k. einu fyrirtæki sem veitir
mötuneytisþjónustu og selur heitan
mat, ýmist í bökkum eða hitakössum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
fengust hjá Höskuldi Jónssyni,
ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneyt-
inu, er þetta tvímælalaust sölu-
skattsskyld starfsemi. „Það er ekkert
vafamál að greiða á söluskatt af
heitum mat sem seldur er yfir borðið
í kjötbúðunum en vandkvæði eru á
eftirliti því enginn er til frásagnar
annar en kaupmaðurinn sjálfur.
Hvað mötuneytamálin varðar þá eru
um það skýr ákvæði og að öllu eðli-
legu ætti ekki að vera erfitt að fylgj-
ast með því að greiddur sé söluskatt-
ur því að þetta eru allt saman reikn-
ingsviðskipti við annan aðila.
Vandamálið er okkur því kunnugt
og hefur nú verið 3 mánuði í athugun
en eftirlitinu er verulega ábótavant
og því erfitt að fást við þetta.“
Refsað fyrir löghlýðrti
Annar viðmælandi sagði að fyrir-
tækin fóðruðu þetta með því að skil-
greina viðskiptin sem vöru til endur-
sölu sem félli undir heildsölu og því
ekki söluskattsskylt. Hann sagði að
samkeppnin á þessum markaði væri
mjög hörð og með þessu móti væri
samkeppnisaðstaða þeirra sem
greiddu söluskatt verulega skert.
Það væri með öðrum orðum verið
að refsa þeim fyrir að hlíta lögum
og greiða opinber gjöld. Það hefði
greiniléga komið í ljós fyrir 8 mánuð-
um er útboð Ríkisspítalanna stóðu
yfir og sá aðili sem komst upp með
að greiða ekki söluskatt var með
lægsta tilboðið. Er farið var að at-
huga málið sást að munurinn á til-
boðunum stafaði að mestu leyti af
því að hinir þurftu að reikna sölu-
skattinn með í sínum útreikningum.
Kærur hafa þegar borist
Arnaldur Valdimarsson, varadeild-
arstjóri í söluskattseftirlitinu, sagð-
ist kannast við að kæi ur hefðu borist
vegna þessa máls og það væri í at-
hugun. Söluskatturinn í þessu tilfelli
er um 10-11% af heildarverði en fer
nokkuð eftir hráefnisnýtingu. Arn-
aldur sagði að söluskatturinn hefði
verið ágætur á sínum tíma en nú
væri hann orðinn ónothæfur vegna
þess hve mikið er búið að hræra í
honum og sífellt fleiri undanþágur
veittar, þangað til enginn veit lengur
hvað er söluskattsskylt og hvað á
undanþágu. „Ef farið verður náið
ofan í þetta mál og í ljós kemur að
svik sem þessi hafa átt sér stað í
langan tíma má samkvæmt bókinni
innheimta mörg ár aftur í tímann."
Kjötkaupmaður hér í bæ, sem selur
heitan mat yfir borðið og hefur í
þjónustu sinni matreiðslumann, full-
yrti að sú starfsemi væri ekki sölu-
skattsskyld og gaf þá skýringu að
hann seldi sjálfur hráefnið í verslun-
inni sem ekki væri söluskattsskylt
og það að hita matinn breytti engu
þar um. Hann virtist því ekki sam-
mála fjármálaráðuneytinu, frekar en
aðrir starfsbræður hans, og sagði í
lok viðtalsins að „það væri alla vega
ekki gengið eftir því að söluskattur-
inn væri greiddur."
Ruglingsleg ákvæði sölu-
skattslaganna
Til að sýna fram á aðra skrýtna
hlið á þessum málum má geta þess
að sá sem selur kalda samloku og
hitar hana í örbylgjuofni greiðir
einungis söluskatt af þeirri leigu sem
hann krefur viðskiptavininn um fyrir
örbylgjuofninn og fleiri svipuð dæmi
mætti telja.
„Við vöktum athygli á þessum
málum fyrir 8 mánuðum og töluðum
bæði við fjármálaráðherra, ráðu-
neytisstjóra og söluskattseftirlitið og
fengum fá svör önnur en þau að
vissulega væri þetta brot á reglum
um söluskatt en erfitt væri að fylgja
þeirri reglugerð eftir. Á meðan hið
opinbera hefur ekki áhuga eða getu
til að fylgjast betur með þessum
málum verða svona svik freistandi
kostur fyrir þá sem ekki eru að kikna
undan samviskunni og minni fyrir-
tæki, sem berjast í bökkum, freistast
til að létta reksturinn með slíkum
aðferðum," sagði einn forráðamaður
mötuneytis sem greiðir söluskatt af
sinni þjónustu.
„Við eru ekki að brjóta lög“
Það virðast vera ýmsar hliðar á
þessu máli því í samtali við forsvars-
mann þess fyrirtækis sem ekki greið-
ir söluskatt kom fram að það telur
sig ekki falla undir þann ramma sem
er um þessi ákvæði í söluskattslög-
unum. „Við flokkum okkur ekki sem
veitingastað eða matsölu heldur
erum við félagar í Félagi íslenskra
iðnrekenda og okkar starfsemi telst
til matvælaiðnaðar sem ekki var til
þegar þessi lög voru sett fyrir 25
árum. Við teljum okkur ekki vera
að brjóta lög og þetta er spuming
um túlkun á þessum ákvæðum.
Þarna spilar inn í að í mörgum stærri
fyrirtækjum fer endanleg framleiðsla
fram á staðnum og annars staðar
leggja mötuneytin á matinn eftir að
hann fer frá okkur og greiða svo sjálf
söluskattinn. Það em því margir
fletir á þessu máli sem sumir vilja
ekki horfast í augu við. Að öðm leyti
vil ég ekki tjá mig um þetta mál
nánar,“ sagði hann að lokum.
Ónýtur lagabálkur?
Það virðist því sem hér sé á ferðinni
einn allsherjar misskilningur og
túlkunarmismunur á söluskattslög-
unum og hvernig sem á málið er litið
kemur það til með að verða mikið
hagsmunamál fyrir neytendur hver
mála'okin verða. Þeir aðilar, sem
telja sig ekki skylduga til að greiða
söluskatt, segjast vinna í þágu neyt-
enda með því að halda vöruverði
niðri en hinum, s.em söluskattinn
greiða, finnst mikið óréttlæti í hinni
ójöfnu samkeppnisaðstöðu og benda
á að þarna sé um milljóna spursmál
að ræða fyrir ríkiskassann. Það var
einungis eitt atriði sem allir þessir
aðilar voru sammála um og það var
að söluskattskerfið væri löngu geng-
ið úr sér og því ónothæft og óréttlátt
fyrir alla aðila.
-S.Konn.
HÆKKUN
ÁPOST-
BURÐAR-
GJÖLDUM
UM 25-30%
Gjaldskrá Pósts og síma fyrir póst-
þjónustu hækkaði frá 1. febrúar.
Samkvæmt henni verður burðargjald
bréfa í fyrsta þyngdarflokki (20 g)
innanlands og til Norðurlanda 10
kr„ til annarra landa 12 kr. og flug-
burðargjald til landa utan Evrópu
20 kr.
Burðargjald fyrir póstkort og prent
í fyrsta þyngdarflokki (20 g) verður
10 kr. nema flugburðargjald til landa
utan Evrópu verður 12 kr. Gjald fyrir
almennar póstávísanir verður 25 kr„
símapóstávísanir 110 kr. og póstkröf-
ur 45 kr. (30 kr. ef um innborgun á
póstgíróreikning er að ræða)
Lægsta þyngdarmark böggla verð-
ur 5 kg þannig að lágmarksburðar-
gjald fyrir böggul verður 90 kr. Leyfð
hámarksþyngd fyrir smápakka verð-
ur 2 kg í stað 1 kg sem áður var.
Ábyrgðargjald verður 30 kr. og hrað-
boðagjald70kr.
Þessar hækkanir eru að meðaltali
25-30% en póstburðargjöld á íslandi
eru þrátt fyrir það með þeim lægstu
í Evrópu.
Betri umferðarmenning:
Vill einhver minna mig á?
Eitt af því sem íslendingar taka
eftir þegar þeir halda út fyrir land-
steinana er að umferðarmenning
víðast hvar í Evrópu og Bandaríkj-
unum er á mun hærra plani en
hérlendis. Eitt af því sem þykir
sjálfsagður hlutur erlendis er að
aka eftir hægri akrein þar sem um
2 eða fleiri akreinar er að ræða í
sömu átt. Hver kannast ekki við
íslensku eiginhagsmunastefnuna
sem ríkir í umferð hérlendis? Hér
virðist aðalmarkmið ökumanna
vera „Ég fyrstur, svo hinir.“ Þetta
sést svo vel þar sem um tvær ak-
reinar er að ræða í sömu átt.
Ökumenn aka jafnt á vinstri sem
hægri akrein og fara í svigi á milli
bíla til að komast kannski aðeins
einni bíllengd framar. Þó er ekkert
eins þreytandi og þegar ökumenn
aka hægt á vinstri akrein. Sú ak-
rein er ætluð til að „AKA FRAM
ÚR“ og síðan er ætlast til að aftur
sé sveigt yfir á hægri akrein. Við
hvetjum ökumenn til að fara eftir
þessari reglu. Ef ökumaður hins
vegar gleymir sér á vinstri akrein
þá ættu ökumenn, sem fyrir aftan
eru, að blikka bilinn fyrir framan,
svo hann færi sig yfir á hægri
akrein. Þannig komast þeir áfram
án þess að þurfa að fara í stórsvig.
Sú íþrótt ætti aðeins að sjást í
skíðabrekkum og ekki á götum.
Munum að aka hægra megin og
hjálpum þeim meðbræðrum okkar
í umferðinni sem gleymt hafa þess-
ari reglu, með því að blikka þá með
ljósum. Einungis með samheldni
getum við bætt umferðarmenning-
una hér á landi.
ökumenn eiga að halda sig sem mest á hægri akrein þegar um tveggja akreina götur er að ræða. Vinstri akrein-
in er aðallega ætluð til að taka fram úr, en siöan á að beygja aftur inn á hægri akreinina og halda sig þar.
DV-mynd KAE
-S.Konn.