Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 2
2
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Menning
Menning
Frá æfingu á „Ó munatíð“:SkúliGautasonogEiríkurGuðmundsson
í hlut verkum sínum
Er Eyjólfur aö
hressast?
Nemendaleikhúsið:
Ó muna tíð.
Höfundur: Þórarinn Eldjárn
Leikstjóri: Kári Halldór
Leikmynd og búningar: Jenný
Guðmundsdóttir
Tónlist: Árni Harðarson
Lýsing: Ágúst Pétursson
Tæknivinna: Ólafur Örn Thoroddsen
H vað er til ráða þegar óþægilegar
minningar leita á hugann? Minn-
ingar um það sem betur hefði verið
látið ógert eða hitt, sem við ætluð-
um að afreka en gerðum aldrei. Eða
þegar minningarnar eru svo flat-
neskulegar að þær vera óbærilegar
nú eða þá hinar sem eru of spenn-
andi? Þá er að bregða sér í Minn-
ingaþjónustuna sf. og skipta um,
smeygja inn nýjum minningastúf-
um og stubbum hér og þar, eins og
segir í leikritinu, Ó muna tið, eftir
Þórarin Eldjárn, sem Nemenda-
leikhúsið frumsýndi sl. fóstudags-
kvöld.
Það er lika hægt að skipta í heilu
lagi um allan minningabunkann
ef viðskiptavinurinn vill það held-
ur. Minningatæknirinn leggur á
það áherslu að það sem skipti
mestu rnáli sé fortíðin. Nútíðin er
aðeins eitt örstutt „nú“, sem flýgur
hjá, og framtíðin er hvort sem er
ókomin. Og augljóslega er aðeins
stutt skref til þess, er „maskínan"
fer að taka af ráðin og skapa
mönnum örlög.
En breytist einstaklingurinn við
það að skipta um minningar? Eitt-
hvað gengur hinum föstu við-
skiptavinum Minningaþjón-
ustunnar, Eyjólfi og Runólfi, illa
að höndla lífshamingjuna þrátt
fyrir stöðug minningaskipti.
Samkvæmt hefð fær Leiklistar-
skóli íslands rithöfund til þess að
frumsemja verk fyrir útskriftaraðal
ársins, þ.e.a.s. 4. bekk, og er þetta I
annað verkefnið í röð þriggja leik-
rita sem eru á verkefnalista vetrar-
ins.
Nemendaleikhúsið sýndi, sem ■
kunnugt er, Rauðhærða riddarann
fyrr í vetur, þrælmagnaða sýningu
þar sem nemendum gafst tækifæri
til dramatískrar túlkunar á nútíma
veruleika.
í leikritinu, Ó muna tíð, reynir á
leikendurna á allt annan hátt.
Persónur eru mjög stílfærðar og
leikritið í heild í absúrd stíl. Höf-
undur er löngu kunnur fyrir rit-
verk sín, ljóð og sögur og margt í
þessu verki er náskylt ýmsu í fyrri
verkum hans. Hnyttið orðfæri og
stórskemmtilegur leikur að orðum i
eru gamalkunn einkenni á stíl,
Þórarins og nafn leikritsins gefurj
strax tóninn.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
höfundurinn skrifar heilt leikrit þó i
að hann hafi oft lagt gjörva höndj
á plóg í leikhúsinu, t.d. með gerði
söngtexta í fjölda verka og aðild
að samningu söngleiksins Grettis
og fleiri verka.
Nemendur 4. bekkjar, sem sýndu
svo eftirminnilegan leik í fyrstu
leiksýningu vetrarins auk þess sem
nokkur þeirra léku með 3. bekk í
Þremur systrum eftir Anton Tsjek-
hov, takast nú á við gjörólík hlut-
verk.
Þau, ásamt leikstjóranum Kára
Halldóri, fá hér í hendur glænýtt
verk og að mörgu leyti sérkenni-
legt, kannski ekki ýkja leikrænt á
köflum en með þungamiðju í text-
anum.
Leiklist
AUÐUR EYDAL
Persónumar eru, sem fyrr segir,
flatar og stílfærðar, oft ýkjukennd-
ar og var að mínu mati stundum
farið út í of mikinn farsaleik, hefði
mátt draga heldur úr.
Hlutverkin eru nokkuð jafnstór
utan hlutverk Lóu og Þrastar, sem
eru öllu viðameiri en hin.
Guðbjörg Þórisdóttir leikur Lóu,
hæfilega fjarræn, og Valdimar
Flygeming er í hlutverki Þrastar,
hins undarlega minningatæknis.
Eiríkur Guðmundsson og Skúli
Gautason leika stammgestina,
Runólf (Rudda) og Eyjólf, og þær
Inga Hildur Haraldsdóttir og
Bryndís Petra Bragadóttir em í
hlutverkum stallsystranna Rósu og
Spes sem leita til Minningaþjón-
ustunnar af því að þær vilja skipta
á minningum hvor við aðra.
Leikmynd Jennýjar Guðmunds-
dóttur er í stíl vísindaskáldverka
með hæfilegu jarðsambandi. Minn-
ingaskiptamaskínan er mátulega
fáranleg og notkun hvítra gæm-
skinna myndar andstæðu við
tæknidótið. Jenný sá einnig um
búninga sem em vel við hæfi og í
sama dúr.
Áhorfendur sitja í „austurbæ" og
„vesturbæ", sinn hvomm megin
við leiksvæðið, sem er í miðju salar.
Vel hefur verið vandað til verks
við gerð leikmyndar, m.a. er and-
dyrinu breytt og stíll leikmyndar-
innar látinn ná alveg fram að úti-
dyrum.
Tónlist Árna Harðarsonar átti
mikinn þátt í að skapa sérkenni-
lega stemmningu og góð lýsing og
tæknivinna magnar hana.
Sýningar á leikritinu Ó muna tíð
verða næstu vikurnar í Lindarbæ
en með vorinu sýnir Nemendaleik-
húsið væntanlega sígildan sjónleik
og má þá segja að mjög æskileg
breidd hafi náðst í verkefnavali
vetrarins.
- AE
Fréttir Fréttir Fréttir
Skýr úrslit í stjómarkjöri Ið ju:
Guðmundur felldi
Bjama Jakobsson
Guðmundi Þ. Jónssyni, borgarfull-
trúa Alþýðubandalagsins, tókst að
fella Bjama Jakobsson úr formanns-
sæti Iðju, félags verksmiðjufólks, í
kosningum til stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs sem lauk á laugardags-
kvöld.
A-listi stjómar og trúnaðarmann-
aráðs, sem hafði Guðmund sem for-
mannsefni, hlaut 604 atkvæði. B-listi
Bjarna Jakobssonar og fleiri hlaut
322 atkvæði.
Alls kusu 937 af 2.434 sem vom á
kjörskrá. Er það aðeins 38,5 prósent
kjörsókn.
„Þetta er skýlaus niðurstaða,"
sagði Guðmundur Þ. Jónsson sem
áður var varaformaður Iðju.
Hann lýsti því yfir fyrir stjórnar-
kjörið að framboð sitt væri komið til
vegna óánægju með störf formanns-
ins.
„Það er ætlun okkar að félagið
verði sterkara og þróttmeira á eftir,“
sagði Guðmundur í gær.
„Ég hefði viljað fá 50 prósent kjör-
sókn. Ég reiknaði þó ekki með að
hún yrði meiri en það. Kosningabar-
áttan var drengileg í öllum aðalat-
riðum. Menn koma út úr þessu ósár-
ir,“ sagði Guðmundur.
Bjami Jakobsson, sem gegnir trún-
aðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, varð formaður Iðju fyrir tíu
árum, árið 1976. Hafði hann verið
starfsmaður félagsins frá árinu 1973.
í nýrri stjórn Iðju eru með Guð-
mundi: Hildur Kjartansdóttir vara-
formaður, Una Halldórsdóttir, Sig-
urjón Gunnarsson, Hannes Ólafsson,
Ólína Halldórsdóttir og Valborg
Guðmundsdóttir.
-KMU
Guðmundur Þ. Jónsson, nýkjörinn formaður Iðju, fagnar úrslitunum á laugardagskvöld i hópi annarra stjórnar-
manna. DV-mynd PK.
Stórverslanir vantar a listann
Kaupmenn hafa hótað að gera mig eignalausan, segir Ólafur,
trúnaðarmaður í M jólkursamsölunni
„Ég hef verið stanslaust í símanum
frá því að þessi deila kom upp.
Kaupmenn, sem eru á listanum
okkar, hafa hótað mér óskaplegum
hegningum, eiginlega öllu nema líf-
láti. Þeir segjast geta gert mig eigna-
lausan,“ sagði Ólafur Ólafsson, yfir-
trúnaðarmaður starfsmanna í
Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
Rannsóknarlögreglan svíkur
loforð
Eins og fram hefur komið í fréttum
hafa starfsmenn Mjólkursamsölunn-
ar komið sér upp lista með nöfnum
10 verslana sem þeir telja sig hafa
vissu fyrir að hafi keypt stolnar
mjólkurvörur að undanförnu. Neita
starfsmennirnir að keyra mjólk út í
þessar verslanir.
„Við hófum útkeyrslu að morgni
síðastliðins föstudags méð loforð frá
Erlu Jónsdóttur og Hallvarði Ein-
varðssyni hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins um að við myndum fá aðgang
að listanum með nöfnum þeirra 20
verslana sem grunaðar eru um að
hafa keypt stolnar mjólkurvörur. Að
kvöldi þess sama dags barst mér hins
vegar bréf frá Hallvarði rannsóknar-
lögreglustjóra þar sem dregið var í
land með öll loforð. Það virðist ein-
hver hafa kippt í spottana," sagði
Ólafur Ólafsson.
„Þessi deila stendur einfaldlega um
það hvort við starfsmennimir eigum
að hafa aðgang að sömu gögnum í
þessu máli og forstjóri Mjólkursam-
sölunnar. Forstjórinn veit allt um
þetta og rekur menn í samræmi við
það. Við vitum hins vegar lítið
hverju fram fer. Þó erum við vissir
í okkar sök varðandi þær 10 verslanir
sem við höfum sett í mjólkurbann,"
sagði Ólafur.
Mjólk í einkabílum
Það var vegna árvekni starfs-
manna Mjólkursamsölunnar að
mjólkurþjófnaðurinn komst upp. 1
bókhaldi var ekkert sem benti til
þjófnaðar. Mjólkurbílstjórar tóku
eftir því að í einni verslun voru
mjólkurvörur sem þeir höfðu ekki
komið með þangað og þá fór skriðan
af stað. Líklegt er talið að stolna
mjólkin hafi verið keyrð til kaup-
manna á einkabílum og einnig að
þjófarnir hafi notað matartímann til
að skjótast með góssið.
Stórmarkaðir
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV vantar nokkrar stórverslanir
og stórmarkað á höfuðborgarsvæð-
inu á lista Mjólkursamlagsmann-
anna yfir þá sem keypt hafa stolna
mjólk. „Það hefur verið kippt í spott-
ana vegna þess að stórhagsmunir eru
í húfi,“ sagði Ólafur Ólafsson.
Nú munu 10 starfsmenn Mjólkur-
samsölunnar hafa verið látnir hætta
vegna mjólkurmálsins. Að sögn Ólafs
Ólafssonar er þar eingöngu um að
ræða unga menn sem starfað hafa
skamma hríð við mjólkurkeyrslu og
afgreiðslu. „Gömlu jaxlamir eru
ekki í þessu.“ -EIR
Óvíst hvernig íslensku-
reglan breytir þættinum
íþróttirsjónvarps:
Ráðamenn sjónvarpsins vita ekki
hvemig þeir eiga að bregðast við
íslenskuákvæðum útvarpsreglugerð-
ar menntamálaráðherra gagnvart
íþróttaþættinum.
Bjami Felixson, íþróttafréttamað-
ur sjónvarps, er búinn að ræða við
Markús Öm Antonsson útvarps-
stjóra og Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóra sjónvarps. Ætla ráða-
mennirnir að athuga málið.
„Ég held bara mínu striki áfram
þangað til ég fæ skipun um annað,
sagði Bjarni Felixson.
Samkvæmt reglugerðinni má
Bjarni Felixson ekki lengur sýna
erlent íþróttaefni án þess að því fylgi
íslenskt tal eða neðanmálstexti.
Beinar útsendingar em þó undan-
skildar.
Síðasta beina útsendingin frá
ensku knattspyrnunni verður laug-
ardaginn 22. febrúar. Sjónvarpið er
hins vegar búið að semja um kaup á
völdum köflum úr ensku knattspym-
unni fram á vor.
Bjami Felixson er einnig búinn að
panta stjörnuleikinn, All Star, úr
bandarísku körfunni. „Ég býst við
að ég snúi honum til baka,“ sagði
hann.
-KMU