Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 30
30
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
fLAUSAR SIÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Sumarstarfsmenn óskast á slökkvistöðina í
Reykjavík á sumri komandi. Skilyrði er að viðkom-
andi sé á aldrinum 20-28 ára og hafi meira bif-
reiðapróf.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá
Tryggva Ólafssyni á Slökkvistöðinni í Reykjavík, sími
22040. Umsóknareyðublöðum þarf að skila fyrir 1.
mars nk.
flAUSAR SIÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Staða fulltrúa er annast ráðgjöf á vistheimilum.
Félagsráðgjafamenntun og starfsreynsla áskilin.
Staða fulltrúa við eina af hverfisskrifstofum fjöl-
skyldudeildar.
Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg starfs-
menntun áskilin.
Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar i
síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 24. febrúar.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Hjúkrunarframkvæmdastjóra við heimahjúkrun.
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á dag- og næt-
urvaktir.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur í síma 22400.
Deildarmeinatækni í fulit starf á rannsóknarstofu
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðva í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 3. mars nk.
LAUSAR STÖÐURHJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Forstöðumannsstaða við dagheimilið Suðurborg.
Umsóknarfresturtil 28. febrúar.
Fóstrustöður við eftirtalin heimili:
Dagheimilin Suðurborg og Laugaborg.
Dagheimilið/leikskólann Hraunborg.
Leikskólann Leikfell.
Skóladagheimilið Völvukot.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu dagvistar í síma 27277 og
forstöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00
föstudaginn 28. febrúar nk.
Athugasemd
frá götusafnara
Þar sem ég hefi tekið að mér götu-
söfnun fyrir sjúkrastöð í Santa
Barbarahéraði í E1 Salvador
brennur á mér að vekja athygli á
leiðréttingu að gefnum tilefnum á
götum úti og nú nýverið í frétta-
flutningi íslenska Ríkisútvarpsins
afskyldumáli.
ísland í beinni áskrift að
heimsmynd USA?
í fréttum sjónvarpsins á laugar-
dagskvöldið sl. (þ. 8.febr.) var frétt
um ástandið í E1 Salvador. Þar
máttum við Mörlandarnir enn einu
sinni hlusta á heimsmynd banda-
rískra sjónvarpsstöðva um
ástand þessara mála og sjá á
litaskjánum til sannfæringar
„óhæfuverk skæruliðasveitanna“
þarí landinu.
Af fréttinni mátti heyra að
skæruliðar hefðu ráðist á banda-
ríska hernaðarráðgjafa og her-
menn ógnarstjórnar Duartes for-
seta við lyfjadreifingu þeirra fyrr-
nefndu í tilteknu sveitaþorpi ná-
lægt höfuðborginni San Salvador!
- Ekki annað en það.
Bandarískir hernaðarráðgjaf-
ar til að dreifa lyfjum...?
Heldur fréttastofa Mogga-ríkis-
sjónvarpsins virkilega að banda-
rískir hernaðarráðgjafar séu stadd-
ir í E1 Salvador eða öðrum mið- og
suður-amerískum ríkjum til að
dreifa lyfjum og öðru góðgæti þar
á meðal til fátækra bænda rétt eins
og jólasveinninn? Af fréttinni var
ekki annað að skilja. Eða hvað? -
Nei, takk fyrir. Málið er ekki svona
einfalt, og því síður svona fallegt.
Bandarískir hernaðarráðgjafar á
þessum svæðum eru til lítils annars
en að halda að völdum spilltum og
gerspilltum ríkisstjórnum herfor-
ingja og annarra strengjabrúða
sinna í þessum heimshluta. Bæði í
formi skefjalauss tækjaausturs í
vopnabúr þeirra og þjálfunar hinna
svokölluðu stjómarhermanna m.a.
til meðhöndlunar á hinum full-
komnu vopnum sem nú streyma
þangað frá Bandaríkjunum. Sjald-
an meira en nú í tíð hins friðel-
skandi forseta Bandaríkjanna, hr.
Reagans. Það má nú sannarlega
segja að hann sitji á friðarstóli þar
Kjallarinn
MAGNÚS H.
SKARPHÉÐINSSON
FYRRV. VAGNSTJÓRI SVR
vestra, sem og annars staðar. Og
einnig líklegt að hann geri út af
örkinni hámenntaða hemaðarráð-
gjafa til E1 Salvador til að dreifa
nauðþurftum og lyfjum. (???) - Ef
við tökum fréttir Ríkis-Moggans
við Laugaveginn bókstaflega, þá
hlýtur það að vera. Ekki satt?
Stundum flökrar það að manni
að það væri hægt að ljúga gagn-
rýnislaust nánast hverju sem er að
okkur. Aðeins ef það kæmi frá nógu
„virtri" fréttastofu „í Bandaríkjun-
um“.
Við í E1 Salvador-nefndinni hér
á íslandi, sem undanfarið höfum
verið að safna á götum úti og víðar,
erum bæði undrandi og sár yfir
svona fréttum. Þvi við vitum betur.
Bæði höfum við verið þarna sjálf
og erum einnig í stöðugu sambandi
þangað símleiðis og bréfleiðis. Og
nota bene: Heimildarmenn okkar
eru ekki „fréttaritarar" ABC, CBS
eða NBC risasjónvarpsstöðvanna
bandarísku þarna á staðnum, í
velvild og vinfengi stjórnarinnar
svokölluðu.
Til að reka sjúkrahúsið í Santa
Barbarahéraði
Við höfum verið að safna fyrir
sjúkrastöðinni í Santa Barbara
sem er í 27 km fjarlægð frá höfuð-
borginni San Salvador. Þar er
neyðin gífurleg. Linnulausar loft-
árásir stjórnarhersins hafa gert svo
út af við allt mannlíf á flestum
svæðum landsins að engin fjöl-
skylda stendur ósködduð úr hildar-
leiknum. Verst af öllu er þó, eins
og alltaf i öllum styijöldum, að
mest bitnar ógnin á óbreyttum
borgurum. Sjúkrastöðin, sem við
erum að safna fyrir og ætlum að
reka, er einmitt ein slík fyrir fólkið
á þorpssvæði Santa Barbara.
Þorpssvæði, þar sem yfir 3000
manns verða algerlega að stóla á
okkur íslendinga með læknisað-
stoð þennan ársfjórðunginn nú.
Einn læknir á hverja 25.000
íbúa. - Aðeins 62% læs
Eftir meira en áratuga ógnar-
stjórn Duartes forseta og Romeros,
fyrrum forseta landsins, er nú
þannig komið í sveitum landsins í
þessu annars fallega landi að að-
eins einn menntaður læknir er
á hveija 25.000 íbúa. Og lestrar-
kunnátta er aðeins komin í 62%
íbúa landsins (réttast væri að segja
niður í, því að þetta hlutfall ætti
að vera miklu hærra).
Enn vantar 100.000 kr. upp á
Okkur í nefndinni barst reyndar
erindi um að reka sjúkrastöðina í
heilt ár. En til þess treystum við
okkur ekki enn. Þá hefðum við
þurft að safna á stuttum tíma 1,5
milljónum ísl. kr. Við buðumst hins
vegar til þess að reka stöðina a.m.k.
fyrstu þrjá mánuði þessa árs, til að
leggja okkar hönd á plóginn. Og
við það erum við að reyna að
standa. Við sendum 260.000 ísl.
krónur fljótlega upp úr áramótun-
um, sem við höfðum safnað þá
þegar við tókum við rekstri stöðv-
arinnar. En áætlað er að þessir
fyrstu þrír mánuðir kosti í rekstri
um 400.000 kr. Nú erum við komin
upp í tæp 300.000 kr., svo að enn
vantar okkur 100.000 krónur til
að standa við fyrirheit okkar. í
þessu skyni höfum við verið að
leita til almennings um framlög til
þessa verkefnis og verið vel tekið.
Ég er að skrifa þessa grein til að
skýra út hvers vegna við erum að
safna fyrir sjúkrahúsi handa þessu
fólki. Því heyrt hefi ég að okkur
komi ekkert „þessi uppreisnarlýð-
ur“ við, eins og hnaut út úr einum
viðmælanda mínum niðri í bæ um
áramótin. En hugarfar okkar er
einungis það að styðja þetta fólk í
þrengingum þess. Og hver vill vera
svo pólitískur eða kaldlyndur að
sá hinn sami fari að spyrja helsært
eða deyjandi fólk um stjórnmála-
skoðanir þess áður en því verði
hjálpað?
En við þig og aðra viljum við
segja þetta: Ef þú hefur þær tilfinn-
ingar og metnað, sem við erum
alltaf að reyna að kenna börnum
okkar í samskiptum þeirra við
aðra, styddu þá okkur vinsamleg-
ast í þessari baráttu. Leiðirnar eru
margar. Ein þeirra er til dæmis að
leggja framlög, há eða lág, inn á
gíróreikning söfnunarinnar sem er
303-26-10401. Leggja má inn í
hvaða banka sem er eða pósthús.
Hinar Jarjár fréttastofur Mogg-
ans á Islandi
Svo væri einnig ágætt ef fólk vildi
koma fréttastofum Morgunblaðs-
ins niðri í Aðalstræti og útibúunum
á Skúlagötu 4 og á Laugavegi 176
í skilning um hveijir haldi hveij-
um í helgreipum stríðsárása á
þessum svæðum í E1 Salvador;
bandarískir hemaðarráðgjafar og
stjórnarhermennirnir með nýju,
fínu bandarísku þyrlumar eða
skæmliðarnir sem búa úti í sveit-
unum og beijast fyrir lífsviðurværi
fyrir sig og fátækar bændaijöl-
skyldur sínar.
Magnús H. Skarphéðinsson.
„Bandarískir hernaðarráðgjafar á þessu svæði eru til lítils annars
en að halda að völdum spilltum og gerspilltum ríkisstjórnum her-
foringja...“
„Stundum flökrar það að manni að
^ það væri hægt að ljúga gagnrýnis-
laust nánast hverju sem er að okkur.
Aðeins ef það kæmi frá nógu „virtri“
fréttastofu „í Bandaríkjunum“.“