Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. Stjórnmál___________Stjórnmál___________Stjórnmál___________Stjórnmál Staða samningamálanna eftir helgina: Eru menn að missa trúna á nýju nótumar? Ásmundur á fundinum á Akureyri um helgina: „Tilboð VSÍ er algjörlega óaðgengilegt. Það felur í sér 4% rýrnun á kaupmætti á milli áranna 85 86. Við erum ekki tilbúin að axla frekari byrðar við að greiða verðbólguna niður.“ Samningar takast örugglega ekki í dag þegar ASÍ og VSÍ hefja við- ræður aftur en þær hafa legið niðri um helgina. Það sem meira er, vinnuveitendur telja verulega hafa dregið úr Iíkum á að samið verði á nýju nótunum, grundvelli ríkis,- stjómarinnar, úr því fáist skorið síðar í vikunni. Breitt bil „Það er enn breitt bil. Það getur enginn sagt á þessari stundu um það hvort samningar takast eftir helgi,“ sagði Ásmundur Stefáns- son, forseti ASÍ, við DV eftir fund- inn með stjórnum Verkalýðsfélags Norðurlands á Akureyri á laugar- dag. Forseti ASÍ var ekki bjartsýnn. Hann notaði helgina ásamt fylg- darliði til að fara um landið og hvetja verkalýðsfélög til þess að afla sér verkfallsheimilda. „Við verðum að hafa eitthvað til þess að veifa framan í þá.“ Vinnuveitendur notuðu helgina til að skoða „ýmsar útfærslur" frá fyrra tilboði, sérstaklega hvort hægt væri að lækka ýmis útgjöld útflutnings-atvinnuveganna svo hægt verði að hækka kaupið. Farið að togna á nýju nótun- um „Það er öruggt, það verður ekki samið í dag. Menn eru ekki eins bjartsýnir og áður. Það er verulega farið að togna á því hvort samið verði á umræðugrundvelli ríkis- stjórnarinnar,“ sagði heimildar- maður DV innan Vinnuveitenda- sambandsins. Á samningafundinum í dag, sem hefst klukkan fimm, mun fyrst og fremst verða rætt um lífeyrissjóð- ina, um hinar nýju reglur varðandi réttindi þeirra og skyldur, sérstak- lega iðgjöldin. Víkjum aftur að fundi Ásmundar á Akureyri. Hann sagði þar að atvinnurekendur væru orðnir áheyrilegri. „Þeir eru tilbúnir að gleyma því í dag sem þeir sögðu í gær,“ eins og hann orðaði það. Hann átti við tilboð VSÍ sem lagt var fram í síðustu viku. Klukkan tifar Það var athyglisvert hve Ás- mundur lagði mikla áherslu á að aflað yrði verkfallsheimildar strax. Augljóst er að hann vill samninga sem allra fyrst. Hver dagur er mikilvægur þegar verðbólgan er jafnmikil og nú. Reyna verður að hindra ennþá frekari kaupmáttarr- ýrnun. Á fundinum kom fram að númer eitt er að umsaminn kaupmáttur haldist. Á að taka gamla vísitölu- kerfið upp aftur? Svo er ekki, menn spyrja sig helst hvort loforð ríkis- stjórnarinnar um verðbólguna standist. - Fréttaljós - Jón G. Hauksson Verði samið á nýju nótunum, en þær eru að ríkisstjórnin vill lækka skatta og taxta opinberrar þjón- ustu til samræmis við verðbólgu- spár, setur ASl örugglega einhverj- ar viðmiðanir á verðbólguna, eða „rauð strik" eins og það hefur stundum verið nefnt. Kröfur ASÍ Rifjum upp kröfur ASÍ. Þær eru að kaupmáttur þessa árs verði sá sami og síðasta árs. Til viðbótar komi 8% kaupmáttaraukning vegna taps síðustu ára. Til að kaupmáttur ársins 86 verði sá sami og ’85 þarf kaup að hækka um 11-12 prósent. Þetta verði gert á sama tíma og gengið sé fryst. Ofan á þetta kemur svo 8% kaup- máttaraukningin. Góðærið svokallaða bar á góma á fundi forseta ASÍ með verkalýðs- leiðtogunum á Akureyri. „Otilok- að er annað en að launþegar fái sinn skerf af þessu góðæri," sagði Ásmundur. Áhrif góðærisins komin fram Góðærið er verðhækkun á fiski á erlendum mörkuðum og oliuverðs- hækkunin. Þegar hefur verð á salt- fiski hækkað um 16% og verð frystra afurða um 5-10%. Vinnuveitendur segja að þessar verðhækkanir hafi þegar haft áhrif, þær hafi lyft sjávarútveginum upp úr nokkurra prósenta tapi upp í núllið. En eftir 3 1/2% fiskverðs- hækkun sé sjávarútvegur kominn í núllið og frystingin raunar rekin með tapi. I herbúðum vinnuveitenda er einblínt mjög á afkomu útflutn- ingsatvinnuveganna í yfirstand- andi samningaviðræðum. Þar trúa menn því ekki að hægt sé að hækka kaupið um 11 -12% án þess að gengið springi, það verði fellt. Ef ekki verði gengisfelling, ríkis- stjórnin haldi fast við gengisfryst- ingu og fyrrnefnd kauphækkun komi til segja atvinnurekendur að sjávarútvegurinn stöðvist. Þjóðin þoli ekki að sú atvinnugrein, sem skapi gjaldeyrinn, verði stoppuð meira en viku. Mátin í hnút? Samningamir virðast því komnir í hnút. ASÍ vill fá tryggingu fyrir því að verðbólgan minnki þannig að kaupmátturinn haldist. VSÍ tel- ur hins vegar útilokað að hægt sé að ganga að kröfum ASÍ án þess að gengið falli á árinu og verð- bólgan rjúki upp. „Við erum ekki að reikna út nýtt tilboð, það er of mikið sagt,“ sagði heimildarmaður DV hjá vinnuveit- endum. „En við erum að skoða ýmsar útfærslur og höfum verið að því um helgina." ídag mælir Dagfari_________í dag mælir Dagfari_______í dag mælir Dagfari Þjófagengi í mjólkinni Stundum fréttist af því að lögreglan hafi handsamað þjófagengi ungl- inga sem hafi stundað minniháttar innbrot hér og þar í bænum. Þetta þykja engar stórfréttir enda gera menn sér vonir um að unglingarnir sjái að sér með aldrinum og gerist löghlýðnir og ráðsettir borgarar. Svo brá við á dögunum að nýtt þjófagengi var gripið. I þetta skiptið voru það ekki óstálpaðir unglingar heldur fullorðnir starfsmenn hjá Mjólkursamsölunni. Og með í samsærinu voru að minnsta kosti tíu kaupmenn á höfuðborgarsvæð- inu. Ekki er enn að fullu upplýst hvemig þessi stuldur fór fram. Þó er ljóst að mikillar útsjónarsemi er krafist þegar heilu gengi af starfs- fólki dettur í hug að svindla fram- hjá bókhaldi, framleiðslueftirliti og söludeild það miklu magni af mjólkurvörum að eitthvað sé upp úr því hafandi. Það er ekki heiglum hent enda er sagt að starfsmenn- irnir hafi verið sextán talsins. Mikið hefði Dagfari viljað gefa til að fá að sitja fundi með þessu þjófa- gengi og fylgjast með því þegar lagt var á ráðin um hvernig best væri hægt að haga þjófnaðinum. Slíkir fundir eru nefnilega harla óvana- legir þegar sextán manns koma saman til að brugga þjófaráð. Til þess þarf bæði röggsama fundar- stjórn, nákvæma hernaðaráætlun og fullkomna þagmælsku. Eftir því sem fréttir herma hefur þessi stuld- ur viðgengist um alllangt skeið svo það lítur út fyrir að gengið hafi samanstaðið af heiðarlegu fólki sem ekki kjaftaði frá. Eftir því sem best er vitað hefur engum manni verið sagt upp störf- um enn sem komið er. Tveimur var stungið inn meðan rannsókn stóð yfir en að öðru leyti hefur rekstur Mjólkusamsölunnar gengið snurðulaust áfram með þjófageng- ið í vinnunni. Hlýtur það að vera heldur nýstárleg reynsla fyrir hina, sem ekki tóku þátt eða ekki fengu að taka þátt í stuldinum, að um- gangast slika vinnufélaga. Að vísu hefur Mjólkursamsalan gefið þjóf- unum kost á því að segja upp störf- um og er ekki að spyija að kurteis- inni hjá Iandanum því venjulegast er fólki vísað umsvifalaust frá vinnu þegar það hefur játað á sig þjófnað í fyrirtækinu sem það starfarhjá. Því er þetta rakið að starfsfólk Mjólkursamsölunnar hefur tekið sig saman um að hegna þeim kaup- mönnum sem keyptu stolnu mjólk- ina með því að keyra enga mjólk í búðir þeirra. Meðan þjófunum sex- tán hefur ekki verið sagt upp hljóta þeir að vera með í þessum hefnd- araðgerðum. Þjófunum er sem sagt boðið upp á það að segja upp starf- inu með þriggja mánaða fyrirvara en vesalings kaupmönnunum, sem tóku tilboði þjófanna um að kaupa ódýra mjólk, er refsað þegar í stað með grimmum hefndarráðstöfun- um. Og það af þjófunum sjálfum! Um þessar mundir steðjar mikill vandi að landbúnaðinum, sérstak- lega að kúabúunum, vegna þess að sala hefur dregist saman á mjólk samkvæmt opinberum tölum. En Dagfari spyr: Er nema von að mjólkursalan dragist saman hjá Mjólkursamsölunni og mjólkur- samlögunum þegar sextán manna hópar starfsmanna hafa rekið umsvifamikla mjólkursölu upp á eigin spýtur? Er ekki allt eins lík- legt að mjólkursalan hafi stórlega aukist þegar allt er talið saman, selda mjólkin og stolna mjólkin? Getur ekki vel verið að framtak þjófanna í Mjólkursamsölunni hafi örvað mjólkurneyslu þegar allt kemur til alls? Og hvers eiga þá þjófsnautarnir í kaupmannastéttinni að gjalda þeg- ar þeir hafa beint og óbeint stuðlað að því að viðhalda kúabúunum í landinu og gert sitt til að bjarga landbúnaðinum frá gjaldþroti? Er þessi þjófnaður ekki bara búbót fyrir bændur sem eru hvort sem er í vandræðum með að losna við mjólkina? Auðvitað kemur ekki til greina að fara refsa kaupmönnum fyrir arðsama mjólkursölu og í rauninni ætti að verðlauna þjófana í Mjólk- ursamsölunni með því að leyfa þeim að stela áfram en taka pró- sentur af sölunni hjá þeim. Þetta er ennþá hægt. Þeir eru allir á staðnum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.