Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 13
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Eigin jógúrt
íein-
angraðri skál
Fyrir skömmu sögðum við frá nytsömu
töfratæki, jógúrtvél, sem kona nokkur
í Homafirði átti. Við auglýstum jafn-
framt eftir upplýsingum um hvar slíkir
gripir fengjust.
í frásögninni af töfravélinni í Homa-
firði var missagt að vélin ætti að vera
í ísskápnum á meðan gerjunin fer
fram. Hún stendur á eldhúsborðinu á
meðan en jógúrtin er síðan geymd í
kæliskápnum þar til hennar er neytt,-
Eigandi þessa kjörgripar sagði að
vélin hefði hreinlega borgað sig upp á
einni viku, en hún kostaði aðeins 4
pund í Englandi.
Nú höfum við fengið upplýsingar um
aðra jógúrtgerðarvél, eða réttara sagt
skál, þar sem ekkert vélrænt er við
það tæki, sem við höfum reynt og er
mjöghentugt.
Þetta er einangruð skál með þéttu
loki. Með fylgir hitamælir og suðuvari.
Hitið 7,5 dl af mjólk, léttmjólk eða
undanrennu í potti, hafið suðuvarann
ofan í pottinum. Hann kemur í veg
fyrir að mjólkin sjóði, en hún á að
vera á heitri plötunni smástund. Þá
er mjólkin kæld niður í 49 gráður, eins
og sést á hitamælinum, má alls ekki
fara niður fyrir 43 gráðumar á mælin-
um.
Ein teskeið af venjulegri jógúrt er
látin í skálina og mjólkinni blandað
saman við, lítið í einu, þar til öll
mjólkin er komin í skálina. Þá eru
lokin látin á og skálin látin standa á
eldhúsborðinu í 5 klst. Þá er jógúrtin
tilbúintilneyslu.
Næsti skammtur er síðan búinn til
úr einni matskeið af þessari jógúrt og
svokollafkolli.
Þetta undratæki kostar 488 kr. og
fæst hjá G.S. Júlíusson hf, Sundaborg.
Fyrir nokkru sögðum við frá jógúrt-
gerð í potti með undanrennudufti og
undanrennu. Kona nokkur hafði
samband við okkur og kvartaði yfir
að þessi jógúrt hefði orðið svo súr hjá
henni að enginn á heimilinu gat borð-
að hana. Við kunnum því miður ekki
skýringar á því en þiggjum leiðbein-
ingar ef einhver kann þær.
-A.Bj.
Það sem fylgir í kaupunum fyrir 488 kr. er einangraða skálin með tveimur lokum og hitamæli. Þar að auki fylgir
einnig leiðbciningabók þar sem í er að finna uppskriftir að jógúrtréttum.
DV-myndGVA
300.000,- krónur lítrinn
Neytandi hafði samband við DV og
sagðist hafa keypt málningu sem
honum þótti í dýrara lagi og vildi
leita skýringa á. Þetta er svokölluð
leiðnimálning sem notuð er m.a. til
viðgerða á þráðum afturrúðuhitara
og var keypt hjá varahlutaverslun-
inni Bílanausti, Síðumúla 7-9.
Leiðnimálningin er seld í litlum glös-
um sem innihalda 1,4 ml. og kosta
421,- krónu. Okkur reiknast svo til
að millilítrinn kosti 300,70 krónur
sem gerir að lítrinn yrði seldur á
rúmar 300.000,- krónur og mun vand-
fundin jafndýr málning.
Reynir Matthíasson, innkaupa-
stjóri Bílanausts, sagði að þessi til-
tekna leiðnimálning héti Duro og
væri innflutt frá Bandaríkjunum.
„Þetta er sérstakt efni sem inniheld-
ur silfur og því dýrt. Innflutningur
frá Bandaríkjunum er einnig óhag-
stæður vegna gengisþróunarinnar og
tolla, þannig að við ætlum að snúa
okkur að innflutningi frá Þýska-
landi. Sambærilegt magn af slíkri
málningu kemur til með að kosta
181,- krónu út úr búð hjá okkur, en
í Þýskalandi kostar hún um 90,-
krónur. Þar ofan á bætast svo tollar
og vörugjald, auk söluskatts og
álagningar sem ég tel ekki vera
mikla,“sagði Reynir aðspurður um
verðmyndunina.
Ekki mun þurfa mikið magn af
leiðnimálningu til viðgerða sem
þessarar, enda kemur það sér betur
fyrir bifreiðaeigendur, sem fáir
myndu treysta sér i stórinnkaup af
þessu dýra efni.
-S.Konn.
Kryddhornið
Krydd dagsins er minta og múskat.
Hvort tveggja kryddið er gamal-
kunnugt og hefur verið notað um
margra alda skeið.
Minta
Mintan er upprunnin frá Evrópu
og Asíu og á sér langa og merkilega
sögu. Assyríumenn notuðu hana til
fórna fyrir eldguðinn, Nýja testa-
mentið nefnir hana en nafnið er
komið frá Grikkjum sem nefndu
kryddið eftir goðsagnaverunni Mint-
he.
Mintukryddið er úr þurrkuðum
blöðum jurtar sem á ensku kallast
„spearmint" en á íslensku hrokkin-
menta og fæst bæði sem flögur og
korn. Bragð mintunnar þekkja flestir
en það er nokkuð sætt og skilur eftir
sig ferskan og kælandi eim.
Notkun
Notað í te, sósur á eftirrétti og
lambakjöt, ávaxtarétti af ýmsum
gerðum, ís, kakó, kökur og köku-
krem.
Múskatkryddið er upprunnið á
Molucca eyjum og er nú ræktað í
flestum löndum hitabeltissvæðisins.
Það barst til Evrópu á 12. öld með
Portúgölum og Hollendingum sem
einokuðu múskatverslunina um
margar aldir.
Bandarískir kaupmenn seldu við-
armúskat sem ekta krydd og varð
það til þess að Connecticut var kall-
að Múskat-fylkið. Múskatið er unnið
úr ávöxtum sígrænna trjáa sem bera
ávöxt í meira en 50 ár og er hýðið
skilið frá fræunum og hvort tveggja
þurrkað og selt ýmist heilt eða mal-
að.
Af múskati er sætt og sterkt krydd-
bragð sem hentar ekki einungis
sætmeti heldur gefur það einnig
góðan keim af kjöti og grænmeti.
Notkun
Malað múskat eða nýþurrkað heilt
hentar vel í ýmsa heita og kalda
mjólkurdrykki, ávexti, búðinga og
súpur. Það er einnig notað til að
bragðbæta kjöt, sjávarrétti, græn-
meti og sósur, kökur og bakkelsi.
-S.Konn.
Þegar þú kemur meö bílinn í smurningu til okkar,
færöu aö sjálfsögöu fyrsta flokks alhliöa smurningu.
En það eru tvö atriði sem viðskiptavinum okkar
hafa líkað sérstaklega vel og viö viljum vekja
athygli þína á. Þessi tvö atriði framkvæmum viö
án sérstaks aukaqjalds á öllum bílum, sem við smyrjum.
í fyrsta lagi smyrjum viö allar
hurðalamir og læsingar á bílnum.
Þetta tryggir aö allar huröir
og læsingar veröa liðugar og auð-
opnaöar, jafnvel í mestu frostum.
í öðru lagi tjöruhreinsum við
framrúðuna, framljósin og þurrku-
blöðin. Þetta lengir endingu
þurrkublaðanna og eykur útsýni
og öryggi í vetrarumferðinni.
Tryggðu þér fyrsta flokks smurningu með því að
panta tíma í síma 21246 eða renna við á smurstöð
Heklu hf. Laugavegi 172.