Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 16
16
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Hefur þú fylgst með fréttum
af forsetakosningunum á
Filippseyjum?
maður sér þetta alltaf fremst á öllum
dagblöðum. Einhvem veginn finnst
mér Marcos alltaf reyna að svindla.
Ég 'tek ekki beint afstöðu, en þó
frekar með Aquino.
Ólafur Hallgrímsson prestur: Já, já,
í fréttum eins og allir. Það er ekki
hægt annað en að taka afstöðu gegn
einræðisherranum Marcosi, það
liggur ljóst fyrir. Þetta er maður sem
heldur völdum með kosningasvikum
og bolabrögðum í skjóli Bandaríkja-
manna.
Spurningin
Einar Jónsson borgarstarfsmaður:
Ósköp lítið og þetta er of fjarlægt
mér til að ég láti úrslitin mig ein-
hverju' skipta. Ég þyrfti meiri þekk-
ingu á þessum málum til að svo væri.
Elínborg Þorgeirsdóttir, starfsstúlka
á teríu: Ja, ég vissi að það voru
kosningar og held sko alls ekki með
Marcosi, hann fer illa að ráði sínu
gagnvart löndum sínum.
Karen Gissurardóttir húsmóðir: Nei,
ég vissi ekki að hefðu verið kosning-
ar þar, ég var nefnilega að koma frá
Kanaríeyjum og skil ekkert í
spænsku.
Elsa Harðardóttir afgreiðslustúlka:
Nei, ég fylgist ekkert með því og vissi
ekkert að það hefðu verið kosningar
þar.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesend
t
Þingmenn:
Nýr þrýstihópur í launamálum
íslendingur skrifar:
Þingmenn geta glaðst þessa dag-
ana. Þeir hafa eignast eina mál-
svarann í landinu í launamálum.
En þessi málsvari þeirra er úr
röðum þeirra sjálfra og hefur
sennilega riðið á vaðið að frum-
kvæði þeirra.
Þetta er þingmaður úr liði þeirra
alþýðubandalagsmanna. Hann seg-
ist hafa „aðeins“ tæpar sjötíu þús-
und krónur á mánuði! Og þegar
búið sé að draga frá skatta séu
ekki eftir nema 40 þúsund krónur!
Það eru þó hvorki meira né minna
en tvenn brúttólaun tveggja verka-
kvenna.
Mánaðarlaun að upphæð um 70
þúsund krónur eru yfrið nóg fyrir
störf alþingismanna sem fá mánað-
arjólafrí, páskafrí og allt sumarið
að auki.
í f.ama blaði og þingmaðurinn
tjáði launaraunir sínar og starfs-
systkina sinna mátti sjá mynd af
nokkrum þingmönnum sem stóðu
álútir í einni dyragættinni á Al-
þingi og hlýddu á ávítur þingfor-
seta fyrir slælega mætingu á þing-
fundum þrátt fyrir ítrekaðar beiðn-
ir, bjölluhringingu og smölun á
göngum.
Raunar sjást alþingismenn lítt í
þingsölum nema þegar leyfðar eru
svokallaðar „fyrirspumir" sem þá
eru helst um einhverhneykslismál-
in í þjóðfélaginu - allt niður í fram-
hjáhöld og bameignir.
í sjónvarpsþætti fyrir stuttu var
svo þingmaðurinn mættur ásamt
uppgjafarþingmanni úr Alþýðu-
flokknum og átti hann sennilega
að vera eins konar „mótvægi" við
launakröfur þingmannsins. Eða
áttu þeir kannske báðir að vera
málsvarar launahækkunar fyrir
þingmenn?
Það kom svo í Ijós að uppgjafar-
þingmaðurinn fyrir landsbyggðina
studdi kröfuna um hærri laun þing-
mönnum til handa. Hann sagðist
þekkja það af„eigin raun“ að það
væri erfitt að halda „tvö heimili"
fyrir utanbæjarþingmenn! Ekki er
vitað annað en sá þingmaður eigi
lögheimili í Reykjavík.
Og hvað viðvíkur þingmönnum í
öðmm löndum erum við Islending-
ar allir á sama báti að því leyti að
við höfúm ekki sambærileg laun á
við starfsbræður okkar erlendis.
Eða ætla þingmenn að slást í hóp
þeirra stétta hér sem hafa verið að
bera laun sín saman við starfs-
. bræður sína, t.d. í Bandaríkjunum?
Það er staðreynd, sem ekki verð-
ur á móti mælt, að Alþingi er orðið
eins konar „þröskuldur" þessarar
þjóðar og alþingismenn, flestir,
orðnir landsþekktir „grínarar“ sem
enginn tekur mark á.
Hér ættu ekki að vera fleiri en
30 þingmenn og viðhafa sömu
vinnubrögð og tíðkast í borgar-
stjórn, koma saman með vissu
millibili og ræða brýn mál, síðan
færi hver til sinnar vinnu að fundi
loknum.
Að fjölga þingmönnum um þrjá,
eins og nú stendur til, er yfirgengi-
leg fjarstæða sem þjóðin mun ekki
líðá. Heldur ekki launahækkun
þeirra því hún er brandari ársins.
„Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að Alþingi er orðið eins
konar „þröskuldur“ þessarar þjóðar."
Remolaði er Ijúffeng fæða
„Ekki er ofmælt að þar hafi verið á ferðinni ómerkilegasta skaup í manna
minnum.“
Traustur skrifar:
Ég skrifa nú aðallega til að mót-
mæla þeirri aðför sem Jón Pálsson
fór að einhverri ljúffengustu fæðu-
tegund þjóðarinnar á þessum síðum
þann 3. þessa mánaðar. Hann gagn-
rýnir remúlaði sem er einhver besta
fæða sem völ er á. Það er bæði orku-
ríkt og leysandi og auk þess ákaflega
gott á bragðið sem er meira en segja
má um ýmislegt gums eins og mæjo-
nes sem oft er borið saman við hið
ástkæra remúlaði. Jón Pálsson reyn-
ir að vera fyndinn með því að skrum-
skæla málstað remúlaðsins og með
óhugnanlegum lýsingum reynir
hann að hindra almenning í að neyta
þess.
Ég vil nú bara segja þér, Jón minn,
að ef þú ert svo mikill klaufi að geta
ekki borðað samlokur með remúlaði
án þess að valda stórtjóni ættir þú
bara að halda þig við barnamat í dós
eða banana. Nóg um remúlaðið í bili
en ég ætla í staðinn að tæpa á öðru
máli sem er mér kært.
Þar á ég að sjálfsögðu við ára-
mótaskaupið síðasta. Ekki er of-
mælt að þar hafi verið á ferðinni
ómerkilegasta skaup í manna minn-
um. Vörður vakti fyrst athygli
manna á því hve lélegt þetta skaup
var, en hvað gerist þá? Jú, upp rís
illa skipulögð kös andlegra eyði-
marka sem mega vart vatni halda
af hrifningu einni saman. Þessir
aðilar keppast við að rífa niður sjálf-
straust frumkvöðulsins, Varðar, og
brjóta hann og beygja á allan hátt.
Það skal þó aldrei takast því að táp
og fjör og frískir menn finnast hér á
landi enn. Vörður, stöndum saman.
Sjúkrohús Skagjiröinga
Sauöárkroki
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Á Sjúkrahúsi Skagfirðinga eru eftirtaldar stöður lausar
til umsóknar nú þegar.
Staða hjúkrunardeildarstjóra á nýrri 28 rúma
hjúkrunardeild. Æskilegt að viðkomandi hafi sér-
nám eða starfsreynslu í öldrunarhjúkrun og geti
hafið störf sem fyrst.
Stöður hjúkrunarfræðinga á sömu deild.
Skriflegar umsóknar sendist til skrifstofu hjúkr-
unarforstjóra fyrir 1. mars 1 986.
Allar nánari upplýsingar um launakjör, húsnæði og
annað veitir hjúkrunarforstjóri í síma 95-5270.
Stjórn sjúkrahúss Skagfirðinga.
Nauðungaruppboð á lausafé
Eftir kröfu Útvegsbanka íslands verður mölunar- og hörpunan/élasamstæða,
Unicompact 2 frá Baioni s.p.a. (framleiðslunúmer 12521), ásamt öllum til-
heyrandi fylgihlutum, þ.m.t. F-10 Deutz dísilrafstöð (framleiðslunúmer 1413),
mótor og rafall, tal. eign Valbergs sf., Helenar Guðrúnar Pálsdóttur og Jóns
Hauks Olafssonar og/eða framleiðanda, selt á opinberu uppboði sem fer
fram þriðjudaginn 18. febrúar 1986 kl. 15.00 við námu í landi Stóru-Fellsaxl-
ar við Grundartangaveg, Skilmannahreppi, Borgarfjarðarsýslu.
_____________________ Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Rakarastofan Klapparstig
Hárgreidslustofan
Klapparstíg
Sími 12725
Timapantanir
13010 j
———— ______i
1-
==: Utboð - malbikun
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í malbikun gatna og
göngustíga sumarið 1986. Útboðsgögn verða afhent
á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, Hafnar-
firði, gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. febrúar kl. 10.
Bæjarverkfræðingur.