Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 22
22
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
FIRMA-OG FÉLAGAKEPPNI
Þróttar verður haldin dagana 21.-23. febrúar 1986.
Þátttaka tilkynnist fyrir 20. febrúar í síma 624694 og
74803 eftirkl. 19.00.
Yfirfærið
filmurnar á myndband
Texti og tónlist, ef óskað er.
Nánari upplýsingar í síma 46349
-íisófí- te
Hori
12.000
S23SS—
LAS VEGAS
B 240 x L 270 - áklæði
Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Bestu stangarstökkvararnir saman íkeppni:
0LS0N REYNDIÞRÍ-
VEGIS VIÐ HEIMSMET
— Sergei Bubka féll út á 5,72 m. Joe Dial felldi byrjunarhæð sína
„Það er gott að fá sér sæti á ný,
keppnin tók sex og hálfa klukku-
stund,“ sagði heimsmethafinn í
stangarstökki, Billy Olson, USA, eftir
að honum hafði þrívegis mistekist að
setja heimsmet, 5,94 m, á miklu móti
i Madison Square Garden í New York
á föstudagskvöld. Þar voru mættir
til leiks þeir þrír stangarstökkvarar
sem verið hafa að setja heimsmet að
undanförnu. Joe Dial þurfti að fá
lánaða stöng þar sem hann kom sinni
ekki í flugvélina sem flutti hann til
New York. Hann felldi siðan byijun-
arhæð sína. Sergei Bubka, heims-
methafmn utanhúss (sex metrar),
féll út á 5,72 m. Olson sigraði en sá
sem varð í öðru sæti, David Volz,
USA, var skráður í lokin fyrir meiri
hæð og handhafi nýs meistaramóts-
mets í Millrose-keppninni kunnu!!.
Þegar Olson var að reyna við nýtt
heimsmet kom Bubka til hans og
sagði hlæjandi. „Þetta er kjánalegt
allt saman. Þetta er aðeins sýning,
eins og sirkus.“ Vinningshæð Olsons
var skráð 5,79 m í lokin. Hann reyndi
við 5,80 m eins og David Volz. Báðir
fóru yfir en Olson hristi rána heldur
betur. Hæðin var þá endurmæld og
reyndist 5,79 m. Það var sigurstökkið
í keppninni. Köppunum tókst ekki
að stökkva hærra en Volz fékk metið
með sínum 5,80 m. Gífurleg truflun
var af ljósmyndurum þegar stangar-
stökkskeppnin fór fram og ýmsir
óviðkomandi við keppnisstaðinn.
Kannski skiljanlegt að Bubka talaði
• Billy Olson, reyndi við heims-
met.
um sirkus. Þriðji í stangarstökkinu
var Frakkinn kunni, Pierre Quinon,
með 5,72 m.
Snjallir írar á mílunni
Míluhlaupið var einn af hápunkt-
um mótsins. Þrír írar fyrstir í mark.
Eamonn Coghlan, sem sigrað hefur
í hlaupinu á þessu móti síðustu sex
árin, varð að láta sér nægja annað
sætið þrátt fyrir gífurlega hvatningu
áhorfenda. Tókst þvi ekki að jafna
met Bandaríkjamannsins kunna hér
á árum áður, Glenn Cunningham,
sem sigraði sjö sinnum í röð. Marcus
O’Sullivan sigraði á 3.56,05 mín.
Coghlan annar á 3.56,34 mín. og Ray
Flynn þriðji á 3.58,16 mín. Abbi Bile,
Sómalíu, varð fjórði á 3.58,16 mín.
og Steve Scott, USA, fimmti á 3.59,13
mín.
I 60 jarda hlaupi kvenna varð
ólympíumeistarinn, Evelyn Ashford,
USA, að láta sér nægja annað sætið.
Gwen Torrence, USA, sigraði á 6,57
sek. Evelyn hljóp á 6,65 og Merelene
Ottey-Page, Jamaíka, varð þriðja á
6,69 sek. Á sömu vegalengd karla
sigraði Ben Johnson, Kanada, enn
einu sinni á 6,04 sek. Sam Graddy,
USA, annar á 6,08 sek. Larry
Myricks, USA, sigraði í langstökki,
8,37 m. Mike Conley, USA, annar
með 8,29 m. Walter McCoy, USA,
sigraði í 500 jarda hlaupi á 56,44 sek.
Sunder Nix, USA, annar á 56,62 og
Egbunike, Nígeríu, þriðji á 56,82 sek.
Grace Jackson, Jamaíka, sigraði í
200 m hlaupi kvenna á 23,45 sek.
Ólympíumeistarinn Valerie Brisco—
Hooks, USA, önnur á 23,53 sek.
Johnny Gray, USA, sigraði í 800 m
hlaupi á 1.47,18 mín, Doina Melinte,
Rúmeníu, í 1000 m hlaupi kvenna á
2.42,40 mín. Antonio McKay, USA,
í 4oo m á 47,04 sek. Heimsmeistarinn
Bert Cameron, Jamaíka, annar á
47,44 sek.
hsím
Létt hjá meistuniniim
gegn fallliði ÍR
— Njarðvík sigraði ÍR, 92-71, íúrvalsdeildinni fkörfuboltanum
Njarðvikingar áttu ekki í neinum
erfiðleikum með fallliðið ÍR syðra á
föstudagskvöldið. Að vísu tóku gest-
irnir forystuna, 0-2, en eftir það var
leikurinn heimamanna, nema hvað
þeir höfðu hægt um sig seinni hlut-
ann í fyrri hálfleik. Eigi að síður voru
Njarðvíkingar með 19 stiga forskot í
leikhléi sem þeir juku reyndar ekki
nema um tvö i s.h. þvi lokatölur urðu
92-71. UMFN heldur því forystunni í
úrvalsdeildinni og allar líkur benda
til að þeir gangi þar með sigur af
hólmi - eiga einn leik eftir gegn ÍBK
og þar ætla þeir sér ekkert annað en
sigur. Hitt er líka víst að Keflvíkingar
munu selja sig dýrt í þeirri viðureign.
Við bíðum og sjáum hvað setur.
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV íSvíþjóð.
Sovéska landsliðið í handknatt-
leiknum, heimsmeistararnir, lék þijá
landsleiki við Svía og Dani í vikulok-
in. Skemmtilegasti leikurinn var í
Gautaborg á föstudagskvöldið og um
tíma þar virtist stefna í sigur Svía.
Eftir að staðan var 14-11 fyrir Sovét-
rikin í leikhléinu léku Svíar mjög vel
framan af síðari hálfleiknum. Kom-
ust þremur mörkum yfir, 20-17, og
höfðu möguleika á að komast fjórum
mörkum yfir. Náðu hraðaupphlaupi
i—Fafnaði i marki
Þrátt fyrir sigurinn yfir ÍR mega
Njarðvíkingar gæta sín. Misheppn-
aðar sendingar voru allt of margar í
leiknum hjá þeim. ÍR-ingum tókst
ekki að færa sér það í nyt en hætt
er við að keppinautarnir í fjögurra
liða úrslitunum þiggi slíkar gjafir
með þökkum. Jóhannes Kristbjörns-
son og Árni Lárusson voru virkastir
UMFN í fyrri hálfleik og skoruðu
mest. Jón Örn Guðmundsson og
Björn Steffensen reyndu að halda
eitthvað í við heimamenn en það
gekk ekki sem skyldi, þrátt fýrir
góðan vilja.
Valur Ingimundarson fékk lausan
tauminn í s.h. og þá var ekki að
sökum að spyrja. Skoraði 18 stig, þar
éskra. Hins vegar var markið dæmt
af. Dómararnir töldu að Svíar hefðu
brotið af sér í upphlaupinu. Þetta
atriði vakti mikla gremju meðal
sænsku leikmannanna sem áhorf-
enda. Lokakaflann reyndust heims-
meistararnir svo sterkari. Sigruðu í
leiknum með tveggja marka mun,
29-27. í hinum leikjunum var spenn-
an minni. í Malmö á fimmtudags-
kvöld unnu heimsmeistararnir ör-
uggan sigur á Svíum, 28-21, eftir 15-9
í hálfleik. Þá unnu þeir einnig léttan
sigur á Dönum, 29-22.
af þrisvar í röð þriggja stiga körfur.
Helgi Rafnsson, maðurinn með seg-
ularmana, Hreiðar Hreiðarsson og
Ellert Magnússon skoruðu ásamt
Vali næstum öll stig fyrir UMFN.
Kannski hefur Jóhannes Sveinsson
komið of seint inn á fyrir ÍR-inga.
Hann skoraði öll sín stig, 12, í s.h.
og átti mjög góðan leik. Karl Guð-
laugsson fór eins að nema hann
skoraði tvær körfur í f.h. Ragnar
Torfason komst einnig vel í gang
þegar á leið en er greinilega ekki
jafnáræðinn og áður vegna nefbrots-
ins.
„Jú, við misstum tök á leiknum um
tíma,“ sagði Gunnar Þorvarðarson,
þjálfari UMFN, „þegar okkur öflug-
ustu menn voru fyrir utan og það
fannst mér miður. Hins vegar náðum
við okkur fljótlega aftur á strik þótt
illa gengi og það er ég ánægður með.
Það sýnir að baráttuandinn er fyrir
hendi.“ Dómarar voru þeir Sigurður
Valgeirsson og Bergur Steingríms-
son. Áhorfendur óvenju fáir, innan
við 100.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson
24, Jóhannes Kristbjörnsson 14,
Helgi Rafnsson 13, Kristinn Einars-
son 11, Hreiðar Hreiðarsson 9, Ámi
Lárusson 8, Ellert Magnússon og
Teitur Örlygsson 6 hvor. Isak Tómas-
son 1.
Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 16, Jó-
hannes Sveinsson 12, Ragnar Torfa-
son 12, Jón Öm Guðmundsson 10,
Björn Steffensen 9, Vignir Hilmars-
son 8, Hjörtur Oddsson 2, Björn
Leósson 2.
- emm.
Þrír sigrar sovéskra
— í leikjum við Svía og Dani