Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Qupperneq 11
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
11
Sungið og
trallaðá
þorrablótinu
— hjáeldriborgurum
áSelfossi
Frá Reginu Thorarensen, fréttarit-
ara DV á Selfossi:
Eldri borgarar á Selfossi
skemmtu sér á þorrablótl í Inghóli
nýlega. Þar sátu 130 manns undir
borðum. Smakkaðist þorramatur-
inn prýðilega hjá kokkunum í
Inghóli.
Eldri kona sagðist hafa farið
varlega í að fá sér á diskinn í fyrstu
því hún hefði ekki mikla trú á að
þessir skeggjuðu menn kynnu að
búa til almennilegan þorramat. En
hún komst á aðra skoðun eftir að
hafa smakkað því hún sótti þrisvar
á diskinn sinn. Kvaðs hún gleðjast
yfir því að karlmenn kynnu að búa
til slíkar kræsingar því þetta væri
besti þorramatur sem hún hefði
smakkað síðan hún hætti sjálf
sveitabúskap.
Halldóra Ármannsdóttir var
veislustjóri og kynnir á þorrablót-
inu. Fórst henni það vel úr hendi
enda frá Vestmannaeyjum.
Skemmtiatriðin voru mörg og of
langt mál að telja þau upp í smáat-
riðum. En á nokkur skal þó drepið
hér:
Fyrst skal telja Karlakór Selfoss
sem söng við góðar undirtektir.
Inga Bjamadóttir, forstöðukona
opins húss, söng „Draumavísur
fjósamannsins" eftir Guðlaug
Jónsson í Kaldrananeshreppi á
Ströndum. Sá mæti maður flutti
vísumar fyrst árið 1923. En það ber
ekki allt upp á sama dag því að 63
árum seinna syngur og leikur Inga
vísumar með tilfæringum sem
vöktu feikna kátínu meðal þorra-
blótsgesta.
Inga Ingadóttir las því næst
hugvekju. Kom hún víða við og var
hugvekjan ógleymanleg. Vilborg
Magnúsdóttir las vísur eftir Svein
Sveinsson. Loks var dansað af
miklu fjöri. Stjórnaði Hafsteinn
Þorvaldsson dansinum. Fóru allir
ánægðir heim, staðráðnir í að mæta
á þorrablótið að ári.
alla vikuna
Viðtaiið
„Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur”
— segir Páll Bjömsson, nýr sýslumaöur á Höfn í Homaf irði
Nýi sýslumaðurinn í Austur-
Skaftafellssýslu heitir Páll Björns-
son, 37 ára lögfræðingur, ættaður
úr Húnavatnssýslu. Hann er fædd-
ur og uppalinn á Ytri-Löngumýri
og faðir hans er enginn annar en
Bjöm sjálfur Pálsson á Löngumýri.
Móðir hans heitir Ólöf Guð-
mundsdóttir. „Pabbi var alltaf á
ferð og flugi og ég kynntist honum
lítið. Við vorum 10 systkinin. Svo
var maður sendur í heimavistar-
skóla 14 ára og var bara á sumrin
heima. En móður minni kynntist
ég vel,“ sagði Páll.
Páll lagði síðan leið sína til
Reykjavíkur og fór í Kennarskól-
ann og útskrifaðist þaðan sem
stúdent 1971. Hann kenndi í nokk-
ur ár en hóf nám í lögfræði við
Háskóla íslands 1973 og útskrifað-
ist 1979, réð sig það árið til sýslu-
mannsins á Selfossi og gegndi full-
trúastörfum þar til síðustu ára-
móta, eða þar til hann hreppti
sýslumannsembættið í Austur-
Skaftafellssýslu.
„Mér leið vel á Selfossi, það er
fyrirmyndarstaður, mátulega langt
frá Reykjavík. Það er gott að vera
utan borgarstreitunnar." Páll er
þónokkuð ánægður með nýja starf-
ið. Að vísu er hann svo nýbyrjaður
að hann er varla búinn að átta sig.
„Það tekur tíma að aðlagast nýju
starfi og kynnast nýju fólki. En það
kemur."
Er grasekkill á Höfn
Sem sýslumaður í Austur-Skafta-
fellssýslu hefur Páll aðsetur á Höfn
í Homafirði. Hann var að vísu
nýbúinn að byggja sér einbýlishús
í nýja hverfinu syðst á Selfossi og
hluti af honum er þar enn. „Ég er
grasekkill á Höfn núna, konan
mín, Ólafía Hansdóttir, er enn á
Selfossi og bömin tvö. Ólafía er frá
Selfossi og á sínar rætur þar en
kemur nú með vorinu með börnin
með sér. Ég sakna hennar og barn-
anna. Enginn veit hvað átt hefur
Páll Björnsson, nýbakaður sýslumaður Austur-Skaftafellinga, býr nú á
Höfn, þar sem hann hafði bara einu sinni komið áður. Hann þarf því ekki
bara að aðlagast nýju starfi, heldur nýjum siðum og annarri náttúru. „Það
kemur,“ segirPáll. DV-mynd Júlía Imsland
fyrr en misst hefur." Páll hefur
áhuga á bókalestri, þjóðlegum
fróðleik og náttúmskoðun. „Ég hef
verið að berjast við að byggja á
Selfossi og hef haft lítinn tíma til
að sinna áhugamálum."
„Gert ráð fyrir að ég sé fram-
sóknarmaður“
„Ég ólst upp á pólitísku heimili
en hef lítil afskipti haft af pólitík
sjálfur, ekki af því að ég telji
stjórnmálamenn til óþurftar. Ég
horfi umburðarlyndum augum til
manna sem standa í pólitíkinni,
þetta er vanþakklát starf.“
Að mati Páls á þjóðin þá stjórn-
málamenn sem hún á skilið. Hann
hefur kynnst því hvað er að vera
sonur stjórnmálamanns og fengið
að gjalda þess. „Það ganga allir
út frá því að ég sé framsóknarmað-
ur af því að ég er sonur föður míns.
Mér eru eignaðar pólitískar skoð-
anir,“ sagði Páll og kunni því
greinilega illa.
Páll sagðist ekki hissa á föður
sínum að byrja búskap aftur á
Löngumýri. „Hann er til alls vís,
ég yrði ekki hissa þótt hann byrjaði
að gera út þarna fyrir norðan. Ég
vona bara að hann eflist og efnist
á þessu,“ sagði Páll og bað fyrir
kveðjur til Bjöms á Löngumýri.
-KB
Þorskalýsi eða ufsalýsi firá Lýsi hf.
heilsunnar vegna
ARGUS«0
» -
LYSI
Lýsi hf. Grandavegi42, Reykjavík.
il! n
jjji ... n
IREYKLAUSA
UÐINU-EN ÞU ?
' '
•• v.••■•;>>& : ■ •
VERTU MEÐ
OG VINNUM REYKINN
Eeykknst land árið 2000
SKÁKLANDSLIÐIÐ: Jón L. Árnason, alþjóðlegur meistari. Jóhann Hjartarson, stórmeistari. Guðmundur Sigurjónsson, stórmeistari. Karl Þorsteins, alþjóðlegur meistari. Margeir Pétursson, stórmeistari. Helgi Ólafsson, stórmeistari.