Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Qupperneq 15
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 15 landshluta Gjáin milli í grein sem ég ritaði í DV þann tíunda þessa mánaðar um „Lands- samtök um jafnrétti milli lands- hluta“ er greint frá félagastofnun- um og sameiningu þeirra og nokk- uð frá tilgangi samtakanna. Með þeim er verið að sameina krafta þeirra er búa úti á landsbyggðinni og annarra þegna þjóðfélagsins sem vilja stöðva hinn sífellda og vaxandi flótta úr dreifbýlinu og tryggja jafnari lífskjör og jafnrétti í þjóðfélaginu. Hinum ötulu og Frjálshyggjan er ekki frjálshyggja Eins og kunnugt er ráða „frjáls- hyggju“- og peningaöflin þegar mestu um fjölmiðla og hætta er á að yfirráð þeirra verði alger. Þau öfl segjast stefna að þessu eða hinu en varla fer milli mála að markmið þeirra er þjóðfélag hinnar fá- mennu, forríku yfirstéttar og hins snauða fjölda. „Frjálshyggjan", sem svo er nefnd, er í rauninni ekki frelsis- a „Vanþekking og að miklu leyti ^ ástæðulaus öfund hafa valdið því að smám saman hefur verið að myndast hyl- dýpisgjá milli suðvesturshornsins annars vegar og annarra landshluta hins vegar.“ ósérhlífnu talsmönnum landssam- takanna hefur verið mjög vel tekið þar sem búið er að hafa kynningar- fundi en hins vegar hafa fjölmiðlar í Reykjavík tekið þeim fálega og ítrekaðar tilraunir til að fá að koma fram í sjónvarpi hafa enn ekki borið árangur. Hafa samtökin neyðst til að fara allsérstæða leið til að láta vita af tilveru sinni. I starfi landssamtakanna er lögð áhersla á jöfnuð milli kynjanna og eins er lögð áhersla á að í stjórn þeirra veljist fólk úr helst öllum stjórnmálaflokkum. hyggja heldur markaðshyggja. Hér er í rauninni verið að fela ógnvænlega stefnu bak við sak- leysislegt nafn. Frjálshyggja er þarna rangnefni. Eins og nú er virðist uppbygging atvinnutækifæra vera mestöll á suðvesturhorninu. Þar eru störfin gjarnan yfirborguð, þar eru nógir peningar og þangað fer fólkið. Þar sitja ráðamenn þjóðfélagsins og þar eru flestar þjónustustofnanir okkar - gjarnan með starfsliði sem litla yfirsýn hefur út fyrir borgar- mörkin og gengur illa að skilja þarfir eða sérstöðu dreifbýlis. Þar er að myndast borgríki. Annars staðar á landinu er víða takmörkuð eða ónóg atvinna, þjónusta lakari og kjörin verri. Tvær þjóðir í landinu Vanþekking og að miklu leyti ástæðulaus öfund hafa valdið því að smám saman hefur verið að myndast hyldýpisgjá milli suðvest- urhomsins annars vegar og ann- arra landshluta hins vegar. Það er talað um að þjóðin sé að skiptast í tvennt eða tvær þjóðir séu í landinu. Sumir tala um hina ríku annars vegar og fátæku hins vegar en þar munu trauðlega finnast skörp skil á milli. En milli Stór- Reykjavíkur og landsbyggðarinnar eru greinileg skil komin. Brúa þarf gjána eða fylla hana upp til að koma í veg fyrir algera skiptingu þjóðarinnar í tvennt. Að því vilja Landssamtök um jafnrétti milli landshluta vinna. Til þess að svo megi verða þarf að finna þá sýkla er sárinu valda og gera sér ljósa grein fyrir hvernig staðan er í málinu. Það hlýtur að vera for- senda þess að meðulin finnist. Lifði á því sem landið gaf Fyrst skulum við gera okkur grein fyrir á hverju íslenska þjóðin lifir og hvar þjóðarteknanna er aflað. Auðvitað hefur þjóðin lifað og lifir enn á því sem landið og hafið í kringum það gefa. Nýting þeirra auðlinda er undirstöðuat- riði. Iðnaður er svo að miklu leyti vinnsla á framleiðslu undirstöðu- atvinnuveganna, sjávarútvegs og landbúnaðar. Önnur hlunnindi eða „auðlindir" eru talsvert nýttar og breytt í nauðsynleg efni og lífsgæði og á því nærist verulegur hluti iðnaðar. En fólk má aldrei missa sjónar af því að þjóðin lifir fyrst og fremst á nýtingu „lífbeltanna tveggja" landgrunnsins ásamt haf- inu yfir því - annars vegar og grasbeltisins meðfram ströndinni og inn að hálendinu - hins vegar. Að undirstöðuatvinnugreinunum vinna núorðið tiltölulega fáir og störf þeirra eru oft vanþökkuð. Minnihlutinn aflar meira Samkvæmt tölum, sem ég hefi fengið í hendur, koma 60% gjald- eyristeknanna frá sjávarútvegi sem aðeins 14,1% þjóðarinnar vinnur við. Á höfuðborgarsvæðinu, þar sem um 60% þjóðarinnar búa, skapast 40% gjaldeyristeknánna, en 60% gjaldeyristeknanna verða til á landsbyggðinni þar sem aðeins 40% búa. Þó munu allmargir, sem heimili eiga í dreifbýlinu, vinna á suðvesturhorninu hluta ársins. Þegar talað er um verðmæti framleiðslu er gjarnan aðeins rætt um verðmæti útflutningsvara, en það sem fer til að fæða og klæða þjóðina sjálfa gleymist. Þess vegna verður hlutur landbúnaðarins oft lítill. Þar við bætist að unnar af- urðir frá landbúnaði eru í útflutn- ingsskýrslum taldar til iðnaðar- vöru. Hverjir grófu gjána? Það sem hefur e.t.v. verið drýgst í að skapa misskilning og van- þekkingar- og öfundarhyldýpi milli suðvesturhornsins og landsbyggð- arinnar eru sumir fjölmiðlarnir í Reykjavík. 1 stað þess að fræða þjóðina um mikilvægi framleiðslu- atvinnuveganna og bera klæði á vopnin hafa þeir alið á tortryggni og ausið upplognum þvættingi og RÓSMUNDUR G. INGVARSSON BÓNDI, HÓLI, TUNGUSVEIT, SKAGAFJARÐARSÝSLU. rangfærslum yfir undirstöðuat- vinnuvegina, einkum landbúnað- inn. Mun þetta eiga drjúgan þátt í þeirri þróun að sala búvöru innan- lands hefur dregist verulega saman og í þeirri stefnumörkun að gefast að mestu upp við að selja land- búnaðarafurðir úr landi. í framhaldi af því er nú ákveðið að fækka búfé í hinum hefðbundnu búgreinum verulega í viðbót við þá miklu fækkun sem orðin er. Hefur það, þrátt fyrir mikið umtal og nokkra fyrirgreiðslu til svo- nefndra nýrra búgreina, óhjá- kvæmilega búseturöskun í för með sér. Þessi iðja sumra blaðanna er gott dæmi um ábyrgðarleysið sem nú ríður húsum í þjóðfélagi okkar. Út yfir tekur að mikið af þessum áróð- ursskrifum er svo lesið í útvarpið. Landssamtök um jaíhrétti milli landshluta hafa mikið verk að vinna. Rósmundur G. Ingvarsson Vinsældalisti rásar 2 er hneyksli - í tilefni 2ja ára afmælis listans Kjallarinn JENS KR. GUÐMUNDSSON AUGLÝSINGATEIKNARI metnaðarleysið og gelda músík- smekkinn sem einkennir þann þrönga ættingja- og kunningjahóp sem hefur hreiðrað um sig í Efsta- leitinu. Fréttatiikynningar handa dagblöðunum Þótt undarlegt megi virðast lætur fjölskyldan á rás 2 sér ekki nægja að spila vinsældalistann sinn út og inn alla daga. Fréttadeildir dagblaðanna og poppsíður fá vikulega sendar fréttatilkynningar með skilmerki- legum útlistunum á útliti listans hverju sinni. Þannig geta lands- menn lesið um listann um leið og þeir hlusta á hann á rás 2. Hljómplötuverslanirnar sleppa ekki heldur. Þær fá reglulega sendan listann í plakatformi. Starfsmenn verslananna geta því vitnað í listann í tíma og ótíma. Og viðskiptavinir þeira geta valið sér hljómplötur í samræmi við hlut platnanna á vinsældalista rásar 2. Listinn skal sem sagt ofan í landsmenn með öllum ráðum. Það skulu allir fá að taka þátt í dansin- um umhverfis listann. Ætli sá trúarsöfnuður sé til sem gerir jafnmikið úr sínum guði og starfsmenn rásar 2 gera úr vin- sældalista sínum? Vinsældalistinn er ómarktækur Hrunadansinn umhverfis vin- sældalista rásar 2 er ekki það versta i þessu máli. Áreiðanleiki listans er öllu verri. Við nánari athugun kemur í ljós að vinsældir dægurlaga meðal almennings eru ekki í samræmi við vinsældalista skallapopprásarinn- ar. Listinn er nefnilega saman sett- ur af örfáum hagsmunahópum. Þessir hópar hringja í síma 687123 á milli kl. 16 og 19 á fimmtu- dögum og biðja þá um að ákveðin lög séu sett á listann. Það er yfir- leitt auðsótt mál fyrir hvern sem er. Sama manneskja getur greitt sama laginu eins mörg atkvæði og hana langar til. Hún þarf ekki einu sinni að gera grein fyrir sér á neinn hátt. Vinsældalisti duglegra plötuútgefenda Vegna þessa fyrirkomulags er vinsældalisti rásar 2 einungis listi yfir duglega plötuútgefendur, umboðsmenn og flytjendur dægur- laga. Um það vita stjómendur rásar 2 mætavel. Enda eru þess dæmi að þeir hafi sjálfir staðið fyrir smölun á atkvæðum handa ákveðnum lög- um. Kannski sú staðreynd skýri að hluta það ofurkapp sem þeir leggja á að troða vesældarlista sínum ofan í kok á landslýð. Jens Kr. Guðmundsson „Þessi dans þeirra umhverfis vinsældalistann afhjúpar betur en flest annað hugmyndafátæktina, metnaðarleysið og gelda músíksmekkinn sem einkennir þann þrönga ættingja- og kunningjahóp sem hefur hreiðrað um sig í Efstaleitinu." Um þessar mundir er hátíð hjá starfsmönnum rásar 2. Vinsælda- listinn þeirra á afmæli. Hann er tveggja ára. Reyndar mætti halda að listi þessi ætti daglega stórafmæli. Svo mikið láta stjórnendurnir í Efsta- leiti með hann. Þeir láta sér ekki nægja að spila listann á hverju fimmtudagskvöldi heldur leika þeir hann einnig á hverjum sunnudegi - og þá þrefald- an! Á laugardögum hafa þeir svo sérstakar hringborðsumræður í útvarpssal um stöðu og stefnu ein- stakra laga á listanum. Til viðbótar eru mörg lög af list- anum spiluð á hverjum degi í þátt- um sem bera ýmis nöfn en eru alveg eins að öðru leyti. Algengt er að 5-7 lög af listanum séu spiluð í einum slíkum þætti. Spiluninni fylgir ætíð ítarleg lýsing á tengslum laganna við listann. Einhæft lagaval Þegar dagskrá einnar vesællar útvarpsrásar snýst öll um einn lit- inn vinsældalista þá er eitthvað að. Það segir sig sjálft. Þó setja stjórnendur rásar 2 upp spumingarmerki þegar minnst er á einhæft lagaval hjá þeim! Þessi dans þeirra umhverfis vin- sældalistann afhjúpar . betur en flest annað hugmyndafátæktina, a „Ætli sá trúarsöfnuður sé til sem gerir ^ jafnmikið úr sínum guði og starfs- menn rásar 2 gera úr vinsældalista sín- um.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.