Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 17
Lesendur Lesendur Lesendur DV. MÁNUDAGUR17. FEBRUAR1986. Lesendur Vörður fyrir Vörðurskrifar: Nú er mér öllum lokið. Eins og suma lesendur rekur eflaust minni til skrifaði ég litið bréf í blaðið fyrir nokkru um áramótaskaupið. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef látið eitthvað í mér heyra og ekki datt mér í hug að neinn hefði eitthvað út á það að setja. En það var ekki aldeilis rétt hjá mér: Nokkrum dögum síðar birtist hvert bréfið af öðru og allir virðast yfir sig hneykslaðir á „þessum Verði“. Ég má sem sagt ekki hafa mína skoðun i friði. Reyndar þykir mér sem furðulega margir hafi haft gaman af þessu skaupi þvi mér telst til að bréfin séu orðin að minnsta kosti 6 talsins. Ég hef það á tilfinning- unni að þau séu öll skrifuð af hálf- gerðum vitleysingum því í þeim koma iðulega fyrir óskiljanlegar mótsagnir. Einn t.d. sem hneyksl- ast hvað mest á mér vill að ég sjái um næsta áramótaskaup. Ég vona að þeir séu ekki margir sem óska eftir því þar sem það er fjarri mér að vilja vera í sviðsljósinu. Það hlýtur líka að vera til almennilegt fólk sem hægt er að treysta fyrir næsta skaupi úr því endilega þarf að hafa þetta skaup. Ég er líka kallaður ýmsum viður- kvæmilegum orðum og því jafnvel haldið fram að ég hafi ekki húmor. svarar sig En ég gleymi aldrei þeirri stund þegar ég hló svo að sást duglega í tönn. Það var vísa eftir Bjöm heit- inn búfræðirig sem hafði þessi áhrif á mig. Hún er svona: Kindurnar renna eftir fjallshlíðinni en hund- arnir hlaupa svo hratt, svo hratt að fjandinn hafi ég sjái í rassgatið á þeim. Þetta er það sem ég kalla góða íslenska fyndni en því miður er svona lagað ákaflega fágætt í dag. Það var fyrir nokkrum árum að ég las þessa vísu og æ síðan þegar ég les hana get ég ekki annað en skellt á lær. Stundum verður mér þá á að láta eitthvað óviðeigandi út úr mér en hvernig er líka annað hægt? Annars ætla ég ekki að hirða um að svara öllum þeim sem höfðu gaman af skaupinu. Þeir verða 'bara að eiga það við sjálfa sig. Hitt finnst mér að vísu óþolandi þegar þessir villingar tala um að 99.9% þjóðarinnar hafi hlegið að skaupinu. Þá segi égbara að ísland má muna sína fífla fegurri. Sérstaklega þótti mér ómerkilegt bréf sem ónefndur skrifaði en hann talar t.d. um að ég hefði átt að fara út og skjóta rakettum. Hann þekkir mig nú illa sem heldur að ég fáist við slíkt. 17 Sundlaugarnar eru óhreinar Sundkona skrifar: Eitt er það mál sem vert er að minnast á hér á lesendasíðunni, ef ekki annars staðar, og það er hrein- læti í sundlaugum. Reyndar vil ég fremur tala um skort á hreinlæti. Upphaf þess að ég fór að hugsa um þetta mál er það að vegna hins mikla klórs, sem alltaf er í laugunum, keypti ég mér sundgleraugu til að synda með. Og þá kom auðvitað ýmislegt í ljós. Svo ég fór að spyrjast fyrir og fékk það upp úr krafsinu að Laugardalslaug hafði ekki verið hreinsuð mánuðum saman, síðast í ágúst vegna þess að einhver hafði gert þar þarfir sínar. Vörðurinn þar vildi gjarnan að fólk þrýsti á að hún yrði hreinsuð en sagði engin al- mennileg hreinsitæki til. Laugarfólk á Seltjarnamesi vildi engar upplýsingar gefa svo líklega er ekki allt hreint og klárt þar. 1 Vesturbæjarlaug fékk ég þær upplýsingar að laugin hefði verið þrifin fyrir skömmu, það er að segja verið sópuð, en líklega er það ekki nóg. Án efa myndast skán innan á veggi lauganna sem verður að unum almennileg hreinsitæki í til- skrúbba burt. efni af tvö hundruð ára afmæli Ég legg til að Davíð gefi sundlaug- Reykj avíkur. í annað eins er eytt! Bréfritari vekur máls á óþrifnaði í sundlaugum Reykjavíkurborgar. tátum mjolkina vinna með okkur Mjólk fyrir alla eftir dr. Jón óttar Ragnarsson Fáar ef nokkrar algengar fæðutegundir eru eins góðar uppsprettur fyrir bætiefni og mjólk. Hún er í flokki örfárra alhliða næringarefnagjafa, og yfirburðafæða t.d. fyrir bein, tennur, húð, hár og taugakerfi. Börn og unglingar ættu að nota allan mjólkurmat eftir þvi sem smekkur þeirra þýður. Fullorðnir ættu á hinn bóginn að halda sig við fituminni miólkurmat, raunar við magra fæðu yfirleitt. 2 mjólkurglös á dag eru hæfilegur lágmarksskammtur á dag ævilangt. Mundu að hugtakið mjólk nær yfir léttmjólk, undanrennu og nýmjólk. i erli dagsins Valgeir Cuðjónsson er vinnuhestur. Hann er menntaður félagsráðgjafi, hefurfengist við bókaútgáfu, kvikmyndgerð, gerð útvarps- og sjónvarpsþátta, kennslu, unnið vð leikhús og á tónlistarsviðinu hefur hann samið, leikið og sungið, einkum með Spilverki þjóðanna og Stuðmönnum, mörg skemmtilegustu og vinsælustu dægurlög síðustu ára, tekið þátt í gerð ótal hljómplatna og komið fram á tónleikum og dansleikium í hundruða og þúsunda tali. Og er þá ekki allt talið. Starfsorka, bjartsýni og úthald kemur ekki af sjálfu sér. Til þess að geta stundað skapandi og erfiða vinnu undir álagi þarftu að borða holla og góða fæðu. Þetta veit Valgeir Guðjónsson. Enda drekkur hann mjólk. Mjólk er full af bætiefnum. Hún er ómissandi liður í daglegri fæðu okkar allra! MJÖLKURDAGSNEFND Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna. GEÐ AUGIÝSINGAÞJÖNUSTAN /SlA — Mjólk er góð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.