Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Side 18
18 DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 1 - ssss- Utboð gangstétta Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í lagningu steyptra gangstétta sumarið 1986. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, Hafnar- firði, gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. febrúar kl. 11. Bæjarverkfræðingur. Húsnacöisstoffnun ríkisins Tæknidcild lauyavegin. R. Simi 28500. Útboó Samvinnuskólinn Bifröst óskar eftir tilboðum í bygg- ingu þriggja einbýlishúsa, byggðum úr timbri. Verk nr. A.14.03 úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðis- stofnunar ríkisins. Flatarmál húss 134 m2, rúmmál 457 m3. Húsin verða byggð á landi Samvinnuskólans Bifröst, Borgarfirði, og skal skila fullfrágengnum 15. ágúst 1986. Afhending útboðsgagna er hjá tæknideild Húsnæðis- stofnunar ríkisins frá fimmtudeginum 20. febr. nk. gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila til tæknideildar Húsnæðisstofnun- - ar ríkisins, Laugavegi 77, Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 4.' mars nk. kl. 14.00 og verða þau opnuð aðviðstöddum bjóðendum. F.h. Byggingarnefndar Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. KENNSLUSTÖRF í GHANA Þróunaraðstoð - menningarsamskipti AFS-lönd í Evrópu (EFIL) hafa tekið að sér að útvega 25 kennara til starfa í GHANA skólaárið 1986-1987 í samvinnu við AFS International/lntercultural Pro- grams og AFS í Ghana. AFS á íslandi stefnir að því að gefa tveim íslenskum kennurum kost á að taka þátt í þessu starfi skólaárið 1986-87. Tveir íslenskir kennarar eru nú starfandi í Ghana á vegum AFS á íslandi með stuðningi menntamálaráðu- neytisins og Þróunarsamvinnustofnunar islands. Einkum vantar kennara til kennslu í raungreinum, s.s. stærðfr., efnafr., eðlisfr. og á sviði jarð- og búfjárrækt- ar (agricultural science). Væntanlegir kennarar starfa á framhaldsskólastigi (þ.e. við menntaskóla, land- búnaðarskóla og kennaraþjálfunarskóla). Aldur nem- enda er 12-25 ára. Eingöngu koma til greina ein- hleypir kennarareða barnlaus hjón sem bæði kenna. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði: * Aldurslágmark 25 ára. * Minnst 3 ára kennslureynsla. * Góð enskukunnátta. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrif- stofu AFS milli kl. 15 og 17 virka daga eða í síma 25450. Umsóknarfrestur framlengist til 28. febrúar. á íslandi - alþjóðleg fræðsla og samskipti -j‘ Hverfisgötu 39, P.O. Box 753,121 Reykjavík. Menning Menning Menning Ljóð 1985 Þetta nýliðna ár má telja mikið ljóðaár. Kemur þar tvennt til, annars vegar samkomur og uppákomur til að flytja ljóð, hins vegar birtust góðar ljóðabækur. Nefnum fyrst skipulegar fram- kvæmdir á þessu sviði, þótt fara verði hratt yfir. Er þá fyrst að telja sam- komu sem bókmenntastúdentar héldu í Félagsstofnun undir heitinu: „Hver er staða ljóðsins, 28. febrúar kl. 20“. Þetta var ansi ruglingslegur umræðufundur þar sem mest bar ó gagnkvæmum ásökunum skálda, rit- dómara og bókmenntafræðinga og sjálfsréttlætingu sömu aðilja. Vegleg bókasýning og -skrá gaf yfirlit um frumskóg sjálfsútgáfu ljóðskálda. Næst er að telja „Dag ljóðsins“, sem haldinn var í Iðnó í Reykjavík og, að mér skilst, einnig á Akureyri. Ekki hefi ég haft spumir þaðan enda man ég ekki eftir neinum frásögnum fjölmiðla af þeirri samkomu. En hér í Reykjavík tókst vel til, fullt hús, gefur að skilja í slíkum fjölda, en ég tel það kost. Það meiðir engan að hlusta á léleg ljóð í bland við góð, heldur ætti það þvert á móti að efla dómgreind fólks, einkum skáldanna sjálfra, að fá þarna samanburð, við- brögð áheyrenda og viðkynningu við önnur skáld. Og mikil örvun hlýtur þetta að vera byrjendum í skáldskap til að leggja sig fram. Hins vegar finnst mér að megi læra af reynslunni að skera ekki skáld niður í búta eftir yrkisefnum þeirra. Flest er merki- legra í ljóðunum en efnið - sé á annað borð hægt að greina bakaða köku í frumparta - og þarna glutrað- ist niður gott tækifæri til að kynna hvert skáld frá ýmsum hliðum, fjögur eða fimm hverju sinni, fremur en tólf 3-5 mínútna búta af skáldi hverju sinni. Þetta getur hver og einn sannprófað með því að hlusta á ljóðalestur í útvarpi, til að kynnast sæmilegu skáldi dugir ekki minna en 15-20 mínútna lestur þess. Enn er að telja syrpu þriggja fjöl- breyttra útvarpsþátta um ljóðlist um haustið og stóðu sömu bókmennta- stúdentar að þeim og febrúarsam- komunni. Auk þess lásu mörg skáld upp ljóð sín í útvarpi og lokaþáttur- inn í þessum ljóðalestri ársins var að gefa út snældu með lestri skálda á eigin ljóðum. Hún heitir Fellibylur- inn Gloría. Þetta er í heild prýðislest- ur góðra ljóða, og er mikill fengur að, mörg ljóðanna njóta sín hér mun betur en á prenti. Auk þess er tilvalið að kaupa snælduna eins og Ljóðorm til að kynnast skáldum. Á fyrstu snældunni eru sjö höfundar og fram- hald væntanlegt. Ljóðabækur Á þessu ljóðaári stofnaði AB sér- stakan ljóðabókaklúbb og birtust tvær bækur en verða væntanlega fjórar árlega. Þessu framtaki virðist beint að nokkuð öðrum hópi en Blómi íslenskra ljóðskálda á degi ljóðsins. og fjöldi skálda, sem las upp við góðar undirtektir, enda áheyrilegt, skemmtileg ljóð og vel flutt. Staður- inn er góður en húsið of þröngt fyrir svona samkomur,. mikil bót hefði verið að leikstofu barna og söluborði bóka. Þetta síðasttalda auðgaði Ljóðahátíð Norræna hússins í sept- emberbyrjun en þar vantaði því miður bækur erlendu gestanna. Sú hátíð fannst mér heppnast verulega vel. Fimm kvöldsamkomur þar sem hálfur þriðji tugur ljóðskálda las upp verk sín. Fimmtungur skáldanna var íslenskur og sómdi sér vel innan um hin. Auðvitað verða aldrei valin saman skáld svo að öllum líki. Ég skal ekki dæma um val á þeim er- lendu, en mjög forvitnilegt var að heyra þama í ýmsum skáldum og ljóðin yfirleitt góð, það sem numið varð á flugi. Einna minnisstæðust verða mér Frakkinn Georges Asta- los, Daninn Knud Malinowski og Svíinn Lars Huldén. Laugardagssíð- degið á eftir var svo upplestur tylftar ungra íslenskra skálda og var það býsna gott, á heildina litið. Flest merkilegra en efnið Það sem helst var gagnrýnt í vali á skáldum til þessarar ljóðahátíðar var að lítið yrði um konur samkvæmt fyrstu áætlun. Síðan rættist úr því, en þetta var líklega einn hvatinn að Listahátíð kvenna, en á henni voru einar fimm ljóðasamkomur. Ég hefi ekki tölu á öllum þeim fjölda kvenna sem þar kom fram að lesa ljóð sín. Þær voru mjög mismunandi, eins og Bókmenntir ÖRN ÓLAFSSON Margt af þessu gildir einnig um nýtt tímarit sem hóf göngu sína á árinu og er helgað ljóðum, Ljóðorm- ur. Hann hefur nú birst tvisvar og farið mikið fram á stuttum tíma. Það er mjög mikils virði að fá þarna tækifæri til að fylgjast með þvi sem er að gerast á þessu sviði. Til þess að það takist má auðvitað ekki gera mjög strangar gæðakröfur þótt ein- hver slíkur þröskuldur þurfi að vera. Höfundaval (2. heftis) er blessunar- lega fjölbreytt en á móti kemur þá að fulllítið er eftir hvert skáld til að hægt sé að fá einhverja mynd af þvf. En þessi tímaritsútgáfa, ásamt með öðru nýju tímariti, Teningi, sem er miklu víðtækara í efnisvali, getur orðið til stórfelldra framfara frá þeim aðstæðum að annaðhvort varð fólk að kaupa fjölda kvera af alls óþekkt- um skáldum eða vera ófrótt um nýsköpun í ljóðlist og kusu flestir seinni kostinn enda þótt áhugi sé mikill og útbreiddur á ljóðlist. Það sanna samkomurnar, ævinlega fullt úr úr dyrum þegar boðið er upp á ljóðalestur, og verða margir frá að hverfa. snældunum og Ljóðormi og ei ánægjulegt að leitað skuli á ýmis mið. Birst hafa góðar bækur eftir kunn skáld sem verið hafa á þriðja áratug, bæði meðal helstu Morgun- blaðsmanna. Það eru Hólmgönguljóð Matthíasar Johannessen, endurút- gefin eftir aldarfjórðung, og ný bók eftir Jóhann Hjálmarsson. Ákvörð- unarstaður myrkrið. Skiljanlegt er að klúbburinn fari af stað með gætni en ég vona bara að hann haldi sig ekki innan þessara fyrrgreindu marka. Jafnvel í þessum aldurshópi eru merkileg skáld sem allt of fáir þekkja, nefni ég til dæmis Baldur Óskarsson fréttamann. Sérstaklega vildi ég þó óska klúbbnum þess metnaðar að hann gefi út næstu bók Dags Sigurðarsonar. Dagur fór að ganga fram af fólki um líkt leyti og Matthías með Hólmgönguljóðum - og á nokkuð svipaðan hátt, með því að færa út kvíarnar; fjalla um hvers- dagslegt umhverfi sitt í Ijóðum á þess eigin máli. Síðan varð annar m.a. virðulegt sálmaskáld og rit- stjóri, hinn bóhem. Dagur gekk reyndar mun lengra í því að ögra lesendum. Nú var Dagur að gefa út ljóðkver: Fyrir Laugavegsgos. Fimm ár eru liðin frá næstu bók á undan enda skáldið þreytt á sjálfsútgáfu- harkinu. En þetta langa hlé hefur síst eflt Dag til dáða. Jafnaldri hans, Þorsteinn frá Hamri, gaf út Ný ljóð, næst á eftir Ljóðasafni sínu, og fjallar um nútímann út frá menningararfi sveitalífsins, heimi bernsku sinnar. Þar sem þessir tveir heimar mætast uppgötvum við eðli hlutanna í skáld-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.