Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Qupperneq 27
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Iþróttir
27
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Atli Hilmarsson skorar eitt af sex mörkum sinum á föstudag - skoraði síðan
áttaálaugardag. DV-myndirBjarnleifur.
Eigum
fyrirliggiandl
allar
slcrifstoíuhúsgagua
Best var að sjá Þorgils
Óttar í baráttunni á ný
Það besta við landsleik íslands og
Noregs í Laugardalshöllinni á föstu-
dagskvöld var að sjá Þorgils Óttar
Mathiesen með á línunni á ný, að
vísu mjög vafinn um hnéð. I síðari
hálfleiknum - eftir að hafa verið
heldur seinn í gang í þeim fyrri -
náði hann sér vel á strik og skoraði
þá falleg mörk á sinn sérstæða hátt.
Sá höfuðverkur er vonandi úr sög-
unni sem línuspil ísl. landsliðsins var
meðan Þorgils Óttar var frá leik. Allt
bendir til þess að FH-ingurinn snjalli
geti gert góða hluti í heimsmeistara-
keppninni í Sviss, sem hefst eftir atta
daga.
Það versta við leik íslenska lands-
liðsins á föstudagskvöld gegn heldur
slöku liði Norðmanna var oft á tíðum
þegar Island sigraði Noreg, 25-24, á föstudag
hörmulegur varnarleikur. Litli,
þybbni línumaðurinn, Arild Akerö
frá Stavanger IF, lék varnarmennina
grátt. Hafði litið sem ekkert fyrir því
að snúa á hávaxna vamarmenn Is-
lands á miðjunni, einkum þó Þor-
björn Jensson, fyrirliða. Þorbjörn,
eins og margir aðrir í íslenska liðinu,
gengur ekki alveg heill til skógar.
Markvarslan einkenndist af slökum
varnarleik. Erfitt að verjast dauða-
færum norskra. Þeir Kristján Sig-
mundsson og Brynjar Kvaran, sem
léku sinn hálfleikinn hvor, vörðu
fimm skot hvor þar sem ísland fékk
knöttinn. Kristján varði einnig
nokkur skot og knötturinn hrökk út
fyrir vítateiginn. Undantekningar-
laust náðu Norðmenn knettinum.
Það segir meira en mörg orð um
varnarleikinn.
Of lítill sigur.
íslenska liðið vann alltof lítinn
sigur í leiknum. Eins marks munur
í lokin, 25-24, eftir að ísland hafði
um tíma náð sex marka forskoti,
reyndar þ'risvar i leiknum, 18-12,
19-13 og 20-14. Síðan kom hörmuleg-
ur kafli og norskum tókst að jafna í
23-23. Þá voru fjórar mínútur til
leiksloka. íslensku strákarnir bitu
aðeins á jaxlinn. Skoruðu næstu tvö
mörk og sigruðu.
Veruleg þreyta einkenndi leik ís-
lenska liðsins síðasta stundarfjórð-
unginn. Skiljanlegt eftir hinar gífur-
legu æfingar hjá Bogdan Kowalczyk.
Hörkuæfingar sama dag og leikið
var. Sóknarleikurinn var þó oft
skemmtilegur og mörg falleg mörk
skoruð. Meira að segja átta mörk
skoruð af línu og Páll Olafsson skor-
aði nokkur þeirra eftir glæsisending-
ar Kristján Arasonar. Það var hins
vegar nokkuð erfitt að skora hjá
norska markverðinum, Ole Reidar
Bruseth. Hann varði oft með miklum
tilþrifum og var besti maður norska
landsliðsins ásamt línumanninum
Akerö.
Þrír leikmenn íslands skoruðu nær
öll mörk íslenska liðsins, Kristján
Arason átta - tvö vítaköst - Atli
Hilmarsson sex og Páll Ólafsson
fimm. Þeir léku allir vel, þónokkur
kaflaskipti voru hjá þeim, og það
gerði Guðmundur Guðmundsson
einnig, þrælvafinn á læri. Fiskaði
víti, kom Norðmönnum út af á sinn
snjalla hátt og skoraði tvö mörk. Það
gerði Þorgils Óttar einnig. Bjarni
Guðmundsson og Geir Sveinsson
skoruðu eitt mark hvor.
hsím
Sérverslun me>
skrifstofuhúsgögn
Þorgils Óttar í leiknum við Norð-
menn - mikiil útbúnaður á hnjám
hans.
Ath. sérstaklega nýju skermaveggina,
hannaðaaf Sturlu Má Jónssyni FHI.
Á. GUÐMUNDSSON
i
i
| Skemmuvegi 4, Kópavogi, sími 73100.
allra haBÍi.
Vorðfrá:31500.-
Innifalið í yerði: flug, gistíng, ferðir að og
i—i'I/aX (<—^ L/V'/aV i—1 r 1 1 ) ) q—^
i—-7 j 1 j—D 3—>
22. MARS TIL 31. MARS
10 daga ferð, aðeíns 3 vinnudagar.
Dagflug. Flogið er til Zujjfch í Sviss. Þaðan
er um 1 klst. akstur til Mor|chach sem er
vinalegur lítill bær við skfðaparadísina
Stoos. Gis| er á stárglæsilegu nýju íbúðar-
hóteli, AXENFELS. Par eru öll þægindi á
einum stað. Örstutt er frá Morschach til
margra fegurstu staða Sviss og glæsilegar
verslanir eru stutt undan. STOOS er mjöa
vo i'imúirt cUnncvjieiAi An knrarn kralrlniruiA
BARNAAFSLÁTTUR
•OHt-mtt mitulll
Umboó a is!a<
DINERSCLU!
(NTERNATtOJ
i fyrir
AL
fVrCfXVTMC
Ferðaskrifsfofa Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388—28580