Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 42
42
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
r
En Adam var ekki lengi
í paradis, allt komst upp,
múllinn var tekinn upp...
Bannsett böndin komin á sinn stað
og eins gott að gera sér
grein fyrir að hundar
þurfa stundum að sætta sig
við að lifa sannkölluðu hundalífi.
Það byrjaði allt með
hógværu krafsi í hné húsbóndans
sem sinnti í engu vanliðan seppa.
Og þegar innilokunarkenndin
og köfnunartilfinning varð
yfirþyrmandi varð að gera eitthvað
í málunum.
Þetta tókst með Iagni
og seiglu, helaumttrýnið
var sleikt vandlega á eftir.
Hundar ná því líklega seint að
mynda áhrifamikinn þrýstihóp og
því þurfa þeir margsinnis að
sætta sig við að hlíta hinum ýmsu
þvingunarreglum. Eitt af því sem
seppum er uppálagt er að bera
múl um trýnið ef lagt er af stað
í flugferð og eru þeir mishrifnir
affjötrunum.
Meðfylgjandi myndir tók KAE,
ljósmyndari DV, þegar lagt var
upp með hunda í æfingaleit við-
víkjandi snjóflóðum. Einn leitar-
hundanna þoldi illa múlinn og
greip því til sinna ráða þótt lúta
yrði lægra haldi fyrir eigandan-
um síðar.
■3
Tónafióð á
Skálafelli
Myndina tók GVA af þeim félögum í Kaskó, Guðlaugi Sigurðssyni
og Helga Sigurjónssyni, við spilamennsku á Skálafelli eina helgina
fyrir skömmu. Aðspurður um hljóðfærið við höndina á myndinni
sagði Guðlaugur að það liti út „...eins og lítil spýta en er í rauninni
heil hljómsveit. Þetta er hljóðgervill sem er prógrammerað tölvu-
tæki með óendanlegum möguleikum.“ Og þeir félagar verða þarna
á móti Guðmundi Hauki önnur hver vikulok frá fimmtudegi til
sunnudags leikandi lög af öllum mögulegum gerðum, frá rólegum
og allt upp í æsilegri taktana.