Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 43 Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Verð aldrei leið á tónlist Ég er um þessar mundir að vinna að píanóverki en ég er á starfelaunum í vetur og stunda því enga kennslu. Þetta er ekki samið fyrir neinn ákveð- inn píanóleikara og það er ekkert ákveðið hvemig verk þetta verður eða hversu langt. Eg er löngu byijuð að fást við það, en kraftar mínir, eins og annarra íslenskra tónlistarmanna, eru dreifðir og ég hef meðal annars verið að vinna að hljómplötuútgáfu að undanfomu. Ég sest niður þegar ég hef tíma og þá ganga tónsmíðamar ágætlega. Ég hef áður samið eitt píanóverk, það var fyrir Eddu Erlends- dóttur. Mér finnst yfirleitt skemmti- legast að semja það sem ég er með í takinu hverju sinni, en það má þó kannski segja að það heilli mig meira að semja verk fyrir stóra hljómsveit. Þar hef ég meira val. En ég er ekki að semja neitt í bili nema þetta píanó- verk, mér finnst ekki gott að vera með margt í gangi í einu. Ég klára þetta vonandi fyrir vorið, ætla að reyna það, en svo veit ég ekki hvað ég tek mérfyrirhendur. Hvort ég spili sjálf? Jú, ég spila á píanó en hef nú lítið æft mig undan- farinár. Það hefur bæði dökkar og ljósar hliðar að vera tónskáld, en ætli ég hafi ekki lúmskt gaman af því. Allavega sé ég síður en svo eftir því að hafa valið mér það hlutskipti þó að þetta sé þymum stráð braut og útilokað hér á landi að lifa á tónsmíðum einum saman. Það em, held ég, öll íslensk tónskáld í annarri vinnu. Svo er ein- kenni á tónlistarlífi hér á landi að tónlistarfólk er sífellt í sjálfboðaliða- starfi: Að skipuleggja tónleika, vinna Karólína Eiríksdóttir: „Mér finnst yfirleitt skemmtilegast að semja það sem ég er með í takinu hveiju sirrni." að útgáfu, kynningu erlendis og svo framvegis. Annars væri ekkert gert á þessum vettvangi, það er ekki miklum peningum varið til tónlistarstarfa á fslandi. Það er misjafht hvað ég hlusta mikið á tónlist. Stundum hlusta ég ekki neitt, verð að hvíla eyrað og hugann. En ég verð aldrei leið á tónlist. Uppá- haldstónskáld? Nei, ég get varla sagt að ég eigi neitt uppáhaldstónskáld, en gæti svo sem nefnt hann Mozart. Atli Heimiir Sveinsson tónskáld Hvað ég er að gera þessa dagana? Ýmislegt. Til dæmis er ég að reyna að setja saman litið kórverk, en það gengur ekki alltof vel. Maður verð- ur þá að halda áfram að vinna, - vinna svo mikið að stritið þurrkist burt úr verkinu og allt sem eftir situr sé eins og það hafi sprottið fram fyrirhafnarlaust, af sjálfu sér og fyrirhafnarlaust. Nú, svo er ég að lesa yfir ballett- inn Tímann og vatnið sem ég er búinn með. Þetta er tveggja tíma dansverk við ljóð Steins Steinars fyrir þrjá einsöngvara, kór og hljómsveit, - og svo auðvitað ís- lenska dansflokkinn. Verkið var samið fyrir Þjóðleikhúsið, ég var einu sinni á starfslaunum við að semja það í hálft ár. En síðan eru liðin nær tvö ár og uppsetning er ekki í sjónmáli svo ég viti. Þjóð- leikhússtjóri ber við peningaskorti og það kann að vera rétt. En það Ásgerður Búadóttir er ekki hægt að fá menn til að semja stór verk til að loka niðri í skrifborðskúffunni um aldur og ævi. Ég á stundum erfitt með að slíta mig frá verkum, það er endalaust hægt að fægja og betrumbæta smáatriði. Og ég hef eiginlega pakkað ballettinum niður. Svo er ég að leggja seinustu hönd á eins konar Ijóðasinfóníu: Nóttin á herðum okkar við ljóð eftir Jón Óskar. Það verk hefur verið lengi í deiglunni. Verkið er samið fyrir sópranrödd, altrödd og stóra hljómsveit. Svo er ég að undirbúa framtíðina: ný verk og stór, kannski sinfóníu, nýja óperu, einleikskonsert. Maður verður að sjá hvaða form hug- myndirnar velja sér. En ég vildi hafa meira næði og meiri tíma. Algjor miðaldatækni sem ég nota Ég er ekki að vinna að neinu sér- stöku verkefni, þó ég sé auðvitað alltaf að fást við eitthvað sérstakt. Ég vinn helst á hverjum degi, sem er svo sem ekki í frásögur færandi, laugardaga og sunnudaga ef svo ber undir. Þetta er nefnilega algjör miðaldatækni sem ég nota við myndvefnaðinn og það dugar ekki annað en að vera svolítið iðin ef á að sjást einhver árangur. Varðandi sýningar, þá tók ég þátt í samsýningu úti í Kaup- mannahöfn í janúar með Kolorist- erne. Það er þekktur listamanna- hópur sem sýnir árlega á Den Frie. Ég var að sýna með þeim í fimmta skipti núna og hef gert það svona annað hvert ár. Ég sýni með þeim sem nokkurs konar fastagestur. Eftir að þeir buðu mér í fyrsta skipti hef ég getað haft mína henti- semi með það hvenær ég vil vera með. Með sýningu hér heima er allt óráðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.