Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Blaðsíða 9
DV. DRIÐJUDAGUR 4. MARS1986.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Þjóðarhamwr
án skipaðrar
þjóðarsorgar
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
lngvar Carlsson, hinn nýi forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, hélt frétta-
mannafund í gær og vakti þá mikla
athygli, ekki síst útlendu frét.ta-
mannanna, fyrir mjög skýr og grein-
argóð svör, sama hvort spurt var á
sænsku, ensku eða þýsku..
„Opið þjóðfélag er forsenda lýð-
ræðisins," sagði hann aðspurður
hvort morðið á Palme mundi ekki
leiða til aukinnar öryggisgæslu og
lokaðra þjóðfélags. - „Ég er sama
sinnis og Olof Palme um að stjórn-
málamenn verði einnig að eiga sitt
Ingvar Carlsson, eftirmaður Olofs
Palme, umkringdur lífvörðum.
Segist sammála Palme: stjórn-
málamaður verður að fá að eiga
sitt einkalíf.
einkalíf í friði og geta hreyft sig án
þess að vera með lífverði stöðugt á
hælumsér."
Carlsson sagði að þó væri óhjá-
kvæmilegt að öryggisgæslan yrði
aukin svona fyrsta kastið eftir morð-
ið á Palrne.
Engin opinber þjóðarsorg hefur
verið boðuð af hálfu sænskra stjórn-
valda. Þau telja enga þörf á því, þar
sem þjóðarharmur ríkir þegar án
afskipta þess opinbera. Hins vegar
hafa stjórnvöld í þrem löndum, Arg-
entína, Nicaragua og Víetnam, lýst
yfirþjóðarsorg.
Palmes var minnst víða i gær og á
fjölmörgum vinnustöðum var vinna
lögð niður í fimm mínútur og Palmes
minnst með hljóðri stund.
Utför Palmes verður gerð 15. mars
og er búist við gífurlegum fjölda
þjóðarleiðtoga alls staðar að úr
heiminum. Hún verður ekki kirkju-
leg athöfn.
Prinsinn þarfekkiað betia
Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari
DV í Kaupmannahöfn:
Henrik prins, eiginmaður Margrét-
ar Danadrottningar, þarf ekki lengur
að „betla vasapeninga“ af konu
sinni, eins og hann orðaði það í fyrra
þegar hann viðraði óánægju sína
vfir því að vera launalaus sem prins.
Danska þingið sá sitt óvænna og
samþykkti viðbótartillögu við fjár-
lögin ’86, sm gengur út á að prins
Henrik fái sem nemi 10% af heild-
arfjárveitingu til dönsku hirðarinn-
ar, þannig að Henrik prins fær litlar
2,9 milljónir d.kr. i sinn hlut. Þannig
verður það framvegis.
Það var í blaðaviðtali í fyrra sem
prinsinn lét í ljós óánægju sína með
þá lítilsvirðingu sem honum þótti sér
sýnd með því að vera meðhöndlaður
eins og ófjárráða unglingur sem
þyrfti að rella sér eyðslufé af hús-
freyjurmi. - Danir brugðu við og
hófu sumir samskot í bauka sem
flestit létu eitthvað renna í en
kannski með skökku brosi á vör.
Norðurpóllinn
kvenmannsiaus
Fyrsta leiðangrinum til Norð-
urpólsins, sem eingöngu var
skipaður konum, hefur verið af-
lýst. Mjög slæm veðurskilyrði
með 40 gráða frosti bundu enda
á leiðangurinn. Konurnar höfðu
lagt af stað til pólsins frá Spitz-
bergen fyrir 12 dögum og var
gert ráð fyrir að leiðangurinn
tæki 100 daga. Nokkrar kvenn-
ana hafa þurft læknismeðferð
vegna kals.
Sýningarbanni
afíétt
Kvikmynd um líf Rolando Gal-
man, sem sagður var hafa myrt
Benigno Aquino, þáverandi
stjórnarandstöðuleiðtoga á
Filippseyjum, hefur nú aftur
verið tekin til sýninga á Filipps-
eyjum. Mynd var bönnuð af
stjórn Markosar sem sagði Gal-
man hafa myrt Aquino að undir-
lagi kommúnista. Fáir Filipps-
eyingar trúðu þessu og var al-
mennt álitið að hermenn stjórn-
arinnar hefðu skotið Aquino.
Verkfaiisátök
Til átaka kom á nokkrum stöð-
um á Norður-írlandi rneðan á
sólarhringsverkfalli mótmæl-
enda stóð. Verkfallsmenn réðust
að lögreglunni með grjótkasti,
kveikt var í bílum og rúður
brotnar. Sums staðar greip lög-
reglan til þess ráðs að skjóta
plastkúlum að ntannfjöldanum
' til að dreifa honum.
ILögreglan hefur verið harka-
lega gagnrýnd fyrir að halda ekki
opnum öllum vegum eins og lofað
hafði verið, til þess að gera þeim
kleift sem vildu að sækja vinnu.
EINNIG
&»£CLpÆL tZSB} YAIMIM TAY AWAB
VERKFÆRI
TJAKKAR HOSUKLEMMURIOLLUM STÆRÐUM
SKIÐABOGAR,
Vegna hagstæðra innkaupa erlendis frá getum við boðið mjög
hagstætt verð á LYDEX pústkerfum í flestar gerðir bifreiða.
KYNNTU ÞÉR OKKAR VERÐ ÁÐUR EN ÞÚ LEITAR ANNAÐ
HVER BYÐUR BETUR?