Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Blaðsíða 26
26
DV. I’RIÐJUDAGUR 4. MARS1986.
Utvarp
Sjónvarp
Kristbjörg Richter dagmamma:
Of mikið endursýnt
fyrir krakka
Bamatíminn var ágætur, krakkam-
ir hafa gaman af honum en of mikið
er um endursýningar. Það er
kannski sýnt sama efni tvisvar í
sömu vikunni. Það væri þá nær að
sýna gamla, góða þætti eins Línu
Langsokk sem vom sýndir þegar ég
var bam en krakkar nú hafa aldrei
séð. En annars er bamatíminn
ágætur að öðm leyti.
Fréttir eru að mínu mati komnar
í mannlegra horf og mér þykir mjög
til bóta að sjá í lok frétta hverjir
unnu að þeim, ég t.d. hefði ekki getað
ímyndað mér að það væm svona
margir með hvem fréttatíma. Ég
gleypi ekki alitaf allt sem er að
gerast, en morðið á Palme er agalegt.
Glæpimir em að færast meira og
meira í okkar lönd.
Mér líst ágætlega á Poppkorn og
yfirleitt það að meira er orðið af
íslensku efhi í sjónvarpinu, oftast
góðir þættir og eiga ömgglega eftir
að verða betri.
Ég sá enska þáttinn um konumar
sem fóm út í viðskipti um 1920 og
ég verð að segja að ég er fegin að
vera uppi í dag en ekki þá. Þetta var
ansi sterkt karlasamfélag sem mér
líst ekki á. Þessi mynd lýsti vel tíðar-
andanum og hún var vel ágætlega
leikin.
Sigríður Dúna stóð sig ágætlega
en ég get ekki sagt það sama um
spyrlana, það var á mörkunum að
þeir kynnu almenna mannasiði. Mér
finnst þetta of mikið af því góða, það
er allt í lagi að spyrja stjórnmála-
menn en það má ekki gleyma því
að J>eir eru manneskjur.
Eg heyrði lítið af útvarpsdag-
skránni í gær en ég held að útvarpið
sé nokkuð gott. Ég nefhi tvo þætti
sem ég heyrði í gær, morgunútvarp-
ið, mjög hressandi, og svo þátt sem
er milli hálftvö og tvö, viðtöl við
fólk sem er að einhverju leyti for-
dæmt. Það mætti vera meira af slík-
um viðtölum, t.d. við fanga, ég er
alfarið á móti fordómum gagnvart \
fólki.
Nú, sjónvarpið hefur batnað að
undanförnu, en mér fyndist að ætti
að sýna meira af góðum amerískum
þáttum, það er til meira en þessar
sápuóperur um ekki neitt. Það má
nefha t.d. Rætur og Gæfa og gjörvi-
leiki.
Björnlaug Marta Albertsdóttir lést
24. febrúar á sjúkrahúsinu á
Hvammstanga. Útförin fer fram frá
Hvammstangakirkju fimmtudaginn
6. mars kl. 14. Jarðsett verður að
Melstað.
Frú Sesselja Jóhannesdóttir lést 24.
febrúar sl. Foreldrar hennar voru
Vigdís Björnsdóttir og Jóhannes
Hannesson frá Akranesi. Sesselja
var fædd 19. mars 1907 og átti lengst
af heima á Óðinsgötu 20a. Útför
hennar verður gerð frá Fríkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 5. mars
kl. 15.
Þóra Tómasdóttir frá Barkarstöðum
lést 23. febrúar sl. Hún fæddist 2.
maí 1893. Foreldrar hennar voru
Tómas Sigurðsson og Margrét Ámá-
dóttir. Þóra giftist Magnúsi Hannes-
syni, en hann lést árið 1972. Þeim
hjónum varð ekki bama auðið. Útför
Þóru verður gerð frá Fossvogskirkju
ídagkl. 13.30.
Margrét Steinarsdóttir andaðist í
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 1. mars
sl. Minningarathöfn verður í Lang-
holtskirkju fimmtudaginn 6. mars kl.
13.30. Jarðsett verður frá Akureyrar-
kirkju laugardaginn 8. mars kl. 16.
Valgerður Halldórsdóttir frá Lundi,
Akranesi, síðast til heimilis að Dval-
arheimilinu Höfða, lést í sjúkrahúsi
Akraness 1. mars sl.
Aðalsteinn Skúlason, Hornstöðum,
andaðist á Vífilsstöðum 3. mars.
Ástvaldur Bjarnason, fv. skipstjóri,
Suðurgötu 30, Akranesi, lést í
sjúkrahúsi Akraness laugardaginn
1. mars sl.
Haraldur Pálmason, Grenimel 40,
Reykjavík, lést á Grensásdeild Borg-
arspítalans 15. febrúar sl. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Tómas Gíslason frá Melhóli í Með-
allandi, Reykjamörk 12, Hveragerði,
lést laugardaginn 1. rhars.
Fanney Björnsdóttir, Réttarholts-
vegi 1, sem lést 27. febrúar, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 6. mars kl. 10.30.
Magnús B. Magnússon, skósmíða-
meistari frá Isafirði, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu mið-
vikudaginn 5. mars kl. 15.
Útför Reynis Markússonar Strand,
Stigahlíð 22, Reykjavík, fer fram frá
Fossvogskapellu miðvikudaginn 5.
marskl. 13.30.
Snjólaug Sveinsdóttir, Mávanesi 25,
var jarðsungin í kyrrþey þann 28.
febrúar.
Janos Starker hjá Tónlistarfé-
laginu
I dag, þriðjudag 4. mars, kl. 20.30
mun Janos Starker, sellóleikari og
Alain Planes, píanóleikari halda
tónleika á vegum Tónlistarfélagsins
í Austurbæjarbíói. Janos Starker er
talinn með fremstu sellóleikurum í
heiminum í dag og enn er í fersku
minni heimsókn hans til íslands í
október 1983, er hann var einn á ferð.
Á efnisskrá í dag eru verk eftir
Couperin, Boccherini, Beethoven,
Cassadó, Debussy og Bartók. Lausa-
miðar verða seldir eingöngu við
innganginn.
Fundir
80 ára afmælisfagnaður kven-
félags Fríkirkjunnar í Reykjavík
verður haldinn á Hótel Sögu, Átt-
hagasal, þann 6. mars nk. Borðhald
hefst kl. 19.30. Aðgöngumiðar eru
seldir í versl. Brynju að Laugavegi
29. Vinsamlegastkaupið miða í dag.
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík
er með góukaffi og tískusýningu í
Drangey, Síðumúla 35, miðvikudag-
inn 5. mars kl. 20.30.
Ymislegt
Reglugerð um hækkun
bóta almannatrygginga
Heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra hefur í dag gefið út reglugerð
um hækkun bóta almannatrygginga.
Um er að ræða ákvörðun um 5%
hækkun allra bóta frá 1. mars 1986
frá því sem þær voru í febrúar.
Upphæðir einstakra bótaflokka
verða frá 1. mars 1986 sem hér segir:
kr.
Elli- og örorkulífeyrir 5.790
Hjónalífeyrir 10.421
Hálfur hjónalífeyrir 5.211
Full tekjutrygging einstakl. 8.484
Full tekjutrygging hjóna 14.342
Heimilisuppbót 2.552
Barnalífeyrir vegna 1 barns 3.545
Mæðralaun vegna 1 barns 2.222
Mærðalaun vegna 2 barna 5.821
Mæðralaun vegna 3 barna 10.326
Ekkjubætur 6 mánaða
og 8 ára 7.254
Ekkjubætur 12 mánaða 5.440
Fæðingarorlof 25.888
Vasapeningar samkv. 19. gr. 3.569
Vasapeningar samkv. 51. gr. 3.000
Sérstök lífeyrisuppbót, kr. 3.000.-,
verður greidd með aprílbótum, þeim
elli- og örorkulífeyrisþegum, sem
njóta óskertrar tekjutryggingar.
Þeir, sem njóta skertrar tekjutrygg-
ingar, fá hlutfallslega lægri lífeyris-
uppbót.
Með júníbótum verður greiddur
síðari hluti lífeyrisuppbótar, kr.
3000,-. Gefin verður út reglugerð um
þá greiðslu síðar svo og um hækkun
bóta 1. júní nk. í samræmi við ný-
gerðan kjarasamning ASÍ annars
vegar og VSÍ og VSS hins vegar.
Afmæli
70 ára afmæli á í dag, 4.mars, Bergur
V. Sigurðsson verkstjóri, Stafnesvegi
2, Sandgerði. Hann mun taka á móti
gestum laugardaginn 8. mars nk.
eftir kl. 19 í húsi Slysavarnafélagsins
<Si*«SflBí»í'Samlgerði.
Ný fyrirtæki
Jón Ingi Ólafsson, Laugavegi 142,
Reykjavík, og Jóna Sigríður Bjama-
dóttir, s.st., reka í Garðakaupstað
sameignarfélag undir nafninu Raf-
tengi sf. Tilgangur: alhliða rafverk-
takastarfsemi.
Kristján G. Ragnarsson, Hraunhálsi,
Helgafellssveit, rekur alhliða verk-
takastarfsemi á byggingarsviði að
Hraunhálsi, Helgafellssveit undir
nafninu Höfuð-verk Kristjáns Ragn-
arssonar.
Hlynur Þór Magnússon, Mennta-
skólanum á ísafirði, Sigríður Bjöms-
dóttir, Sundstræti 28, Isafirði, Smári
Haraldsson, Hlíðarvegi 3, ísafirði, og
Svavar Bragi Jónsson, Hafnarstræti
7, fsafirði, öll kennarar við Mennta-
skólann á ísafirði, reka sameignarfé-
lag þar í bænum undir nafninu Gull-
hóll sf. Tilgangur félagsins er greiða-
sala, gistiþjónusta og skyld starf-
semi, svo og lánastarfsemi.
Samningarnir
samþykktir
Kjarasamningar ASf og VSf vom
einróma samþykktir í Þorlákshöfh og
með einu mótatkvæði í Hveragerði nú
um helgina. f gærkvöldi vom þeir
síðan samþykktir á félagsfundi Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur með
117 atkvæðum gegn 12.
í dag hefur verið boðað til félags-
fundar í Iðju, félagi iðnverkafólks í
Reykjavík, og á morgun verða samn-
ingamir bomir undir félagsmenn í
Dagsbrún.
Búist er við að atkvæðagreiðslur
fari fram um kjarasamningana í flest-
um verkalýðsfélögum í þessari viku
og um næstu helgi.
-APH
Margrét Danadrottning. Verður hún
heiðursdoktor við H.f..
Danadrottning
heiðursdoktor
víð Háskólann?
„Það er verið að leita með logandi
ljósi að heiðursdoktorum, bæði innan
lands og utan. Háskólarektor hefur
beint þeim tilmælum til allra deilda
Háskólans að þær tilnefni hugsanlega
heiðursdoktora," sagði Júlíus Sólnes
prófessor í samtali við DV. Tilmæli
háskólarektors em tilkomin vegna 75
ára afmælis Háskóla íslands er haldið
verður hátíðlegt fyrstu tvær vikurnar
í október í ár.
Heimspekideild háskólans hefur lagt
til að Margrét Danadrottning verði
gerð að heiðursdoktor og hefur tillag-
an verið send háskólaráði til umsagn-
ar. Þá er ráðgert að væntanlegir heið-
ursdoktorar komi fram í sjónvarpi þar
sem heimsmálin verði rædd á breiðum
grundvelli. Er fyrirmyndin sótt til
hringborðsumræðna sem fram fara
meðal verðlaunahafa að lokinni veit-
ingu Nóbelsverðlauna.
-EIR
Þuríður L. Árnadóttir lést 24. febrúar
sl. Hún fæddist 4. september 1931.
Eftirlifandi eiginmaður hennar er
Júlíus Benediktsson. Þeim hjónum
varð fjögra bama auðið. Útför Þur-
íðar verður gerð frá Langholtskirkju
í dag kl. 13.30.
luiumnivju gtoou ma
Baráttufundur í tilefni alþjóö-
legs baráttudags kvenna
Konur efna til baráttufundar 8. mars
í tilefni alþjóðlegs baráttudags
kvenna. Nú á vordögum standa
konur einn ganginn enn frammi fyrir
því að hafa verið sviknar við gerð
kjarasamninga. Konur hafa fyllt og
fylla enn láglaunahópana. Nýgerðir
kjarasamningar breyta í engu þeim
veruleika að fjöldi kvenna nær ekki
að framfieyta sér þrátt fyrir meira
en fulla vinnu. Verkalýðsforystan og
ríkisstjórnin hafa með samningum
staðfest að svo skuli vera. Þessum
staðreyndum verðum við konur að
mótmæla. Konur, lýsum stríði á
hendur kvenfjandsamlegu samfélagi
og þeim sem þar ráða ríkjum. Fund-
urinn hefst með göngu fré Hljóm-
skálanum kl. 13.30. Gengið verður
fylktu liði á fundarstað í Hlaðvarp-
anum, Vesturgötu 3. Fundurinn hefst
kl. 14. Ræðumenn verða: Birna Þórð-
ardóttir skrifstofumaður, Björk Vil-
helmsdóttir nemi, Kristín Ölafsdóttir
félagsfræðingur. Upplestur, söngur
o.fl. Fundarstjóri: Guðrún Jónsdóttir
félagsráðgjafi. Konur, sýnum sam-
töðu mætum allar kýlum út
gmn.
Leit liggur niðri
á Breiðafirði
Leit að skipstjóra vélbátsins Áss
Re-112, sem sökk á Breiðafirði í gær-
morgun, mun að mestu liggja niðri í
dag.
„Varðskip er á svæðinu en þar er
ört versnandi veður. Ég er svartsýnn
á að varðskipið leiti mikið í dag,“ sagði
Sigurður Ámason, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni.
„Það er frekar ólíklegt að fjörur
verði gengnar í dag. Það verður þó
kannað," sagði Leifur Jónsson, svæð-
isstjóri Slysavarnafélagsins á Vestur-
landi.
„Slysið varð djúpt úti. Litlar líkur
eru á að nokkuð hafi rekið á land
ennþá. En það verður örugglega leitað
n,“ sagðiLeifur. -KMU