Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Hverá Garðastrætiskrógann? Stjórn Verkamannasambandsins hefur mótmælt þeim ummælum Steingríms Hermannssonar forsæt- isráðherra að hann hafi átt frum- kvæði að nýgerðum kjarasamning- um. Það sé tilhæfulaus pólitískur áróður því það rétta sé að frum- kvæðið hafi komið frá verkalýðs- samtökunum og vinnuveitendum. Bjami Guðnason, sem nú situr á Alþingi í íjarveru Jóns Baldvins Hannibalssonar, lýsti þessum þræt- um á gamansaman hátt á Alþingi í fyrradag. Hann sagði að fyrir nokkru hefði krangi nokkur fæðst í Garðastræti. Hann hefði verið fagur og vel skapaður. Allir hefðu síðan viljað eigna sér þennan hnokka, sem hefði verið muð gullna lokka og blíðleg augu. I Morgun- ■ blaðinu, sem stundum væri nefnt fréttablað Hvíta hússins, hefði fjár- málaráðherra verið sagður eiga hann. Ráðherra hefði með þessu sannað manndóm sinn, sem þó hefði verið nokkur fyrir. En fleiri vildu eigna sér krógann. Steingrímur hefði lýst því yfir á framsóknarþingi að hann ætti hann. Og ráðherra hefði sýnt mikla karlmennsku að koma honum í heiminn. En sagan er ekki öll. Þessi Garða- strætiskrógi hefði verið klæðalaus og berleggja. Þetta hefði runnið viðskiptaráðherra til rifja. Hann lét því bleiu á hnokkann. Fyrir það fékk hann ilmandi blómakörfu. Þá kom frétt frá aðilum vinnumarkað- arins þar sem sagt var að þeir ættu krógann. Það hefði sést til þeirra reikna út samninginn. Þeir sem eru með tekjur undir 35 þúsundum króna hafa hins vegar ekki viljað kannast við þetta bam. Það sé ekki þeirra barn því það sé með sultardropa í nefinu. Þessi hópur vonaði að þegar nýr krógi kæmi í heiminn, að ári liðnu, yrði hann ekki með sultardropa. Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra sagði að Bjarni hefði gleymt félaga sínum, Jóni Baldvini, í þessari upptalningu. Hann hefði nefnilega reynt að eigna sér þetta barn í Garðastræti líka, a.m.k. ein- hverj ar krullur úr hári þess. -APH Helgi Már í Mannlífi: Alþýðu- flokkurinn verður mið- stýrður ogsmár „Þeir sem gerðu ráð fyrir, eða von- uðust til, að Jón Baldvin myndi beita sér í þágu lýðræðisaflanna í þjóð- félaginu, sem hann hefur alla burði til að gera, hafa orðið fyrir vonbrigð- um með þróunina innan Alþýðu- flokksins," segir Helgi Már Arthurs- son í grein sem hann skrifar í tíma- ritið Mannlíf. Helgi Már hefur starfað í innsta hring Alþýðuflokksins. Hann segir einnig: „Jafnaðarmenn sem trúðu á drauminn um stóra, víðsýna, vald- dreifða flokkinn, verða að horfast í augu við, að frumkvæðið kemur ekki frá Alþýðuflokknum. Alþýðuflokkur- inn kann að eflast með því að hjakka í hjólfari smáflokksins, en hann verð- ur ekki stór. Hann verður miðstýrður og smár.“ Mannlíf kom í verslanir í gær. Neskaupstaður: Niðurstöður í prófkjöri Kristinn V. Jóhannsson var í efsta sæti í prófkjöri Alþýðubandalagsins í Neskaupstað sem fram fór um síð- ustu helgi. Kristinn skipaði fyrsta sæti í síðustu kosningum. Helstu breytingamar eru þær að Elma Guð- mundsdóttir, sem var í öðru sæti, féll niður í sjötta sæti í prófkjörinu. Kjörsókn var nokkuð góð. Alls kusu 169 eða 32 prósent miðað við síðustu kosningar. Kosið var um 22 sem gáfu kost á sér í níu efstu sætin. í öðm sæti varð Smári Geirsson, í þriðja Þórður M. Þórðarson, í fjórða Einar Már Sigurðarson, í fimmta Guðmundur Bjarnason, í sjötta Elma Guðmundsdóttir, í sjöunda Guðrún Sigurðardóttir, í áttunda Sigrún Geirsdóttir og í níunda sæti Steinunn Aðalgteinsdóttir. í fimm efstu sætunum er Einar Már Sigurðarson nýr á lista. Alþýðu- bandalagið á nú fimm fulltrúa í bæj- arstjórn og hefur meirihluta þar. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur hafa tvo fulltrúa hvor. -APH Framsókn áSel- tjamarnesi Framboðslisti framsóknarmanna á Seltjarnarnesi hefur verið ákveðinn. Efsta sætið skipar Guðmundur Einarsson forstjóri og eini núverandi fulltrúi flokksins í bæjarstjóm. Ásdís Sigurðardóttir skipar annað sætið, Karl Óskar Hjaltasort það þriðja, Ásta Sveinbjamardóttir fjórða og Ema Kolbeinsdóttir það fimmta. 19 IMISSAIM Nissan Mid 4 Sýnum framtíðarbíl Nissan verksmiðjanna laugardag og sunnudag kl. 14-17 og næstu daga. Síðan verður þessi fullkomnasti sportbíll í heimi sendur aftur utan á alþjóð- legar bílasýningar. Allt er þegar fernt er. fjórhjéladrif Q órhj ©lastýring fjórir yfirliggjandi knastásar fjórir ventlar á hvern strokk, alls 24 ventlaar Notið þetta einstaka tækifæri að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. INGVAR HELGASON HF Sýningarsalurinn/Rauöagerði, simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.