Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÖSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverðá mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Ráðherra færblóm Því miður er ekki oft sem ráðherra verðskuldar lof. Það gerðist þó nú í vikunni, að stjórnmálaandstæðingar færðu Matthíasi Bjarnasyni blóm niður í þinghús. Tveir alþýðubandalagsmenn og tveir alþýðuflokksmenn létu taka mynd af sér með ráðherranum af þessu tilefni. Þetta var vegna baráttu ráðherrans við verðhækkanir. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins, sagðist vona, að ráðherrann beitti sér áfram af sama þunga og með sama árangri á þessu sviði. Margt orkar tvímælis í ráðherrastarfi Matthíasar Bjarnasonar. En nú kom hann fram fyrir hönd neytenda. Bankarnir höfðu hækkað þjónustugjöld sín verulega. Almenningur borgaði brúsann. Bankastjórar sögðu, að þessar hækkanir hefðu dregizt, þær væru rökréttar. Þær voru þó ekki í anda nýgerðra kjarasamninga. Sam- kvæmt samningunum á verð á ýmsu að fara lækkandi og annað verð að hækka lítið. Hækkun bankanna kom á óheppilegum tíma. Hún vó nokkuð þungt hjá sumum viðskiptavinum þeirra. Ráðherrann tók sig þá til, mót- mælti þessum hækkunum og hótaði jafnvel að stöðva þær með lögum, gengi ekki öðruvísi. Því fór svo, að bankarnir drógu hækkanirnar til baka. Ráðherrann fékk blómin fyrir þetta afrek. Hann lét ekki deigan síga heldur snerist einnig gegn fyrirhugaðri fargjaldahækkun Flugleiða. Niðurstaða þess máls var samkomulag í fyrradag þess efnis, að engar hækkanir yrðu á fargjödum Flugleiða, sem seld eru innanlands, með ákveðinni undantekningu þó. Farmiðar, sem keypt- ir eru erlendis, hækka hins vegar um 3 prósent að meðaltali í samræmi við hækkanir á alþjóðamarkaði. Matthías Bjarnason hefur þannig tekið forystu í baráttu gegn verðhækkunum í þessum efnurn. Vonandi lætur hann ekki þar við sitja. Á þingfundi á þriðjudag bað Guðmundur J. Guðmundsson ráðherrann að segja tryggingamálaráðherra, sem var íjarverandi, að enn ^ væri eftir hlutur þess ráðherra. Eðlilegast er, að verðmyndun sé frjáls. En það er því aðeins mögulegt, að seljendur geti ekki haft samráð um hækkanir. Bifreiðatryggingafélögin höfðu hækkað iðgjöld ábyrgðartrygginga um 22 prósent. Þetta gerðist strax í kjölfar kjarasamninga, var mjög óheppilegt og um samráð félaganna var að ræða, sem varla stenzt sam- kvæmt lögum um verðlag, samkeppni og ólögmæta viðskiptahætti. Því var rétt að snúast gegn þessum hækkunum. Matthías Bjarnason ráðherra hafði þó ekki forystu um að keyra þessar hækkanir til baka, enda falla þær ekki undir hann. Svo fór, að þungi andstöðunnar var nægur til að hrekja tryggingafélögin til nokkurs undan- halds, þótt lítið væri. Verðlagsnefnd Alþýðusambandsins hafði átt árang- urslaus viðtöl við Tryggingaeftirlit ríkisins og trygg- ingaráðuneytið. Þá sneri nefndin sér beint til trygginga- félaganna sjálfra með ósk um, að þau tækju hækkun trygginganna til endurskoðunar. Það bar þann árangur, að hækkun ábyrgðartryggingar var höfð 19 prósent í stað 22ja. Vel er, að fyrir atorku nokkurra manna hefur tekizt að draga úr þeim hækkunum, sem seljendur þjónustu stefndu að í kjölfar kjarasamninganna. Samningamir verða ella ómerkilegt pappírsgagn. Ríkisstjóm gegn samneyslu Margir hægrimenn telja ríkisum- svif af hvaða tagi sem er af hinu illa. Vinstrimenn leggja hins vegar áherslu á samneyslu sem tæki til að jafna aðstöðu fólks og efla menningarstarfsemi. Ef litið er á stefnu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar að þessu leyti hefur hún staðið sig vel á mælikvarða hægrimanna en afar illa í augum vinstrimanna. Þetta er ójafnaðarstjóm nánast hvar sem á verk hennar er litið. Látum tölur koma í stað orða. Ég lagði fyrr í vetur fram fyrir- spurn á Alþingi til Þorsteins Páls- sonar fjármálaráðherra um fram- lög ríkissjóðs til opinberra fram- kvæmda árin 1982-1986. Svar fjár- málaráðherra liggur nú fyrir og eru helstu atriði þess birt í tveimur töflum með þessari grein. Ríkisframlög 110% hærri 1983 I töflu I kemur fram hversu gífur- legur samdrátturinn er í framlög- um ríkissjóðs til opinberra fram- kvæmda í tíð núverandi ríkis- stjómar. Miðað við reikninga árs- ins 1982 og fjárlög 1986 þyrftu heildarframlög til opinberra fram- kvæmda að hækka um 57% og um hvorki meira né minna en 110% borið saman við niðurstöður ársins 1983, þ.e. síðustu fjárlög fyrri stjómar. Niðurskurður af þessu tagi er a.m.k. Evrópumet, þann- ig að afrek Thatcherstjómarinnar í Bretlandi blikna í samanburði við hægristefnu Steingríms Her- mannssonar og Alberts Guð- mundssonar. Á sama tíma og fjárveitingar til opinberra framkvæmda em saxað- ar niður ár frá ári hafa ríkisút- gjöldin í heild vaxið og skatt- byrði á launafólk síður en svo minnkað. Hins vegar hefur rík- isstjórnin og þingmeirihluti hennar létt sköttum af atvinnu- rekstri svo um munar. Ragnar Arnalds upplýsti nýlega á Alþingi að rúmur helmingur fyrirtækja í landinumeð meira en hálfrar millj- ón króna veltu á ári greiddi engan tekjuskatt, þ.e. 1968 fyrirtæki. Hin fyrirtækin, 1922 talsins, greiddu samtals aðeins 700 milljónir króna í tekjuskatt árið 1984 af 136 millj- arða króna veltu! Á sama tíma greiddu launamenn um 2100 millj- ónir króna í tekjuskatt til ríkisins. Grunnskólar: 150 milljóna niðurskurður Á hverjum bitnar svo þessi niður- skurður á framkvæmdafé? Sumir kunna að halda að hér sé einkum um að ræða þarflausar fram- kvæmdir og meira og minna ranga fjárfestingu. Við skulum því skyggnast í upplýsingar Þorsteins Pálssonar fjármálaráðherra eins og þær birtast okkur í töflu II, þar sem allar tölur eru færðar til sama verðlags. Þar er sundurliðuð skrá yfir átta Kjallarinn HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON, ÞINGMAÐUR FYRIR ALÞÝÐUBANDALAGIÐ framkvæmdaflokka og ég hef lagt saman heildarfjárveitingar til þeirra á hverju ári. Eins og lesa má út úr töflunni er á árinu 1986 varið 548 milljón krónum lægri fjárhæð til þessara málaflokka í heild samkvæmt fjárlögum en árið 1982 og 637 milljón krónum lægri upphæð miðað við árið 1983. Framlögin hefðu þurft að hækka um 94% í ár til að ná fram- kvæmdamagni ársins 1983. Menn skulu hafa í huga að hér er um jafngildar krónur að ræða. Samdrátturinn milli áranna 1983 og 1986 er eftirfarandi i einstökum málaflokkum: Landsbyggðin harðast úti Þetta er næsta ótrúlegur listi en kemur mönnum ekki á óvart víða um land. Vissulega bitnar þessi samdráttur á landsmönnum öllum; nemendum og kennurum í skólum, foreldrum bama, sjúklingum og starfsliði heilbrigðisstofnana, sjó- mönnum og farmönnum, flug- mönnum og farþegum. Ótvírætt verður þó lands- byggðin harðar úti en höfuð- borgarsvæðið á flestum sviðum í þessum niðurskurði og verst þeir staðir sem skemmst eru á veg komnir með uppbyggingu. Ofangreindar tölur segja raunar ekki alla sögu því að drjúgur hluti af framlögum yfirstandandi árs fer upp í skuldagreiðslur vegna fram- kvæmda sem unnar voru á fyrri árum. Hafnarmálin verða þannig mun harðar úti en hér kemur fram. Til ráðstöfunar í framkvæmdir við hafnir á öllu landinu eru í reynd aðeins um 25 milljónir króna. Sums staðar ríkir neyðarástand í hafnarmálum þar sem ekki er einu sinni unnt að halda við mannvirkj- um. Á Eskifirði er t.d. löndunar- bryggjan við loðnuverksmiðjuna að hrynja saman en við fjárlaga- gerð var ekki hægt að fá krónu úr ríkissjóði til úrbóta. Þó var á Eski- firði landað ámóta miklum sjávar- afla í fyrra og í Reykjavík og Hafn- arfirði til samans. Þannig eru áherslur þeirrar rík- isstjómar sem fékk fæðingarvott- orð sitt frá Verslunarráði Islands. Finnst mönnum ekki kominn tími til að efna í útförina fyrir þá stefnu sem þegar hefur getið af sér ófá minnismerki í bönkum og verslun- arhöllum á meðan undirstöður samfélagsins fúna? Hjörleifur Guttormsson Tafla I Framlög ríkissjóðs til opinberra framkvæmda nema alls eftirtöldum fjárhæðum (í þús. kr.): Verölag hvers árs Verólag miöaö viö fjárlög 1986 Visitala (1986 = 100) Reikningur 1982 1 156 172 4 038 697 157 Reikningur 1983 2 633 505 5 405 894 210 Reikningur 1984 2 249 671 3 783 706 147 Reikningur 1985 2 323 354 2 973 864 115 Fjárlög1986 2 578 485 2 578 485 100 Tafla II Framlög til einstakra liða á verðlagi fjárlaga 1986 nema eftirfar- andi fjárhæðum (i þús. kr.): Samdráttur M/kr. hlutfallsleg lækkun Mennta- og fjölbrautaskólar 71 57% Héraðsskólar 6 35% Bygging grunnskóla 151 56% Dagvistarheimili 15 27% Bygging íþróttamannvirkja 0 0 Bygging sjúkrahúsa 140 37% Hafnarmannvirki og lendingarbætur 164 58% Framkvæmdir á flugvöllum 90 59% Reikningur 1982 Reikningur 1983 Reikningur 1984 Reikningur Fjárlög 1985 1986 Mennta- og fjölbrautaskólar 123 543 125 467 121 152 72 127 54 700 Héraðsskólar . 23 247 17 054 13 205 18 560 11 000 Bygging grunnskóla 218 679 271 142 207 450 224 085 120 345 Dagvistarheimili 49 254 55 412 53 215 44 673 40 000 Bygging íþróttamannvirkja 33 426 31 602 34 479 40 140 31 650 Bygging sjúkrahúsa 403 659 380 389 296 957 326 063 240 610 Hafnarmannvirki og lendingarbætur 271 761 282 370 271 989 157 500 118 322 Framkvæmdir á flugvöllum 103 136 151 786 107 199 81 919 61 000 Allsm.kr. 1226,7 1315,2 1105,6 965,4 677,6 Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.