Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Side 19
DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986.
31
óttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ribe kemur til
íslands í apríl
- mun að ollum líkindum leika þrjá leiki í lok mánaðarins
Danska handknattleiksliðið Ribe,
með Islendingana Gunnar Gunnars-
son og Gísla Felix Bjarnason innan-
borðs, mun koma í keppnisferðalag
til Islands í lok næsta mánaðar.
Reyndar er óvíst hvort Gísli getur
leikið með liðinu því hann á við
meiðsli að stríða.
Forsaga málsins er sú að bærinn
Ribe verðlaunar árlega þá aðila sem
best hafa kynnt borgina út á við. Á
síðasta ári var engin spurning um
það hverjum hefði tekist það best.
Handknattleikslið Ribe vann 2.
deildina örugglega og hefur staðið
sig vel það sem af er þessu keppnis-
tímabili í 1. deild. Bærinn verðlaun-
aði þvi félagið og stjórn þess ákvað
að láta leikmenn njóta góðs af
styrknum. íslandsferð reyndist vera
efst á óskalista leikmanna.
Félagið setti sig í samband við
Sigurð Svavarsson hjá handknatt-
leiksdeild Fram en Fram lék við Ribe
í æíingaferð félagsins síðastliðið
haust.
Þjálfari Riþe er enginn annar en
Anders Dahl Nielsen, fyrrum lands-
liðsfyrirliði Dana. Hann þjálfaði KR
hér um árið við góðan orðstír og mun
upphaflega hafa átt hugmyndina að
förinni hingað. Mikill áhugi er hjá
leikmönnum liðsins að leika við KR,
en allt er í lausu lofti enn hvort eitt-
hvað verður af leik liðanna.
„Það hefur ekki enn verið gengið
frá því við hverja Ribe leikur. Hug-
myndir eru uppi um það að láta liðið
leika við Reykjavíkurúrvalið og ef
til vill að liðið fari eitthvað út á land
og leiki. Ennþá hefur þó ekkert verið
frá því gengið. Þá er það einnig inni
í dæminu að flétta komu liðsins eitt-
hvað við bikarúrslitin er verða á
svipuðum tíma,“ sagði Sigurður.
Þau handknattleiksfélög er áhuga
hefðu á að leika við Ribe geta samið
um það við Sigurð. Liðið keihur
hingað til lands þann 25. apríl og
mun dveljast hér á landi í viku. -fros
ii er hann tróð tveimur boltum í einu.
DV-mynd Brynjar Gauti
\a nn
fuknattleik með tíu stiga
rifin í troðslukeppninni
Olafur Jónsson og Björn Jóhannsson
háðu skotkeppni sín á milli og
íþróttafréttamenn léku við stjörnu-
lið skipað Eiríki Haukssyni stór-
söngvara og fleiri seigum köppum.
-fros
FÆR MARCO
VAN BASTEN
GULLSKÓINN?
Hollendingurinn hefur skorað 34 mörk í 22 leikjum
með Ajax. Real Madrid að stinga af?
Allt útlit er nú fyrir að Hollending-
urinn Van Basten, sem leikur með
Ajax, hreppi gullskóinn eftirsótta
sem franska knattspyrnutímaritið
France Football og ADIDAS veita
þeim leikmanni í evrópskri knatt-
spyrnu sem skorar flest mörk. Bast-
en hefur skorað 34 mörk í 22 leikjum
með Ajax og um síðustu helgi skoraði
hann eitt mark fyrir lið sitt.
Sovétmaðurinn Protassov, sem
leikur með Dniepr, skoraði 35 mörk ■
í 34 leikjum með liði sínu en keppnis-
tímabilinu í Sovétríkjunum er lokið.
Van Basten hefur því alla möguleika
á að komast upp fyrir Sovétmanninn
því nokkrar umferðir eru enn eftir í
Hollandi. Næstur á eftir þeim Prot-
assov og Basten kemur Belgíumað-
urinn Van der Berg, sem leikur með
Anderlecht, en hann hefur skorað
25 mörk í 29 leikjum. Gary Lineker,
Everton, kemur næstur með 24 mörk
í 34 leikjum.
Real Madrid að stinga af?
í keppni félagsliða er spænska liðið
Real Madrid í efsta sæti með tveggja
stiga forskot, hefur 16 stig en Juvent-
us frá Ítalíu er í öðru sæti með 14
stig. Paris St. Germain frá Frakk-
landi er með 13 stig, Werder Bremen,
Þýskalandi, og PSV Eindhoven,
Hollandi, með 12 stig og Stuttgart,
Nantes, Manchester United og Barc-
elona eru öll með 11 stig. -SK
Hanna Mjöll
vann tvöfalt
-á bikarmótin SKÍ í unglingaflokki
ieð miklum tilþrifum.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Bikarmót í unglingaflokki 13 til 14
ára var haldið á Dalvík um siðustu
helgi. Úrslit urðu þessi:
Svig drengja:
sek.
1. Arnar Bragason. Húsavík 77,19
2. Jóhannes Baldursson, Akureyri 77,39
3. Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri 78,55
4. Jón Áki Bjarnason, Dalvík 79,30
5. Kristinn Björnsson, Ólafsfirði 79,44
Stórsvig stúlkna:
11. Hanna Mjöll Ólafsdóttir, ísaf. 102,68
2. Sara Halldórsdóttir, ísaf. 104,13
3. María Magnúsdóttir, Akureyri 105,15
4. Ása Þrastardóttir, Akureyri 106,51
5. Erna Káradóttir, Akureyri 109,14
Stórsvig drengja:
1. Jóhannes Baldursson, Ákureyri 94,76
2. Jón Ólafur Árnason, ísaf. 95,73
3. Magnús Karlsson, Akureyri 98,23
4. Kristinn Björnsson, Ólafsfirði 98,71
5. Bjarni Jóhannsson, Dalvík 98,77
Svig stúlkna:
1. Hanna Mjöll Ólafsdóttir, Isaf. 89,48
2. Anna fris Sigurðard., Húsavík 98,68
3. María Magnúsdóttir, Akureyri 91,14
4. Jóna Linda Sævarsdóttir 92,28
5. Margrét Rúnarsdóttir , ísaf. 93,03
• Anders Dahl. Góðar minningar frá
íslandi.
íslands-
meistarar
kiýndir
í kvöld?
-er Þróttur mætir ÍS
Síðari úrslitaleikur Þróttar og ÍS
um íslandsmeistaratitilinn í blaki
karla verður í Hagaskóla í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 19.
Liðin léku fyrri úrslitaleikinn fyrir
viku. Þróttur sigraði þá, 3-1. Sömu
úrslit urðu i bikarúrslitaleiknum í
fyrrakvöld.
Sigri Þróttur í kvöld er liðið ís-
landsmeistari sjötta árið i röð. Sigri
ÍS verða liðin að mætast aftur.
-KMU
Gapozvann
stórsvigið
- í heimsbikarnum
Svisslendingurinn Joel Gapoz
tryggði sér heimsbikarinn í stórsvigi
er hann sigraði á móti í Lake Placid
í Bandaríkjunum í fyrrakvöld. Ro-
bert Erlacher frá ítaliu varð annar
og Svíinn Ingemar Stenmark, sem
flestir álitu sigurstranglegastan,
lenti í þriðja sæti. .fr0s
Sovét gaf eftir
- og Englendingar og Sovétmenn leika landsleik
í knattspyrnu á miðvikudag
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, blaða-
manni DV í Englandi:
Nú er ljóst að Englendingar leika
landsleik í knattspyrnu gegn Sovét-
mönnum í Tiblisi næsta miðvikudag.
Nokkur kergja hefur verið í sam-
skiptum Englendinga og Sovét-
manna undanfarið vegna þess að
Sovétmenn vildu að Englendingar
millilentu í Moskvu. Það vildu
enskir ekki.
Englendingar gáfu Sovétmörmum
frest til hádegis í gær til að leysa
þessa deilu og tveimur mínútum fyrir
tólf í gær barst loks skeyti frá sov-
éska knattspyrnusambandinu þar
sem lögð var blessun yfir beint flug
enska landsliðsins til Tiblisi. Málið
er því leyst og þjóðirnar munu
mætast á miðvikudaginn. -SK
:" ?!
• Terry Venables.
-hann hættírhjá
Barcelonaíjúní
I yfirlýsingu, sem forráðamenn
spænska knattspyrnufélagsins
Barcelona gáfu út i gær, kom fram
að þjálfari Iiðsins, Englendingurinn
Terry Venables, hefði sagt upp störf-
um hjá félaginu 28. febrúar síðastlið-
inn. Venables hættir hjá félaginu í
júni.
Forráðamenn Barcelona sögðu í
gær að V enables hætti af persónuleg- ^ _
um ástæðum. Þeir sögðu ennfremur
að þeir heföu óskað eftir því við
Venables að hann þjálfaði lið Barce-
Iona í tvö ár til viðbótar og að þeir
teldu hann besta knattspymuþjálf-
araíheimiídag.
Rætt hefur verið um þann mögu-
leika að Venables taki við fram-
kvæmdastjórastöðunni hjá Totten-
ham Hotspur en slíkt hefur ekki
verið staðfest. Forráðamenn Totten-
ham sögðu í gær.að ekki væri tíma-
bært að ræða þessi mál enn sem
komið væri. Þess má geta að Terry ' '
Venables var um tíma leikmaður hjá
Tottenham. -SK
- hjá ÍBR á morgun
Fyrsta aukaþing íþróttabandalags
Reykjavíkur i 41 ár verður haldið á
morgun að Hótel Esju.
Ástæðan fyrir því að til aukaþings
er boðað að þessu sinni er sú, að ^
forystumenn iþróttamála i Reykjavik
töldu þörf á að ræða innra skipulag
og starfshætti bandalagsins og leggja
drög að framtiðarstefnu íþróttamála
í Reykjavík. Á þinginu verður einnig
rætt um samstarf íþróttahreyfingar-
innar(félaganna) og borgai-vfirvalda.
-SK
Tennismót í
Digranesi
Tennisdeild ÍK heldur tvö tennis-
mót i tvíliðaleik um páskana, annars
vegar opið tvíliðaleiksmót ÍK og hins
vegar FYRIRTÆKJAKEPPNI, en þar '
gildir sú regla að tveir a-menn mega
ekkileikasaman.
Keppni fer fram í íþróttahúsinu
Digranesi dagana 27., 29. og 31 mars.
Þátttöku í bæði mótin skal tilkynna
fyrir kl. 20 þriðjudaginn 25. mars í
eftirtalin simanúmer: 45991 (Guðný),
41019 (Einar) eða 42542 (Amar). Nán-
ari upplýsingar um mótin fást einnig
í þessum símum.
KRANKL
ATOPP-10
Hans Krankl, knattspyrnumaður-
inn marksækni, sem leikur nú með
2. deildar liðinu Vín í Austurríki,
hefur sýnt á sér nýja hlið.
Krankl söng inn á litla plötu sem
náð hefur inn á topp-tíu í Austurríki.
Hann söng þar gamalt lag Paul
Anka, Lonely Boy.